Þjóðviljinn - 21.05.1944, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 21.05.1944, Blaðsíða 7
ÞiÖ®VILJINN 7 Sunnudagur 21. maí 1944. Halvor Floden: PMYLLIS BeNTLEY: ARFUR ÞEGAR ÉG VAR TÖFRAMAÐUR. ekki fara með hana eins og gömlu hrífuna. Þá var mér sama hvað aðrir sögðu. Þegar ég var háttaður um kvöldið, kom mamma til að bjóða mér góða nótt. Það var langt síðan ég hafði lagt hendurnar um hálsinn á mömmu. Mér fannst ég eigin- lega orðinn of stór til þess. En nú gerði ég það. Mamma horfði á mig. „Ætlaðirðu að segja eitthvað“, spurði hún. „Nei, það var svo sem ekkert“. „Segðu mér það, ef þig langar til“, sagði mamma. „Eg var ekki að bera hrífuna á nefinu, þegar ég braut hana“. „Jæja. Hvernig brotnaði hún þá?“ „Eg — ég lamdi frosk með henni — og hún brotnaði“. „Er þetta satt, Halli? Ertu ekki hættur að vera vond- ur við froskana? Það er ljótt“. Eg fór að gráta. „En — mamma, ég hef aldrei gerf það.síðan. Er ég afskaplega vondur?“ „Nei, ég hugsa að þú sért ekki afskaplega vondur, fyrst þú ert hættur því“, sagði mamma og breiddi ofan á mig. Það var dimmt inni, en mér fannst glaða sólskin í kringum mig. Eg var svo glaður. KARTAFLAN OG KRAKKARNIR HENNAR (Lauslega þýtt) Stór og ljót kartafla lá í kjallaranum innan um allar hinar, sem voru fínar og fallegar. Þegar einhver kom niður í kjallarann til að sækja kart- öflur, fleygði hann ljótu kartöflunni til hliðar og þá hlógu hinar kartöflurnar, sem voru vel vaxnar og þunnklædd- ar. Ritarinn tók enn til nuHs: j „Jonatan Bamforth! Þér hafið heyrt úrskurð réttarins. Getið þér borið fram einhver fullgild mót- mæli gegn því, að rétturinn hefur dæmt yður til dauða?“ „Ekki sekur“, svaraði Joe ró- j lega. „Lygari!" hugsaði Will. Dómarinn ávarpaði nú fangana hátíðlega og Will hlýddi óþolin- j móður á langa prédikun um hve 1 óguðlegt það væri. að drýgja morð | og sverja óleyfilega eiða. Loks hljómaði sá boðskapur, sem Will beið eftir með óþreyju: „Því dæmist rétt að vera, að þið þrír fangar verðið liéðan flutþ- ir til sarna staðar og þið komuð frá, og þaðan færðir til aftökustað- arins næstkomandi föstudag, þar sem þér verðið hengdir. Lík yðar skulu samkvæmt landslögum af- hendast sáralæknum til rannsókn- ar. Guð veri sál yðar náðugur“. Snemma morguns í hörku frosti voru fangarnir leiddir út úr klefa sínum. Þeir gengu i röð út að fang- elsisdyrunum og fóthlekkir þeirra glömruðu við gólfið. Þeim var sagt að nema staðar í dyrunum. Varð- mennirnir biðu einhvers yfirmanns. ! Þeir viku frá um stund og létu fangana afskiptalausa. „Jæja, félagar“, sagði Thorpe glaðlega. „Nú er þessu loksins lok- ið“. „Já, því er lokið", svaraði Joe „Dramb er falli næst“, sagði ljóta kartaflan. „Það fer illa fyrir ykkur, en ég gæti bezt trúað að eitthvað merki- legt eigi eftir að koma fyrir mig“. rólega. Joe var þó engan veginn ótta- laus. Hann var ekki hræddur við dauðann, heldur hitt, að sig brysti þrek. Iíann langaði til að sýna öll- um, að óbreyttur verkamaður frá A. : Hvað þýðir orðið eilífð? B. : Það er eftir því, hver seg- ir það. Á máli elskenda þýðir það þrír mánuðir. Á máli móður- sjúkrar konu þýðir það fimm mínútur. Og í ræðu prestsins hefur það enga þýðingu. Einstöku menn hafa á síðari tímum tekið sér fyrir hendur að leita þeirra fjársjóða, sem sögur fara af að sjóræningjar fyrri alda hafi falið í Vestur- Indíum og víðar þar um slóðir. Amerískur ævintýramaður að nafni Brown, leitaði með þraut seigju og þolinmæði í fimmtán ár að gulli og gersemum, sem hann þóttist vita að væru fólgn ar á strönd eyjarinnar Isle of Pines. Á kvöldin var hann van- ur að ganga niður að sjónum og sitja á ryðgaðri fallbyssu, sem komin var hálf í jörð. Seinast dó hann úr malaríu, vonbrigðum og ÞETEA drykkjuskap. Nokkru eftir að hann var dauður átti annar mað ur ferð um ströndina. Hann sá gömlu fallbyssuna og honum þótti það undarlegt að kalki var troðið í byssuhlaupið. Hann braut byssuna og þar fann hann fjársjóðinn, sem gamli maður- inn hafði lifað og dáið fyrir, en aldrei fundið. Amerísk kona kom til málara í París og bað hann að mála mynd af sér. En hún sagði, að myndin yrði að vera svo lík, að hundurinn sinn þekkti hana, annars neitaði hún að borga hana. Listamaðurinn var ekki ráðalaus. Hann málaði myndina og bar á hana kjötflot. Þegar konan kom, til að sækja hana, hafði hún hundinn með sér og henni til mikillar ánægju hljóp hundurinn strax að myndinni og sleikti hana. Iredalnum gæti orðið vel og drengi- lega við dauða sínum, eins og hetj- ur sögunnar. „Nú er úti um allt", stundi Mellor í örvæntingu. „Það tekur því ekki að setja það fyrir sig. Við getum alveg eins dáið hlæjandi, úr því ekki verður hjá því komizt“, sagði Thorpe. „Þú átt ekki konu og börn“. „Blessaður farðu ekki að ræða um það“, sagði Thorpe i aðvörun- artón. „Þá verðurðu veikur eins og í nótt — og nú duga engar bænir'*. Mellor sneri sér að Joe með tár- in í augunm. „Það vár mér að kenna, að þú lentir í þessu. Viltu fyrirgefa mér?“ Joe féll illa að hlusta á þetta. Ilann vildi heldur hafa það á til- finningunniy að hann gengi út í dauðann af frjálsum vilja. Að vísu hafði hann ekki skotið á Oldroyd og aldrei ætlað sér það. Hann hafði líka reynt að fá hina til að hætta við það. Frá lagalegu sjón- armiði var hann saklaus. Hann hefði getað varið sig og verið sýkn- aður. En hann kaus heldur að fylgja félögum sínum í dauðann. Hann hafði gengið í hreyfingu þeirra vegna málefnis, sem hann taldi vera rétt, og fyrir þennan málstað treysti hann sér til að deyja. „Vertu rólegur. Georg“, sagði hann vingjarnlega. „Við höfum verið nágrannar í mörg ár. Ég er fús til að deyja með þér og Tom“. „Það gleður mig, að Ben Walker er ekki hér“, sagði Thorpe. „Það segi ég með þér“, sögðu báðir hinir. Varðmennirnir voru á leiðinni til þeirra. „Þá er það búið". sagði Thorpe blátt áfram. „Við skulum takast í hendur, áður en við skiljum“, sagði Mellor. Þeir réttu hver öðrum hlekkjaðar hendurnar. Mellor hélt- áfram: „Það var slæmt að við skyldum neyðast til að myrða Oldroyd. Hann var í rauninni bezti karl. En hann var að berjast fyrir hagsmunum sínum og við fyrir okkar". 1 sama bili komu hermennirnir, opnuðu fangelsishliðið og gáfu föngunum skipun um að halda á- fram. Hermenn gengu í röðum til beggja handa. Joe varð hressari. þegar hann kom út og kalt loftið lék um andlit hans og háls. Og honum óx kjarkur, þegar hann sá mannfjöldann. Þeir voru innan skamms komnir á áfangastaðinn. Joe hafði aldrei séð gálga fyrr, en horfði rólega á hann. Hvað þetta var undarlegt! Eftir tvær mínútur yrði hann dáinn. í dag var föstu- dagur, á morgun laugardagur. En hann átti ekki eftir að sjá laugar- dag framar. Mellor var leiddur burt. Hann leit á félaga sína í síðasta sinn. Hermaður hvíslaði einhverju að honum og Mellor hrópaði: „Séu einhverjir fjandmenn mín- ir staddir hér. fyrirgef ég þeim og vona að þeir fyrirgefi mér“. Joe leit i aðra átt til þess að sjá ekki það sem fram fór. Hann sá Ouscfljótið. Það var grátt og kuldalegt. En vatn Irefljótsins rann í því og meir að segja vatnið úi' læknum frá Scape Scare — það var eins og kveðja að heiman. Röðin var koniin að Thorpe. I Hann kallaði hárri, glaðlegri röddu: ! „Félagar. Ég vona, að þið lend- ið aldrei í mínum sporum". Joe Ieit vfir mannfjöldann. Hann var að reyna að koma auga á ljóst hár Wille og ávalan vanga Maríu. Hermaður lagði hendina á öxl hans og sagði vingjarnlega: „Þú mátt segja eitthvað, ef þú vilt“. Hvað átti hann að segja? Hann hefði viljað óska vinum sínum ein- hvers góðs, en gat ekki hugsað og vissi ekki hvernig hann átti að orða það. „Lifið heilir. félagar", hrópaði hann. íi / ' Will sneri sér við og ruddi sér braut gegnum mannfjöldann. „Hvað er að manninum? Líttu i kringum þig. Þú ruddir konunni um koll“, sagði einhver maður og gáf honum olbogaskot. „Hvað kemur mér það við? Get- ið þið ekki vikið úr vegi?“ hróp- aði Will. Hann ruddi sér braut með valdi gegnum manngrúann og komst að kastalaveggnum. Hann hallaði sér upp að veggnum og honum lá við yfirliði. Ilann engdist af áköfum upp- sölum, og tilfinningin. sem greip hann, var líkust því, að hann væri að spúa allri ævi sinni. Tuttugu og- þriggja ára ævi hans var að engu orðin. Ekkert var eftir------- Joe, Joe, hvernig gaztu-------- Mannfjöldinn dreifðist og Will heyrði háðsglósur þeirra, sem gengu framhjá honum. „Þetta var ekki fyrir börn að horfa á“, sagði einn. „Hann hefur verið magaveikur, síðan hann var krakki", sagði ann- ar. Will sárnaði þessi lítilsvirðing. Hann drógst af stað, strauk svit- ann at' enninu og reikaði heim að gistihúsinu, þar sem hann hafði verið. Hann greiddi gestgjafanum reikninginn og sagði honum að senda flutning sinn með vagiiin- tim. „Ég ætla að ganga dálítinn kfók. Segið þér ökumanninum að ég verði í vegi fvrir vagninum ein- hversstaðar á þjóðveginum og hann geti tekið mig þar". Það var hörku frost. Tennurnar glömruðu í munni hans, þegar hann ráfaði af stað. Loftið vár ís- grátt og hrannað. vegurinn var stálfrosinn, grasið hrímað. Allt var horfið — horfið — horf- ið! Faðir hans, María, Joe------- Hann hafði séð Joe liðið lík. Gat það verið. að það hefði verið Joe? Joe, sem honum þótti svo vænt um. Joc, sem hafði kennt honum að blístra og líkja eftir kvaki fugl- anna á heiðinni. þegar þeir voru drengir. — Já, Joe hafði blístrað í Emsley — kránni. kvöldið sem faðir hans var að berjast við dauð- ann. Faðir hans--------- Allt var liðið. Ekkert kom aftur. Aldrei. Hann leit upp í loftið. „Nú fer að snjóa", sagði hann ósjálfrátt. Will hafði varla sleppt orðinu, fyrr en snjókorn féllu til jarðar, fyrst eitt og eitt, en urðu brátt að þéttri logndrífu, sem byrgði alla útsýn. Einstæðingstilfinningin gróf dýpra um sig í hjarta hans. Hann heyrði ekki einu sinni fótatak sitt í mjúkri mjöllinni. Hún féll hljóð- laust til jarðar, eins og hún vildi ekkert af honum vita. Snjór hlóðst í föt hans og hann varð að þurrka frá augunum öðru hvoru. Hvert var hann annars að fara? Hvar var vegurinn? Hann nam staðar. Lögnin var djúp og óviðfelldin. Hann gat næstum því þreifað á henni, heyrt hana og séð.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.