Þjóðviljinn - 02.06.1944, Side 4

Þjóðviljinn - 02.06.1944, Side 4
ÞJÓÐVIUINN — Föfftudagur 2. júní 1944 Utgefandi: Samáningarjl»kkur alþýtht — Sóaiatistaflckkuiirm. Bitstjórí: Sigurðvr Gu&muntUsou. StjórnmátentsijénnK E'maur Ogeinsen, Sigfúo Sipmkjjrtmroen. Bitstjórnarskrítstaóa: AwtuTotroeti 12, m-nti St79. Afgreiðsla mg auflýsingar: Skólavörðuatíg 19, tini SMH- Askriftarveri: I Reykjavik «{ nágrenni: Kr. 8.00 á numaði. Uti á iamii: Kr. £.60 á múnuöi. Prentsmiðja: Vdángsprent h.f., GnrBastrœti 17. Viðskiptaráð og viðskiptamálaráðherra sitja enn Hvað verður gert við Eimskipafélags- stjórnina? Þjóðviljinn bar fram þá spurningu fyrir nokkrum dögum, er það fyrst allra blaða byrjaði að skrifa um Eimskipafélagshneykslið, hvort Viðskiptaráð færi nú ekki frá. Almenningi finnst hneykslis- í' :rill þessarar Coca-cola-stofnunar orðinn nógu langur eftir að r sahneykslið hjá Eimskip bætist ofan á olíuhneykslið og eftirlits- l:ysið með reikningum heildsalanna. Og „barátta“ þessarar stofn- i iar gegn dýrtíðinni hefur nú að lokum sýnt sig með þeim endem- um í smjörhækkuninni miklu, að enginn óvitlaus og velviljaður r.taður hefur lengur trúað þessari stofnun viðskiptamálaráðherrans. En viðskiptaráð og viðskiptamálaráðherra sitja sem fastast. Það virðist ekki koma við þessa herra, þó að þjóðin verði að blæða tug- um milljóna króna fyrir embættisvanrækslu þeirra. Eimskipafélagið hefur grætt 23 milljónir króna á þeim sérrétt- iidum, að fá leiguskip ríkisins og vera skattfrjáls. — Hefði t. d. 1;eykjavíkurbær fengið þessi skip á leigu,' þá hefði enginn ein- Siaklingur 1 Reykjavík þurft að borga útsvar, ef bærinn hefði feng- ið svona gróða. Ríkisstjórnin getur auðsjáanlega ekki hugsað sér, að ríkissjóður reki sjálfur þau skip, sem hann fær á leigu. Það passar ekki í lcramið hjá Birni Ólafssyni, að ríkið hefði grætt 23 milljónir á firmgjöldum eða lækkað verð í landinu um þá upphæð. Það er betra að láta „óskabarn Jóns Árnasonar og Eggerts Claessens“ taka 23 milljónirnar og segja svo við þjóðina: ríkissjóður er tómur, og það verður að lækka launin. Þjóðin heimtar Eimskipafélagshneykslið krufið til mergjar. Hvað eru tollarnir, heildsölu- og smásöluálagningin mikil, sem leggjast á vörurnar vegna þessa gróða? Eru það máski einn eða iveir milljónatugir í viðbót? Hvað hefur ríkissjóður og Reykjavíkurbær orðið að borga mikið fé aukreitis í launauppbætur vegna þessarar skipulögðu dýrtíðar? — Er þar máski einn milljónatugurinn enn? Þjóðin heimtar fullkomna rannsókn á þessu máli. Viðskiptamálaráðherrann og viðskiptamálaráð hans eiga að fara f á — þau eru bæði orðin þjóðinni nógu dýr. Og Eimskipafélagið verður að takast til gagngerðrar meðferðar ,aríkisins hálfu. Stjórnleysið og sérréttindin þar geta ekki lengur í..rið saman. Útsvörin Eimskipafélagið er alveg skattfrjálst og útsvarsfrjálst. Það græð- ir 23 milljónir króna s. 1. ár og á um 50 milljónir króna í skuldlaus- um eignum. Stríðsgróðafélögin hin þurfa ekki að borga útsvör af yfir 200 lús. kr. gróða. Með þessum aðferðum gamla þjóðstjórnarafturhaldsins á þingi rrgn vilja Sósíalistaflokksins hefur afturhaldið fengið því ágengt, j skella mestöllum þunga útsvaranna yfir á láglauna- og miðlungs- i kjumenn. Þess vegna er útsvarsálagningin í Reykjavík nú sú L. éttlátasta, sem þar hefur lengi — máski nokkurn tíma — verið. Það er verið að sliga f jöldann af launþegum með svívirðilegum útsvörum á sama tíma sem Eimskipafélagið, sem reynt er svo að! n jta til launalækkana hjá ^unþegunum, er útsvarsfrjálst af 23 r.rilljóna króna gróða, Reiði manna yfir öllu þessu hróplega óréttlæti er þess vegna t Jlilega meiri en nokkru sinni fyrr. — En til þess að breyta þessu er ekki nóg að vera reiður. Til þess i. 3 breyta þessu þarf alþýðan að ná meirihluta í Reykjavíkurbæ, . o hún geti ráðið stjórn og fjármálum bæjarins, og svo miklum , rifum á þingi, að hún geti hnekkt mestu hneykslum afturhalds- i.13 þar. — Þorvaldar Sktllason: Opið bréf til Ragnars Ásgeirssonar Hr. Ragnar Ásgeirsson! Dagana 23.—24. maí birtist grein eftir yður í Alþýðublað- inu undir fyrirsögninni „Mál- verkasýningar vorsins", og get ég ekki stillt mig um að senda yður nokkrar línur í því tilefni. Ég kann vel að meta áhuga yðar fyrir starfi ísl. myndlistar- manna, og það er fjarri mér að amast við því, þó að þér berið í brjósti óviðráðanlega löngun til að leggja nokkuð að mörkum í þágu ísl. listmenningar. — Um- hyggju yðar fyrir málaralist hafið þér þrásinnis látið í ljós í blaðaskrifum um þá listgrein, á síðastliðnum tveim áratugum, og enda þótt þau hafi strjálnað nokkuð síðustu misseri, eru þess engin merki, að áhuginn sé þverr andi. , Ást yðar á myndlist virðist hafa vaknað þegar á unglingsár- unum, þegar þér dvölduð í Dan- mörku við garðyrkjunám, og átt uð kost á að sækja nokkrar mál- verkasýningar í Kaupmanna- höfn, og það mun hafa„atvikazt þannig, að um svipað leyti og þér lukuð námi í kartöflurækt og hélduð heim til „okkar bless- aða kalda lands“, tóku sýningar á málverkum ísl. listamanna að gerast tíðari viðburðir í menn- ingarlífi Reykvíkinga en verið hafði áður. Það er litlum efa bundið, að íslendingum, sem litla æfingu höfðu í að skoða málverk á þeim árum, var full þörf leiðbeininga, því að nokk- uð mun hafa verið á boðstólum af góðu og illu þá eins og nú. Það mun hafa þótt nokkur trygg ing í þá daga, ef maður, sem átt hafði kost á að líta yfir lista- sýningu í Kaupmannahöfn, mælti með málaralist landans, og eirmig tekið til umhugsunar, ef svo forfrömuð persóna lét í ljós efasemdir um listagildi ein- hverrar málverkasýningar. — Á þessum bernskuárum ísl. mynd- listarmenningar gerðust þér einn slíkur leiðbeinandi fáfróðs al- mennings og mér dettur ekki í hug að efast um það, að blaða- skrif yðar þá, hafi forðað ein- hverjum frá að gerast áhang- endur lélegra fúskara,” enda þótt fagmönnum þættu þau ætíð nokkuð viðvaningsleg, sem von- legt var. Þeir virtu viljann fyr- ir verkið. Tímarnir breytast, myndlist- arsíarfsemin og jafnframt mál- verkasýningar færðust í aukana með ári hverju, og nú eru Reyk- víkingar að verða þaulæfðir list- skoðarar. Það þykir nú ekki lengur nægja að hafa orðið þess aðnjótandi að sjá málverk í Kaupmannahöfn á unglingsár- unum, til að gerast leiðbeinandi almer\nings. Vaxandi þekking fólks á málaralist hefur m. a. leitt til þes, að tæplega nokkur hugsandi, næmur maður reynir lengur að skýla þeirri staðreynd fyrir sjálfum sér, að þó vel megi njóta myndlistar og öðlast mik- inn, næman smekk á gildi henn- ar við að grannskoða listaverk, er mikil þekking og yfirsýn ó- hjákvæmilegt skilyrði þess að geta gerzt myndugur gagnrýn- andi á því sviði. Slík þekking verður ekki fengin nema með gagngerðum lærdómi. Með þess- ar ofanskráðu staðreyndir fyrir augum hvarflaði það að mér við lestur greinar yðar „Málverka- sýningar vorsins", að máski hefði það orðið yður gæfumest, að fara að dæmi „kolleganna“ frá bernskuárum reykvízkrar myndlistarmenningar: leggja niður pennann, eða beita hon- um eingöngu í þágu málefna, er þér vitið gjörla deili á. Mér þyk- ir fyrir því, að þurfa að segja yður, að það hefur verið lengi á mínu og margra vitorði, að yður skortir um of þekkingu á málaralist til þess, að gagnrýni yðar eigi fullan rétt á sér sem slík, enda þótt ekki hafi verið amazt við, þó að þér skrifuðuð um þetta efni yður sjálfum til skemmtunar. En þegar þér álít- ið yður leyfilegt, að halda fram helberum staðleysum í svo valdsmannlegum tón sem raun er á í síðasta skrifi yðar, verður gamanið of grátt og óhjákvæmi- legt að taka ofurlítið í taumana. Yður verður tíðrætt um það, hversu sumir ■ málara okkar liggi flatir fyrir útlendum áhrif- um, og er það að vísu ekki ný bóla, að gagnrýni manna, sem ekki rista of djúpt í þekkingu, sé krydduð fullyrðingum um að þessi eða hinn málari hafi orð- ið fyrir áhrifum utanað frá, og síðan nefnd einhver fræg nöfn,' sem almenningi hér eru raunar oftast lítt kunn, en hlutaðeigandi „gagnrýnandi“ hefur rekizt á í myndabókum, eða heyrt ein- hverja listamenn nefna. Þetta þykir sóma sér vel í listdómum, og gerir þá minna til, þó að nöfn útlendra meistara sjáist hér sjaldan á prenti óbjöguð, hvað þá heldur, að mörgum þeim er hafa þau um hönd sé ljóst, hvað að baki þeim felst. — Þér gerið heldur ekki neina tilraun til að losa yður undan þessari hefð hálfmenntaðrar gagnrýni í grein yðar „Málverkasýningar vors- ins“, en fylgist hinsvegar það vel með tízkunni, að nú nefnið þér tvö nöfn til viðbótar þeim, er þér áður hömpuðuð, þegar með þurfti, — nöfnum snilling- anna Matisses og Picassos, og gefið ennfremur í skyn, að yður hafi áskotnazt nýjar mynda- bækur með einhverjum ljós- myndum af verkum þessara gömlu heiðursmanna. Meira að segja mun einhver mynd af „Konunni með skakka nefið“ — sem þér teljið „gerða eftir al- þjóðaresepti", vera á meðal þeirra, og það er kannski ekki rétt að álasa manni, sem hefur svo góð spil á hendinni, fyrir að sitja ekki hjá, jafnvel þó að hann sé ekki mikill spilamaður, og þekki lítt reglur spilsins. Fyrri helmingur greinar yðar eru stóryrtar fullyrðingar um það, að Jón Þorleifsson eigi ekki svo mikið sem einn pensildrátt í einni ein- ustu mynd á hinni stóru sýningu, er hann hélt á verkum sínum nú í vor, þér segið þar allt hnuplað frá starfsbræðrum hans hérlendis, en gerið enga tilraun til að færa nein- ar sönnur á, að þessi fullyrðing eigi sér stoð í veruleikanum, eða benda á, í hverju þessi áhrif er Jón verður fyrir frá ótal málurum, séu fólgin. Þar sem ég veit, að Jón Þorleifsson er nú kominn í þá að- stöðu, að honum munu skaðlausar þesskyns aðdróttanir sem hér um ræðir, einkum þar sem þér teljið flestar fyrirmyndir hans innlenda. listámenn, og samanburður því auðveldur hverjum, sem kann að þykja hann fróðlegur, ætla ég að verða fáorður um fyrri hluta rit- gerðar yðar, en vil þó aðeins benda yður á, að rauð epli á hvítum dúk — er ekki einkauppfinning Paul Cezannes —, sem verkefni málara — eins og þér virðist álíta, heldur er hér um aldagamalt viðfangsefni að ræða, sem málarar margra þjóða og á ýmsum tímum hafa tekið til meðferðar. — Síðari hluti greinar yðar er, að undanskilinni lofgerð um Guðmund Einarsson frá Mið- dal, harðorð atlaga að ungum lítt- þekktum málara, Benedikt Guð- mundssyni, er hélt sýningu á verk- um sínum i fyrsta skipti í vor. Til þessarar árásar veljið þér þyngstu vopnin, er þér eigið í fórum yðar, enda mun ætlunin 'vera að ná til fleiri en Benedikts með þeim. Þar á að rota rnargar flugur í einu þungu höggi. — Þér teljið þennan unga málara ímynd ístöðuleysis gagnvárt heimslistinni, „taglhnýt- ing“ erlendra og innlendra tízku- málara, sem veður „gamla troðn- inga upp í hné“ án snefils persónu- : leiks. Þetta er sannarlega harður dómur um ungán mann, sem sýnir verk sín i fyrsta sinn, og ekki hef- ur gert annað af sér en stunda mál- aralist í frístundum sínum, í fullri lalvöru, og því nokkur ástæða til að Jathuga þekkingu yðar sem gagn- Irýnenda, og hvaða aðferðum þér beitið. Þér segið um sýningu Benedikts: „Þarna var margt að sjá, sem ó- venjulegt þykir hér, svo sem biaða- úrklippur límdar inn í myndflöt- inn og aluminium mjólkurtappa negldan í eina myndina o. fl. þess háttar uppáfinningar. Þó þetta sé máski nokkur nýjung hér, þá er Benedikt þó aldarfjórðungi á eftir timanum í þessu efni, því þegar ég var unglingur úti í Kaupmanna- höfn, þá léku ungir og liugrakkir og uppreisnargjarnir listmálarar sér að þessu er þeir voru að losa sig undan gömlu og þungu þrældóms- oki. Þá þurfti hugrekki brautryðj- enda til að gera og sýna slíkt í fyrstu skiptin — og það er ævin- lega skemmtilegt að .sjá uppreisn- arhug æskunnar brjótast út. Þó var þetta ekki danskt heldur franskt í uppruna sínum o. s. frv.“ Og seinna: „nú þarf ckki hugrekki fyrir tvo aura til að ganga þessa troðninga, sem Benedikt Guð- mundsson veður upp að hnjám 25 árum á eftir Danskinum, en hálfri öld á eftir þeim sem mynduðu þessa nýju slóð‘1 Þér dáist þó að hugrekki „Dansksins“ fyrir að gera og sýna slíkt í fyrstu skipt- in“ (þó að þeir væru 25 árum á eftir Frökkum), vegna þess að það var nýtt í Kaupmannhöfn, en ná- kvæmlega 2(5 árum síðar, þarf ekki hugrekki fyrir 2 aura til að sýna samskonar vinnubrögð í Reykja- vík, þó að slíkt hafi eftir yðar kenningu ekki verið til sýnis hér fyrr, og skilyrðin því nákvæmlega hin sömu, og í Kaupmannahöfn á unglingsárum yðar. Þetta er nú í sjálfu sér dálítið kátlegt, en hitt er fróðlegra,«að aðgæta hversu ná- kvæmlega þér farið með sögulegar staðreyndir. Fyrstu myndir af þessu tagi voru eftir franska málarann Braque og voru gerðar í september 1912, og mun Picasso hafa byrjað slíkar til- raunir um svipað leyti, en það er að minnsta kosti staðreynd, að ekkert slíkt var sýnt í París fyrr en um 1914, svo það verður erfitt að reikna það út, hvernig Danskurinn gat verið 25 árum á eftir þessum tveim brautryðjendum, á unglings- árum yðar hr. Ragnar Ásgeirsson, við vitum þó öll, að þér eruð full- orðinn maður nú. Það hefði átt að vera 1939 eftir staðhæfingum yðar að dæma, sem Danirnir tóku upp á því að gera myndir af mislitum pappír, blaðaúrklippum o. þ. h. — Og hvað verður þá úr þeirri stað- hæfingu, að Benedikt sé þar 25 ár- um á eftir „Danskinum“? En hin sögulega nákvæmni yðar er þó að- eins eitt atriði, og það er í raun- inni lítilsvert, hvað mörgum árum „Danskurinn“ var á eftir Frökk- unum, og Benedikt Guðmundsson á eftir „Danskinum“, með að not- færa sér eina af hinum mörgu að- ferðum til að gera myndir. Bræð- urnir Hubert og Jan van Eyck fundu upp á því fyrir 600 árum síðan að nota olíuliti, sem þá var óþekkt aðferð, en enginn minnist á, að það sé að „troða gamlar slóðir upp í hné“, þó að hver ein- asti málari frá þeim degi hafi látið sér lynda að notfæra sér þessa frá- bæru uppfinningu. Persónuleiki, og listagildi í málaralist verður ekki metin eftir því, hvort málararnir nota olíuliti, vatnsliti „Tempera“ „Fresco“ „Gouache“, eða eitthvert annað efni til að gera verk sín af, eða hvort myndirnar eru gerðar á striga, pappír, tré eða járn, þar er aðeins um efnisleg, ekki listræn verðmæti að ræða. Þessvegna er óviðfeldið að sjá fullorðinn, greind- an mann, eins og yður, fara svo öfuga leið, er þér viljið meta mál- verk, því „gagnrýni" byggð á slík- um forsen'dum hefur ætíð á sér ó- þolandi ómenningarblæ. Það sem máli skiptir er auðvitað að skyggn- ast eftir þeim árangri, sem náð er, mcð þeirn meðulum sem notuð eru. Það getur hver áhorfandi séð, úr hvaða efni myndin er gerð, ef hann á annaðborð kærir sig nokk- uð um það, og þó að yður finnist máski gaman af að gefa í skyn, að þér hafið séð sitt af hverju í Kaup- mannahöfn á unglingsárum yðar, er ekki víst, að þáð sé svo mikill HnMf m snMa oéfv ierða ai Djela gðis at belm Föstudagur 2. júní 1944 — ÞJÓÐVILJINN Höfundurinn er forseti hins öfluga brezka verkalýðssambands, Amalgamated Engineering Union. Lýsir hann hér skoðunum sínum á æskilegri þróun brezka vélaiðnaðarins eftir stríðið, — nefnilega til meiri hagsældar fyrir verksmiðjuverkamennina og alla álþýðu. Það er líf og f jör núna í skipa- smíðastöðvum Bretlands. — í hverri stöð er verið að smíða skipin, sem eiga að tryggja okk- ur sigurinn. í hverjum iðnaðarbæ í Bret- landi eru smíðaðar flugvélar til að ráðast á Þýzkaland og Japan. En mennirnir á bökkum Clydé fljóts muna dimmu árin, þegar skrokkarnir af Queen Mary og Queen Elizabeth lágu hálfklár- aðir á stokkunum, af því að það borgaði sig ekki að ljúka við þá og láta þá sigla. Mennirnir í stóru iðnaðarborg- unum okkar geta ekki gleymt um gangi, og vélar, sem eru glæsilegustu ávextir brezks hug vits, streyma beinlínis úr þeim í óslitnum röðum. * Stórar verksmiðjur, sem nú framleiða risasprengjuflugvélar, smíðuðu ekki nema fáeinar flug- vélar meðan stóð á „orustunni um Bretland“. Við höfum jafnt og þétt auk- ið strauminn, og nú gengur fram leiðslan eins og klukka. Þúsundir annarra hergagna, — skriðdreka, fallbyssna, út- varpsviðtækja, vörubíla —, eru framleidd á sama hátt í stórum stíl. EFTIR því, að þeir fengu að smíða flug- vélar fyrir stríðið, en var neitað um að smíða flugvélar fyrir frið artímanotkun. Tugir þúsunda manna, sem á friðartímunum þráðu árangurs- laust að fá að sigla á stóru far- þegaskipi, hafa farið með Queen Mary og Queen Elizabeth til að skipa rúm sitt á vígvöllunum. Þúsundir af piltum, sem fljúga sprengjuflugvélunum okkar á hverri nóttu til árása á megin- landið, áttu aldrei kost á að ferð- ast þangað fyrir stríðið, og því síður höfðu þeir efni á að fljúga í flugvél. Ég trúi því, að við verðum að gera heim framtíðarinnar að heimi, þar sem verkamennirnir munu smíða farþegaskip og ferð ast með þeim, og smíða flugvél- ar og fljúga í þeim. Ég veit, að svona kröfur hafa verið gerðar ætíð síðan mönnum kom fyrst í hug að mögulegt væri að byggja þjóðfélag sósíal- ismans, en núna er svo komið, að baráttan fyrir sósíalismanum þolir enga bið. Við okkur blasir sú einfalda staðreynd, að fram- leiðsluöfl þau, sem stríðið hefur leyst úr viðjum, eru svo gífur- leg, að við verðum annað hvort að finna ráð til að nota hlutina, sem við framleiðum, eða við steypumst í efnahagslegt öng- þveiti, þar sem milljónir manna munu þjást af skorti 1 heimi, sem flóir af allsnægtum. Það verður sennilega ekki fyrr en eftir að sigur hefur verið unninn, að við gerum okkur al- veg ljóst, hvað þau framleiðslu- öfl, sem við höfum leyst úr viðj- um, eru gífurleg. Það tók okkur nokkur ár að byggja verksmiðjur fyrir flug- vélahreyfla. Núna eru þær í full fróðleikur fyrir okkur, að það taki því að flétta slíkar endurmiuning- ar inn í listgagnrýni, í tíma og ótíma. — (Niðurlag á morgun). Að mestu leyti sökum fórnfýsi og samvinnuvilja hinna fag- lærðu verkamanna í vélaiðnað- inum hefur okkur tekizt að taka til starfa við vélamar heilan her af ófaglærðum og hálffaglærð- um verkamönnum. — Við höf- um farið fram úr áætlunum, lát- um nú konur, sem fengið hafa fárra mánaða æfingu, vinna þau verk, sem áður útheimtu hina hæfustu sérfræðinga. Þetta er iðnaðarbylting, sem er eins mikil, ef ekki meiri en iðnaðarbylting 18. aldarinnar. Það er óhjákvæmilegt, að hún hafi alveg eins djúptæk áhrif á líf mannkynsins. Ef vinnuafl og vélar einnar Lancastersprengjuflugvélaverk- smiðju væru látin framleiða al- mennar nauðsynjavörur, gætum við uppfyllt þarfir milljóna af heimilum. Við hefðum getað veitt nýju lífi inn í illa stadda borg mfeð peningum þeim og framleiðslu- tækjum, sem notuð eru í einni einustu loftárás á Berlín. Ef við eftir stríðið framleið- um útvarpsviðtæki, reiðhjól, kæliskápa og allar aðrar nauð- synjar fullkomins og blómlegs lífs í stórum stíl, getum við bú- ið þær til fyrir aðeins brot af þeim kostnaði, sem þurfti fyrir stríðið. í Ráðstjórnarríkjunum, þar sem sósíölskum friðariðnaði var svo að segja á einni nóttu breytt í' sósíalskan stríðsiðnað, verður þetta gert. — Þegar Ráðstjórnar- ríkin óttast ekki lengur árás, munum við sjá, hvað sósíalismi þýðir, þegar um það er að ræða áð nota menn, vélar og auðlind- ir náttúrunnar fyrir velmegun fólksins. Ég álít, að það, sem er mest uppörfandi, sé það, að vinnandi karlar og konur hafa öðlazt nýj- an skilning á hæfileikum sín- um. — Gleymum því ekki, að það eru verkamennirnir í verksmiðjun- um, skipasmíðastöðvunum og námumenn, sem hafa gert sigra hermanna okkar á landi, sjó og 1 lofti mögulega. Við höfum séð það í fram- leiðslunefndunum, hvernig hægt er að beita snilli og hugviti verkamaxmanna til að ráða fram úr erfiðustu framleiðsluvanda málum. Við getum og verðum að nota pólitískan mátt okkar til að skapa skipulag, þar sem hægt er að nota þessa snilli verk- smiðjanna. — Það er ekki hægt að ætlast til þess af neinum manni, að hann finni upp ráð til að auka framleiðsluna, ef hann veit,t að með því að gera það, mun hann gera sjálfan sig eða samverkamann sinn atvinnu lausan. — Við vitum, að í landi okkar er næstum óseðjandi mark aður fyrir vörur þær, sem vél- smiðir okkar geta framleitt. — Þegar þeim markaði hefur verið fullnægt, getum við alltaf ráðið bót á ástandinu með því að stytta vinnutímann. Mér er vel ljóst, að Bretland er ekki sjálfu sér nóg. Það get- ur ekki náð þessu marki eitt, en við getum tekizt á hendur að byggja upp ríkjasamband, sem keppir að því marki, að nota auðlindir heimsins til að upp- fylla þarfir fólksins. í hinum nýja heimi eftir stríð- ið getur fólkið skapað nýtt ríkja samband, — samband landa, sem skuldbinda sig til að fylgja á- kveðnum reglum um lengd vinnutíma, lágmarkskaup, ör- orkutryggingar og heilsuvernd. Slíkt þjóðasamfélag mundi vera opið öllum þjóðum, sem játuðu hinum samþykktu skilyrðum, en það mundi vera við því búið að leggja algert bann á vörur frá þeim löndum, sem hafna slík- um skilyrðum. í I. L. O. (Alþjóðaverkamála- skrifstofunni) höfum við kerfi það, sem hægt væri að þroska og efla til að skapa slík samtök, en orkulindin að baki þeim verður að vera sterk, alþjóðleg verklýðs hreyfing. Við verðum að táka að okkur að sjá um, að grund- völlur þeirrar hreyfingar verði örugglega lagður á hinni kom- andi alþjóðaverkamannaráð- stefnu í London. Brezka ríkisstjórnin virðist ekki hafa neina hugmynd um, hvað þetta vandamál er geysi- lega víðtækt. Hún virðist ekki skilja, að með núverandi véla- og vinnuafli okkar getum við framleitt allar þær vörur, sem við gátum notað fyrir stríð með helmingi færri verkamönnum en þá. Hún virðist treysta á tafar- lausa uppgangstíma eftir stríðið við að uppfylla þarfir neytenda og lætur sig engu skipta, að skipuleggja auðlindir þjóðarinn- ar til langs tíma. Það er skylda okkar að knýja ríkisstjórnina til dáða, en um leið verðum við að gera okkar eigin áætlanir. Við megum ekki taka við þeim tilbúnum frá öðr- Hússtjórnarkennarar í fyrsta sinn útskritaðir á Islandi Hússtjórnarkennaraskóla Islands var slitið í gœr í fyrsta sinni. At- höfnin jór jram í hátíðasal Háskólans að viðstöddu fjölmenni. Forstöðukona skólans frk. Helga Sigurðardóttir ávarpaði nemendur og gesti. Lýsti hún fyrst í ræðu sinni að- draganda og undirbúningi skóla- stofnunarinnar sem hún í stuttu máli hvað vera þennan: Ýmsum konum hér á landi hef- ur verið það ljóst síðustu þrjá áratugina að nauðsynlegt væri að koma á fót hússtjórnarkennara- skóla. En 1927 gekkst Búnaðar- félag íslands fyrir því, að skipuð var nefnd til þess að gera tillögur um húsmæðrafræðsluna yfirleitt. Nefndina. skipuðu frú Ragnhildur Pétursdóttir, frú Guðrún J. Briem og Sigurður Sigurðsson búnaðar- málastjóri og skiluðu þau nefndar- áliti 1929. Ein af tillögum nefnd- arinnar var að stofnsetja Hús- stjórnarkennaraskóla í landinu, þar. sem hún taldi þá fyrst einhverja von til þess, að koma mætti hús- mæðrafræðslunni f viðunanlegt horf. Tillögur jiessar voru ræddar á fyrsta fundi Kvenfélagasam- bands íslands 1930 og gerður góð- ur rómur að. En af framkvæmdum varð þó eigi fyrst um sinn. í febrúar veturinn 1941 var svo haldinn fundur í Kennarafélaginu Hússtjórn, sem þá taldi aðeins 9 félaga og voru þá þær frú Soffía Claessen, frú Ólöf Jónsd. og frk. Afmælisleikur K. R. R. Framh.af 3. síðu ingu sóknarinnar. Yfirleitt var leikurinn skemmtilegur og nokk- urt kapp i honum, þó allt færi vel og drengilega fram. Liðin féllu nokkuð vel saman: Sú breyting varð á A-liðinu, að Geir, Óli B. og Högni komu ekki til leiks, og það eðlilega var ekki látið hafa sinn gang, að tilsvarandi menn úr B- liðinu kæmu á þeirra staði, heldur eru varamenn settir inn > A-liðið. A-liðið setur sitt fyrsta mark eftir vel uppbyggt áhlaup, og spyrnir Albert í mark. Nokkru síð- ar er dæmd vítaspyrna á A-liðið og spyrnir Jón Jónasson óverjandi í liorn marksins. Birgir eykur töluna upp í 2:1 fyrir A-liðið með prýðilegum skalla. í miðjum hálfleik setur Ellert þriðja og síðasta markið, eftir að Anton missir af boltanum, Anton Erlendsson, framvörður A-liðsins, varð að hætta í síðari hálfleik vegna smávegis meiðsla. Sem sagt B-liðið vann spilið. en A-liðið mörkin og þau telja. Dómari var Þorsteinn Einars- son. Áhorfendur voru mjög margir. um eins stórfyrirtækjum og Heimsv erzlunarbandalaginu. Fólkið í yerksmiðjunum og í hernum verður að láta 1 ljós á- kveðna ósk sína um betri heim. Aðeins afrek þess geta valdið því, að í framtíðinni lifum við í heimi, þar sem hugvit, vísindi og auðæfi náttúrunnar verða notuð til að sjá fólki hvar sem er fyrir allsnægtum. Helga Sigurðardóttir kosnar í nefnd til þess að gera tillögur um skipulag væntanlegs Hússtjórnar- kennaraskóla íslands, og skyldu til- lögurnar lagðar fyrir Alþingi. Framh. á 8. sfOn. iön Pöisson fertugur Jj’ramh.af 3. síðu þá sveit eða lióp manna, að ekki séu einhverjir gamlir sundnemend- ur jxar. En elzti nemandinn er 70 ára kona, Kristín Bergsteinsdóttir frá Búrfelli. Henni gekk sízt ver en þeim, sem yngri voru, enda gekk hún að jiessu með lífi og sál. Hún var fermingarsystir föður míns, sá hann einhverju sinni synda og þráði upp frá því að læra þessa list, og lét það eftir sér á 70. árinu. — Hvaða sund leggja menn mesta rækt við? — Fyrst og fremst bringu-, bak- og björgunarsund, síðar kemur svo skriðsundið, sem er vandasamt og tilþrifamikið. Ameríkumenn leggja áherzlu á skriðsund strax, en ég vara menn við því liér á lándi, þar sem skrið- sund er óhæft klæddum mönnum til að bjarga sér eða öðrum. Jú, fólk er mjög misjafnt til sundsins, það liggur í ættum og er náttúrlegur eiginleiki. — Hverjir eru þér hugþekkastir? — Allir kærkomnir, sem vilja læra sund, en þó fyrst og fremst mitt gamla kappsundsfólk svo sem Jónas, Jón I)., Jón Ingi, Regína o. m. m. fl. Líka þeir, sem vilja læra og hafa áhuga, jafnvel þó þá vanti hæfileikana, en fátt er eins leiðin- lcgt og að hafa nemendur sem eru góð efni, en vantar áhuga og vilja. — Er starfið jireytandi? — Mönnum ber saman um það, að fátt kennslustarf sé erfiðara en sundkennsla, og hér i höllinni veldur bergmálið j)ar miklu um, því tala verður i jxeirri tónhæð, að heyrast mætti í 2—300 m. fjar- lægð. Kennarar Barnaskólasund- laugarinnar og aðrir, sem kennt liafa hér, hafa ekki farið varhluta af því. — Nokkrar óskir til sundsins? — Fyrst og fremst það, að allir íslendingar kunni sund, og það fagurt sund, því fegurðin í sund- inu gefur því líf og glæsileik og gerir ])að eftirsóknarverðara. Að íslenzkir sundmenn geti sér orðstír á erlendum vettvangi og það sem fyrst. Ég veit hvaða gagn sundið gæti haft af slíku til auk- innar útbreiðslu ef rétt væri á liald- ið, jiví keppnin hefur, þrátt fyrir allt, verið driffjöður sundsins. Á þessum tímamótum ævi minn- ar vildi ég þakka þeim mönnum, sem studdu hugsjón föður míns, sem nú er orðin hugsjón okkar allra, og um leið biðja alla sanna íslendinga að minnast þess, að sund og aðrar íþróttir liafa alltaf verið menningunni samferða, seg- ir Jón að lokum. Eftir að hafa hlustað á Jón, kynnzt áhuga hans og starfsvilja, sannfærist ég um það, að „allt sé fertugum fært“.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.