Þjóðviljinn - 11.07.1944, Síða 2
Þ JÓÐVILJINN
Þriðjudagur 11. júlí 1944»
Utsvars- og skattabyrðarnar
hvíla þyngst á launastéttinni
* *
Síðan útsvarsskráin kom út,
kefur um fátt verið meira tal-
að meðal almennings en þær
þungu útsvars- og skattabyrðar
sem nú eru lagðar á bak launa-
stéttarinnar. „Vísir“ og önnur
álíka málgögn, hafa hinsvegar
mest fjargviðrast út af forseta-
kjörinu á Alþingi 17. júní og
mun nú reyndar þegar svo kom-
ið, að þau eigi um það efni,
öfundarlaust af flestum, við-
ræður við sig sjálf. Alþýðan hef
ur af eðlilegum ástæðum engar
sérstakar áhyggjur út af for-
setakjörinu en þeim mun meiri
af þeirri stefnu er nú ríkir í
atvinnu- og skattamálum og
framkvæmd hennar. Hinsvegar
er það í fullu samræmi við eðli
„Vísis“, sem jafnan telur það
skyldu sína að berjast gegn
hagsmunum alþýðu, að brjót-
ast um út af hégómamálum til
þess að reyna að skyggja með
því á alvörumál fólksins. Og þó
er „Vísir“ og öðrum þeim blöð-
um, sem honum fylgja í þessu
efni, ekki nóg að dubba upp á
pólitík sína með nokkrum auð-
um seðlum á Alþingi, heldur
ráðast þau einnig með svívirð-
ingum að þeirri stofnun, sem
hefur verið og er æðsta tákn
þess lýðfrelsis, er vér íslending
ar njótum. Má af því nokkuð
sjá hver afstaða þvílíkra blaða
er í raun ogveru tillýðveldismál
anna, þótt ekki sé flett upp í
„Vísir“ frá þeim tímum, sem
yfirgangsstefna nazista naut
mestrar velvildar hjá forráða-
mönnum blaðsins og sigurvonir
hennar voru mestar. En ekki
meira um þetta að sinni.
Mikla athygli vekur það í
sambandi við útsvarsskrána,
hve mikill fjöldi Reykvíkinga
stundar milliliðastörf og kaup-
mennsku af ýmsu tagi og suma
miður nauðsynlega, svo að vægt
sé að orði komizt. Og um leið
vekur það eftirtekt, hve sumir
þessara milliliða hafa lág útsvör
miðað við launþega. En þó er
vitað að flestir þeirra hafa haft
mikinn gróða, oft af tiltölulega
lítilli og ódýrri umsetningu,
enda bendir sóknin í milliliða-
störfin og kaupmennskuna til
þess, að þar sé auðveldara að
koma ár sinni vel fyrir borð en
við störf í þágu framleiðslunn-
ar. Er augljóst, að þegar svo
er, þá er stefnt af réttri leið, og
hlýtur það fyrr eða síðar að
koma hart við þjóðina. Og það
þykjast kunnugir menn geta séð
af útsvarsskránni, að margir
þeir, sem hafa atvinnurekstur
með höndum og stunda brask
og þvílík störf, muni í ýmsum
tilfellum koma við nokkrum
sjónhverfingum í sambandi við
framtöl sín til niðurjöfnunar-
nefndar. En hvort sem þetta er
rétt séð eða ekki, vekur það
grunsemdir hjá fólki í þessa
átt, hve útsvör margra borgara
í bænum, sem þekktir eru að
því að hafa góð efni og njóta
margs þess sem almenningur læt
ur sig ekki dreyma um fyrir
sig, eru lág miðað við útsvör
verkamanna og launþega yfir-
leitt.
Þegar þess er gætt, að stór-
gróðafélög njóta skattfrelsis 1
stórum stíl, þá er það næsta
furðulegt, hve sú tekjuupphæð
einstaklinga er lág, sem nýtur
skattfrelsis vegna persónulegra
þarfa. Virðist það í rauninni
furðulegt, að almenningur skuli
skyldur til að greiða útsvör og
skatta af tekjum, sem búið er
að eyða til brýnustu nauðþurfta.
Þótt upphæð persónufrádráttar
frá skattskyldum tekjum hafi
nokkuð hækkuð nýlega, er hún
enn allt of lág. Launasamtök-
unum er því nauðsynlegt að
berjast enn fyrir því, að upp-
hæð skattfrjálsra tekna vegna
persónulegra þarfa verði hækk-
uð verulega frá því sem hún
er nú.
í sambandi við skattfrelsi
stórútgerðarfyrirtækja hefur
verið reynt að blanda saman
skattfrelsi varasjóðsfjár o'g ný-
byggingasjóðsfjár. Með tilliti
til þess, hve brýna þjóðfélags-
lega nauðsyn ber til þess að
endurnýja og stækka fiskveiði-
flota íslendinga er ekki ósann-
gjarnt að hið opinbera styðji
og örfi útgerðarmenn til þess
að búa sig undir endunýjun og
aukningu fiskiskipastólsins. En
ríkið verður um leið að ganga
ríkt eftir því, að þær tekjur
útgerðarinnar, sem njóta skatt-
frelsiáf verði notaðar til þess og
þess eins að endurnýja og auka
útgerðartækin. Tekjur útgerðar
fyrirtækja, sem renna í vara-
sjóðina hefur ríkið enga trygg-
ingu fyrir að gangi til endur-
bóta eða aukningu fiskiskipa-
stólsins. Hefur Lúðvik Jóseps-
son alþm., bæði hér í blaðinu
og í sjómannablaðinu „Víkingi“,
leitt glögg rök að því og af-
hjúpað mjög greinilega blekk-
ingar íhaldsmanna í sambandi
við skattfrelsi útgerðarinnar og
nýbyggingamálin og afstöðu
sósíalista til þeirra, sem eðlilega
hlýtur jafnan að miða við hags-
muni allrar sjómannastéttarinn-
ar, að untanteknum þeim einum
er -telja sér helzt frama vísan
og mesta gróðavon í því, að til
sé nægilega auðsveip og sundr-
uð sjómannastétt og auðtrúa á
blekkingar og hindurvitni póli-
tískra andstæðinga sinna. Er
augljóst að tekjur varasjóðanna
eiga ekki sama rétt til skatt-
frelsis og tekjur nýbygginga-
sjóðanna.
En hvað það snertir að fyrir-
byggja það að efnamennirnir
og þeir sem reka ýmis fyrir-
tæki eða milliliðastarfsemi geti
svikið undan skatti í stórum
stíl, verður að leita einhverra
ráða hið bráðasta. Þeir, sem
dylja tekjur sínar fyrir skatta-
yfirvöldunum fremja mjög al-
varlegt þegnskaparbrot, sem
kemur þyngst niður á launþega-
stéttinni og þeim fátækustu í
landinu. í þessu sambandi er
rétt að minna á aðkallandi nauð
syn þess að láta skrá á nöfn
réttra eigenda öll verðbréf í
landinu. Um það þarf að fá lög
hið fyrsta.
í þessum málum, sem hér hef
ur aðeins lauslega verið minnzt
á, verður alþýðan sjálf að taka
forustu. Hún á hér mest undir
því, að frá rangsnúinni og þjóð-
hættulegri stefnu sé snúið í at-
vinnu- og skattamálum og sjálf
boðastétt ónauðsynlegra milli-
liða, sem skapa dýrtíð og óáran
í þjóðfélaginu, verði vísað til
uppbyggilegra starfa í þágu
þjóðfélagsins og njóti þar verka
sinna í eðlilegra samstöðu með
þjóð sinni bæði í bíðu og stríðu.
Verkamannafélagið „Dags-
brún“ hefur þegar mótmælt
mjög eindregið og ákveðið hin-
um þungu sköttum, sem lagðir
eru nú á launþegana, án þess
að vart verði verulegrar við-
leitni ríkisvaldsins til þess að
sjá um framkvæmdir til al-
menningsheilla.
Önnur samtök alþýðunnar
þurfa að taka undir þvílík mót-
mæli. Og næsta Alþýðusam-
bandsþing verður að taka öll
þessi mál, til rækilegrar með-
ferðar og marka skýrt og á-
kveðið afstöðu alþýðunnar til
þeirra.
Dagsbrúnarfélagi nr. 2.
Xveðjur frá emerískum
háskðlum tll Hðskóla 1 "
Islands
Fulltrúi Vestur-íslendinga á
lýðveldishátíðinni, prófessor
Richard Beck, hafði meðferðis
hingað til lands kveðjur frá
þremur háskólum vestan hafs:
Cornell-háskóla í Ithaca, N. Y.,
ríkisháskóla Norður Dakota í
Grand Forks, þar sem Beck er
prófessor, og Manitobaháskóla í
Winnipeg. Senda háskólar þess-
ir Háskóla íslands vinsamlegar
kveðjur og árnaðaróskir og
minnast tengsla sinna við íslend
inga vestan hafs og við Háskóla
íslands.
í bréfi Manitobaháskóla er
þess getið, að í Winnipeg séu
fleiri íbúar af íslenzku kyni en
í nokkurri annari borg í heimi,
að Reykjavík undanskilinni. Af
þeim ástæðum til eflingar rann-
sóknum í samanburðarmálfræði
ætlar háskólinn að setja á stofn
kennarastól í íslenzkri tungu og
íslenzkum bókmenntum.
Próf. Beck flutti rektor há-
skólans kveðjur þessar ásamt
kveðju frá Þjóðræknisfélaginu
s. 1. miðvikudag í hátíðasal Há-
skólans, að viðstöddum biskupn
um, dr. Sigurgeir Sigurðssyni,
kennurum háskólans og nokkr-
um gestum.
Er þetta satt, herra
sakadómari?
Eftiríarandi bréf hefur bæjarpóst-
inum borizt:
Sú ótrúlega saga gengur manna á
meðal að nokkrir kunnir menn hafi
skrifað sakadómara og farið þess á
leit að fram væri látin fara rann-
sókn á því hvort Kaaber banka-
stjóri sé lífs eða liðinn. Eins og
kunnugt er andaðst Kaaber fyrir
nokkrum árum, en maður einn hér
í bæ hafði um langt skeið gengið
með þá grillu í höfðinu, að Kaaber
þessi einstaki heiðursmaður, sem
engum og engu vildi mein gera, of-
sækti sig, bakaði sér heilsutjón og
næturvökur. Þegar vanheilsan og
svefnleysið yfirgaf ekki mann þenna
er Kaaber lézt, tók hann að halda
að ándlát og jarðarför Kaabers
hefði verið skáldsaga ein til þess
gerð að hann ætti hægara með að
íramkvæma oísóknir sínar. Hann á
þá að hafa krafizt þess að leiði
Kaabers yrði grafið upp og þess
gætt hvort lík hans fyndist í kist-
unni.
Nú er sagt að nokkrir menn hafi
tekið undir þessa kröfu og skrifað
sakadómara bréf þar um. Nöfn þjóð
kunnra manna eru tengd við þessi
meintu skrif og verður ekki að ó-
reyndu trúað að það sé gert með
réttu. Það væri því rétt og eðli-
legt að sakadómari skýrði frá hvort
þessi saga hefur við nokkur rök
að styðjast og ef svo er hverjir
hafa gert sig að flónum með því að
leggja nöfn sín við slíka heimsku.
Það er með öllu óþolandi að verið
sé að bendla vitiborna og heiðar-
lega menn við brjálsemisathæfi að'
ósekju. a.
Um sjóbaðstaði
Björn Magnússon skrifar:
Nágrannabæir Reykjavíkur eiga
tvo staði, sem eru fremri um feg-
urð og nytsemi en þeir, sem Reyk-
vikingar eiga kost á að njóta. Á ég
þar við Langasandinn við Akranes,
yndislegan baðstað með miklu
útfiri og fínum, ljósum skelja-
sandi. Þegar sjór er sléttur er þarna
unaðslegt að synda og baða sig í
Aðalfundur Landssan-
bands blandaðra kóra og
kvennakðra
Fimmti aðalfundur Landssam-
bands blandaðra kóra og kvenna-
kóra var haldinn í Reykjavík dag-
ana 5. og 6. júlí.
Á fundinum mættu 8 fulltrúar
frá 6 kórum. Einn nýr kór bættist
í sambandið, er það Samkór
Reykjavíkur. Eru nú 8 kórar í
sambandinu og kórfélagar alls um
300.
Til söngkennslu hafði verið var-
ið á árinu kr. 1650.00 og til út-
gáfu sönglagaheftis kr. 750.00 og
áður hafði L. B. K. gefið út annað
sönglagahefti.
Áætlað er að á næsta ári verði
kr. 6000.00 varið til söngkennslu
og til sönglagaheftis kr. 1600,00.
Allmiklar umræður voru um efl-
ingu blaðaðs kórsöngs og í þeim
umræðum kom meðal annars, lijá
sumum fundarmönnum, fram
nokkur undrun yfir því að lýð-
veldishátíðarnefndin skyldi ekki
Ieita til L. B. K. um einhverskonar
Framhald á 3. síðu.
• • ............
sjónum og liggja þess á milli í glóð*
volgum sandinum. Reykvíkingar-
voru mikið teknir að stunda sjóböð
í Skerjafirði fram að hernáminu,
en ekki var aðstaðan þar eins góð
og við Langasand. Fjaran grýtt og.
lítt sendin. Með nokkrum umbótum
hefði sennilega mátt gera þennan
stað nothæfan fyrir sund og sjó-
böð og hefði það að sjálfsögðu ver-
ið gert í sambandi við íþróttavöll-
inn, sem hafði verið valinn staður-
þar í grennd. En hernámsaðgerð-
ir hafa nú lokað þeim mögu-
leikum. Ef til vill verður að þessu
enginn skaði. íþróttavöllur og sjó-
laug í Laugardal mun að öllu leyti
hentugri staður, ekki sízt vegna.
þess að borgin byggist mjög í aust-
urátt.
Tillögur Gísla Halldórssonar verk.
fræðings, um volga sjólaug í Syðri-
Tjörninni, eru hinar athygliverð-
ustu. Er óskandi að bæjarstjórnin
beri gæfu' til að leysa það verkefni
áður langur tími líður. Byrja mætti
á lauginni og þyrfti ekki að hraða.
hótelbyggingunni fyrr en hægist um.
og verðlag yrði hagfelldara á að-
keyptu efni. — í laugarbyggingunai
þyrfti ekki aðkeypt efni annað en
' sement og járn.
Vissa er fyrir því að þessi laugv
mundi verða mjög mikið sótt og.
stuðla að heilsuvernd og andlegrí.
og líkamlegri hreysti bæjarbúa.
Hljómskálagarðurinn
Á seinni árum hefur nokkuð ver-
ið gert að fegrun lystigarðsins, sunn
an við tjörnina, með gróðursetningu
trjáa og skrautblóma og lagningu
gangstíga. En sá galli er á þeim
garði, að þar er mjög sjaldan logn,.
annað hvort blæs svalur norðan
vindur, norðan Fríkirkjuveginn, eða.
suðaustan og suðvestan vindur. Þó
fólk vilji dvelja þar með börn til
þess að njóta sólar og forðast ryk„
helzt það ekki við þar til lengdar
ef vindur blæs úr einhverri átt,.
enda mun sú raun á, að lystigarð-
urinn er lítt sóttur — og er það
illa farið — því engum dylst að
fólki er brýn þörf á að draga sig.
út úr göturykinu þegar það getur
komið því við og njóta sólar og
kyrrðar í ríki gróðurs og blóma.
Ef lystigarðurinn á að koma aá
tilætluðum notum og verða vistleg-
ur og aðlaðandi, verður að skýla
honum fyrir öllum næðingum; mætti.
ef til vill loka honum með hæfilega
háum hringgarði og hallandi brekku.
inn í garðinn. Fjölgun myndastyttna,
hraunhóla og gosbrunna myndi auka ‘
mjög fegurð garðsins. Vel færi á
því að Reykjavíkurbær keypti.
myndastyttur Ásmundar Sveinsson-
ar við húshornið á Freyjugötu, og
setti þær upp niður í Lystigarðinn..
Mundi það vera mikil hjálp við<
hinn fátæka, en ötula, sérkennilega;
listamann. Hann hefur unnið merki-
legt brautryðjendastarf hér á landi
um mótun mynda í steinsteypu. —
Og þó að skiptar muni vera skoð-
anir manna um fegurð og gildi lista
verka hans, þá mun sá tími ekki
langt undan að hann verður talinni
framarlega og mikill listamaður.
Þá væri ekki úr vegi að bær og
ríki legðust á eitt um að steypa í
málm eitthvað af hinum fögru lík-
neskjum Einars Jónssonar, sem nú.
eru lokuð inni í Hnitbjörgum og'
fjöldi Reykvíkinga og annarra lands
manna sér sjaldan eða aldrei, og
setja þau niður í Listigarðinn og á
aðra staði í bænum þar sem yrðu
almenningsgarðar. Ef hörmulegt til
þess að vita, að Útilegumaðurinn —
svo aðeins eitt sé' nefnt — skuli
enn ekki vera til nema í gibsi, —
jafn lélegt efni og það er — og
lokaður inni í húsi.