Þjóðviljinn - 11.07.1944, Blaðsíða 8
Næturakstur í nótt: Bifreiðastöð
Reykjavíkur, sírrn 17.-0.
Næturakstur aðra nótt: Hreyfill,
sími 1633.
Næturvörður er í Reykjavíkurapó
teki.
ÚTVARPIÐ í DAG.
19.25 Hljómplötur: Lög úr óperett-
um og tónfilmum.
20.30 Erindi: Vopnaframleiðsla og
vopnaverzlun, I Hjörtur Hall-
dórsson rithöfundur).
20.55 Hljómplötur:
a) Tríó eftir Max Reger.
b) 21.20 Kirkjutónlist.
LEIÐRÉTTING
I grein sem birtist á 4. síðu Þjóðviljans
sl. sunnudag „Hverjir eru samherjar Al-
þýðublaðsins % í baráttuuni gegu koinmún-
isma“, hafði slæðst prentvilla í síðustu
málsgreimna, tvípúnktur í stað púnkls á
eftir orðunum: „Þannig segir i fregn norska
blaðafulltrúans". Það sem þar er á eftir er
að sjálfsögðu athugasemd Þjóðviljans við *
fregnina.
ERÁ MÆÐRASTYRKSNEFND
jSumarheimili Mæðrastyrksnefndar fyrir
mæður og börn verður að þesSu sinni að
Þingborg (Skeggjastöðum) í Flóa og mun
taka til starfa um næstu helgi.
Konur sem óska eftir að dvelja þar,
eru beðnar að snúa sér sem fyrst til
skrifslofu nefndarinar Þingholtsstræti 18,
kl. 3—ö daglega.
Konur sem búnar eru að sækja um
dvöl á sumarheimilinu eru líka beðnar að
koma þangað til viðtals.
Magnús Guðmundsson
fimmtugur í dag
Magnús Guðmundsson verka-
maður, Meðalholt 8, er fimmt-
ugur í dag.
Hann er fæddur að Þverá á
Síðu, 11. júlí 1894, og voru for-
eldrar hans Guðmundur Egils-
son bóndi og kona hans Jó-
hanna Finnbogadóttir. Fluttist
Magnús með þeim, fjögra ára
að Galtalæk í Biskupstungum,
en árið eftir flutti faðir hans að
Borgarholti og bjó þar lengi. Ár
ið 1916 fluttist Magnús til
Reykjavíkur og hefur unnið dag
launavinnu, lengst af í bæjar-
vinnunni, og á þar tuttugu ára
* starfsafmæli einmitt á þessu
ári.
Magnús er kvæntur Guðrúnu
Sigurðardóttur, hinni ágætustu
konu, og eiga þau tvo syni, Ey-
þór lækni Dalberg, sem nú dvel-
ur í Bandaríkjunum við fram-
haldsnám og Hallgrím, sem ný-
lega lauk embætisprófi í lögum.
Þau hjón eru bæði prýðisvel
gefin og samhent í flestu, en
ekki sízt í áhuganum fyrir mál-
stað alþýðunnar og samtökum
hans. Heimili þeirra er myndar-
legt og aðlaðandi, svo afber,
og hafa sjálfsagt fleiri en ég
notið þaf slíkrar góðvildar og
vinarhugs, að þau kynni gleym
ast aldrei.
Þessvegna hefðu þessi fáu og
fátæklegu orð um fimmtugsaf-
mælið átt að vera löng grein og
góð. En þó slík grein verði að
bíða sextugsafmælisins, þykir
mér vænt um að geta látið Þjóð
viljann óska Magnúsi til ham-
ingju með daginn.
Sigurður Guðimmdsson.
10ÐVILIINN
Verkamenn á Selfossi unnu fullao sigur
Ssmningar undirrifaðir s.l. laugarúag
Vinnutíminn styttur niðor í 8 stundir
Verkamannafélagið Þór á Selfossi undirritaði samn
inga við atvinnurekendur s.l. laugardagskvöld.
Unnu verkamenn fullan sigur og gengu atvinnu-
rekendur að öllum kröfum þeirra.
Vinnutíminn styttur í 8 stundir, auk annarra kjara-
bóta.
Eins og Þjóðviljinn skýrði frá
um daginn samþykkti verka-
mannafélagið Þór á Selfossi við
allsherjaratkvæðagreiðslu, að
hefja verkfall þann 11. þ. m. ef
samningar hefðu eigi tekizt fyr-
ir þann tíma. Til verkfalls'kom
ekki, því samningar tókust s.l.
laugardag, eins og fyrr segir.
Gengið var að öllum kröfum
verkamanna. Aðalatriði samn-'
ingsins eru þessi: kaup er kr.
2,45 á klst. Eftirvinna er greidd
U.M.F. Skallagrímur, og eru
keppendur frá þessum félögum
79 talsins. í gærkvöld var keppt
í 100 m. hlaupi, stangarstökki.
800 m. hlaupi, kringlukasti,
langstökki, og 1000 m. boð-
hlaupi. Nýtt íslandsmet var
sett í langstökki. Setti það Oliv-
er Steinn úr F.H. og stökk 6.86
m. Gamlá metið var sett árið
1937 af Sigurði Sigurðssyni K.V.
6.81 m. Óskar Jónsson, Í.R. setti
nýtt drengjamet í 800 m. hlaupi,
2.05.6 mín. Annars voru úrslit
svo sem hér segir:
KRINGLUKAST
(ísl. met: Ólafur. Guðm., Í.R.,
43.46 m.).
1. Gunnar Huseby K.R. 41.74 m.
2. Ól. Guðmundss., Í.R. 38.40 m.
3. Bragi Friðrikss. K.R., 38.32 m.
LANGSTÖKK.
1. Oliver Steinn, F.H., 6.86 m.
(nýtt ísl. met).
2. Skúli Guðm.son, K.R., 6.70 m.
3. Brynj. Jónsson, K.R., 6.22 m.
Frá milliþinganeffld
í skötamðliim
Milliþinganefnd i skólamálum
heldur nú fund hvern virkan dag,
og mun svo næstu vikur. Auk þess
skipta nefndarmenn með sér störf-
um og rannsaka nú þau svör, er
nefndinni hafa borizt varðandi
hina ýmsu skóla, svo sem t. d.
barnaskóla, gagnfræðaskóla, hér-
áðsskóla og menntaskóla. Svör
þessi eru enn mikils til of fá, og
telur nefndin það mjög m'iður far-
ið, ef ekki verður úr því bætt.
með 50% álagi á dagvinnukaup
og nætur- og helgidagavinna
með 100% álagi. 8 stunda vinnu-
dagur (var áður 10 stundir).
Slasist verkamaður við vinnu
skal honum greitt kaup í 7 daga.
Meðlimir Þórs hafa forgangsrétt
til vinnu.
Verkamenn austanfjails hafa
þarna unnið ágætan sigur og
eru þeir hinir ánægðustu. Hafa
félagsmönnum í Þór fjolgað sein
ustu dagana.
6.82 m.
1000 m. boðhlaup (ísl. met sveit
K.R., 1937, 2.05.4).
1. Sveit Í.R. 2.08.3 mín.
2. A-sveit K.R., 2.09.7 mín.
3. Sveit Á. og B-sveit K.R. 2.13.0
mín.
Sveit Á. og B-sveit K.R. munu
keppa um 3. sætið í kvöld.
100 m. hlaup.
(ísl. met: Sveinn Ingvarsson
K.R., 10.9 sek.).
1. Oliver Steinn F.H. 11.7 sek.
2. Finnbj. Þóroddss.í.R. 11.8sek.
3. Árni Kjartansson Á. 12.0 sek.
Stangarstökk.
(ísl. met: Guðjón Magnússon,
K.V. 3.53 m.). •
1. Þork. Jóhanness. F.H. 3.25 m.
2. Sig. Steinsson Í.R. 3.00 m.
3. Magn. Gunnarss. F.H. 2.92 m.
800 m. hlaup.
(ísl. met: Ólafur Guðmundsson
K.R., Stokkh-., 1939, 2.00,2 mín.).
1. Kjart. Jóh.son Í.R. 2.02,2 mín.
2. Hörður Hafliðas. Á. 2.03.0 —
3. Brynj. Ingólfss. K.R. 2.05,1 —
4. Óskar Jónsson Í.R. 2.05.6 —
Tími Kjartans er bezti árang-
ur, sem náðst hefur hér á landi,
þar sem ísl. met Ólafs Guð-
mundssonar er sett í Stokk-
hólmi. en tími Óskars Jónsson-
ar er nýtt drengjamet.
í kvöld hefst allsherjarmótið
á fimleikasýningu K.R. undir
stjórn Vignis Andréssonar kl.
8.00. Kl. 8.30 hefst svo keppnin
og verður keppt í .kúluvarpi,
200 m. hlaupi, hástökki, 1500
m. hlaupf. 110 m. grindahlaupi
og 10,000 m. göngu.
PHHfe TJARNARBÍÓ
J Gift fóik
á glepstigun
(Let’s Face It’)
Bráðskemmtileg'ur amerískur
gamanleikur.
BOB HOPPE,
BETTY HUTTON.
Sýning kl. 5, 7, og 9.
r
Aki Jakobsson
héraðsdómslögmaður
og
Jakob J Jakobssoií
Skrifstofá Lækjargötu 10 B.
Sími 1453.
Málfærsla — Innheimta
Reikningshald, Endurskoðun
Félagsdómur
Framh. af 5. síðu.
á þessa niðurstöðu, að því er
varðar skaðabótakröfuna. Telur
hann að taka beri til greina
framangreinda sýknuástæðu
stefndu, þar sem stefnandi hafi
ekki áskilið sér rétt til að kref j-
ast skaðabóta yið undirskrift
samningsins frá 1. febr. 1943.
Samkvæmt því, sem að fram-
an er rakið ber stefndu verk-
lýðsfélagi aðeins að greiða stefn
anda bætur fyrir róðrartap m.b.
Frelsisrði Dannmerkur
Framhald af 1. «íðu
ili fyrir hina frjálsu Danmörk
og að Sovétríkin vildu gjarna
taka móti fulltrúa ráðsins. Frels
isráðið hefur skipað Thomas
Dössing bókavörð fulltrúa sinn
hjá sovétstjóminni. Hann fær
stöðu sem „envoyé“. Eins og
kunnugt er, er Christmas Möl-
ler fulltrúi Frelsisráðs Danmerk
ur í London.
Thomas Dössing, sem er þekkt
ur fyrir frjálslyndi sitt og skiln
ing á þjóðfélagsmálum, var
handtekinn árið 1942 eftir kröf-
um Þjóðverja ásamt Chievitz
prófessor og öðrum merkum
dönskum mönnum, sem voru á-
kærðir fyrir að vera viðriðnir
útgáfu hins ólöglega blaðs „Frit
Danmark“, sem var sameigin-
legt málgagn andstöðuhreyfing-
arinnar. Dössing var dæmdur í
fangelsi eftir að hafa verið 1
varðhaldi í langan tíma. Eftir
29. ágúst 1943 flúði Dössing,
sem Þjóðverjar eltu sífellt til
Svíþjóðar.
Hringurinn
Frh. af 1. síðu
var, en innkomnar tekjur munu
vera um 100 000 kr.
Fyrir eru í barnaspítalasjóð
„Hringsins“ um 250.000 kr. og verð
ur vonandi þess ekki langt að bíða,
að sjóðurinn vaxi svo, að hægt
verði að hefjast handa uni bygg-
ingu spítalans.
í ÞJÓÐVILJANUM
Allsherjamót I. S. I.
1 fslandsmet 09 1 drengjamet sett
14. Allsherjarmót Í.S.Í. hófst í gærkvöldi kl. 8.30 á íþrótta-
vellinum í Reykjavík. íþróttamenn gengu fylktu liði inn á völl-
inn og lék lúðrasveitin „Svanur" Benedikt Waage,
forseti sambandsins, hélt stutta ræðu, en þvínæst hófst keppnin.
5 félög taka þátt í keppninni, Eldra metið var sett af Sig-
K.R., Ármann, Í.R., F.H., og urði Sigurðssyni, K.V., árið 1937,
NYJA BÍÓ
„Pittsburgb"
Spennandi og viðburðarík
stórmynd.
Aðalhlutverkin leika:
MARLENE DIETRICH
RANDOLPH SCOTT
JOHN WAYNE
Bnnuð börnum yngri en 14
ára.
Sýnd kl. 7 og 9.
Tónar og tilhugalíf
(„Strictly in the Groove“)
Dans og söngvamynd með
LEON ERROL,
OZZIE NELSON
og hljómsveit hans.
Sýnd kl. 5.
Árna Árnasonar þann 1. febr.
1943. Krafa stefnanda fyrir tap
þessa róðurs er kr. 1744.32. Bóta
krafan er grundvölluð á því að
meðalafli báta í Sandgerði
þenna dag' hafi verið 16 skpd.
eða 8000 kg. á kr. 0.45 =kr.
3600.00, auk lifrar, er numið
hafi kr. 792,00 og hafi hlutur út-
gerðarmanna þannig numið kr.
1744.32. Stefndi hefur ekki mót-
mælt útreikningi þessum út af
fyrir sig, en telur þó, að ekki
hafi verið tekið nægilegt tillit
til tjóns og slits á veiðarfærum
og skipi. Þykja bæturnar eftir
atvikum hæfilega ákveðnar kr.
1500.00 og ber að dæma stefnt
verklýðsfélag til þess að greiða
stefnanda þá upphæð, ásamt 5
% ársvöxtum frá stefnudegi til
greiðsludags.
Eftir þessari niðurstöðu þyk-
ir rétt að verklýðsfélagið greiði
stefnanda upp í málskostnað
kr. 300.00.
Því dæmist rétt vera:
1. Stefndi, Alþýðusamband
íslands á að vera sýkn af kröfu
stefnanda, Vinnuveitendafélags
íslands f. h. Finnboga Guð-
mundssonar, í máli þessu, en
málskostnaður falli niður.
2. Stefndi, Verklýðs- og sjó-
mannafélag Gerða- og Miðnes-
hrepps greiði, kr. 200.00 í sekt
ítU ríkissjóðs.
3. Stefndi, Alþýðusamband ís-
lands f. h. Verklýðsfélags Gerða
og Miðneshrepps, greiði stefn-
anda, Vinnuveitendafélagi ís-
lands f. h. Finnboga Guðmunds
sonar, kr. 1500.00 ásamt 5% árs
vöxtum frá 7. maí 1943 til
greiðsludags og kr. 300.00 upp
í málskostnað» Dóminum ber
að fullnægja innan 15 daga frá
birtingu hans að viðlagðri að-
för að lögum.
Sératkvæði
Sigurjóns Á. Ólafssonar.
Eg er samþykkur framanrit-
uðum dómi að öðru leyti en því,
að ég tel að sýkna beri Verk7
lýðs- og sjómannafélag Gerða-
og Miðneshrepps af öllum kröf
um í málinu þar eð félagið hafi
engin slík afskipti haft af land-
legu báta sem Finnbogi Guð-
mundsson í Gerðum telst út- *
gerðarmaður fyrir, að við lög
varði.“