Þjóðviljinn - 28.11.1944, Blaðsíða 4
I
Þriðjudagur 28. nóvemlber lf)44 — ÞJÓÐVILJINN
ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 28. nóyember 1944.
þJÓÐVBLIS
Útgefandi: Sameiningarjlokkur alþýðu — Sósialistajlokkurinn.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður Guðmundsson.
Stjórnmálaritstjórar: Einar Olgeirsson, Sigjús Sigurhjartarson.
Ritstjórnarskrifstofa: Austurstrœti 12, sími 2270.
Afgreiðsla og auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 218/f.
Áskriftprverð: í Reykjavik og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði.
Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði.
Prent-smiðja: Víkingsprent h.j., Garðastrœti 17.
Kauplækkunar- og dreifbýlisstefnan
sigraði innan Alþýðuflokksins
Ég hef tryggingu fyrir því, að Alþýðuflokkurinn fer ekki í ríkis-
stjóm með kommunum, sagði Ilermann Jónasson á fundi Framsóknar-
manna í haust.
Það er öruggt að kommamir tapa Alþýðusambandinu, sagði sami
Hermann um svipað leyti.
Alþýðuflokkurinn ánetjaðist í sinni eigin gildru, sagði Hermann
þegar flokkur þessi hafði samþykkt með 11 atkvæðum gegn 10 að taka
þátt í ríkisstjórninni.
Öll þessi ummæli varpa skýru ljósi yfir starfsaðferðir Framsóknar-
flokksins, sambönd hans innan Alþýðuflokksins og þá atburði, sem
gerðust á Alþýðusambandsþinginu.
©
Framsöknarflokkurinn á tvö áhugamál: Að viðhalda „dreifbýlinu ,
þó það kosti það, að bændum sé gert ókleift að veita sér þau lífskjör,
sem nútímamaður krefst og þó allir viti að jafnt þjóðarhagur, sem hag-
nr einstakra bænda krefst þess að sveitabyggðin færist saman, og að
þéttbýli myndist þar sem bezt eru skilyrði til laoidbúnaðarfram'leiðslu
og afstaða bezt til markaða.
Dreifbýlinu verður að viðhalda, hvað sem öllu öðru líður, segir
Framsókn, því án þess fær flokkur sá ekki lifað og hvað vcrður þá um
allt málaliðið? Þetta var hið fyrra áhugamálið, og þessu líkt er hið síð-
ara, en það er, að lækka kaupgjaltlið í landinu.
Baráttan fyrir að lækka kaupgjaldið er rökrétt afleiðing af bar-
áttunni fyrir að vjðhalda úreltum framleiðsluháttum og óhæfu skipu-
lagi byggðarinnar, því slíkir framleiðsluhættir fa ekki staðist, nema
kaupgjaldið sé lágt, en úreltir framleiðsluhættir og óhæft skipulag
byggðarinnar er Framsóknarflokknum lífsskilyrði, þess vegna er flokkur
þessi nú „dreifbýlis“- og kauplækkunarflokkur og ekkert annað.
Engum er alls varnað. Ekki Framsóknarleiðtogunum heldur, og
það mega þeir eiga að þeir unnu býsna vel og markvíst að því að kom-
ast yfir fyrsta áfangann, — kauplækkunaráfangann.
Fyrst voru bumbur vonleysisins barðar. Hrun — hrun — hrun
og aftur hrun, ekkert er framundan nema hrun, söng allt málalið Fram-
sóknarflokksins. Svo var setzl að samningaborði með Alþýðuflokknum
og Sósíalistaflokknum um stjórnarmyndun. Kauplækkun var skilyrði
fyrir stjórnarmyndun. Sósíalistaflokkurinn var ekki til viðtals um þá
leið, svo lauk þeim þætti.
En innan Allþýðuflokksins voru til menn sem ætluðu að ræða um
kauplækkun og nú var gerð tilraun til að koma þeim til valda innan
Alþýðusambandsins. í hverjum einasta kaupstað og þorpi voru leiðtog-
ar Framsóknar á harðahlaupum í allt sumar og haust, beitandi öllu
því valdi, sem þeir hafa yfir atvinnu og afkomumöguleikum manna,
til að reyna að fá sína menn kosna á Alþýðusamibandsþingið, menn
sem vildu tala um kauplækkun kosna á Alþýðusambandsþing.
Seint í septembermánuði var málum svo komið að þeir þóttust
hafa sigrað. Ilermann fullyrti að kommarnir væru búnir <að tapa Al-
þýðusambandinu. Næsta sporið var að tryggja sér að Alþýðuflokkur-
'inn tæki ekki þátt í ríkisstjórn með sósialistum og Hermann samdi
við sína menn í flokknum, og taldi sig hafa sigrað, og nú var mál til
komið fyrir Framsókn að ganga frá samningsborði um myndun fjögurra
flokka ríkisstjórnar, síðan átti Alþýðuflokkurinn að halda áfram að
taka þátt í umræðum um stjórnarmyndun, til málamynda, með þvi
mátti friða vinstri mennina innan flokksins. Þéir hægri áttu svo að
setja skilyrði, sem ekki yrði gengið að, og með því átti að sýna vinstri
mönnunum fram á, að Alþyðuflokkurinn gæti ekki myndað stjorn með
Sjálfstæðisflokknum og Sósíalistum. Svo átti að bíða Alþýðusambands-
þings, koma þar upp stjórn hægri Alþýðuflokksmanna, og þá var braut-
in talin rudd fyrir kauplækkunar- og dreifbýlisríkisstjórn.
En margt fer öðru vísi en ætlað er. Öll dæmi Hermanns voru skakkt
reiknuð. Stefán Jóhann „ánetjaðist í eigin gildru“, hægri menn Alþýðu-
Sköpun bandalags vínnandi stctfa
veígamesfa verkefnið
Alþýðusambandsþingið samþykkti í jymnótt ályktun þá sem
hér fer á eftir um störf frájarandi sambandsstjómar og nœstu verk-
efnin. ,
í ræðum sínum um þetta mál lögðu þeir Jón Rafnsson og Stefán
Ögmundsson áherzlu á hið góða samstarf í fráfarandi sambands-
st-jóm, að undanslcildu framferði Sæmundar Ólafssonar. Sérstaldega
fóru þeir mjóg lofsamlegum orðum um samstarfið við Guðgeir Jóns-
son fráfarandi forseta sambandsins.
Ályktun sú, sem hér fer á eftir var samþykkt einróma, en þess
slcal getið að Hannibal Valdimarsson og helztu ,^álufélagar” þeirra
höfðu þá hlaupizt á brott.
18. þing Alþýðusambands Is-
lands tclur, að á liðnu kjörtíma-
bili hafi samtakamáttur og eining
sambandsins aukist til mikilla
muna, og að veigamiklir árangrar
hafi náðst í hagsmunabaráttu
verkalýðsins.
Þingið telur að sambandsstjórn-
in hafi í meginatriðum starfað í
samræmi við stefnu 17. þings sam-
bandsins.
Um leið og þingið þakkar frá-
farandi sambandsstjórn fyrir vel
unnin störf, vill það þó láta þá
skoðun í ljós, að innan sambands-
stjórnar hafi ekki ríkt nauðsyn-
legur einhugur. Einkum álítur
þingið að stefna og framkoma
Sæmundar Ólafssonar geti á eng-
an hátt talizt í samræmi við stefnu
og venjur hinnar skipulagsbundnu
verklýðshreyfingar, þar sem hann
hefur t. d. opinberlega reynt að
tortryggja tilraunir Alþýðusam-
bandsins til að mynda bandalag
vinnandi stétta, og leyft sér þar
að auki að fara með einkamál sam-
bandsstjómar í opinber málgögn.
Þingið vill því undirstrika nauð
syn þess, að á næsta kjörtímabili ^
verði ríkjándi fullkomin eining í j
æðstu stjórn verklýðssamtakanna,
til þess að Alþýðusambandið geti
leyst þau mikilvægu verkefni af
hendi, er fyrir því liggja, en mik-l
ilvægasta verkefnið telur þingiðj
vera myndun voldugs bandalags
hinna vinnandi stétta til sjávar og
sveita, til þess að tryggja ný-
sköpun þá í atvinnulífi þjóðarinn-
ar, er tryggt geti liinu vinnandi
fólki varanlega atvinnu og batn-
andi lífskjör.
mgiMlii l
Bew M ueeea
Eins og frá var skýrt hér í-
blaðinu, gekkst Eimskipafélag
íslands fyrir minningarathöfn
í New York vegna „Goðafoss“-
slyssins, miðvikudaginn 23. þ.
m. Athöfnin fór fram í St. Pet-
ers lútersku kirkjunni við
Lexington Avenue, og hófst kl.
6 síðd. Um 300 manns voru við-
staddir.
Athöfnin fór að öllu leyti
fram á íslenzku, og prédikaði
séra Oktavíus Þorláksson, en
cand. theol. Pétur Sigurgeirsson
aðstoðaði. Sungnir voru þessir
sálmar: „Á hendur fel þú hon-
um“, „Allt eins og blómstrið
eina“ og „Faðir andanna“. Enn
Framhald á 8. síðu.
flokksins töpuðu innan miðstjórnarinnar, og framfarastjórn var mynd-
uð. Svo kom Alþýðusambandsþingið, Hermann tapaði aftur, lið hans
og Stefáns var í minni hluta.
Á Alþýðusambandsþingi vildu vinstrimenn og stjórnarsinnar inn-
an Alþýðuflokksins að sjálfsögðu hafa samkomulag við Sósíalista um
stjórn sambandsins, og það stóð þeim til boða. Sósíalistar vildu slíkt
samstarf undir forustu Guðgeirs Jónssonar og á svipuðum grundvelli
og tvö síðustu árin. En Framsóknarlínan heimtaði sundrung, það
var síðasta von kauplækkunar- og dreifbýlisstefnunnar. Að þessu sinni
sigraði þessi lína innan Alþýðuflokksins, og eftir miklar deilur og með
litlum meiri hluta var samþykkt að banna öllum Alþýðuflokksmönn-
um að taka sæti í stjórn Alþýðusambandsins, ef Sósíalistar réðu for-
setakjöri, og sérstaklega var lögð áherzla á að Guðgeir Jónsson yrði ekki
í kjöri. Þetta er orsök þess að enginn Alþýðúflokksmaður á sæti í
stjórn Alþýðusambandsins. Framsóknarflokkurinn hefur ákveðið að
reyna að stofna til sundrungar innan sambandsins, til þess hefur hann
fulitingi hægri Alþýðuflokksmanna, en jafnvíst cr að fjöldi Alþýðu-
flokksmanna, svo sem Emil Jónsson, Kjartan Ólafsson, Haraldur
Guðmundsson, Guðgeir Jónsson o. fl. munu enn sem fyrr, stuðla að
einingu og samhcldni innan samtaka verkamanna, þó þeir hafi beygt
sig fyrir flokksmeirihluta á þinginu.
Alþýðusambandsþíngíð
iýsíf eínróma fylgí víd
stefnuskrá núverandi
ríkíssfjórnar
Heitir á vinnandi stéttimar að einbeita öllum
kröftum sínum að framkvæmd hennar.
Alþýðusambandsþingið samþykkti í fyrrinótt einróma eftir-
farandi ályktun um stuðning og fylgi við stefnuskrá núverandi
ríkisstjómar:
„18. þing Alþýðusambands íslands fagnar hinni nýju rílcis-
stjóm íslands og stefnuskrá hennar.
Þingið Utur á myndun ríkisstjómarinnar og stefnuskrána
sem mikinn sigur fyrir lýðrœðisöfl. landsins í baráttunni fyrir
efnalegu og andlegu frelsi þjóðarinnar.
Þingið vill undirstrika það meginatriði i stefnuskrá ríkis-
stjómarinnar, er fjallar um nýsköpun atvinnuvega landsins, eink-
um sjávarútvegsins, sem þingið telur undirstöðuatvinnuveg
landsmanna.
Þingið ieggur áherzlu á þá nauðsyn, að allur hinn ski'pvlags-
bundni verlcalýður og þjóðin öll standi sem órjúfandi heild að
baki þeirra framkvœmda, er stefnuskrá rílcisstjórnarinnar felur
í sér, og telur, að þjóðin þurfi að vera vel á verði gegn tilraunum
afturhaldsins til þess að tortryggja stefnuskrána og hindra fram-
kvœmd hennar.
Til þess að skapa sem bezta og voldugasta tryggingu fyrir
framlfvœmcl stefnuskrárinnar álítur þingið, að einmitt nú sé þess
brýnrd nauðsyn en nokkru sinni fyrr, að alþýða íslands til sjávar
og sveita myndi með sér óflugt bandalag, er vinni að framlcvœmd
stefnuskrárinnar og veiti ríkisstjórninni þar með styrk hins vinn-
andi fólks í baráttu hennar fyrir framförum í landinu.
Þar sem þinginu er það Ijóst, að jramkvœmd stefnuskrár
ríkisstjómarinnar er fyrst og fremst undir því lcomin, að vinnandi
stéttimar einbeiti öllum kröftum sínum að framkvœmd hennar,
felur þingið hinni nýju sambandsstjórn að gera sitt ýtrasta til
þess, að koma bandalagi vinnandi stéttanna á fót sem allra fyrst.
Ennjremur vill þingið með tiUiti til hinha nýju viðhorfa í
þjóðmálum landsins, hvetja öll sambandsfélög sín til þess að taka
sem virkastan þátt í því starfi og þeim áœtlunum, sem nú fara í
hönd um nýskópun atvinnuveganna og almennar framfarir, hvert
á sínum stað og í sinni grein.
Um leið og þingið undirstrilcar mikilvœgi þess fyrir hinar
vinnandi stéttir og alla þjóðina, að sú framsœkna tilraun takist,
sem nú er hafin, leggur það áherzlu á nauðsyn þess, að sem nán-
ast samstarf takizt miUi ríkisstjómarinnar. og Alþýðusamhands-
ins um úrlausn þeirra miklu framfaramála, er ríkisstjórnin hefur
tekið að sér að framkvœma".
Samþykktir Aþýðuss inbandsþingsins
um iðnaðarmál
Eftirfarandi tillögur frá iðn-
aðarmálanefnd 18. þings Al-
þýðusambandsins, voru sam-
þykktar.
I.
18. þing Alþýðusambands ís-
lands skorar á ríkisstjórnina að
bygginjfar og viðgerðir skipa, sem
unnt er að framkvæma í landinu
sjálfu, verði ekki framkvæmdar er-
lendis. 1 því sambandi vill þingið
benda á þann möguleika fyrir rík-
isstjórnina, að afla sér nánari sam-
vinnu við skipasmiðina sjálfa, m.
a. með ráðsfefnu með þeim um
þessi mál.
Þá vill þingið ennfremur benda
á, hvort möguleikar eru fyrir hendi
til að komið yrði upp sýningu ,þar
sem þróun skipasmíðaiðnarinnar
hér á landi yrði rakin eins nákvæm
lega og unnt yrði.
Jafnframt vill þingið benda á
möguleika fyrir því að lækka bygg
ingarkostnað skipa með þvi: í
fyrsta lagi, að lækka tolla á er-
lcndu efni til skipabygginga, og
í öðru lagi með sameiginlegum
innkaupum á efni og vélum og öðr-
um áhöldum.
Samþykkt einróma.
II.
18. þing Alþýðusambands í's-
lands felur væntanlegri sambands-
stjórn að gangast fyrir iðnsveina-
ráðstefnu, þar sem fulltrúum hinna
ýmsu sveinafélaga í iðnaði, bæði
utan sambandsins og innan, sé
boðin þátttaka. Ráðstefnan sé
haldin eigi síðar en 15. janúar
n. k.
Þau verkefni, sem ráðstefna
þessi fengi til yfirvegunar, yrðu
m. a.:
Framh. á 8. síðu.
AlþýOusam-
bandsþingið
Framhald af 1. síðu.
Jón Axel kvaðst harma það, að
verða að lýsa því yfir að ekki
hefði náðst samkomulag. „Við,
sem ég tala fyrir, getum sætt okk-
ur við að verða í minni hluta“.
Lýsti hann því yfir að þeir myndu
stilla í sufn störfin, en ekki öll.
Jón Rafnsson hafði framsögu fyr
ir hinn hluta kjörnefndar.
„Mér er það alls ekki minni
harmur, en þeim manni sem talaði
á undan mér, að ekki skyldi nást
samkomulag. Eg skal gera grein
fyrir því hvað við meinum með
samkoniulagi. Við álítum að hið
æskilega samkomulag eigi ekki að
vera fólgið í því, þegar rætt er
um að velja forustu alþýðusam-
takanna fyrir næstu tvö ár, að
samkomulagið sé fólgið í því, að
tveir flokkar semji á þann hátt
að segja: Þenna hluta. skalt þú
liafa þenna hluta skal ég hafa.
Hér eru að vísu tvö meginöfl
er mótast af skoðanaskiptum, en
hér eru einnig tugir manna er telja
sig ekki fulltrúa neins flokks hcld-
ur fulltrúa fyrir stétt sína. Og það
er einmitt sjónarmiðið sem hér á
að ráða,- að val manna í forustu
sambandsins sé gert með það sjón-
armfð fyrir augum að sem giftu-
drýgst verði fyrir samtökin og
störf þeirra.
Við buðum samkomulag um jöfn
hlutföll og óflokksbundinn odda-
mann. Við buðum það ekki aðeins
hlutfallanna vegna, því við litum
svo á, að hlutföllin séu ei það sem
mestu máli skiptir heldur hitt, að
val mannanna takist þann veg að
um raunverulega samvinnu geti
verið að rœða, þá samvinnu sem
20 þúsundir í samtökum álþýðunn-
ar krefjast.
Við sameiningarmenn í kjör-
nefnd gátum með engu móti
fengið Jón Axel og félaga hans
til að láta okkur vita hverjir
ættu að hafa samstarf við okk-
ur í væntanlegri sambands-
stjóm, við getum ekki fallizt á
þá aðferð, að um samninga
um svo þýðingarmikið samstarf
sé farið eins og hnífakaup að
óséðu. Með skírskotun til
reynslu síðasta starfstímabils,
er leiddi í ljós að mjög góð
samvinna getur tekizt í verk-
lýðsmálum, og einnig með tilliti
til þess sem miður fór, vildum
við fá samkomulag um manna-
valið. Við buðum samkomulag
um óbreytta sambandsstjóm
að öðru leyti en því að nýr
maður yrði valinn 1 stað Sæ-
mundar Ólafssonar, og skyldi
verða samkomulag um þann
mann. Þessu var algerlega hafn-
að.
Það em alvarlegir tírnar nú,
eins og síðasti ræðumaður sagði,
og einmitt með tilliti til þess
skil ég ekki hverriig þeim mönn
um gefst leyfi til að lýsa því
yfir í nafni þúsunda umbjóð-
enda að þeir hafni samkomu-
lagi.
Við æsktum samkomulags og
hörmum að það tókst ekki, en
fyrst það ekki tókst skulum við
nú ganga tfl kosninga eins og
ábyrgum lýðræðissinnum sæmir
og skýrskota ég til ábyrgðar
þingsins “
Stefán Ögmundsson
Bjöm Bjarnason
Kristján Eyfjörð
Var því næst gengið til kosn-
ingar um forseta, stungið var upp
á Hermanni Guðmundssyni og
Helga Ilannessyni. Urðu úrslit
þau að Ilermann. Guðmundsson
var kosinn með 108 atkv., Helgi
Hannesson fékk 104, 1 seðill var
auður. Nokkrir hægri klíku menn,
úndir forustu óhappamannsins
Hannibals Valdimarssonar hróp-
uðu upp að jieirra menn myndu
ekki taka sæti undir forsæti Iler-
manns Guðmundssonar. Tilraun-
ir þeirra til að koma af stað æs-
ingum mistókust þó algerlega og
var samþ. mcð þorra atkv. gegn
4 till. frá Eggert Þorbjarnarsyni
um að skoi-a á fulltrúana að taka
störfum.
Varaforseti var kosinn Stefán
Ögmundsson og ritari Björn
Bjarnason, báðir sjálfkjömir.
Miðstjórnarmenn í Reykjavík
og Hafnarfirði voru því næst kjörn
ir. Hinn ábyrgðarlausi angurgapi
Hannibal Valdimarsson hrópaði:
Sem heiðarlegur lýðrœðissinni
skora ég á fylgismenn mína að
fara héðan út. Hannibal og sálu-
félagar hans fóru fram að dyrum,
en þriðji hluti flokksmanna þeirra
sat eftir og margir þeirra sem út
gengu .fóru sárnauðugir.
Kosning stjórnarinnar fór þann-
ig:
Miðstjórnarmenn, auk þeirra er
áður er getið:
Guðbrandúr Guðjónsson
Ur Reykjavík: Jón Rafnsson.
erindrpki Alþýðusambandsins, Sig-
urður Guðnason, fonm. Dagsbrún-
ar, Jón Guðlaugsson, í stjórn vöru-
bílstjfél. Þróttur, Guðbrandur
Guðjónsson, múrari.
Ur Hafnarfirði: Kristján Eyfjörð
form. Sjómannafélags Hafnarfjarð-
ar og Bjarni Erlendsson.
Sambandsstjórnarmenn:
Af Norðurlandi: Gunnar Jó-
hannsson formaður Þróttar Siglu-
firði og Tryggvi Helgason. formað-
ur Sjómannafélags Akureýrar.
Af Austurlandi: Bjarni Þórðar-
son Norðfirði og Inga Jóhannes-
dóttir Seyðisfirði.
Af Vesturlandi: Árni Magnússon
sjómaður ísafirði og Jón Timo-
teusson formaður Verklýðsfélags
Bolungarvíkur.
Af Suðurlandi: Sigurður Stefáns-
son formaður Sjómannafélagsins í
Vestmannaeyjum og Jóhann Sig-
mundsson, gjaldkeri Verklýðsfé-
lags Gerða- og Miðneshrepps.
Varamenn
Frá Reykjavík: Þorsteinn Pét-
ursson, Eggert Þorbjarnarson, for-
maður Fulltrúaráðs verklýðsfélag-
anna í Reykjavík, Bergsteinn Guð-
jónsson, form. Hreyfils og Bjarni
Kemph.
Af Norðurlandi: Páll Kristjáns-
son ritari Verkamannafélags Ilúsa-
víkur og Skafti Magnússon form.
Vmf. Fram Sauðárkróki.
Pétur
logimundarson
slökkviliðsstjóri
Saknaðar- og tómleikakennd
grípur hugi manna þegar ein-
hver hverfur úr samstarfi eða
daglegri umgengni, og sá hinn
sami hefur í viðmóti og fram-
komu unnið hug og vináttu
samstarfsmanna sinna.
Slík kennd greip vissulega
hugi okkar, sem erum í slökkvi
liði Reykjavíkur, þegar við frétt
um andlát Péturs Ingimundar-
sonar, slökkviliðsstjóra, bæði
þeirra, sem búnir voru að starfa
með honum áratugi og hinna
sem skemur hafa þar verið.
Eins og kunnugt er hefur Pét-
ur Ingimundarson með árastarfi
sínu unnið slökkvilið Reykjavík
ur upp í það álit og traust, sem
það nú nýtur meðal bæjarbúa
og þótt lengra væri leitað. Stig-
in til framfara 1 endurbótum
áhalda og skipulags voru ekki
alltaf stór en hvert stig sem
tiÞframfara og öryggis vissi var
honum að skapi og gladdi hann.
í daglegri umgengni virtist
Pétur Ingimundarson fáskipt-
inn, en hvenær sem maður hitti
hann að máli, hvort heldur var
á förnum vegi, í varðstofu
slökkviliðsins eða skrifstofu
hans, var hógværð hans og vin-
arþel hið sama, og það sem
sýndi bezt hver mannvinur
hann var, að hann þoldi ekki að
neinum væri hallmælt, án þess
að finna málsbætur fyrir þann
umrædda. •
Við slökkviliðsmenn kveðjum
vinar í stað þar sem foringi
okkar er fallinn frá, við höf-
um með honum marga hildi
háð, og ávallt í starfi og utan
þess var hann okkur sannur vin
ur, bar umhyggju fyrir lífi
okkar og limum, og þótt hann
krefðist mikils af okkur þegar
mikið lá við, þá var honum
mjög annt um að við hefðum
íulla gætni við starf okkar.
Hann bar einnig mikla um-
hyggju fyrir hagsmunamálum
okkar, svo sem tryggingum og
öðrum réttindum.
Við slökkviliðsmenn kevðjum
þig, við þökkum þér drenglund
þína, vináttu og kærleika er
þú ávalt sýndir okkur, við sökn
um þín sem foringja, samstarfs -
manns og vinar.
Slökkviliðsmenn.
Af Austurlandi: Jóhannes Ste-
fánsson ritari Verklýðsfélags Norð-
fjarðar og Sigurgeir Stefánsson for-
maður Verklýðsfélags Djúpavogs.
Af Suðurlandi: Björgvin Þor-
steinsson, form. Þórs Selfossi og
Gísli Andrésson, form., Esju í
Kjós.
(Því miður tókst ekki að fá
í tæka tíð myndir tveggja
manna í miðstjóm Alþýðusam-
bandsins, þeirra Jóns Guðlaugs-
sonar og Bjama Erlendssonar,
og biður blaðið afsökunar á
því, munu myndir af þeim
verða birtar bráðlega).
Atviniiumál Hafn-
arfjarðar
Framhald af 2. síðu.
hótel og hressingarheimili, sem
stæði við suðurenda Kleifar-
vatns.
FISKIRÆKT í KLEIFAR-
VATNI.
Fiskirækt í Kleifarvatni get-
ur mjög sennilega oróið til þess
að veiði úr vatninu verði arð-
vænlegur atvinnuvegur þegar
tímar líða fram. En eins og
kunnugt er, er eigi annað um
fisk í vatninu nú en hbrnsíli.
Til mála gæti komið að flytja
fisk (vatnafisk) hingað erlend-
is frá og setja hann í Kleifar-
vatn. Væri það eigi lítið hag-
ræði Hafnfirðingum að geta
veitt í Kleifarvatni gnægð af
allskonar vatnafiski, sem þar
væri orðinn til vegna fiskirækt-
ar, en fiskirækt víða um land
hefur gefið svo góðan árangur,
að eigi er ástæða til annars en
ætla að hún muni heppnast vel
í Klejfarvatni.
Nefndin gerir sér fulla grein
fyrir því, að greinargerð þessi
er hvergi nærri nægilega ýtar-
leg, þar sem um svo víð+ækar
tillögur er að ræða og hér hafa
verið settar fram, en nefndm
telur sig ekki hafa tök á að
hafa greinargerðina svo full-
komna, sem nægur tími og yfir-
ráð yfir fjárhagslegri og verk-
íræðilegri þekkingu myndu
gera kleift, og lætur því nægja
það sem hér fer á undan, að
því viðbættu, sem nefndin setur
fram sem sína ósk, að alda sú,
sem nú er risin til viðreisnar
og eflingar atvinnulífinu (sam-
anber málefnasamning stuðn-
ingsflokka núverandi ríkisstjórn
ar), megi ná til Hatnarfjarðar
í sem ríkustum mæli.
Hafnarfirði, 25. okt. 1944.
Atvinnumálanefnd „Hlífar“.
Helgi Sigurðsson — Grímur Kr.
Andrésson — Bjarni Erlendsson
— Bergsteinn Björnsson — Sig-
urbjörn Guðmundsson — Þor-
leifur Guðmundsson — Her-
mann Guðmundsson.
P. S.
Einn nefndarmanna, Bjarni
Erlendsson, vill taka það fram,
að hann er mótfallinn því, að
bærinn kaupi Víðistaðina, þar
sem hann sem eigandi, vill ekki
selja staðinn.
(Samþykkt í einu hljóði á
Hlífarfundi 29. okt. 1944).
Hull fær lausn frá
embætti
Roosevelt forseti liefur tilkynnt,
að hann hafi veitt Cordell llidl,
utanríkisráðherra, Imisn vegna
heilsubrests.
Við embætti hans tekur Edw.
Stettinius.
Hull er 73 ára gamall.
Hann hefur verið utanríkisráð-
herra síðan 1933.
Hann átti drýgstan þátt í að
stjórnmálasamband komst á milli
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna.