Þjóðviljinn - 07.01.1945, Blaðsíða 2
ÞJOÐVILJINN
2
Sunnudagur 7. janúar 1945.
úfiœiapuéótnrink
MannllOn lalnndlnia 0 alO 1944
nalra an nastn tr 0 nnlan
17 skip, samtals 2344 rúmL
Á síðastliðnu ári vaxð íslenzka þjóðin fyrir allmiklu tjóni
á mönnum og skipum, eins og undanfarandi stríðsár.
Árið 1944 fórust í sjó 83 menn og er það meira en 2 næstu
ár á undan, þá fórust í sjó 61 maður annað árið en 75 hitt. Árið
1941 er þó mesta mannskaðaárið, en þá fórust 141 maður.
í skýrslu frá Slysavamafélagi íslands um manntjón 1944
segir svo:
„Á árinu 1944 hefur íslenzka þjóðin orðið á bak að sjá 83
hraustum og hugrökkum sjómönnum og öðmm sjófarendum,
»
flestum í blóma lífsins og fyrirvinnu heimila.
17 skip hafa horfið í hafið af ísl. flotanum fyrir fullt og allt,
er vom að rúmlestatali samtals 2344 rúmlestir. Verðmæti þessa
skipastóls með núverandi verðlagi mun nema um eða yfir 20
milljónir króna.
Bréf gegn óvinum prent-
listar
Eftifarandi bréf hefur Bæjarpóst-
inum borizt frá Halldóri Kiljan
Laxness:
„Til ritstjóra Þjóðviljans.
Eg hef hvað eftir annað kvaftað
við ráðamenn Þjóðviljans yfir því,
að blaðið er oft svo illa prentað,
að forustugreinin verður ekki les-
in, vantar fleiri eða færri stafi
framan á hverja linu. Þetta endur-
tekur sig stundum dag eftir dag,
stundum með nokkurra daga fresti.
Eg hef tjáð afgreiðslunni, að áskrif-
andi blaðsins, kynoki ég mér
við að borga blaðið þá mánuði, þeg-
ar það er dögum saman ólæsilegt
vegna illrar prentunar. Eg hef spurt
sérfróðan mann í prentlist, hvar
eigi að flokka þá vinnu, sem lýsir
sér í ólæsilegu prenti. Hann svar-
aði: Undir ónýt eintök. Mér skilst
að ekki sé rétt gagnvart neinum að-
ilja að borga fyrir ónýt eintök af
blaði, og allra sízt fyrir heil upplög.
Sé spurt hverjum sé þægð í þessum
vinnubrögðum er svarið: Ekki prent
smiðjueiganda né prentsmiðjustjóra,
ekki viðskiptavinunum, — en þó
allra sízt prenturunum, því slíkur
sóðaskapur miðar að því einu að
vekja fyrirlitningu á íslenzkri prent
vinnu og skapa íslenzkum prentur-
um óvini. Eg sé ekki hvers vegna
kaupendur blaðanna ættu að vera
skyldir til að borga fyrir vinnu,
sem virðist vera unnin í þeim ein-
um tilgangi að gera prenturum
skömm.
í dag vantar fimm og sex stafi
framan á hverja línu í forustugrein
Þjóðviljans. Eg sendi eftir fleiri ein
tökum, ef eitt skyldi finnast læsi-
legt, en þau eru öll eins. M. ö. o.
allt upplag blaðsins virðist vera
ónýtt. Eg hringi til afgreiðslumanns
ins og spyr, hversvegna þeir kaupi
slíka vinnu, sem ekki á skylt við
vinnu, heldur er uppmálað verk-
menningarleysið. Mundu mennimir
ekki vinna betur ef neitað væri að
borga fyrir þessa ómynd, (það er
nefnilega oft svo, að þeir sem ekki
skilja gildi verkmenningar, skilja
gildi krónu og aura). Afgreiðslu-
maðurinn svarar: Þetta mál hefur
oft verið til umræðu milli blaðsins
og prentsmiðjunnar. En þegar við
kvörtum segir prentsmiðjan: Þið
getið farið eitthvað annað.
Það er sama svarið og á sumar-
gistihúsunum, þegar menn kvarta
yfir úldnum mat og óþverra: Þið
getið leitað eitthvað annað.
Með öðrum orðum: ómennska
í vinnubrögðum sem úrslitakostir
og terror.
Eg skrifa Þjóðviljanum þetta bréf
sem vinur biaðsins og óvinur óvina
prentlistarinnar, og skora á ykkur
að reyna enn að gera einhverjar
ráðstafanir til þess að blaðið sé svo
úr garði gert, að kaupendur geti
séð hvað stendur í því.
Reykjavík, 5. janúar, 1945.
H. K. L.“
Þjóðnýting
atvinnutækjanna
Árni Jónasson trésmiður sendir
Bæjarpóstinum langt bréf um at-
vinnuvegi og þjóðlíf, og ber greinin
með sér að hann hefur hugsað mik-
ið um þessi mál, og er margt í grein
inni athyglisvert. í bréfinu segir
m. a.:
„Til þess að tryggja heilbrigt
þjóðfélag, vernda menningarleg lífs-
kjör vinnandi stétta og að eðlileg
þróun geti átt sér stað, efnahags-
lega og andlega er bætt þjóðskipu-
lag nauðsynlegt.
Fyrsta skilyrðið til þess að svo
megi verða er að þjóðin öll í sam-
einingu fái yfirráðin yfir auðlind-
um landsins og tækin til að nytja
þær í sínar hendur.
Þeir sem eiga að hafa fram- 1
leiðsluna á hendi er fyrst og fremst
ríkið, sem ber um leið ábyrgð á
velferð þjóðarínnar, þá bæjar- og
sveitarfélög, og einstaklingar sem
vinna í hinum ýmsu starfsgreinum,
sameiginlega undir vernd ríkisins.
Þannig á framleiðslan að fara
fram, í sem stærstum stíl, við sem
bezt skilyrði, með fullkomnum tækj
um, en þó takmarkast eftir þörf
hinna ýmsu framleiðslutegunda á
hverjum tíma, svo hvorki verði of-
framleiðsla eða vöntun.
Ríkið á að hafa öll millilandavið-
skipti, svo að þau geti farið fram
í stórum stíl, með því gætu náðst
hagkvæmari kjör, bæði með út-
flutningsvörur og innfluttar. Vöru-
dreifingin innanlands gæti einnig
verið miklu hagkvæmari en nú er.
og þyrfti einnig þar að gæta í-
hlutunar hins opinbera svo að hags-
muna fjöldans yrði betur gætt en
nú er.
Siglingar allar, bæði milli landa
og með ströndum fram, ættu að
vera í höndum hins opinbera.
Þyrfti rikið að eiga nægilega stór
| og mörg skip til að geta fullnægt
flutningaþörfinni og hagað sigling-
unum sem bezt.
Ríkið ætti að eiga stóra nýtízku
togara, nægilega marga, og gera
þá út, en bæjarfélög og samvinnu-
félög sjómanna ættu hinsvegar
smærri skip og gerðu þau út. Með
því móti yrðum við frekar sam-
keppnisfærir við aðrar þjóðir á
sviði sjávarútvegsins, en það er
okkur lífsnauðsyn“.
Lærði hann í Leníngrad?
Gamansemi er lifsins krydd. Það
ber því vissulega að skrifa hið kát-
broslega í fari Alþýðuflokksforust-
unnar tekna megin í reikning henn-
ar — ekki mun af veita.
Fyrir Alþýðusambandsþingið full-
yrti Hermann Jónasson að Alþýðu-
flokkurinn og Framsóknarmenn
mundu verða í meirihluta á þing-
inu. Þá varð Stefán við Alþýðublað-
ið og Stefán hijin glaður. Hermann
var búinn að segja það, og þá hlutu
þeir að verða í meirihluta. Samt
voru til menn sem efuðust um að
þessi meirihluti Hermanns væri til
í veruleikanum og vildu ekki selja
Stefánunum algjört sjálfdæmi. Við
skulum bara sýna ykkur það, sögðu
Stefánarnir, við kjósum um for-
setann. En sjá, forsetaefni Stefán-
anna og Hermanns féll. Þá urðu
Stefánamir reiðir og létu lið sitt
ganga af þingi. Svo lýstu þeir yfir
að það væri ómögulegt að vinna
með kommúnistum í verklýðshreyf-
ingunni
*
Svo víkur sögunni að Dagsbrún.
í stjórn Dagsbrúnar er nú einn Al-
þýðuflokksmaður. Meinhægur heið-
ursmaður. Uppástungunefnd Dags-
brúnar kom að máli við hann og
vildi leggja til að hann ætti áfram
sæti í stjórninni. Hann kvaðst þurfa
að tala við sína menn. Hans menn
sögðu að kommúnistar væru vond-
ir menn, meira að segja svikarar og
að enginn Alþýðuflokksmaður
mætti vera með þeim í stjóm Dags-
brúnar. Svo ákvað Alþýðuflokkur-
inn að stilla í Dagsbrún, til að sýna
svart á hvítu að svo „finn flokkur“
vilji engin mök eiga við kommún-
ista.
*
Loks kom ab því að kjósa átti
stjórn í fulltrúaráð verklýðsfélag-
anna í Reykjavík. Þar ráða „komm-
únistar" öllu. Þessir sömu sem
höfðu meirihluta á Alþýðusambands
Framh. á 5. síðu.
Mannskaðana hefur skrifstof
an flokkað þannig:
1) Af farþegaskipi fórust 14
skipverjar og 10 farþegar 24
samt. 2) Af togara sem fórst
fórust 29 samt. 3) Af flutninga-
skipi sem fórst fórust 2 far-
Or bor*g?rmI
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólanum,
sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkurapó-
teki, sími 1760.
Ljósatími ökutækja er frá kl. 3.20
e. h. til kl. 9.50 f. h.
Næturakstur: Bifröst, sími 1508.
»
Útvarpið í dag:
8.30 Morgunfréttir.
11.00 Morguntónleikar (plötur):
Óperan „Tosca“ eftir Puccini, }
1. þáttur.
12.10—13.00 Hádegisútvarp.
14.00 Messa í Dómkirkjunni (séra
Sigurbjörn Einarsson). —
Kveðjuguðsþjónusta.
15.20—16.30 Miðdegistónleikar (plöt
ur): Óperan „Tosca“ eftir
Puccini, 2. og 3. þáttur.
18.30 Barnatími (Pétur Pétursson
o.fl.).
19.25 Hljómplötur: L’Arlesienne1
svíta eftir Bizet.
20.20 Einleikur á píanó (Fritz
Weisshappel): Rapsodia nr.
5 eftir Liszt.
20.'35 Erindi: Annáll ársins 1944
(Vilhjálmur Þ. Gislason).
21.00 Hljómplötur: Norðurlanda-
söngvarar.
21.15 Upplestur: Úr ritum Guðrún-
ar Lárusdóttur (frú Lára
Sigurbj örnsdóttir).
21.40 Hljómplötur: Klassiskir dans-
ar.
22.05 Danslög.
23.00 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
18.30 íslenzkukennsla, 2. flokkur.
19.00 Þýzkukennsla, 1. flokkur.
19.25 Þingfréttir.
20.30 Erindi: Samtíð og framtíð:
Viðskipti manna og gerla, II
(Sigurður Pétursson gerla-
fræðingur).
21.55 Hljómplötur: Lög leikin á
xylofon.
21.00 Um daginn og veginn (Sigurð
ur Einarsson og Vilhjálmur
Þ. Gíslason).
21.20 Útvarpshljómsveitin: íslenzk
alþýðulög. — Einsöngur (Mar-
íus Sölvason).
22.00 Fréttir.
Dagskrárlok.
þegar. 4) Af mótorskipum yfir
12 rúml., sem fórust, 14 samt.
5) Af litlum vélbát, sem hvolfdi J
1. 6) Af vélbát yfir 12 rúml. j
sem hvolfdi, 1- 7) Féllu út af
flutningaskipum 5 samt. 8)
Féllu út af vélbátum yfir Í2
rúml. 1. 9) Drukknaði af segl-
bát 1. 10) Féllu út af togara 1.
11) Féllu út af bryggjum 4;
samtals 83.
Bráðabyrgðaflokkun á skipa-
tjóni:
1) 1 farþegaskip , Goðafoss“
1542 rúml. 2) 1 togari, „Max
Pemberton“ 321 rúml. 3) 3
flutningaskip, „Rafn“, „Sæ-
unn“, „Búðarklettur“, samt. 217
rúml. 4) 7 fiskiskip, mótorskip
yfir 12 rúml. „Njörður“
„Freyr“, „Bjöm“ H“. „Óðinn“,
„Árni Árnason“, „Kolbrún11
„Þorgeir Goði“, samtals 234
rúml. 5) Vélbátar undir 12
rúml. Vélb. frá Djúpavogi, „Ell-
iði“, „Sæfari“, „Ella“, „Hafald-
an“, samtals 30 rúml. Samtals
2344 rúmlestir.
Franskir kommúnistar
semja við sósíaldemó-
krata
Franski kommúnistaflokkur-
inn hefur stigið nýtt skref í átt-
ma til sameiningar verkalýðs-
ins í Frakklandi. Hann hefur
skipað sex manna nefnd til að
hefja sameiningarviðræður við
Sósíaldemókrataflokkinn.
Þetta var gert sem svar við
ályktun þeirri, sem samþykkt
var á flokksþingi Sósíaldemó-
krataflokksins. Var í henni end
umýjað það sameiningartilboð,
sem hann hafði þegar lagt fram
á tímum ®leynibaráttunnar.
Um leið og Kommúnistaflokk
urinn fellst á að hefja þessar
viðræður, tekur hann skýrt
fram, að þær megi alls ekki
skerða þá einingu, sem þegar
er innan mótspymuráðsins.
Hann bendir líka á að flokk-
urinn kunni að hefja viðræður
einnig við aðra flokka og mót-
spymufélög.
Sjötugvr er á morgun Jón Engil-
bertsson, trésmíðameistari, Sunnu-
hvoli, Grindavík. Hefur Jón tekið
mikinn þátt í félagsmálum, átt sæti
í hreppsnefnd og sóknamefnd, og
starfað innan Góðtemplarareglunn-
ar.
Úrslit þingmála
(Frá skrifstofu Alþingis).
STJÓRNARFRUMVÖRP
SAMÞYKKT:
Frumvarp til laga um Hjúkrun-
arkvennaskóla íslands. Samþykkt
sem lög 12. desember.
ÞINGMANNAFRUMVÖRP
SAMÞYKKT:
Frumvarp til laga um breyt. á
lögum nr. 99 16. des. 1943, um
á'byrgð ríkissjóðs á tjóni, sem hlýzt
af veru herliða Bandaríkja Norð-
ur-Ameríku hér á landi. Samþykkt
sem lög 29. nóvember.
Frumvarp til laga um breyt. á
hafnarlögum fyrir Akureyrar/caup-
stað, 3. nóv. 1915. Samþykkt sem
lög 6. desember.
Frumvarp til laga um breyt. á
lögum nr. 21 14. júní 1929, um
hafnargerð á Skagaströnd. Sam-
þykkt sem lög 12. desembef.
Frumvarp til laga um breyt. á
lögum nr. 85 23. júní 1936, um
meðferð einkamála í héraði. Sam-
þykkt sem lög 14. desember.
Frumvarp til laga um breyt. á
og viðauka við lög nr. 36 30. júlí
1909, um laun háskólakennara, og
um beryt. á lögum nr. 21 1. febrú-
ar 1936, ufn Iláskóla íslands. Sam-
þykkt sem lög 14. desember.
Frumvarp til laga um lendingar-
hœtur í Djúpavogi. Samþykkt sem
lög 14. desember.
Frumvarp til laga um lendingar-
bœtur í Selárdal í Ketilsstaða-
hreppi. Samþykkt sem lög 15. des-
ember.
Frumvarp til hafnarlaga fyrir
Ólafsfjörð. Samþykkt sem lög 15.
desember.
Frv. til laga um veiting rílás-
horgararéttar. Samþvkkt sem lög
16. desember.
Frumvarp til laga um breyt. á
hajnarlögum fyrir N eshaupstað r
nr. 66 4. júlí 1942. Samþykkt sem
lög 16. desember.
Frumvarp til laga um breyt. á
lögum nr. 38 30. júní 1942, um
breyt. á lögum nr. 26 13. janúar
1938, um bœndaslcóla. Samþykkt
sem lög 16. desember.
ÞINGMANNAFRUM-
VÖRP, VÍSAÐ TIL
RÍKISSTJÓRNARINNAR.
Frumvarp til laga um breyt. á
lögum nr. 100 1938, um iðnaðatr-
nám, og lögum nr. 43 1940, um
breyt. á þeim lögum. Tillaga minnt
hl. iðnn. Nd. í nál: á þkj. 548 um
að vísa frv. til ríkisstjórnarinnar
samþykkt í Nd. 2. apríl, við fram-
hald 2. umr. málsins.
ÞINGSÁLYKTUNAR-
TILLÖGUR SAMÞYKKTAR:
Tillaga til þál. um að skora á
ríkisstjórnina að gera nú þegar
ráðstafanir til þess að auka við
húsnœði jyrir geðveikt fólk. Sam-
þykkt sem ályktun Alþingis 30.
nóvember.
Tillaga til þál. um þátttöku í
alþjóðlega v innumálasam b andinu.
Samþykkt sem ályktun Alþingis-
7. desember.
Tillaga til þál. um rannsókn á
skilyrðum til hitaveitu vegna
Húsavíkur. Samiþykkt sem álykt-
un Alþingis 15. desember.
Tillaga til þál. um smíði brúar
á Jökvlsá á Fjöllum hjá Gríms-
stöðum. Samþykkt sem ályktun
Alþingis 16. desember.