Þjóðviljinn - 17.01.1945, Page 8
Allmiklar skemmdir urðu á símalínum og
sambandslaust víða í gær
Sambandslaust við Austfirði, Snæfellsnes, Isafjörð
Allmiklar skemmdir urðu í jyrrinótt á símalínum víðsvegar um
landið og seint í gœr var enn sambandslaust mð Austjirði, ísajjörð og
Snœfellsnes og slœmt samband við Norðurland og nákvœmar jregnir af
skemmdunum þvi ekki jyrir liendi, en yfirleitt munu þœr þó eigi haja
verið mjög stórvœgilegar.
í gærmorgun voru línurnar bil-
aðar í nágrenni bæjarins og var
gert við þær í gær. Einnig var þá
sambandslaust við Vestmannaeyj-
ar, en sam'bandið þangað komst í
lag í gær. í gærmorgun vai sam-
band við Austfirði, en bilaði í gær
og er bilunin fyrir austan Vík.
Sambandslaust Var við Snæfells-
í gærkvöld og yar bimnin í
nes
Borgarfirði. Einnig var sambands-
laust við tsafjörð. Var línan biluð
fyrir norðan Borðeyri
Mest af bilununum mun hafa
verið samsláttur á línum og smá-
slit, en ekki mikið um staurabrot.
Unnið var að viðgerðum allan
daginn í gær og er von um að
samíband komist fljótlega á aftur
við liina ýtnsu staði.
Skip á höf ninni
slitna upp og laskast
I jyrrinótt var hér ajspymurok
og slitnuðu nokkrir bátar upy licr
á höfninni,
Vélbátinn Hring frá Siglufirði
rak út úr ytri höfninni og síðan
upp í fjöruna við Skúlagötu.
Skemmdir urðu á nokkrum bátum
og skipum, m. a. brotnaði Hafborg
frá Akranesi nokkuð.
Nýr aðstoðarbókavörð-
ur við Landsbókasafnið
Geir Jónaissyni inagister hefur
verið veitt aðstoðarbókavarðar-
staða við Landsbókasafnið, frá 1.
janúar þ. á.
Embætti laus til um-
sóknar
* Eftirgreind embætti við Háskóla
íslands hafa verið auglýst laus til
umsóknar: Dósentsembætti í sögu
og dósentsem'báetti í bókmenntum
við heimspekideildina, og þrjú pró-
fessorsembætti við verkfræðideild-
ina.
Umsóknarfrestur til 15. febrúar.
Dómar
Sex mánaða fangelsi fyrir
svik
Nýlega hefur sakadómari kveð-
ið upp nokkra dóma fvrir ýmis af-
brot.
Stefán Agnai' Magnússon var
dæmdur í sex mánaða fangelsi og
sviptur kosningarrétti og kjör-
gengi fyrir svik. Hafði hann haft
200 kr. af tveim mönnum á þann
hátt að bjóða þeim fataefni til i
kaups og taka greiðslu fyrirfram. I
Fataefnið hafði hann aldrei átt. j
Stefán hefur margsinnis verið
dæmdur áður fyrir auðgunarbrot.
Veitandinn hlaut 500 kr.
sekt. — Þiggjandinn 20
daga varðhald
Síðastliðið haust fór bifreið út
af veginum hjá Hólmi. Kona, sem
var í bifreiðinni, varð undir henni
og slasaðist alvarlega. Bifreiðar-
stjórinn var ölvaður. Hann var ný-
lega dæmdur í 20 daga varðhald
og sviptur ökuleyfi í eitt ár.'Mað-
ur konu þeirrar er slasaðist hafði
veitt bifreiðarstjóranum vínið og
var hann dæmdur í 500 kr. sekt.
Innbrotið í KKON í
Sandgerði
Tveir menn hafa nýlega verið
dæmdir fyrir að brjótast inn í
KRON í Sandgerði, skömmu fyrir
áramótin. Stálu þeir 150 kr„ vind-
lingum og einhverju smádóti. X>eir
voru dæmdir í þriggja mánaða
fangelsi, skilorðsbundið. og sviptir
kosningarrétti og kjörgengi.
Þjófnaður og misferli
T>á hefur 17 ára pilbur verið
dæindur nýlega í 0 mánaða fang-
clsi skilorðsbundið fvrir þjófnaði
og ýmislegt annað misferli. ITafði
hann m. a. stolið úri og penmgum,
verið ölvaður og haft í frammi ó-
spektir og unnið skemmdarverk.
Aðalfundur Verka-
lýðsfélags Skaga-
strandar
Verklýðsjélag Skagastrandar liélt
aðalfund sinn 8. janúar s.l. Þessi
voru kosin í stjórn:
Formaður: Pálmi Sigurðsson.
Ritari: Haraldur Sigurjónsson.
Gjaldkeri: Guðmundur Jóhann-
esson.
Meðstjórnendur: Jóhanna Benó-
nýsdóttir og Kristófer Arnason.
Sjór gengur yfir
Strandgötuna
í Hafnarfirði
í fyrrinótt gekk sjór upp á
Strandgötuna í Hafnarfirði og
færði þangað möl og þara, braut
ennfremur skúr við Hressingar-
skálann og færði hann upp á göt-
una. Var Strandgatan lítt fær um
morguninn og var unnið að því
fram eftir degi að hreinsa hana.
Aðrar skemmdir af völdum veðurs
urðu litlar í Hafnarfirði.
___________________________
Alþýðublaðið
og atvinnuleysið
í Hafnarfirði
Alþýðufblaðsmennirnir urðu æfir
í gær út af því að Þjóðviljinn
skyldi segja frá samþykkt hafn-
firzkra verkamanna, þar sem þeir
skoruðu á bæjarstjórn Hafnarfjarð-
ar að hefja framkvæmdir svo hafn-
firzkir verkamenn þurfi ekki að
ga,nga atvinnulausir.
Abvinnuleysið í ITafnarfirði er
staðreynd, og sinnuleysi bæjar-
stjórnarinnar í Hafnarfirði er líka
staðreynd, því miður.
Það er því tilgangslaust fyrir
Alþýðublaðið að ybba sig lít af
því að þetta mál sé rætt og skal
það verða gert betur síðar.
Bálför
■
Samkvæmt tilkynningu frá Bál-,
stofunni í Edinborg, fór bálför ÓI-
i afar Jönsdóttur, Njálsgötu 84,'
fram þ. 8. janúar s.l.
(Tilkynning jrú Báljarajclagi lslands).
ÐVILIINN
Sáttmáli Frakklands og Sovétríkjanna
^AMVINNA Evrópuveldanna austan og vestan Þýzka-
lands hefur lengi verið mikilvægur þáttur í alþjóða-
stjórnmálum. Þessi hefðbundna samvinna hefur enn á ný
verið staðfest með samningi þeim um „bandalag og gagn-
kvæma aðstoð“ milli Sovétríkjanna og Frakklands, sem
Molotoff utanríkisþjóðfulltrúi og Bidault utanríkisráðherra
undirrituðu í Moskva 10. des. 1944. í tilefni af undirritun
samningsins birti Pravda, aðalmálgagn Kommúnistaflokks
Sovétríkjanna, ritstjórnargrein, og segir þar meðal annars:
JJNDIRSTAÐA árangursríkrar samvinnu sovétþjóðanna
og Frakka í hinni sameiginlegu baráttu gegn Hitlers-
Þýzkalandi var lögð 20. sept. 1941, þegar sovétstjórnin við-
urkenndi de Gaulle hershöfðingja sem foringja allra
frjálsra Frakka, er fylktu sér til baráttu gegn þýzka fas-
ismanum við hlið Bandamanna- Sovétstjórnin lagði þá
þegar áherzlu á þá eindregnu stefnu sína að tryggja eftir
fullnaðarsigur yfir hinum sameiginlega óvini algera end-
urreisn sjálfstæðis og fullveldis Frakklands, og lýsti sig
reiðubúna að veita frjálsum Frökkum fyllsta stuðning.
Samningur sá, sem nú hefur verið gerður, er staðfesting
þeirra gagnkvæmu skuldbindinga sem gefnar voru 20.
sept. 1941, hvað snertir sameiginlegar aðgerðir í stríðinu
við Þýzkaland. Næsta mikilvæga skrefið í þróun samvinnu
Sovétríkjanna og Frakklands var fundur Molotoffs utan-
ríkisþjóðfulltrúa og de Gaulles í London, sumarið 1942.
Molotoff ítrekaði þá ósk sovétstjórnarinnar, að Frakkland
öðlaðist frelsi og gæti beitt sér sem lýðræðisstórveldi í
Evrópu að alþjóðamálum".
pRAVDA skýrir því næst frá sívaxandi styrk frönsku
þjóðfrelsishreyfingarinnar. í ágúst 1943 viðurkeiindi
sovétstjórnin Þjóðfrelsisnefnd de Gaulle sem fulltrúa rík-
ishagsmuna Frakklands, og forustu franskra ættjarðarvina
t baráttu gegn Hitlerskúguninni. Eftir lausn Frakklands
sumarið 1944 viðurkenndi sovétstjómin, ásamt stjómum
Bretlands og Bandaríkjanna, bráðabirgðastjóm franska lýð-
veldisins. Samkvæmt tillögu sovétstjómarinnar var Frakk-
landi boðið sæti í Evrópunefndinni jafnrétthátt stórveld-
unum þremur.
j FYRSTU grein bandalagssamningsins frá 10. des. 1944
heita samningsaðilar að halda áfram sameiginlegri bar-
áttu ásamt öðrum Bandamönnum þar til úrslitasigur yfir
Þýzkalandi hefur unnizt, og veita hvor öðrum alla þá
aðstoð í baráttunni sem þeim er unnt- Þá skuldbinda að-
ilar sig til að semja ekki sérvopnahlé eða sérfrið við Hitl-
ersstjómina eða neina þá stjóm í Þýzkalandi, sem ætli
sér að halda áfram þýzkri ágangsstefnu, og hafa samvinnu,
einnig eftir stríð, sem ráðstafanir til að ^fstýra ágangi
af Þýzkalands hálfu. Lendi annað ríkið í stríði við Þýzka-
land, skal hitt veita bandalagsríkinu hjálp af fremsta
megni. Samningsaðilar lofa að taka ekki þátt í neinum
bandalögum, sem miðist gegn öðrum aðilanum. í sjöttu
grein samningsins heita Sovétríkin og Frakkland hvort
öðm fyllstu aðstoð í því skyni að flýta fyrir endurreisn
landanna og í þágu velmegunar allra þjóða. — Samning-
urinn gildir til 20 ára (eins og bandalagssamningurinn við
Bretland, gerður 1942) en framlengist um ótakmarkaðan
tíma ef annarhver aðili segir honum ekki upp ári áður
en hann á að renna út.
EÐ BANDALAGSSAMNINGUM við Bretland og Frakk-
land hafa Sovétríkin sýnt svo ekki verður um villzt
vilja sinn til langvarandi samvinnu við önnur lýðræðisríki
Evrópu. Hugmyndir sem brezkir stjórnmálamenn hafa
ymprað á um „Vestur-Evrópubandalag“, sem sennilega
ætti að verða mótvægi gegn hinum víðtæku áhrifum Sov-
étríkjanna í Evrópu, eru heldur ólíklegar til framgangs,
eins og nú standa sakir. Héðan af tekst ekki að einangra
alþýðuríkið og hindra samvinnu þess við hin endurleystu
þjóðríki Vestur-Evrópu.