Þjóðviljinn - 25.01.1945, Page 3

Þjóðviljinn - 25.01.1945, Page 3
T'immtudagur 25. janúar 1945. ÞJÓÐVILJINN TTINN 24. apríl ár hvert fer fram hátíðleg athöfn í :Stratford-on-Avon til minning- ar um „fæðingu enska skáldsins Shakespeare. Allt fram til 1926 hafði sendimönnum Sovétríkjanna ekki verið boðin þátttaka, en þá, snemma í apríl, barst rúss- neska sendiráðinu bréf, þar sem því var boðið að senda full trúa á 362. árshátíð Shake- speraes. (Seinna kom í ljós að boðin voru send af vangá). Þar sem Shakespeare er mjög vinsæll í Rússlandi, þáði Majskí boðið með þökkum. Bréf, sem barst til Strat- ford-on-Avon frá Majskí, þar sem hann þakkaði boðið, kom því áem reiðarslag. Meðlimir Shakespeares-klúbbsins (þeir voru ekki færri en 2000 í borg með aðeins 15 þúsund íbúa) urðu sem þrumu lostnir, héldu mótmælafund og sendu frá [ sér skjal, þar sem þess var kraf J izt, að komið yrði í veg fyrir þátttöku Rússa. Potturmn og pannan í þessu var maddama prestsins við kirkjuna er stendur í kirkjugarðinum þar sem jarðneskar leifar Shake- speares hvíla. Skömmu síðar fékk Majskí símskeyti frá bæjarstjóranum og bæjarritaranum í Stratford- on-Avon, (bæjai*stjórinn var einnig formaður Shakespeares- klúbbsins) þar sem þeir fóru íram á að fá að koma til Lon- don og ræða málið. Það var -auðsótt, og reyndi bæjarstjór- inn með öllu móti að fá Majskí ofan af því að fara til Strat- ford-on-Avon. Hann sagði að vísu, að þeim yrði mikil á- nægja af nærveru hans á hátíð inni, en vegna þess að 1 bæn- um væru hópar mjög ófrið- samra dólga, mætti búast við leiðinlegum atbUrðum. En ívan Majskí, sem oft hafði séð hann svartari, varð ekki appnæmur og sagðist mundi hætta á að koma, þótt slíkt gæti komið fyrir. Hann tók það fram, að vitanlega væru rúss- nesku sendúulltrúarnir gestir í Stratford-on-Avon, og ef þeir afturkölluðu boðið, mundu hin- Ir síðarnefndu að sjálfsögðu sitja heima, en svo lengi sem boðið stæði, fyndist sér það 'skylda sín að mæta. Nokkrum dögum síðar fékk Majskí boð um að mæta í utan- ríkisráðuneytinu. Sannleikur- inn var sá, að þetta var fyrsta erindi hans þangað 1 þau tvö ár, er hann hafði dvalið í Lon- don sem sendifulltrúi Sovétríkj anna. Þannig var sambandið þá milli rússneska sendiráðsins í London og utanríkisráðuneytis- ins brezka. Fulltrúinn, sem tók á móti Majskí, sagði honum með mál- skrúði miklu, að þetta væri þálfgert vandræðamál. Fólkið í Stratford-on-Avon 'væri æst mjög gegn því, að i*ússneskir sendimenh yrðu á hátíðinni. Búast mætti við leiðinlegum atvikum^ þar sem ómögulegt væri að hafa fullt taumhald á . öðrum eins manngrúa og _ þar yrði saman kominn o. s. frv. Fulltrúinn sagði ernfremur, að sér fyndist það sstvlda sín að skýra Majskí frá þessu fyrir fram, og að hann teldi það hyggilegra, að Majskí mætti ekki í Stratford-on-Avon, svo að girt væri fyrir að þetta kæmi af stað vandræðum milli ríkjanna. En Majskí svaraði því sama til og áður, er hann ræddi við fógetann frá Stratford-on-Avon, og auk þess kvaðst hann treysta fullkomlega stjóm Hans Há- tignar til þess að halda uppi lögum og reglu innan ríkisins. Upp úr miðjum aprílmánuði vakti þátttaka Rússa í Shake- speares-hátíðinni almenna at- hygli. Hún varð mál dagsins. Blöðin birtu greinar, jafnvel leiðara um málið. Afturhaldsblöðin skírskotuðu til hinnar almennu reiði í Stratford-on-Avon og kröfðust þess, að komið yrði í veg fyrir þátttöku bolsanna í Shake- speares-hátíðinni. Blöð verkamanna og frjáls- lyndra voru á öndverðum meiði. Alls konar Gróusögur komust á kreik um væntanleg uppþot á hátíðinni. Afleiðingar alls þessa orð- róms og ritdeilna urðu þær, að fjöldi verkamanna í Birming- ham, sérstaklega meðlimil- fag- sambandanna, héldu mótmæla- fundi gegn áformum íhaldsins, og ákvá^u að safna liði og stefna því‘ til Stratford-on-Av- on hátíðardaginn til þess að verja rússneska fánann og sendinefndina. Meðan á þessu stóð fékk Majskí sér stóran og vandaðan rauðan fána með hamri og sigð á og bjóst á all- an hátt til fararinnar til Strat- ford-on-Avon 23. apríl. Kvöldið fyrir hátíðina var einn af starfsmönnum sendi- sveitarinnar sendur með þenn- an rauða fána til Stratford-on- Avon. Þegar maðurinn kom aft ur, upplýsti hann, að meðal ráðamanna í Stratford-on-Avon ríkti hið mesta ráðleysi svo að nálgaðist skelfingu. Morguninn eftir fór svo rúss- neska sendinefndin til Strat- ford-on-Avon í sérstökum vagni sem var í lest , með vögnum annarra erlendra fulltrúa. í rússnesku sendinefndinni voru fjórir menn: ívan Majskí og frú, rússneski aðalræðismað- urinn og rússneska skáldið Nikulás Minskí sem dvaldi í London um þetta leyti. Á jámbrautarstöðinni var fyrir múgur og margmenni. Ráðamenn bæjarins tóku á móti erlendu fulltrúunum. sem komu allir með sömu lest, og var farið með þá beina leið þangað, sem athöfnin átti að fara fram, en það var undir berum himni við götu nokkra. Fánasteng^irnar stóðu í röð með samanvöfðum fánum á. Rauði fáninni var á raðarenda, gagnvart markaðstorginu. Manngrúinn var sem mý á mykjuskán á götunum, í glugg- unum og á húsaþökunum. í öll þau ár, sem Shakespeare- hátíðin hafði verið haldin í Stratford-on-Avon, hafði ekki sézt þar annar eins manngrúi. Meðan Rússarnir gengu til þess staðar, sem þeim hafði verið búinn, gláptu þúsundir manna á þá eins og naut á ný- virki. Alger þögn ríkti — djúp og bersýnilega fjandsamleg — er þeir gengu til sæta, sinna við fótstall stangarinnar, sem bar hinn rauða fána. En markaðstorgið var þétt- skipað vbrkamönnum frá Birm- ingham. Þar ríkti allt annar andi. Verkamennimir brostu til Rússanna og veifuðu húfun- um sínum. Um leið og klukk- an sló 12 kvað við hornablást- ur, og fulltrúar hinna ýmsu. landa kipptu hver í sinn streng, er hélt saman fánunum. Frú Majskí kirpti í strenginn fyr- tr Rússana. Rauði fáninn breiddi þegar úr sér í kaldan- um og var heilsað af verka- mönnunum með fagnaðaróp- um. Síðan var leikinn þjóðsöngur hvers lands, er þátt tók í hátíð- inni, og hélt þá allur skarinn fylktu liði til grafhvelfingar Shakespeares með bæjarstjór- ann og aðfa ráðamenn bæjarins í broddi fylkingar. Er Rússamir komu inn í fylkinguna, skipuðu verka- mennimir sér þegar undir rauða fánann til þess að verja hann ef með þyrfti. Hver fulltrúi hafði meðferð- is sveig til að Lsggja á gröfina, og tók klerkurinn móti þeim. í kirkjunni. Þegar Majskí færði honum sinn sveig, er sagt, að ásjóna Mr. Melvilles hafi verið sem á steinrunnum riddara, en hann gat ekki neitað að taka við sveignum og varð því að leggja hann á gröfina með hin- um. . Úr kirkju var haldið til Shakespeares-hallarinnar. Síðan var hádegisverður snæddur í ráðhúsinu. Það var föst venja, að fulltrúamir segðu þar nokkur orð undir borðum. Fyrstur talaði opinber ræðu- maður, og síðan kom röðin að hinum erlendu gestum, og töl- uðu í aldursröð. Áður en borðhaldið byrjaði, tilkynnti Majskí bæjarstjóran- um, að hann óskaði eftir að segja nokkur orð. Bæjarstjóran um fannst sýnilega fátt um, en gat þó ei annað gert en að rita nafn hans. Þegar röðin var komin að Majskí, var hlaupið yfir nafn hans. Hann sendi þegar miða til bæjarstjórans, sem varð hálf sauðkindarlegur á svipinn og sýndi sessunautum sínum miðann. En áfram var haldið að kalla fram ræðumenn, seha voru yngri en Majskí. Að lokum sendi Majskí þriðju boðin. Bæjarstjórinn varð enn vandræðalegri, en stóð að lokum upp og tilkynnti, að herra Majskí hefði orðið. Er hann mælti þetta, var svipur hans’ sem á ósyndum manni, sem er kominn að því að falla í ískalt hyldýþi. Þegar herra Majskí stóð upp, var honum tekið nokkuð mis- jafnlega. Nær helmingur við- staddra fór að blístra, en aðrir örvuðu hann. Hann talaði að- ; eins um Shakespeare og hversu mjög hann væri metinn 'í Sovét ríkjunum. ' Að hádegisverði loknum Belgiska verkalýðssambandið á- kvað á þingi sínu skömmu fyrir áramót að slíta skipulagstengslin við Sósialdemokrataflokkinn, sem verið hafa með svipuðum hætti og tengsl brezku verkalýðsfélag- anna við Verkamannaflokkinn. Samþykkt þessi var gerð með frem ur litlum atlcvæðamun (74 gegn 61; tveir sátu hjá), en brezki frétta- ritarinn Eric VVigham (Observer), sem símar fregnina frá Briissgl 29. des., telur að þessi ráðstöfpn muni háfa framtíðargildi, enda þótt sum ir sósíaldemokratar telji henni muni verða breytt. Fyrir stríð var meginhluti belg- í s ku v er k a 1 ýðsh r ey f ingar inn ar skipulagður í tveimur sambönd- um, C. S. C. (Kristilegir lýðræðis- sinnar) með .‘500 þúsund meðlim- um og C. G. T. með 600 þúsund meðlinnun. — C. G. T. ög' Sam- band belgísku samvinnufélaganna' áttu hvert um sig tvo fulltrúa í miðstjórn Verkamannaflokksins. eins og hann var þá. A hernámsárunum urðu fremur sýndu ráðamenn bæjarins mjög óvænta vinsemd með því að bjóða Rússunum að skoða ýmsa merkisstaði í bænum og ná- grenni hans. Seinna fengu þeir að vita, að flokkur þorgara- klæddra lögregluþjóna voru í fylgd þeirra. Ekið var með þá til ýmissa staða og að lokum staðnæmzt á lítilli brautarstöð 10—15 míl- um frá Stratford-on-Avon á leiðinni til London. Þar stungu fylgdarmenn þeirra upp á því á mjög vingjarnlegan hátt, að þeir skyldu taka lestina þar í stað þess að eyða tíma í að fara aftur til Stratford-on-Avon. og sögðu, að ef þeir misstu af þess- ari lest, 'yrðu þeir að bíða í nokkrar stundir eftir þeirri næstu. * Ástæðan til þessarar ,,vin- - áttu“ varð nú augljós, og var það staðfest í blöðunum daginn eftir, því að þar stóð, að yfir- völdin hefðu verið hrædd um, að til árekstra gæti komið milli hinna andvígu flokka við brott- för Rússanna. Eitt mjög skoplegt smáatvik skeði þennan dag. Frú Majskí hafði með sér smátösku 1 ferðinni, sem hún geymdi í smádót, sem hún þurfti að hafa með sér. Majskí bar að sjálfsögðu töskuna fyr- ir konu sína. Kvöldblað nokk- uð í Birmingham birti myndir af athöfninni og lýsti henni með mjög æsandi orðalagi. Þar sagði, að herra Majskí hefði, meðan á athöfninni stóð, hagað sér eins og venjulegur friðsam- ur borgari, en þó hefði taska nokkur, er hann hefði borið all- an daginn, vakið nokkurn grun viðstaddra. Töldu margir að í henni gæti leynzt einhver vít- isvél! mikilvægar breytingar, segir Eric Wigham. Verkalýðsfélögin og flokkurin'n ákváðu bæði að skilja. Verkama-nnaflokkurinn ákvað á tveggja daga leyniráðst. að breyta nafni sínu í „SósíaIistaflokk“, og tvenn öflug verkalýðssamtök mynduðust. — C. L. S. (Com^tes de Lutte Syndicale) mynduðú rót- tæk verkalýðsfélög án tillits til stjórnmálaskoðunar meðlimanna) en vegna hinnar miklu leynistarf- sejni Komnuinistaflokksins urðu korhmúnistisk áhrif áberandi Sambandið segist nú telja'180 þús. —200. þús. meðlimi og nýtur sér- staklega mikils fylgis meðal Vall- ótia. — Ilin samtökin nýju er sam- band málmiðnaðarmanna í ýyharr leroi og Liege, með um 40 þús. meðlimi. Þegar eftir lausri laridsi'ris' vár hafiri viðleitni til sainéirimgar állrá verkalýðssambanriaimá. KristL' legu félögin neituðu þátttöku í I þeim viðræðum, en þau hafa þó j náriari samvinnu nú við hin sam- Framhald á 5 slðu. Grein þéssí er tekin upp úr bókinni ,„1 Histori/ of Anglo- Russian Relations“ eftir hjónin W. P. og Zelda K. Coates. W. P. Coates var fœddur á írlandi, en fluttist til Englands 16 ára gamall og starfaði þar hjá jámbrautarfélagi. Þar kynntist hann konu sinni, sem er rússnesk, og hafa þau skrifað nokkrar bœkur. Það var liér á árunum, að Ivan Majskí, fyrrvcrandi sendi- herra Sovétrikjanna i London, var ekki sú „persona grata“, sem hann síðar varð. Það, sem hér er sagt, gerðist 1926, þegar Majski var sendi- fulltrúi í London, og sýnir vel hleypidóma þá, sem margir ráða- menn Bretlands voru þá haldnir af. ^ lillfsti otrmiflslílOoli rlfti sklpi- IoisIhi iií sOsiiioiRíMaiiouiM

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.