Þjóðviljinn - 27.02.1945, Side 2
2
ÞJÓÐVILJINN
Þriðjudagur 27. febrúar 1945.
\
Kveðju svarað - frögnin rofin
Eg sé að í Alþýðublaðinu á
laugardag er mér send kveðja
frá Sæmundi Ólafssyni og drótt
að að mér undirferli og félags-
legum vanþroska; ég komi of
oft á fundi, tali meira um mál-
efni félagsins en hollt sé fyrir
þann anda sem á að ríkja í fé-
lagi sjómanna í Reykjavík, eft-
ir mælikvarða Sæmundar. Það
rekast töluvert á ummæli hans
í greininni. Hann virðist skrifa
án þess að hugsa. Á næstsíðasta
fundi í Sjómannafélaginu
þekkti hann mig ekki með
nafni, hann varð að spyrja að
því hvað ég héti þegar hann
var að svara orðum mínum.
Eg veit að ég hef gefið honum
ónotalegan löðrung með orð-
um mínum og honum svíður að
hann skuli ekki geta ráðið við
mína frjálsu hugsun í ýmsum
málum, taugar hans verða í ó-
lagi ef einhver leggst svo lágt
að eiga við hann orðastað, því
maðurinn er tæplega viðræðu-
hæfur, þessvegna hjúpar hann
sig lyginni og svífst einskis.
Eg er ekkert hræddur og stend
ur alveg á sama þótt Sæmund-
ur hafi 1 hótunum við mig um
að ég verði rekinn úr Sjómanna
félaginu ef ég þori að tala. Eg
efast um hvor verður að fara
þaðan fyrr, hann á þar ekki
heima samkvæmt eðlilegu lög-
máli verklýðssamtaka. Eins
getur verið um mig þar sem
ég stunda vinnu í landi núna.
Mér er illa við alla langhunda
eða ræður sem eru langar. Til
þess -að þú þurfir ekki að gizka
á hvað langur tími hefði farið
í að hlusta á ræðu mína um
skipulagsmál félagsins og Al-
þýðusambandsþingið, þá get ég
sagt þér og öðrum frá því að
það hefði tekið 15 mínútur.
Þú segir að ég hafi komið
með skrifaða ræðu eftir aðra,
þú hafir þekkt það á skriftinni!
Eg er hissa á hvað gáfur þín-
ar eru vannotaðar á þessu sviði,
þú hefur aldrei fyrr séð mína
skrift, en þó segizt þú þekkja
hana, þannig verður lygin þér
að fótakefli í hverju orði. Gagn
vart formanninum ert það þú
sem ferð með mesta lygina, þú
talar á fundinum um að þú
hefðir kosið heppilegra orðalag
í ræðu formanns, enda er hæg-
ur vandi fyrir formann að af-
sanna mín orð ef hann lætur
sína ræðu koma í félagsritinu
eins og hún var flutt á fundin-
um.
Þú getur ekki einu sinni far-
ið með rétt mál um hvénær hafi
verið greitt atkvæði um að
stytta ræðutímann. Ólafur Frið
riksson var búinn að tala og
hans hugvekja til starf^ndi sjó-
manna var góð; þar var hugsun
á bak við; hann er ekki ennþá.
orðinn fúinn í orðum þegar
honum tekst upp, ef allir stjórn
armeðlimirnir hirtu um að skapa
þann anda og innri eld, sem
ræða hans flutti, þá væri meira
líf í félaginu, þá þyrfti ekki að
afboða fundi vegna þess hve
fáir mættu. En þetta var nú út-
úrdúr; ég átti eftir að hirta
Sæmund betur. Þú talar um að
mér muni ætlað formannssætið.
Það er eðljlegt, að það sé of-
arlega í huga þínum, þú hefur
lengi borið þá von í brjósti að
erfa formannssætið og ert
hræddur við að ég muni spilla
fyrir því að sú von geti rætzt.
Þér er alveg óhætt.að taka mig
trúanlegan, ég skal sjá um á-
samt öðrum meðlimum Sjó-
mannafélagsins að þú komir
ekki þar til greina. Þig vantar
allan manndóm til að vera í
því starfi og er merkilegt hvað
þú hefur fengið að fara með um
boð félagsins út á við lengi, í
trássi við starfandi sjómenn.
Ætli þau verði ekki lengi í
minnum orðin hans Sæmundar
þegar hann var að reyna að fá
meðaumkun hjá starfandi sjó-
mönnurn: „Það eru ekki þið,
sem ég átti við, heldur hinir;
það eru fleiri sjómenn og ráða-
meiri sem áttu það sem ég i
i sagði á Alþýðusambandsþing-
I inu“.
Eg vorkenndi manninum þar
sem hann sat í sínum eigin
gapastokki og reyndi að
smjúga, sem Loki forðum. Efa-
laust fær hann einhversstaðar
hughreystingu í raunum sínum,
þótt starfandi sjómenn kvæðu
hanmniður með þessum orðum:
„Þú getur ekki Sæmundur far-
ið milli veggja svona strax eða
hangið í lausu lofti og því síð-
ur farið í myrkrið, manndómur
þinn og sál er ekki ennþá til-
búin, yfirgefðu ekki það sem
þú hefur fengið þinn lífsþrótt
frá og sízt á þennan hátt.“
Sæmundur heldur að alltaf
sé verið að tala um sig, en ég
hef aldrei heyrt á hann minnzt
á mannamótum, enda er hann
löngu dottinn út úr röðurn
verkalýðsins og heyrist þar
ekki nefndur á nafn. Eg er til-
búinn hvenær sem er að ganga
undir gáfnapróf ásamt Sæ-
mundi þó ég hafi engin sjó- j
mannaskólaréttindi. Minn skóli
hefur verið skóli lífsins eins og
margra annarra alþýðumanna.
Einn púnktur í greininni var
réttur; ég var einu sinni fram-
sóknarmaður og er það enn í
þeim eina og sanna raunveru-
leika. Eg ann framförum og
mun berjast við hlið þeirra
manna sem vinna af festu og
djörfung að umbóta- og fram-
faramálum þjóðarinnar. Egmun
leggja minn litla skerf til efl-
ingar stjórninni meðan hún sýn
ir það með gjörðum sínum að
réttur verkalýðsins er ekki fyr-
ir borð borinn. Eg vil að Sjó-
mannafélagið sé sterkt félag,
að hinir duldu kraftar fjöldans
komi betur 1 Ijós en verið hefur
á undanförnum árum, að starf-
andi sjómenn hafi meiri áhrif
í félaginu en nú er, að menn
séu metnir eftir hæfni en ékki
skoðaðir sem flokksleg tilrauna
dýr.
Eg álít að ekki eigi að líðast í
nolckru stéttarfélagi að inntöku-
skilyrðin séu miðuð við hvort með-
limurinn sé hættulegur einhverj-
um flokki. Eg set hér sönn dæmi.
Maður, sem hafði verið í Ameríku-
! siglingum óskaði eftir að vera yfir-
færður úr félagi úti á landi, daginn
eftir að hann kom í land, en hon-
um var neitað um inntöku í Sjó-
mannáfélag Reykjavíkur með
þeim forsendum að hann væri ekki
munstraður á skip, en annar mað-
ur, sem var líka í verkalýðsfélagi
úti á landi og vantaði vinnurétt-
indi hjá DagSbrún var tekinn í fé-
lagið í nóvember með þeim fyrir-
vara að hann hefði verið á síld yf-
ir sumartímann. Svona samræmi
skil ég ekki, en þá veit maður hver
er ástæðan. Stjórn Sjómannafélags-
ins var hrædd við að fá þekktan
áhrifamann inn í félagið, mann
sem hafði mikla reynslu í félags-
störfum og var alfluttur til Rej’kja
víkur. En hinn maðurinn var góð-
ur til að punta upp á félagaskrána.
Þeir hlógu margir á síðasta Sjó-
mannafélagsfundi, þegar stjórnin
vissi ekki af neinum manni hæfum
til að vera í Sjómannadagsráði
nema atvinnurekanda norður í
landi, hann bað víst um það bréf-
lega blessaður sveinninn, eða hinn
margumtalaði Sæmundur kæmi til
greina. í Sjómannadagsráð á að
velja menn sem eitthvað jákvætt
liggur eftir, menn sem eru í störf-
um á hafinu eða hafa sýnt hug og
djörfung til að rita um öryggis-
málin. Menn eins og Guðmund
Guðmundsson frá Ofeigsfirði, sem
stinga við fótum til að vernda sjó-
mannasamtökin fyrir slepjuskrifum
málrófsmanna og morðsæði 'fjár-
græðginnar. Kaldar eru kveðjurn-
ar til reykvískra sjómanna að þeir
séu ekki færir um að stjórna sín-
um málum sjálfir, frá stjórn síns
eigin stéttarfélags. Er eðlilegt að
félag. sem er stjórnað og drifið á
þennan hátt, sé tekið alvarlega,
sem sýnir jafn mikla stéttarlega
minnimáttarkennd að leita ekki að
neinum nýjum kröftum meðal með
lima sinna? Eg tel að lög Sjiunanna
félagsins þurfi á ýmsan hátt endur-
bóta við, og nánara samband eigi
að vera við Dagsbrún en nú er,
þar sem félagsstarf þeirra er á
margan hátt svo samtvinnað.
Eg -\’il að formaðurinn sé laun-
aður af félaginu og starfi eingöngu
fyrir félagið. Það eru svo mörg
mál og verkefni framundan, sem
þarf að leysa fyrir sjómannastétt-
ina. Oryggismálin eru í ólestri,
skipaskoðunin vanmáttug. vantar
aðhald frá sjómannasamtökunum,
sjómennina vantar viðunandi skip
til að færa björg í þjóðarbúið og
hin almenna fræðsla um félagspiál
er af skornum skammti. Eg tel ekki
eftir mér og öðrum að borga hærri
iðgjöld til félagsins, til að treysta
betur hið innra starf félagsmeðlim-
anna. Og lirekk ekki í kuðung,
eða læt mér bilt við verða, þó
' gert sé óp að mér fyrir að leggja
þessum málum liðsyrði.
Eg trúi því ekki at5 stjórn Sjó-
mannafélagsins haifi sent Sæmund
Olafsson fram á ritvöllinn til að
kveða „Hinn nýja Björn í Sjó-
mannfélaginu“ í kútinn, eins^ og
ég er nefndur í greininni, því betri
j vopn verður að hafa en hann er
fær um að handleika með penna
sínum; og mér finnst ofur eðlilegt
að Sæmundur beri saman raunir
sínar og frama þeirra manna, sem
standa framarlega í röðum verka-
lýðsins, og eru metnir að verðleik-
'aiaFjaáitnfinÍD
Athugasemd
Þjóðviljinn hefur verið beðinn
fyrir eftirfarandi athugasemd:
í kvennasíðu Þjóðviljans 24. f.
m. 19. tölubl., er birt viðtal við frú
Guðrúnu Magnúsdóttur, Akranesi,
og er meðal annars minnst þar á
vinnu hennar við fiskflökun síðast-
liðinn vetur. Þó að ekki sé nafn-
greint frystihúsið, eigendur þess né
verkstjóri, þá vil ég hérmeð gera
það. Haraldur Böðvarsson & Co.
á húsið og verkstjórinn er undirrit-
aður, og þar sem mér finnst mjög
hallað réttu máli, hvað mér við kem
ur í nefndu viðtali, vil ég leyfa
mér að biðja yður að birta stutta
athugasemd frá mér.
Guðrún Magnúsdóttir var ekki
ráðin til þess að flaka nema ef
þess var þörf. Fyrir þá vinnu fékk
hún karlmannskaup. í húsinu unnu
fleiri stúlkur en hún, sem kunnu að
flaka og flökuðu dag og dag. Þær
fengu líka karlmannskaup. Ekki
neituðu þær að fara frá flökuninni
og pakka, og af hverju átti Guðrún
að fá hærri laun við pökkunina
en hinar stúlkurnar? Eg vissi vel,
að þær vildu helzt allar flaka, sem
kunnu það, en bæði var það, að
karlmennirnir voru of fáir til að
byrja með og óvanir margir hverj-
ir og svo íjölgaði þeim og þeir
urðu líka þjálfaðri í starfinu. Þar
af leiðandi þurfti ég að láta allar
stúlkur pakka og höfðu þær samt
ekki undan, því að venjulega voru
fleiri kassar til ópakkaðir, þegar
flökun var lokið.
Guðrún segir, að ég hafi „rekið
augun“ í karlmannskaupið hennar
eftir 3 mánuði. Hún vann ekki fulla
3 mánuði í húsinu í allt. Byrjaði
3. ianúar og hætti 21. marz. Af
þeim tíma flakaði hún frá 3. jan.
Skilyrði fyrir skatt
frelsi Eíoiskípðfél.
Frumvarpið um skattjrelsi Eim-
! skipajélagsms var til 3. umrœðu
í neðri deilcl á jöstudaginn, og var
samþykkt breytingartillaga jrá
Barða Guðmundssyni um skilyrði
þau, sem sett eru jyrir skattjrels-
inu, sem hcr segir:
1. Arður hluthafa fari eigi yf-
ir 4%.
2. Tekjuafgangi félagsins ár-
in 1944 og 1945, að frádregn-
um arði samkv. tölulið 1, verði
varið til kaupa á skipum og á
annan hátt í þágu samgöngu-
mála, svo og öðrum sjóðeign-
um félagsins.
3. Fram fari á árunum, sam-
kvæmt reglum, er samgöngu-
málaráðherra setur, könnun á
því, hverjir séu núverandi eig-
endur hlutabréfanna og hvað
af bréfunum kunni að vera glat-
að. Að þessari könnun lokinni
skal semja nýja hluthafaskrá og
birta hana opinberlega.
4. Samningur náist við félagið
; um þátttöku í kostnaði við
, strandsiglingar á þeim grund-
velli, sem hlutaðeigandi ráðh.
samþykkir.
Frumv. var samþykkt með 8
gegn 7 atkv. og afgreitt til efri
deildar.
um af fjöldanum, sem finnur
hverjir vinna bezt og áhrifaríkast
að fram'faram'álum heildarinnar.
Páll Iíelgason
Jlk
til 25. febr., þó ekki stöðugt. Það
kom oft fyrir að hún pakkaði
eða himnudró, eftir því sem á stóð.
Mér var vel kunnugt um hvaða
kaup hún hafði strax frá byrjun,
svo hafi mér þótt „leitt til þess
jafnréttis að vita,“ þá gat ég látið
hana fara fyrr að pakka en ég
gerði.
Að endingu vil ég segja þetta:
Guðrún bað mig að lofa sér að
flaka, sem ég gerði meðán þess var
kostur, en eins og ég hef áður
sagt, var bætt við mönnum og var
þá full þörf fyrir hana að pakka.
Það vildi hún ekki gera fyrir sömu
laun og kynsystur hennar og þess-
vegna hætti hún. Hinar stúlkurnar,.
sem voru vanar að flaka, en fengu
það ekki, voru sízt ver til þess.
fallnar en Guðrún, þótt ég léti hana
sitja fyrir því og þær mættu rétt-
stundis.
Rannveigu Kristjánsdóttur vil ég
benda á það, þegar hún byrjar á
„veraldarsögu" Guðrúnar Magnús-
dóttur, að sialdan er nema hálfsögð
sagan, þegar einn segir frá.
Með þökk fyrir birtinguna.
Lýður Jónsson.
Skemmtun Nordmann-
slaget og Færeyinga-
félagsins
Fœreyingajélagið og Nord-
mannslaget héldu nýlega sameig-
inlega skemmtun í samkomuhúsi
norska hersins.
Skemmtunin hófst með sameig-
iplegri kaffidrykkju.. IJndiv borð-
um fluttu ræður þeir Peter Wige-
lund form. Færeyingafélagsins, T.
Haarde form. Nord m an n slage t,
Sámal Davidsen blaðamaður las
kvæði, og érinfremur flutti S. A.
Friid, sem var þarna gestur, ágæta
ræðu.
David Waage. fulltrúi I. L. 0.,
og Olstrup, sjóliðsforingi í norska
flotanum, voru gcstir á skemmt-
uninni.
Færeyingar sýndu þjóðdansæ
sína og Norðmenn einnig sína
þjóðdansa undir stjórn Farastveit.
Skemmtunina sóttu hálft annað
hundrað manns og fór hún hið
bezta fram. Sámal.
Næturlæknir er í læknavarðstof-
úrim'.~*í Austurbæjarskólanum,
sími 5030.
Næturakstur: Aðalstöðin, sími
1383.
Utvarpið í dag:
18.30 Dönskukennsla, 1. flokkur.
19.00 Enskukennsla, 2. flokkur.
20.20 Tónleikar Tónlistarskólans:
Concerto grosso í c-moll eftir
Locatelli (Strengjasveit leik-
ur. — Dr. Urbantschjtsch
stjórnar).
20.45 Erindi: Um stjórnarskipun ís
lendinga. Stjórnarskráin
(Gunnar Thoroddsen prófes-
sor).
21.10 Hljómplötur: Lög leikin á pí-
anó.
21.20 íslenzkir nútímahöfundar:
Davíð Stefánsson frá Fagra-
skógi les úr skáldritum sín-
um.
21.45 Hljómplotur: Kirkjutónlist.