Þjóðviljinn - 27.02.1945, Síða 8
Fjársöfnun til kvennaheimilisins
Hallveigarstaðir
Ákveðið hefur nú verið að hefja nýtt átak til þess að koma
upp kvennaheimilinu Hallveigarstaðir. Eins og bæjarbúum er
kunnugt er það gamalt áhugamál kvenna að reisa hér hús er
verði miðstöð fyrir starfsemi kvenfélaga í bænum og kvenfé-
lagasambanda. f sjóði Hallveigarstaða eru nú um 100 þús. kr.
en auk þess hefur verið fengin lóð á ágætum stað í bænum.
þJÓÐVILJINN
*****
■
■■
■
Spor Hriflu-Jónasar þurrkuð út
Menntamálaráðherra hefur sent shólameistara Menntaskól-
ans á Akureyri eftirfarandi bréf:
, ,M enntamálaráduney ti ð,
Reykjavík, 26. febrúar 1945.
Hinn 1. olctóber 1930 ritaði ráðuneytið yður, herra skóla-
meistari, svohljóðandi bréf:
„Að gefnu tilefni er þetta tekið frarn viðvíkjandi tveim atrið-
um um stjórn og aga í skólum landsins:
Nemendur mega eigi hafa nokkur afskipti af stjórnmálum út á
við, hvorki í rœðu né riti, né taka þátt í deilum um hagsmuna-
baráttu félaga eða stétta í landinu meðan þeir eru nemendur í
skólanum.
Nemendur mega aldrei ölvaðir vera og eigi má á þeim sjást
að þeir hafi áfengis neytt. Brot gegn þessu fyrirmœli varðar missi
attra hlunninda, endurtekið brot burtvísun úr sltóla, annað hvort
um skeið eða að fullu og öttu,
Og þannig getur fyrsta broti gegn þessu fyrirmœli verið svo
háttað, t. d. ef það skerðir virðingu skólans, að vísa beri nem-
anda úr skóla þegar í stað“.
Þau fyrirmœli framangreinds bréfs, er varða afskipti nem-
enda af stjómmálum og þátttóku í deilum um hagsmunabaráttu
félags eða stétta í landinu, eru liér með úr gildi fettd,
Þetta tilkynnist yður, herm skólameistari, liér með.
BRYNJÓLFUR BJARNASON (sign.).
Birgir Thorlacius (sign.).
Mcð bréfi þessu liefur menntamálaráðherra þurrkað út eirun
ómenningarblettinn frá stjómartíð Hriflu-Jónasar. Með reglu-
gerðarákvœði þau, sem hér eru numin úr gildi, að vopni, hófu
skólastjórar ofsólcn gegn róttœkum nemendum, og voru fátœkir
piltár reknir úr skóla fyrir það eitt að berjast fyrir málstað stétt-
ar sinnar.
'
!
Vegirnir í nágrenni Reykjavíkur ruddir
TJnnið var að því í allan gærdag að ryðja vegina í nágrenni
Reykjavíkur, svo að þeir verði akfærir, samkvæmt upplýsing-
um sem blaðið fékk hjá vegamálaskrifstofunni í gær.
Fjáröflunarnefnd Hallveigar-
staða, en í henni eru frú Guð-
rún Jónasson, formaður nefnd-
arinnar og frúrnar Laufey Vil-
hjálmsdóttir og Kristín L. Sig-.
urðardóttir, skýrði blaðamönn-
um í gær frá þessari nýju fjár-
söfnun sem nú er verið að
hefja.
Bandalag kvenna var stofn-
að 1917, og kom þá brátt fram
hugmyndin um stofnun slíks
heimilis, en það var ekki fyrr
en seint á árinu 1925 að fjár-
söfnun var hafin til Hallveig-
arstaða.
Undanfarið hefur verið hljótt
um þetta mál og liggja til þess
ýmsar ástæður, m. a. erfiðleik-
ar með öflun byggingarefnis.
Hugmyndin með byggingu
kvennaheimilisins Hallveigar-
staðir, sem heitið er eftir fyrstu
húsfreyju á íslandi, Hallveigu
Fróðadóttur, hefur m. a. verið
sú að þar gætu stúlkur, er
koma ókunnugar til bæjarins,
átt athvarf og fengið aðstoð við
útvegun vinnu og námsdvalar,
verði þar í senn matsölu- og
gistihús fyrir konur sem eru
gestir í bænum, ennfremur
jafnvel smáíbúðir fyrir ein-
hleypar konur. Einnig að þar
verði starfræktur vinnuskóli
fyrir stúlkur þar sem áherzla
sé lögð á þjóðlegar greinar.
Megintilgangur með stofnun
heimilisins er sá, að þar verði
miðstöð fyrir starfsemi kvenfé-
laga í bænum og kvenfélaga-
sambönd, salir til fundahalda
þeirra o. s. frv., Einnig mun
lestrarfélag kvenna, sem hefur
átt við þröngan kost að búa
undanfarið verða flutt þangað.
Á þessum vetri birtu blöðin
ávarp frá fjáröflunamefnd Hall
veigarstaða, þar sem nánar var
frá þessu máli skýrt. Er nú
hætt að safna hlutabréfum í
þessu augnamiði, en áherzla
lögð á almenna fjársöfnun og
hefur nefndin látið gera
spjöld er verða seld í bókabúð-
um hér í bænum og úti um
allt land. Er á þeim mynd af
Berldaskoðunin
898S hafa verið shoðaðir
S.l. viku voru skoðáðir 1799
manns. Aðsókn hefur verið með
ágætum og liefur ób'líð veðrátta
ekkert dregið úr henni. Sem dæmi
um hve fólk hefur brugðizt vel við
má nefna að fólk á tíræðisaldri
hefur komið til skoðunarinnar ótil-
kvatt.
Alls hafa verið skoðaðir á þeim
fimm vikum, sem liðnar eru síðan
skoðunin hófst, 8985 manns.
Berklaskoðuninni var frestað
í gær vegna illveðurs og ófærð-
ar.
Mun fólki, sem mæta átti til
rannsóknar þá, verða tilkynnt
nánar um skoðun í hádegisút-
varpinu 1 dag.
höggmynd Einars Jónssonar er
hann nefnir Verndin. Lág-
marksverð spjaldanna er kr. 10.
í sjóði Hallveigarstaða eru
nú um 100 þús. kr., þá hefur
og verið fengin lóð undir hús-
ið, sem er 1340 m2 að stærð og
liggur við Túngötu, Garða-
stræti og Öldugötu.
Fjáröflunamefndin heitir nú
á karla og konur að styðja
þetta málefni og styrkja það
með framlögum og að kaupa
þessi spjöld svo hinn langþráði
draumur kvennanna um Hall-
veigarstaði geti rætzt.
Kvenfélagssamband Jslands
hefur skrifstofu 1 Búnaðarfé-
lagshúsinu og verður þar tek-
ið á móti framlögum, að sjálf-
sögðu taka og nefndarkonur
einnig á móti framlögum.
íkviknanir
Síðastliðinn laugardag kl.
19,24 kviknaði í Bjarnaborg.
Eldurinn kom upp í gluggatjöld
um og varð fljótt slökktur.
Síðastliðinn laugardag kl.
7,26 kviknaði í húsinu við I-iaug
arnesveg 26.
Eldurinn kviknaði út frá
spennistöð. Húsið er ein hæð úr
timbri, Steyptur kjallari og lágt
ris. Háspennustraumur fór á
húsið og kveikti í risinu, en þar
var hefilspónatróð er eldurinn
læsti sig í og urðu allmiklar
skemmdir af eldi og vatni áður
en eldurinn varð slökktur.
í gær kl. 12,41 kviknaði í
bragga skammt frá benzínstöð
Nafta og þótt slökviliðið færi
þegar á vettvang urðu allmikl-
ar skemmdir, eyðilagðist bragg-
inn allur að innan.
Forseti vottar
samúð sína
Framkvœmdastjóra Eimskipafé-
lags Islands hefur borizt svohljóð-
andi bréf frá forseta íslands, herra
Sveini Bjömssyni:
„Bessastöðum, 2i,\. febr. 1945.
Hr. framkvœmdastjóri
Guðmundur Vilhjálmsson,
Reykjavík.
Aftur, þrem mánuðum eftir
Goðafoss-áfallið, I>ið ég vður taka
við votti mínum um djúpa samúð
með öllum þeim, sem um sárast
eiga að binda végna þess að enn
öðru skipi Eimskipafélagsins,
„Dettifossi“, hefur verið grandað
í þjónustu íslenzku þjóðarinnar.
Við finnhm öll mest til út af
manntjóninu, með eftirlifandi ást-
vinum, og vegna mannfórnanna,
sem ekki verða bættar með neinu.
En samúðin nær einnig til stjórn-
enda og annarra starfsmanna fé-
lagsins, ekki sízt þeirra, sem eru á
sjónum og taka þátt í þessurn ó-
jafna grimmdarleik, sem særir
þjóðina hverju holundarsárinu á
fætur öðru.
Með alúðarkveðju;
(sign.) Sveinn Bjömsson".
MAC ARTIIUR, sem fyrst gat
sér mikinn orðstír fyrir hina hetju-
legu vöm á Filipseyjum, er nú
langt kominn með að hrekja Jap-
ana þaðan aftur.
Handknattleiks-
mótið
Mótið hófst miðvikudaginn
21. febr. með setningarræðu
Frímanns Helgasonar.
Leikir mótsins hafa farið sem
hér segir:
KVENFL.:
Ármann — F. H. 16:6
í. R. — Haukar 11:11
K. R. — Ármann 6:13
F. H. — í. R. 8:13
Stig kvenflokkanna eru því
þannig, að Ármann hefur 4
stig, í. R. 3 stig, Haukar 1 stig,
ep F. H. og K. R. hlutu ekkert
stig.
2. FL. KARLA:
Haukar — Vkingur 24:5
Haukar — í. R. 17:13
Vfkingur — í. R. 9:15
Haukar — F. H. 14:5
Hafa Haukar því 6 stig, í. R.
2, Víkingur, F. H. og Ármann
hafa ekkert stig hlotið, en Ár-
mann hefur ekki leikið ennþá
í þessum flokki.
1. FL. KARLA:
í. R. — Ármann 19:16
Valur — F. H. 11:13 l
Fram — Haukar 16:14
Hefur þá í. R., F. H. og Fram
2 stig hvert, en Ármann, Hauk-
ar og Valur ekkert stig. hlotið.
MEISTARAFL. KARLA:
Víkingur — I. R. 15:14
Fram — Haukar 11:16
Valur — Ármann 17:22
í. R. — F. H. 34:19
Víkingur — Fram 19:18
Ármann • — F. H. 25:11
Haukar - — Valur 16:17
í. R. — Fram 22:6
í þessum flokki eru stigin
svo, að Ármann, í. R. og Vík-
ingur hafa 4 stig hvert. Hauk-
ar og Valur hafa 2 stig hvort
og F. H. og Fram ekkert.
Nú eru aðeins tvö kvöld eft-
ir af fyrri hluta mótsins, þriðju
daginn 27. og miðvikudaginn
28. febr. Þá fara fram einn
kvenflokksleikur, tveir 1. fl.
leikir og þrír meistarafl. leik-
ir, sem allir geta haft úrslita-
þýðingu.
í gærmorgun var hafið að
ryðja veginn til Hafnarfjarð-
ar og Vífilstaða og er hann nú
„Helsingjar", tfmarit
berklasjúkliogi i
Kfhtneshæli
IJelsingjar, tímarit Sjálfsvarnar,
félags berklasjúklinga á Krislnes-
hæli, er nýkomið út.
Tímaritið hefst með ávarpi til
lesendanna. Aðrar greinar í ritinu
eru: Stofnun Kristneshælis, yfirlit
um sögu og tildrög málsins, eftir
Jónas Þorbergsson; Vinnustofumál
Kristneshælis, eftir Helga Magra;
Sunnudagur, þáttur úr óprentaðri
skáldsögu, eftir Þórunni Magnús-
dóttur; Farið úr!, eftir Kaj Bru-
sen; Heilsuhæli Norðurlands, er-
indi eftir Jónas Þorbergsson; Frá
bókasáfninu og Barn, kvæði eftir
Kristján Einarsson frá Djúpalæk.
Allur ágóði af sölu ritsins rennur
til menningarstarfsemi berklasjúk-
linga. Ritið mun fást hjá afgreiðslu
X’jóðviljans.
akfær. Einnig var unnið að því
að ryðja veginn suður með sjó
og má búast við að hann verði
fær í dag.
Mosfellssveitarvegurinn var
ruddur upp að Seljabrekku og
einnig var unnið í Kjalarnes-
veginum.
En aðallega var lögð áherzla
á að ryðja Hellisheiðina. Lagði
flokkur manna af stað frá
Reykjavík um hádegi og ruddi
hann veginn upp að Logbergi.
En snjóýtan við Skíðaskálann
fór á rnóti þeim. Snjóýta fór
úr Ölfusi um hádegið og ruddi
veginn upp á Kambabrún, og
hélt síðan áfram þaðan og tók
með sér mjólkursleða yfir heið-
ina. Síðan hélt hún alla leið að
Elliðaám og tók með sér um
20 manns. Hellisheiðin er þó
ekki fær enn, þar sem ýtan
gat ekki rutt veginn nógu vel.
Frá Ölfusi til Reykjavíkur var
hún 8 tíma. Ýtan mun fara
austur aftur í dag og verða
dráttarvélar í ferð með henni.
Munu þær draga mjólkursleða
vestur yfir verstu kafla leiðar-
innar, svo að vænta má að
draga muni úr mjólkurskortin-
um.