Þjóðviljinn - 11.03.1945, Qupperneq 2
2
Þ JÓÐVILJ IlN N
Sunnudagur 11. marz 1945.
Ileifa nefndirnar húsasHiól?
$feia'fii>éðtnrit£k»
„Skrumtillögfur verða hvorki
atvinna né húsaskjól“. Þann
ig hljóðar heilsíðu fyrirsögn í
Morgunblaðinu 24. f. m., þar
sem segir frá bæjarstjórnai-
fundinum 22. f. m. Þar er sleg-
íð föstu að tillögur þær sem
þar komu fram um húsnæðis-
mál og fleira væru aðeins fá-
nýtt hjal, eða tilefnislaust blað-
ur. Þessu til sönnunar eru svo
birtir kaflar úr ræðu háttvirtra
bæjarfulltrúa og borgarstjóra
í þeim ræðum er beint og ó-
beint viðurkennt, að bæta þurfi
húsakost bæjarbúa. Það er líka
viðurkennt að sjálfstæðismeiri-
hlutinn í bæjarstjórn treysti
ekki einkaframtakinu einu til
að leysa öll vor vandamál.
Bæjarstjornarmeirihlutinn
viðurkennir því blátt áfram að
hér verði hið opinbera að láta
til sín taka. Enda er það löngu
viðurkennt með byggingu
Höfðaborgar og Melahúsanna.
Borgarstjóri segir þarna, að
yfir Reykjavík hafi gengið
veltiár. Já, rétt er nú það. En
hverjir eru ávextirnir? Bærinn
hefur orðið að neyðast til að
innheimta gjöld sín fyrirfram,
eins og þegar fátæklingar þurfa
að fá kaupið sitt fyrirfram, og
þúsundir fólks þurfa að búa í
aumustu hreysum erlendra her
manna, kjallaraholum oj
geymsluskúrum. Hvar ætli fólk
ið hefði búið, ef veltiárin hefð .i
ekki komið?
Það er reyndar alveg rétt áð
veltiárin komu, og nokkrir borg
arar þessa bæjar urðu forrík-
ir, en ,þau hefðu áreiðanlega
getað náð til allra bæjarbúa
hefði betur verið á haldið af
forráðamönnunum og einstakl-
ingamir margir sýnt meiri
þegnskap og skilning á fjár-
málum og alvarlegum viðfangs
efnum þessara alvöruþrungnu
tíma.
„Það er gróandi í • fram-
kvæmdum bæjarins11, segir hátt
virtur borgarstjóri.
Það er rétt, margt hefur ver-
ið gert, sem vel er, aukið raf-
magn, hitaveita, bættar götur.
Höfðaborg og fleira er á leið-
inni, skólar, vatn og 80 eins
og tveggja herbergja íbúðir o.fl,
En hvað leysir þetta margar
fjölskyldur úr bröggum og lé-
legum skepnukofum? Eftir svo
sem 1 til 2 ár komast hér um
bil 80 smáfjölskyldur, sem bá
verða hælislausar, undir þak.
í fáum orðum sagt:
Eftir góðærið getur að líta
Reykvíkinga í „lúxus“íbúðum
og óhófslifnaði.
Eftirgóðærið getur að líta
háar hallir til að selja í hé-
góma og gagnslausa muni.
Eftir góðaærið á Reykjavík-
urbær um 100 endingarlausar
og undirstöðulausar íbúðir fyr-
ir fátæklinganna.
Eftir góðærið segir bæjai-
stjómarmeirihlutinn: Það er
gróandi í framkvæmdum bæj-
arins.
Á þessum umrædda fundi
hafa komið fram ákveðnar
ósk'ir um þátttöku ríkisins í
húsnæðismálunum. Eg get vel
fallizt á að það sé rétt og sjálf-
sagt, enda verður slíkt ríór-
mál ekki afgreitt á viðunandi
hátt nema með fullum skiln-
ingi allra hugsandi og leiðandi
manna. En afstaða þings og
stjórnar hefur til þessa ekki
verið sérstaklega glæsileg í
þessum efnum, að minnsti
gagnvart alþýðu kaupstaðanna.
'Vegna bygginganna í sveitun-
um og til endurreisnar á þeim,
var Bygginga- og landnámssjóð
ur stofnaður og olli straum-
hvörfum í sveitunurh en fyrir
kaupstaðina var ekkert gert
sem samsvaraði því. Lögin um
verkamannabústaði voru knúixi
fram gegn vilja allra íhalds-
afla í landinu, og gerðu þau
mikið gagn. Árin fyrir þessa
styrjöld voru svo settar full-
ar hemlur á flestar bygginga-
framkvæmdir vegna kreppu,
fátæktar og innilokunarstefn-
unnar. Þegar svo „veltiárin“
komu ^öðluðust peninga- og
stríðsgróðamenn möguleika td
að hagnýta sér framkvæmda-
leysi fyrirstríðsáranna, sem nú
kom fram Lhúsavöntun og gíf-
urlegu .gróðrabralli með hús.
Einkaframtak fátækra eii>
staklinga var að sækja stór-
kostlegt fjármagn á rándýran
peningamarkað. Það vita allir
að hagstæðustu lán bygging-
anna (Veðdeildin) eru svo lág
að þau koma að tilfinnanlega
litlum notum. Á þessu hefur
af ríkisvaldinu enn ekki verið
ráðin bót. Þá vita og allir hve
gegndarlaust okur hefur átt sér
stað í húsabraskinu, og þar
virðist lítið hafa bólað á verð-
lagseftirliti.
í málefnasamningi núverandi
ríkisstjómar virtist mér frek-
ar lítil áherzla lögð á bygginga
málin og þeim frekar beint til
einstaklinganna.
Það, sem Alþingi hefur mest
gert í þessum málum, er setn-
ing húsaleigulaganna og þykja
þau á margan hátt lítt hafa til
bóta orðið. En um þau skal
• ekki rætt hér að þessu sinni.
í niðurstöðuályktunurú bæj-
arstjómarfundarins er skýrt frá
að bæjarstjórn hafi skipað
nefnd til að athuga þátttöku
bæjarins í byggingamálunum.
sama hafi og' Alþingi falið rík-
isstjórninni að láta gera
Mikil eru verkin mannanna!!
Eftir húsnæðisleysið sem allir
þekkja í 5 árin síðustu, eru
skipaðar nefndir til athuguxi i
ar á málinu. Þetta er skrípa-
leikur hins opinbera valds í
mesta nauðsynjamáli bæjarins
Veita þessar nefndir húsa-
skjól?
Nei! og aftur nei!
Og þeim er heldur ekki ætl-
að að gera neitt. Því í ályktun-
inni segir svo:
„Er og ólíklegt, að frekari í-
búðabyggingar af opinbetri
hálfi mundu, eins og nú er um
aðstöðu til framkvæmda þ. á
m. öflun byggingarefnis, verða
til að auka byggingar, heldur
til að hindra einstaklinga í
framkvæmdum þeirra“.
Þetta er sennilega ákveðin
yfirlýsing. Opinberar íbúða-
byggingar myndu draga úr
byggingum einstaklinga. T. d
bíóbyggingum eða kirkju, veit-
ingahúsum e. þ. u. 1.
Hvaða byggingar heldur þú.
lesandi góður, að séu nauðsyn-
legastar?
Braggabúi.
SUðBbln Reuhfa-
ullir lelsl I dai
Skákþing Reykjavíkur hefst
í dag. Keppt verður í þremur
flokkum: Meistaraflokki, fyrsta
og öðrum flokki. í meistara-
flokki eru 12 þátttakendur, í 1.
flokki 12 og í 2. flokki 9.
Ekki verður hægt að leyfa á-
horfendum aðgöngu að þinginu,
að svo stöddu, vegna of lítils
húsnæðis, en verið er að at-
huga möguleika á að fá úi* því
bætt.
Dregið var í fyrrakvöld um
niðurröðun í flokkana og varð
hún þessi: í meistaraflokki' 1
Hafsteinn Gíslason, 2. Sturla
Pétursson, 3. Guðmundur Á-
gústsson, 4. Benóný Benedikts-
son, 5. Magnús G. Jónsson, 6.
Pétur Guðmundsson, 7. Krist-
ján Sylveríusson, 8. Aðalsteinn
Halldórsson, 9. Bjarni Magnús-
son, 10. Steingrímur Guð-
mundsson, 11. Lárus Johnsen
og 12. Einar Þorvaldsson.
Núv^randi Reykjavíkurmeist
ari er Magnús G. Jónsson.
í fyrsta flokki varð niðurröð
unin þessi: 1. Þórður Þórðarson,
2. Guðmundur Guðmundsson, 3.
Ólafur Einarsson, 4. Dómald
Ásmundsson, 5. Böðvar Péturs-
son, 6. Gunnar Ólafsson, 7. Gest
ur Pálsson, 8. Ingimundur Guð-
mundsson, 9. Sigurgeir Gísla-
son, 10. Róbert Sigmundssón.
11. Jón B. Helgason og 12
Björn Svanbergsson.
í öðrum flokki er niðurröðun
þessi: 1. Eiríkur Marelsson, 2.
Eyjólfur Guðbrandsson, 3. Eirík
ur Bergsson, 4. Valdimar Lárus-
son, 5. Hafsteinn Ólafsson, 6.
Jón Þ. Árnason, 7. Ingólfur
Jónsson, 8. Skarphéðinn Pálma-
son og 9."Guðmundur V. Guð
mundsson.
. Fyrsta keppni í meistara-
flokki hefst á morgun, mánu
dag og keppa þá þessir: Haf-
steinn Gíslason við Einar Þor-
valdsson, Sturla Pétursson við
Lárus Johnsen, Guðmundur
Ágústsson við Steingrím Guð-
mundsson, Benóný Benediktss.
við Bjarna Magnússon og Magn
ús G. Jónsson, Reykjavíkur-
meistari við Kristján Sylveríus-
son. — Þeir, sem taldir eru á
undan, leika hvítuí
Skákstjóri er Guðmundur S
Guðmundsson.
Músíksnobbarnir og
jassinn
Torfi skrifar Bæjarpóstinum eft-
irfarandi bréf um Helga Hjörvar,
jass og æðri tónlist.
„Til allrar hamingju var ég ný-
búinn að flýta klukkunni en nærri
lá að ég missti af útvarpsþætti
Helga Hjörvar á sunnudagsmorg-
uninn var. Og þegar síðu^tu tón-
arnir í undirleiknum hljóðnuðu.
greip mig óviðráðanleg löngun til
að láta í ljós þá skoðun, að hinn
dramatíski samanburður á „Sunm,-
degi selstúlkunnar“ og jasslögum,
og meðfylgjandi orð hafi haft þvex'-
öfug áhrif við það sem ætlunin
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Austurbæjarskólanum,
sími 5030.
Næturvörður er í Lyfjabúðinni
Iðunn.
Helgidagslæknir er Bergsveinn
Ólafsson, Ránargötu 20. sími 4985.
Næturakstur í nótt: Hreyfill.
sími 1633. Aðra nótt: Bifröst, sími
1508.
Ljósatími ökutækja er frá kl.
18.30 til 6,50.
Útvarpið í dag:
10.30 Útvarpsþáttur (Helgi Hjörvai.
11.00 Morguntónleikar (plötur):
Sónötur eftir Beethoven.
a) Sónata i G-dúr, Op. 31, m..
1.
b) Sónata í Es-dúr, Op. 31,
nr. 3.
c) Sónata í Fis-dúr, Op. 78
13.00 Bænda- og húsmæðravika
Búnaðarfélags íslands. — Er-
indi: (Dr. Halldór Pálsson
ráðunautur, frú Viktoria
Bjarnadóttir).
14. 00 Messa í Hallgrímssókn (séra
Sigurjón Árnason).
15.15—16.30 Miðdegistónleikar (plöt
ur):
a) Pétur Jónsson syngur.
b) 15.45 Moments Mocicaux
eftir Schubert.
c) 16.10 Le Cid- danssýning-
arlög eftir Massenet.
18.30 Barnatími (Pétúr Pétursson
o. fl.).
19.25 Hljómplötur: „Liðandi stund“
lagaflokur eftir Boyce.
20.20 Samleikur á viola og píanó
(Sveinn Ólafsson og Fritz
Weisshappel):
Sónata í F-dúr eftir Bee-
hoVen.
20.35 Erindi: Ferð í Öskju (Ólafuj:
Jónsson framkvæmdastjóri
frá Akureyri).
21.05 Lögreglukórinn syngur (Matt-
hias Sveinbjörnsson stjórnar).
21.25 Upplestur: Úr ritum Theo-
dóru Thoroddsen (frú Aðal-
björg Sigurðardóttir).
21.45 Hljómplötur: Guilhermina
Suggia leikur á-celló.
22.05 Danslög.
Útvarpið á morgun:
13.00 Bænda- og húsmæðravika
Búnaðarfélags íslands. — Er-
indi: (Hallgrímur Þorbergs-
son bóndi á Halldórsstöðum.
frú Dagbjört Jónsdóttir, frú
Aðalbjörg Sigurðardóttir).
18.30 íslenzkukennsla, 2. flokkur
19.00 Þýzkukennsla, 1. flokkur.
19.25 Bænda- og húsmæðravika
Búnaðarfélags fslands. — ár-
var, því ekki efa ég að Helgí
Hjörvar sé einn af þeim vel meix1-
andi mönnum sem halda að for-
dómar sínir séu algild sannindi
Eg held að árangurinn hafi orðið
þessi: Nokkrir tónlistarsriobbar
hafa sannfærzt um að Helgi Hjörv-
ar sé einn hinna réttlátu. Einhver
ungmenni sem hlustuðu hafa feng-
ið staðfesta þá barnalegu skoðum
að danshljómlist nútímans, jassinr.
og sönglög eins og „Sunnudagur
selstúlkunnar" — það sem í al-
mennu tali er nefnt „æðri tónlist"'
séu algjörar andstæður, fjandsam-
leg öfl, sem berjist upp á líf og
dauða um hverja sál; hafi æsku-
maður gaman af að dansa eftir
jasslagi eða hlusta á slíkt, sé hann
um leið fallinn í spillingarfen að
eilífu, útskúfaður frá hreinleika-
sælu sönglaga eins og Sunnudags-
selstúlkunnar“. Það eru ekki nema
fá ár síðan rektor Háskóla íslands
bannfærði jassinn í setningarræðu
sem hina ægilegustu siðspillingu
(en sú afstaða kann að hafa verið
fengin að láni í Berlín), og ræðan
var meira að segja prentuð í Þjóð-
viljanum!
Ruglandi
I samanburði Helga Hjörvar á
sunnudaginn var liggur fyrst eg
fremst sú villa, að hann bar sar.i-
an það sem ekki er sambærilegt
vegna eðlismunar. Jassinn er fyrst
og fremst dansmúsík, og. er því
sambærilegur við dansmúsík frá
tímum Óla Bulls, en ekki sönglög.
Nú á tímum eru samin hér á L-
landi, og í öllum menningarlönd
um, sönglög á borð við Sunnudag
selstúlkunnar, og þau eru metin af
ungum og gömlum nú eins og þá.
En tuttugasta öldin hefur borið
með sér nýja dansmúsík, jassinn,.
sem orðið hefur alþjóðlegri en
nokkur dansmúsík áður, heimurinri
Hefur minkkað og þjóðirnar eiga
fleira sameiginlegt. Barátta allra
nöldrara heimsins hefur ekki dugað
til að hindra að jassinn hafi fanð
sigurför sem dansmúsík úr einu
landinu í annað. Þeirri staðreynd
verður ekki breytt héðan af.
*
Nútímaæskan kann að
meta góða tónlist
En hinu virðast herforingjamír
í baráttunni við jassinn gleyma, að
samtímis þessu hefur margfalduZt
áhugi ungs fólks fyrir „æðri tór,
list“. Hér á landi, og þá einkum
í bæjunum, er þetta áberandi. Inn-
lendur tónlistarskóli veitir árlega
tugum ungmenna ágæta tónlistai-
fræðslu, útvarpið flytur mikið af
beztu tónlist heimsins inn á nærrf
hvert heimili, sem vill hlusta. Og:
þá kem ég að því atripi, sem að
vísu getur varla orðið annað en
fullyrðing: Eg held að fleiri æsku-
menn, piltar og stúlkur, hlusti á
Framhald á 5. síðu.
indi: Viðhorf bænda og neyt-
enda til landbúnaðarins (Haf-
steinn Pétursson bóndi á
Gunnsteinsstöðum).
20.30 Samtíð og framtíð: Málmarn-
ir (dr. Jón E. Vestdal).
20.55 Hljómplötur: Leikið 'á sekkja-
pípu. v.
21.00 Um daginn og veginn (Sig
urður Bjarnason frá Vigur).
21.20 Útvarpshljómsveitin: Norræn
þjóðlög. — Einsöngur (ungfrú
Guðrún Þorsteinsdóttir):
a) „Fjólan" eftir Mozart.
b) Þjóðlag eftir Schubert.
c) „Kennst du das Land“
eftir Thomas.
d) „Ein sit ég úti á steini“
eftir Sigfús Einarsson.