Þjóðviljinn - 12.04.1945, Page 1

Þjóðviljinn - 12.04.1945, Page 1
10. árgangur. Fimmtudagur 12. apríl 1945. 82. tölublað -129MHM MsltiNl Bandarikjaher fekur Coburg - 80 km frá Tékkoslovakíu Skriðdrekasveitir 9. Bandaríkjahersins hafa farið framhjá Braunschweig og sótt fram allt austur að Elbe- fljóti norður af Magdeburg og tekið smábæinn Wolmirs- stedt, en þaðan eru 125 km. til Berlínar, og 200 km. til Kiistrin við Oder sem er á valdi rauða hersins. Fótgönguliðssveitir úr 9. hemum hafa brotizt inn í Braunschweig, og eru þar háðir harðir bardagar. Norðvestur-Þýzkaland Her Montgomerys sækir fram í átt til Hamborgar, og voru brezkar loftfluttar hersveitir í gærkvöld aðeins 3 km. frá borginni Celle, sem er mjög mikilvæg sam- göngumiðstöð, norður af Hannover. Brezkur her er kominn að úthverfum stórborgarinnar Bremen, en þar hefur vöm Þjóðverja verið sérstaklega hörð. Allt svæðið milli Weser og landamæra Hollands er orðið varnarlítið fyrir hinni hröðu sókn brezkra og kanadiskra herja í átt til Emden og Oldenburg. Á ein- um stað er brezkur her aðeins 20 km. frá Norðursjó, að því er óstaðfest fregn hermir. Talið er að Þjóðverjar hafi enn 200 þús. manna her í Norður- Hollandi, og er hann allur í hættu vegna þessarar sóknar. Kanadiski herinn í Hollandi sneri snögglega til vest- urs í gær eftir töku borgarinnar Deventer og brauzt vestur yfir Ijesselfljót. , Mið-Þýzkaland I Mið-Þýzkalandi heldur sókn Bandamanna áfram með sama þunga. Þriðji Bandaríkjaherinn hefur brot- izt inn í Erfurt og skriðdrekasveitir hans sækja í aust- ur, í átt til Leipzig, og em tæpa 100 km. frá þeirri borg. Sunnar sækja bandarískar skriðdrekasveitir til austurs, umkringdu bæinn Schweinefurt og tóku Co- burg, 80 km. frá landamærum Tékkoslovakíu. ESSEN ÖLL Á VALDI BANDAMANNA Á Ruhrsvæðinu eru háðir harð ir bardagar og verst _ hið inni- króaða lið Þjóðverja víða af mikilli hörku. « ilðnaðarborgin Essen er nú öll á valdi Bandamanna Hin Luftwaffe missir 1800 flugvélar á einni viku í gær höfðu 1000 þýzkar flug- vélar verið eyðilagðar á 59 flug- völlum á einni viku. Og 800 höfðu verið skotnar niður í lofti. ar miklu vopnaverksmiðjur Krupps, sem borgin er fræg fyrir, liggja í rústum og hafa ekki verið reknar síðan 11. marz, að Bandamenn gerðu stór kostlega loftárás á Essen. Mik- ill hluti borgarinnar er í rúst- um. VARIZT TIL ÞRAUTAR í AUSTURRÍSKU ÖLPUNUM Undanfarið hafa flugvélar Bandamanna orðið vara við mikla hergagna og birgðaflutn- inga til Salzburgsvæðisins í Austurríki, og er talið líklegt, að nazistar hugsi til að halda vörn áfram í fjallahéruðum Austurríkis, eftir að vörnin ei þrotin í Þýzkalandi. Mestöll Vínarborg á valdí rauða herslns Rauði herinn hefur nú umkringt Vínarborg, og er mestöll borgin á valdi Rússa. Þjóðverjar verjast enn í tveimur borgarhverfum. f hemaðartilkynningu sovétstjómarinnar á mið- nætti segir að rússneskt lið hafi farið yfir Dónárskurð inn og náð á vald sitt suðausturhelmningnum af land- inu milli skurðsins og Dónár. Norður af Vín hafa hersveitir Malínovskís sótt hratt fram til vesturs og norðvesturs og rofið þær samgöngu- leiðir til Vínarborgar sem Þjóðverjar áttu opnar. Í Vínarskógi er enn barizt, en étherinn hafi með skjótri sókn þar verjast einangraðir og um- kringdir hópar þýzkra her- manna. í Suður-Austurríki sækja sovéthersveitir fram í átt til Graz, og eru komnar nálægt þeirri borg. Skriðdrekasveitir rauða hersins, sem fóru fram hjá Vín, nálgast borgina Linz. Það þykir merki um lamaðan varnarmátt þýzka hersins hve skyndilega vörnin brást í Vín, én jafnframt er bent á, að sov- * Litli drengurinn fannst í gærkvöld Þriggja ára gamall drengur týndist frá heimili sinu, Njálsgötu 53, síðari hluta dagst í gær. Hann fannst inni við stöð Rauða Ki'ossins bandaríska um hálfníu- leytið í gærkvöld, eða skömmu eftir að tilkynningin um hvarf hans var flutt í útvarpinu. og framúrskarandi samvinnu herja Tolbúkíns og Malínovskís, náð óvæntum og ágætum árangrr í hinni miklu sókn f Austurríki og Tékkoslovakíu. Svíar senda Þjóð- verja heim Stokkhólmsútvarpið skýrir frá því, að sænska stjórnin hafi vísað 50 Þjóðverjum, sem nýlega komu til Svíþjóðar, úr landi. Það segir, að stjórnin ætli að setja alla danska og norska kvisl- inga, sem þangað kúnni að koma, í varðhald og afhenda þá svo stjórnarvöldum, Danmerkur og Noregs að stríðinu loknu. Verkfræðingai' Bandamanna hafa nú komið upp svo góðum brúm á Rin, að járnbrautalestir geta farið yfir hana. Er það afar mikils virði fyrir sóknarherina, sem þurfa feiknamiklar birgðir. r 60 Islendingar fá flug' far til Ameríku frá apríl til júníloka Ríkisstjórnin hefur unnið að því að fá leyst úr þeim miklu flutn- ingaörðugleikum, sem orðið hafa á leiðinni til Ameríku, síðan þeim íslenzku skipum, sem þangað sigldu, hefur verið sökkt. Hlutaðeigandi amerísk hernað- aryfirvöld ásamt sendiráði Banda- ríkjanna í Reykjavík hafa sýnt mikinn skilning og góðan sam- starfsvilja í þessum efnum. Að undanfömu hafa 32 íslendingar fengið flugfar vestur til Ameríku. Þá hefur utanríkisráðuneytinu borizt símskeyti frá sendiherra ís- lands í Washington, þar sem hann skýrir frá því, að hann hafi fengið loforð War Department fyrir því að 60 íslendingar fái flugfar frá Ameríku til íslands á tímabilinu frá apríl til júníloka. Sendiherrann segir að þetta leysi í bili algjörlega flutningaörð- ugleika íslendinga, sem dvelja vestra. (Frcttatilkynning jrá ríkisstjórninni). Churchill skýrir frá Póllandsmálunum Anthony Eden tilkynnti í gæi að Churchill muni á þingfundi í næstu viku skýra frá því sem gerzt hefur á fundum þriggja manna nefndarinnar í Moskva sem haft hefur til meðferðar Póllandsmálin frá því að Krím ráðstefnan var haldin, en i þeirri nefnd eru Molotoff, ut- anríkisþjóðfulltrúi Sovétríkj- anna, og sendiherrar Bretlands og Bandaríkjanna í Moskva. Churchill mun einnig ræða styrjaldarmálin almennt og um ræður verða um þau ef þing- menn óska þess. Ekki haldið upp á afmæli Hitlers Þýzka stjórnin hefur tilkynnt, að ekki verði haldið opinberlega upp á afmælisdag Hitlers, eins og venjia hefur verið, þann 20. apríl næstkomandi. Segir hún, að há- tíðahöldin falli niður að þessu sinni vegna „stríðsnauðsynjar“. SOVETRIKIN hafa ferígið mihið af bandarislcum flugvélum í styrjöldinni. - MYNDIN: Bandarískur flugmaður kermir sovétflugmanni að fara með einaslíka flugvél.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.