Þjóðviljinn - 17.04.1945, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 17.04.1945, Blaðsíða 2
2 Þ TÓÐVJ LJ INN Þriðjudagur 17. apríl 1945. Víðavangshlaup t. R. Þrítugasta víðavangshlaup í. R. fer fram á sumardaginn fyrsta. Þátttakendur eru 18 frá 4 félögum, í. R., Ármanni, K. R. og Ums. Kjalamessþings. Vegalengdin er nú 4,1 km. í R. hefur alltaf gengizit fyrir víðavan.gshlaupinu og voru fyrstu tildrögin þau, að í. R. auglýsti víðavangshiaup 1915 og æfði 2 sveitir til keppni, en keppnin fórst fyrir vegma þess hve þá var mikL1 ófærð. Upphafsmenn að viðavangs- hlaupinu voru þeir Helgi frá Brennu og Björn Ólafsson, fyrr- verand i fjármálaráðh erra. Blöðin hafa alltaf skýrt frá víðavangshlaupinu, og skýrir Morgunblaðið frá 1. hlaupinu sem fram fór 1916. Ýmislegt skemmti- legt gerðist á fyrstu árunum með- an endamarkið var í Austurstræti. Áhorfendur þyrptust svo saman á götunni að hláupararnir kom- ust ekki áfra-m, kom fyrir að þeir týndust. þ. e. kusu heldur að fara niður í barnaskóla og klæða sig, áður en þeir tróðust gegn um mannþi-öngina. Keppt hefur verið um 7 verð- iaunagripi á þessum 30 árum. Fyrsta verðlaunagripinn gaf Ein- ar Pétursson stórkaupm. og vann Umf. Drengur og Afturelding i hann. 2. bikarinn gaf Pétur Hjaltesteð. Iþróttafélag Kjósar- sýslu vann hann. 3. bikarinn — Hreinsbikarinn — gaf Helgi frá Brennu. K.-R. vann. 4. bikarinn gáfu Silli og Valdi. K. R. vann hann einnig. 5. bikarinn gaf Morg- unblaðið. Borgfirðingar unnu hann. 6. bikarinn — Svanabikar- inn — vann K. R. 7. bikarinn — Egilsflöskuna — vann Ármann. í þetta inn er keppt um 8. bikar- inn, sem dagbl. Vísir hefujr gefið. Þessir hafa oftast orðið fyrstir: Geir Gígja og Sverrir Jóhannes- son, báðir fjórum sinnum (K. R.); Guðjón Júlíusson (Drengur) þrisv- ar. Eftirtaldir menn hafa allir orð- ið fyrstir tvisvar: Jón Kaldal (í. Verður Bæjarbókasafn- ið í nýrri hæð í Austur- bæjarskólanum ? Á jundi bœjarrúðs i gœr var lagt jrarn modcl af Austurbœjar- skólanum með einni hœð ojan a hann eins og liann er nú. Er hug- nvyndin að Bæjarbókasajninu verði œttaður j>ar staður. Austurbæjarskólinn er sem kunnugt er með flötu þaki og hef- ur það reynzt lekt. Nokkuð er síð- an að Sigurði Guðmundssyni húsa- meistara (en hann teiknaði skól- ann) var falið að gera tiliögur um hvernig ráða ætti bót á þaklek- anum. Hefur hann nú lagt til að bætt verði einni hæð ásamt risi ofan á skólann og gert modcl að skólanum þannig. Bæjarráð samþykkti í gær að óska eftir fullnaðarteikningu af skólanum þannig og ráðgerir bæj- arráð að þessi staður verði fyrst og fremst ætlaður fyrir Bæjarbóka- safn Reykjavíkur. R.); Óiafur Sveinsson (í. R.); Bjarni Bjarnason .(Borgf.); Har- aldur Þórðarson (Umf. Stjarnan), og Sigurgeir Ársælsson (Á.). Magnús Guðbjörnsson (K. R.) hefur oftast tekið þátt í hlaupinu eða 17 sinnum. Oddgeir Sveinsson (K. R.) er nú á skrá í 15. sinn; Sverrir Jóhannesson hefur keppt 10 sinnum og Haraldur Matthias- son 9 sinnum. ALls hafa lokið hlaupi 255, en nokkrir þátttakendur hafa ekki komið að marki. Mest var þátt- takan 1922, þá voru keppendnr 38. •Víðavangshlaupið hefur alltaf verið sveitakeppni og var keppt í 5 manna sveitum fram til ársins 1937, en í 3ja manna sveitum síð- ,an. Lengd hlaupsins er ákveðin frá gd/o,— 5 km og verður að þessu sinni 4.1 km og hefst hlaupið við heitavatnsgeymana á Oskjuhlíð- inni. í. R. bauð öllum héraðasam- böndum og íþróttasamböndum að senda keppendur til þessa 30. hlaups og skyldi 1. R. kosta dvöl þeirra hér, aðeins Ungmennasam- band, Kjaíarness tók því boði og sendir 3 keppendur. í. R. sendir 5 keppendur, Ármann 7 og K. R. 3. í. R. er nú að vinna að sögu víðavangshlaupsins og biður alla þá. sem kunna að eiga myndir frá hlaupinu, að lána stjórn í. R. þær, gegn því að þeim verði skilað aft- U'i* bo«*gTnn» Næturakstur B. S. R., sími 1720. Næturlæknir er í læknavarðstof- unni. Ljósatími ökutækja frá kl. 20.40 til 4.20.’ Næturvörður er i Lyfjabúðinni Iðúnn. Útvarpið 1 dag: 8.30 Morgunfréttir. 18.30 íslenzkukennsla, 2. flokkur. 19.00 Enskukennsla, 2. flokkur. 19.25 Hljómplötur: Lög úr óperett- una og tónfilmum. 20.25 Tónleikar Tónlistarskólans: Kvartett, Op. 49, eftir Sjosta- kovits (Strokkvartett Tónlist- arskólans leikur). 20.45 Erindi: Neyzluvörur. — Korn og bi;auð (Gylfi Þ. Gíslason dósent). 21.10 Hljómplötur: Lög leikin- á píanó. 21.20 Kvöld guðspekistúkunnar „Septímu)'; 25 ára afmæli: a) Ávörp og erindi (Jón Árnason prentari, Grétar Fells rithöfundur o. fl.). b) Söngur (frú Lára Magnús- cíóttir). Ungbarnavernd Líknar, Templara sundi 3 er opin þriðjudaga, fimmtu- daga og föstudaga kl. 3.15—4. Fyrir barnshafandi konur: mánu- daga og miðvikudaga kl. 1—2. Börn eru bólusett gegn barna- veiki á föstudögum. Þeir sem vilja fá börn bólusett hringi áður í síma 5967 milli kl. 9og 10 sama dag. Miar atsaMr llIWIaðalna Alþýðublaðið ' virðist hafa kippzt við út af ummælum mínum 1 Þjóðviljanum, þar sem á það er bent, að það tínir nær daglega upp í dálka sína ýmis illmæli Tímans og Vísis um ein- staka ráðherra og ríkisstjóm- ina. Blaðið reynir þó að afsaka sig nokkuð í þessu efni og er það góðra gjalda vert og sýnir það, að því hefur jafnvei sjálfu fundizt miður sæmilegt að smjatti á giftum stjórnar- andstæðinga og undirstrika þær með fjálgslegum viðurkenning- arorðum frá eigin brjósti. En blaðið fær sig þó ekkj til að iðrast og biðja almenning af- sökunar á óháttvísri framkomu sinni gagnvart þeirri ríkisstjóm sem flokkur þess styður og á ráðherra í. í stað þess slær það út í aðra sálma. Afsökun blaðs ins er m-. a. í því fólgin, að ekki sé hægt að halda uppi þeim dálki í blaðinu sem hefur að fyrirsögn ,,Hvað segja hin blöðin?“ án þess að raddir and stæðinganna heyrist þar. Þessa vizku þurfti ekki að sækja til Alþýðublaðsins enda hefur það ekki verið ásakað fyrst og fremst fyrir það að birta öðru hvoru raddir andstæðinga rík- isstjómarinnar. Eg ásakaði blað ið fyrir það að taka undir ill- mæli stjómarandstæðinga, jafn vel þótt það vissi að þau byggð- ust á ósannindum. Þegar Al- þýðublaðið birti í dálkum sín- um t. d. ásakanir Vísis á hend- ur menntamálaráðherra fvrir skipun hans í útgáfu stjórn námsbóka, þá hefði ekki verið ósanngjarnt að ætlast til þess af málgagni eins stjórnarflokks ins að það léti fylgja frá sér þá skýringu, að ráðherrann skipaði einn þekktasta og menntaðasta barnaskólastjóra landsins sem formann 'þessarae stjórnar, en aðra meðlimi henn ar eftir tilnefningu hlutaðeig- andi aðila samkvæmt lögum. Þá hefði lesendum blaðsins mátt verða það ljóst, að Vísir laug upp á ráðherrann og leyndi staðreyndum. En í stað þess lætur Alþýðu- blaðið fylgja þessari upprent- uðu Vísislýgi samúðarríka við urkenningu frá eigin brjósti. Þetta er aðeins eitt lítið dæmi um kyndugt háttern: stjórnarblaðs. Alþýðublaðið þarf að gera sér það vel lióst, að það er ekki sama hvort lygi andstæð iriga er birt í því skyni að fá almenning til þess að trúa h.enni eða til bess að varna því, að hún verði honum að fótakefli. Þjóðviljinn hefur síður en svo ástæðu til að óttast skrif andstæðinga sinna. Þau eru flest með þeim hætti framsett að sósíalistum er ávinningur að þeim. Þjóðviljjinn birtir t. d.. nú þessa dagana ýmsa eftir- tektarverða kafla úr greinum. sem komið hafa út í ritinu „Samvinnan“. Þar má sjá m. a. sameiginlega stríðsyfirlýsingu Framsöknarityskio 09 sam- tök reykviskrar alþýOu Alþýðublaðið er oftast sein- heppið í málflutningi fyrir flokk sinn. Og sem vænta mátti ferst því ekki betur þjónustan við Framsóknarhöfðingjana í KRON, þótt viljann vanti ekki til að verða þeim að gagni Blað þetta ásakar sósíalista fyr- ír það, að þeir skuli leyfa sér að vinna gegn því, að fylgis- laus andstæðingaklíka Reyk- víkinga, — Framsóknarflokkur- inn — nái þeirri drottnunarað- stöðu í KRON, sem hún hefu-. haft í öðrum kaupfélögum inn- an S. í. S. í því sambandi tal- ar blaðið um það, að sósíalist- ar safni heilum f jÖlskyldum inn í KRON. Þessi óvarkárni blaðs ins í málflutningi fyrir hús bændur sína í Framsóknar flokknum minnir óþægilega á þá staðreynd, að einn af for- stjórum S. í. S. og aðrir heldri menn úr þeim herbúðum, smöl- uðu fjölskyldum sínum, konum og börnum á síðustu stundu inn í eina af deildum KRON. sem fyrst var kosið í, og hóf 1 með því þau átök, sem nú fara fram í sambandi við fulltrúa kjör til aðalfundar KRON. Þessi fjölskyldusmölun Fram- sóknarmanna og þjóna þeirra í sveit Alþýðublaðsins, veitti þeim meirihluta í einni deild félagsins. En líkur benda til að meiri'hluti í öðrum deildum verði Framsóknarmönnum ekki auðsóttur. Væri líka Reykvík- ingum illa brugðið ef þeir tryðu slíkum mönnum fyrir for ustu mála sinna í einhverjum allra þýðingarmestu samtökum almennings í bænum. Hin pólitísku handjárn Fram- sóknarmanna í kaupfélögunum úti á landi og valdbeitni þeirra og pólitískt ofstæki, er of frægt að endemum til þess að alþýð- an í Reykjavík kjósi sér slíkt til handa. Þá er sagan af gömlu kaup- félögunum í Reykjavík, undir forustu bandingja Framsóknar við Alþýðublaðið ekki svo glæsileg, að líklegt sé, að Revk- víkingar freistist til að kjósa forustu þeirra hennar vegna í kaupfélagsmálum. Þá er rétt að taka það skýrt og greinilega fram hér, að það afturhaldsaflanna innan sam ■ vinnufélaganna gegn sósíalist- um og frjálslyndum gamvinnu- mönnum. Og þessir greina- kaflar eru birtir í Þjóðviljanum m. a. vegna þess, að þeir verða þeim einum til skaða og van sæmdar er að þeim standa. í>vílíkar ritsmíðar geta jafnvel flýtt fyrir heilbrigðu og víð- tæku samstarfi samvinnumanna um land allt, því að þær svipta tjaldinu frá hinu dimma leik- sviði þar sem pólitískar vofur fyrirstríðsáranna þjóna geð- illsku sinni á kostnað sam- vinnufélaganna í óþökk allra góðra samyínnumanna. Alþýðumaður. er sannanlegt, að kosningasmal ar Framsóknar beita núna í sambandi við KRONkosning arnar alveg óheyrilegum aðferð um til þess að ginna fólk til að kjósa sig í KRON. Það verður trauðlega skilið að óvinir Reykvíkinga vilji ná yfirráðum í KRON til annars en þess að fá aðstöðu til að neita ,,kerlingunum í bænum", eins og þeir hafa orðað það, um kaffi, sykur og aðrar nauðsynj- ar, á sama hátt og þeir hafa haft ánægju af að neita þeim um mjólk, rjóma og smjör. En aumingja Alþýðublaðs- kórinn. Hvað hugsar hann9 Kannski dreymir hann um að breyta KRON í hlutafélag og selja sjálfum sér eignir þess, eins og Iðnó og Alþýðubrauð- gerðina? Eða er hann hættur að hugsa um annað en þjóns- starf hjá Framsóknarflokknum? Þégar ég hitti kunninga minn í gær og lét undrun mína : ljós á hinu hjartnæma sam- starfi Alþýðuflakksmanna í KRON við fjandsamlegan and- stöðúflokk ríkisstjómarinnar og mikilvægustu stefnuatriða henn ar, þá svaraði hann: Eg er hættur að verða hissa á Alþýðuflokksmönnum. Það er ekki lengur nein rosafrétt. þótt þeir slái út gömul met sín í flónslegum vinnubrögðum og afkáralegri frámkomu í stjóm- málum. En Reykvíkingar, sem eru í KRON munu fara sínu fram. Þeir munu ekki greiða kosn ingarsmölun Framsóknarmanna skóslit þeirra og armæðu. Reyk víkingar munu að líkindum af- þakka forustu Framsóknar- manna í KRON eins og í öðr- um þeim málum, er snerta vel - ferð Reykjaví'kur og Revkvík- inga. Hin pólitísku handjárn Fram sóknarmanna eru ekki útgengi leg í Reykjavík og enginn góð- ur Reykvíkingur mun kjósa að sýna sig með þau á almanna- færi. Reykvisk alþýða ætlar að eiga KRON sjálf og stjóma því til hagsmuna fyrir sig. Hún ætlar ekki að breyta KRON > hlutafélag né selja það í hend- ur einstaklingum. Og hún ætl • ar bess vegna að hafna því, að ofurselja KRON í hendur þeim mönnum, sem óvinsamlegastir hafa reynzt Reykvíkingur og mestan fjandskap sýna nú rík- isstjórninni 'Og áhugamálum hennar, sem eru um leið á- hugamál allra Reykvíkinga. sem vilja bæ sínum vel. Á. Berklaskoðunín í síðastiliðinni viku fór fram berklaskoð'un á 1818 manns hér í Reykjavík. AJls hafa verið rönt- genskoðað í Landsspítalanu'm síð- ustu vikurnar 20.180 mánns. 32 þúsund hafa alls verið berklaskoð- aðir í Reykjávík.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.