Þjóðviljinn - 06.05.1945, Qupperneq 2
2
ÞJOÐVILJINN
Sunnudagur 6. maí 1945.
Vorsýning Handída- og
myndlisiaskólans
Handíða- og myndlistaskólinn opnaði vor-sýiúngu í sýningarsal
Hótel Heklu s.l. þriðjudag.
Á sýrúngunrá er jjöldi útskorinna muna, teikningar, vatnslitamynd-
ir nokkur málverk, U’ðurvörur, smíðagripir o.fl. Mun sýning þessi
verða opin í tiu daga, kl. U— 10 daglega.
Skólinn starfar 7 mánuði árs-
ins, og er kennt í þremur deildum:
Kennaradeild, myndlistadeild (í
þeirri deild haí’a verið 17 nemend
ur í vetur) og ýmsir námsflokk-
ar, er mynda þriðju deildina.
Rúmlega 380 nemendur hafa
stundað nám við Handiðaskólann
í vetur. Eru húsakynni þau er
skólinn hefur til umráða orðin
alltof þröng.
í vetur hafa verið kenndar
tekniskar teiknin.gar í tveimur
námáflokkum innan skólSns, er
það einskonar framhaldsnám fyrir
húsasmíði og hefui; Skarphéðinn
Jóhannesson annast þá kennslu.
Verða ráðningarskrif-
stofa Reýkjavíkur og
vinnumiðlunarskrifsofan
sameinaðar?
Verkamannafélagið Dagsbrún
hefur sent bæjarráði eftirfar-
andi fundarsamþykkt sína, sem
gerð var fyrir skömmu: „Fuod
ur 1 Verkamannafélaginu Dags-
brún, haldinn 24. apríl 1945,
skorar á ríkisstjórnina og bæj-
arstjórn Reykjavíkur að
sameina Ráðningarskrifstof'j
Reykjavíkurbæjar og Vinn;-
miðlunarskrifstofuna í Reykja
vík í eina vinnumiðlunarskrif
stofu, er starfi í samræmi við
nýsköpunarþarfir atvinnuveg-
anna og hafi náið samstarf /ið
verkalýðinn“<
Verða sett upp umferða
ljós?
Lögreglustjórinn í Reykjavík
hefur lagt til að keypt verði
umferðarljósatæki, er sett yrðu
upp á gatnamótum í bænum.
þar sem umferð er mest. Um-
ferðarljós hafa verið notuð
flestum erlendum borgum um
margr^ ára skeið og talin auka
öiyggi í umferðinní. Bæjarráð
ákvað að óska eftir nánari
greinargerð um þetta, en lá fvr
ir fundinum.
Kosning í stjórn Spari-
sjóðs Reykjavíkur og
nágrennis
A síðasta bæjarstjórnarfundi voru
kosnir tvoir mcnn í stjórn Spari-
sjóðs Reykjaivíkur og nágrennis.
Voru kosnir þeir Ólafur H. Guð-
mundsson og Helgi H. Eiríksson.
Endurskoðendur voru kosnir Björn
Steffensen og Halidór Jako'bsson.
Kosning í mjólkursölu-
nefnd
Á síðasta bæiarstjórnanfundi var
Gunnar Thorodd'e kosinn í mjólk-
ursölunefnd o<r sem ".iramaðr.
} ans M:..'ía Mmck.
Stjórn Handíðaskólans hefur í
undirbúningi útgáfu á Þryms-
kviðu, cr væntanlegum styrktar-
mönnum skólans verður gefinn
kostur á að eignast gegn ákveðnu
gjaldi. Útgáfan verður skreytt
myndum af málverkum til skýr-
ingar efninu.
Á sýningunni eni 6 af 12 mál-
verkum seim ákveðið er að taka
myndir af i bókina.
Er sýningin var opnuð, ávarpaði
skólastjóri Handíðaskólans, Lúð-
víg Guðmundsson, sýningargest-
ina með ræðu, þar sem hann rakti
að nokkru sögu skólans og gerði
grein fyrir starfi hans eins og það
er n ú.
Skólinn var stofnaður haustið
1939, af Lúðvíg Guðmundssyni er
var ' eigandi og skólastjóri hans
fyrstu þrjú árin. Árið 1941 keypti
Lúðvíg Guðmundsson hús við
Grundarstíg sem notáð hefur ver
ið sem aðsetúrstaður skólans síð-
an.
Að .sjálf.seignarstofnun var skól
inn garður árið 1942 og á nú eng-
inn einistaklihgur eyrisvirði í hon-
um, en 15 menn standa að skól-
anum sem jafnréttháir samstarfs-
menn. Eignir skólans eru metnar
á 300 þúsund krónur, en aftur á
móti hvíla á honum skuldir sem
noma að upphæð 70 þúsundum
króna.
Þrír fastir kennarar starfa við
Handíðaskólann, eru það þeir Kurt
Zier. sem er yfirkennari skólans,
Gunnar Klængsson, smíða- og
teiknikennari og Lúðvíg Guðm-
| undsson, sem er skólastjóri. Auk
þeirra hefur skólinn 11 stunda
' kennara og eru því kennararnir
14 al ls.
Holræsa- og vatnslagnir
/
gangi fyrir
Bæjarráð hefur ákveðið að
leggja áherzlu á, að holræsa-
og vatnslagnir vegna nýrra
byggingalóða í bænum, verði
í látnar ganga fyrir annari vinnu
við gatnagerð; ef hörgull skyldl
verða á vinnuafli á sumri kom-
anda.
Er mikil eftirspurn eftir
byggingarlóðum og úthlutaði
bæjarráð fyrir skömmu um 80
lóðum í Kaplaskjóli og síðan
meira en 100 lóðum í Norður-
mýri og nálega 50 lóðum í
Kleppsholti.
Starfsskipting KRON-
stjómar
Meinlega villur höfðu slæðst
inn í frásögn blaðsins um
fyrsta fund hinnar nýju stjóm
ar KRON í gær.
Á fundinum skipti stjómin
með sér verkum. Formaður var
kjörinn Sigfús Sigurhjartarscn,
varaformaður Þorlákur Ot+err'-
og ri’.r.ri Tbeodór B Línda'.
I.maí hátíðarhöld
Sandur
Verklýðsfélagið Afturelding
hóf 1. maí hátíðahöldin með
kvöldskemmtun 30. apríl s. 1-
Þar fluttu ræður Hjálmar Elías
son formaður félagsins og Guð-
mundur Vigfússon erindreki
Alþýðusambands íslands.
Skemmt var með gamanvísum.
kvartett söng og rimur voru
kveðnar. Síðan var stigiun
dans fram eftir nóttunni Sam-
komuna sóttu um 100 manns
1. maímerki voru seld daginn
eftir.
Ölafsvík
Verklýðsfélagið Jökull gekkst
fyrir merkjasölu og kvöld-
skemmtun, sem hófst kl. 6 síð-
degis 1. maí. Ræður fluttu
Kristján Jensson formaður fé-
lagsins og Guðmundur Vigfus
son erindreki Alþýðusambands
íslands. Þorgils Stefánsson og
Gústaf Lárusson lásu upp og
fjöldasöngur var sunginn með
undirleik Bjargar Ólafsdóttur
kennara. Síðan var stigh.n
dans. Á samkomunni voru um
200 manns.
Hvammstangi
Verklýðsfélagið Hvöt gekkst
fyrir kvöldskemmtun 1. mj.í
Ræður fluttu formaður félags-
ins, Björn Guðmundsson og
Hannes Stephensen fyrir hönd
Alþýðusambands íslands. Björn
Jónsson kennari las upp. Verk-
lýðs- og baráttusöngvar voiu
sungnir. Dansað var fram eftir
nóttunni. Skúli Magnússon
stjórnaði samkomunni og fór
hún vel fram. Er þetta í fyrsta
skipti sem verkamenn á
Hvammstanga efna til hátíða
halda 1. maí.
Hér með skal leiðrétt sú missögi
að Magnús H. Jónsson hafi talað
i Listamannaskálanum 1. maí. Það
var Guðgeir Jónsson, sem talaði í
hans stað.
Pálmi Jósefsson settur
yfirkennari
Bæjarstjórn hefur samþykkt að
Pá'inii Jóscfsson verði settnr yfir-
kennari við Miðbæjarskólann í
stað Elísar Bjarnasonar, sem hef-
ur látið af störfum fyrir aldurs
sakir.
Bærinn kaupir hlutabréf
fyrir 100 þús. kr. í h. f.
Skipanaust
Bæjarstjórn hefur samþykkt að
verja 100 þús. kr. til hlutabréfa-
ka.upa í h.f. Skipanaust, nteð því
skilyrði að bæjarstjórn eigi jaifnan
rétt til• að tilnafna 1 fulltrúa í
stjórn félagsins.
Mjólkursamsalan fær
veitingaleyfi
Mjólkursamsalan hefur sótt um
veitingaleyfi í salnum á þakhæð J
nýju mjólkurstöðvarinnar við Suð
urlandsbraut. Var samþykkt á
síðasta bæja rs tjórnarfundi.
Salur þessi nær yfir alla þak-
hæð nýju byggingarinnar og mun
vera Aærsti samkomuralur í Ir'”-
u:.t.
Þetta er meira en aug-
lýsingaskrum
Það er að verða næsta algengt
hér í Reykiavík að efna til sýninga
á öllúm mögulegum hlutum. Bæi-
arbúum er ekki einvörðungu boðið
upp á málverkasýningár, heldur
bygginga- bóka- bindindismála-
ljósmynda- og skólasýningar, og er
þó sennilega eitthvað ótalið. Sér-
staklega hefur kveðið ramt að
þessu sýningaflóði í vetur, og staf-
ar það fyrst og fremst af því, að
hentugt húsnæði hefur fengizt til
þessara hluta, þar sem er sýninga-
salurinn í Hótel Heklu. Sumt ai
þessum sýnin'gum er vissulega sett
fram í auglýsingaskyni, en þó má
fullyrða að allar hafi þær haft
menningar- og fróðleiksgildi, þrátt
fyrir annan tilgang sem oft hefur
verið auðsær. Meðan svo er, sýn-
ist ekki vera ástæða til að amast
við þeim. Heidur þvert á móti, við-
urkenna það sem vel er gert í
þessu efni, en gagnrýna það sem
miður fer, í Irausti bess að þá
verði betur gert í næsta sinni.
Tvær sýningar
t Einn góðkunningi Bæjarpóstsins
hefur sent honum bréf um tvær af
þessum sýningum, en það eru skóla
sýningin í Austurbæjarskóla og vor
sýning Handíða- og myndlistaskól-
ans. Sú fyrrnefnda er að vísu af-
staðin og verða þeir sem létu hana
fara fram hjá sér að lifa í von-
inni til næsta vors, í trausti þess
að forráðamenn skólans sjái sér
fært að efna þá til annarrar sýn-
ingar ekki síðri. En hvað snertir
sýningu Handíðaskólans. þá er hún
ennþá opin almenningi í sýningar-
salnum í Hótel Heklu.
Opborglrmí
Næturlæknir er í læknavarðstof-
unni í Aústurbæjarskólanum.
Næturvörður er í Reykjavíkurapó-
teki.
Næturakstur: Bifröst, sími 1508
Ljósatími ökntækja er frá kl. 21,15
til kl. 3,40.
Útvarpið í dag:
14.00 Messa i Dómkirkjunni (séra
Sigurjón Árnason). Ferming-
armessa.
18.30 Barnatími (Pétur Pétursson,
Brynjólfur Jóhannesson o. fl )
20.35 Erindi: Japanski rithöfundu -
inn Kagawa (Ólafur Ólafssoo
kristniboði).
21.00 Hijómpltöur: Norðurlanda-
söngvarar.
21.15 Upplestur: Kvæði (Snorri
Hjartarson).
21.30 Hljómplötur: Klassiskir dans-
ar.
Útvarpið á mofgun:
20 30 Þýtt og endursagt (Andrés
Björnsson).
21.00 Frá útlöndum (Axel Thor-
steinson)).
21.20 Útvarpshljómsveitin: Amerisk
þjóðlög.
Einsöngur (Vilhjálmur S. V
Sigurjónsson):
a) Nú andar suðrið (Ingi T
Lárusson).
b) Nú sefur jörðin (Þorvald-
ur Blöndal).
c) Vor og haust (Bjarni Þor
steinsson).
d) í fiarlægð (Karl O. Run-
ólfsson).
c) Kvöldljóð (Ctefán GiD
;v.:nds-;.
Gaf skólanum beztu
meðmæli
Um sýninguna í Austurbæjar-
skólanum skrifar bréfritari minn:
„Eg var að hlusta á útvarpstil-
kynningarnar hér um kvöldið og
heyrði að lesin var tilkynning um
sýningu nemenda í Austurbæjnr-
skólanum. Mér varð strax forvitní
á að vita hvað þarna væri að sjá„
þótt ég sé hvorki barnakennari né
eigi börn í skóla og hafi þar af
leiðandi ekki meiri áhuga fyrir
barnaskólum en hverjum öðrunr
skólum.
Svo lét ég verða af þessu dagian
eftir. Skoðaði gýninguna og reyndi
að kynna mér hana sem bezt. Eg
hafði einhvern pata af því, aé
Austurbæjarskólinn væri alls ekkí
svo slæmur skóli og ég verð að
segja það, að þessi sýning gaf skól-
anum hin beztu meðmæli í mínum
augum. Hér var ekki um neitt úr
val að ræða, af því bezta sem
skólinn hafði að sýna, enda hefði
slík úrvalssýning ekki náð þeim
j tilgangi sem virtist hafa vakað fyr-
ir forráðamönnum skólans, sem sé
að gefa foreldrum barnanna kost
á að íylgjast með starfi þeirra í
j skólanum. Það þarf varla að taka
fram að barna var margt prýði-
lega vel gerðra muna, af svo ung-
um nemendum að vera, er báru
merki smekkvísi og kunnáttu.
Eftir að hafa skoðað þessa sýn-
ingu í Austurbæjarskólanum, býð
ég þess með eftirvæntingu að aðr
ir barnaskólar þessa bæjar efni
til skólasýninga, svo við fáum að
sjá hvað þeir hafa upp á að bjóða“.
Vorsýning Handíðaskólans
Þá víkur bréfritarinn að sýningi
Handíða- og myndlistaskólans:
„Ekki liðu nema nokkrir dagar
þar til önnur sýning var opnuð
hér í bænum og þar var ekki verið
að sýna neitt barnameðfæri, held ir
handaverk þroskaðra nemenda ei
sumir hveriir eiga vonandi eftir að
komast í tölu listamanna þjóða--
innar, er þeir hafa aflað sér frek-
ari menntunar en kostur er hér
innanlands. Þetta var vorsýning
Handíða- og myndlistaskólans i
Hótel Heklu. Nú væri fjarstæða að
bera þessar tvær sýningar saman.
svo fiarskyldar eru þær í eðli sínu
En gaman hefði ég að vita hvo’T
sumir nemendur Austurbæjarskól-
ans eiga ekki eftir að verða meðal
færustu nemenda Handíða- og mynd
listaskólans, í tréskurði og teikn-
ingu.
Það sem mér þótti bera af á
sýningu Handíðaskólans voru mynd
irnar, einkum vatnslitamyndimer
• sem klæddu eitt hornið í salnum.
Kæmi mér ekki á óvart þó sýning-
argestum yrði starsýnt á þær, og þa
ekki síður að höfundur þeirra ætti
eftir að valda stærri verkefnum.
ef hann heldur áfram námi í list-
inni.
Annar aðalþáttur sýningarinna-
er tréskurður og leðurvinna. Er
þar margt fagurra muna..
Yfir það heila tekið hefur sýn-
ingin tekizt með afbrigðum vel og
ef vænta má jafns góðs árangurs
árlega af starfi þessa skóla, leyfi
ég mér að fara fram á að sú
- regla verði upp tekin að skólinn
gefi almenningi árlega kost á að
sjá slíka sýningu sem þessa.
■ Er skömm til þess að vita að
Handíða- og myndlistaskólinn skuli
vera einn þeirra skóla hér í höf-
uðstaðnum sem verður að búa við
ófullnægjandi húsnæði. Mætti vel
svo fara að þessi sýning og aðrar
sem ég vona að skólinn eigi eftir
að hafa, opni augu valdhafanr.a
og alls almennings 'vrir beir'-i '•■■
, hæi.. og knýi fram leiðréttin„u t
1 hc. .4