Þjóðviljinn - 07.07.1945, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 07.07.1945, Blaðsíða 8
Félagsheimili Breiðfirðínga Hlutafjársöfnun hafin — Ávarp til Breiðfirðinga • Breiðfirðingafélagið kaus fyr-1 Bréiðfirðinga og at'hvarf gesta ir alllöngu 9 manna nefnd til heiman úr Breiðafjarðanbyggð- að vinna að því, að félagið gæti fengið til umráða hagkvæmt húsnæði fyrir starfsemi sína. Nefnd þessi hefur nú — að und- angengnu miklu starfi — fest kaup á eignunum Skólavörðu- stíg 4—6 og 6 B. Er mi verið að stofna hlutafélag, sem nefnt verður Breiðfirðingaheimilið, til ])ess að kaupa eignir þessar og koma þar á fyrirhugaðri starf- rækslu. Ráðgert er að út'búa strax á þessu ári í lnisinu G B samkomu- og veitingasal og nokkur gestaherbergi. Síðar er ætlunin, að þarna rísi stór og myndarleg nýtízku bygging. Þarna á að vera félagsheimili Ðrengjamót r Armanns Síðari hluti Drengjamóts Ar- manns fór fram 4. júlí og urðu úrslit sem hér segir: um og annars staðar að. Einnig má vænta þess, að fleiri félög geti fengið þarna húsnæði fyrir starfsemi sína. Óþarft er að fjölyrða um hina miklu nauðsyn þess að koma upp í Reykjavík félagsheimiii og gististað eins og hér er ráð- gert. Félagsmönnum Breiðfirð- ingafélagsins mun áreiðanlega Ijóst, hversu það væri mi'kið hagræði, ef félagið gæti .fengið slíkt húsnæði til umráða. — Flestum mun kunnugt um þá gífurlegu erfiðleika, sem að- komufólk á oft við að stríða, er það þarf að leita hér gist- ingar. Breiðfirðingaheimilið h.f. er m. a. stofnað til að reyna að minnka þá erfiðleika. Það krefst að sjálfsögðu mik- ils fjár að koma upp þessu Breiðfirðingaheimili. En sam- einist Breiðfirðingar heima og heiman ötullega um að hrinda þessu nauðsynja- og luigsjóna- máli í framkvæmd, mun það reynast vel kleift. 400 METRA HLAUP. 1. Magnús Þórarinsson (Á.) 55.7 sek. 2. Hallur Símonarson ('f.R.) 55.8 sek. 3. Sveinn Björnsson (K.R.) 57.2 sek. 4. Svavar Gestsson (Í.R.) 58.5 sek. 3000 METRA HLAUP. 1. Stefán Gunnarsson (Á.) 10 mín 7.0 sek. 2. Gunnar Gíslason (Á.) 10 mín. 17.0 sck. 3. Aage Steinsson (l.R.) 10 mín. 32.0 sek. 4. Kári Sólmundarson (Umf. Skallagrímur) 10 mín. 50.0 sek. HÁSTÖKK. 1. Kolbeinn Kristinsson (Umf. Selfoss) 1.73 m. 2. Björn Vilmundarson (K.R.) 1.04 m. 3. Árni Gunnlaugsson (F.H.) 1.04 m. 4. Örn Clausen (Í.R.) 1.04 m. ÞRÍSTÖKK. 1. Björn Vilmundarson (K.R.) 13.28 an. 2. Stefán Sörensen (H.S.Þ.) 13.20 m. 3. Magnús Þórarinsson (Á.) 12.23 m. Breiðfirðingaheimilinu hefur verið valinn stór ög góður stað- ur í hjarta höfuðborgarinnar. Það sýnir stórhug og djarfræði þeirra, er völdu staðinn. Hinn sarni metnaður og áhugi þarf að koma fram í undirtektum Breið- firðinga almennt í þessu máli. Við leyfum okkur hér með að leita til Breiðfirðinga og manna af breiðfirzkum ættum um stuðning við að koma upp þessu fyrsta átthagaheimili á íslandi. Hjálp annarra, er kunna að vilja styðja þetta, verður einn- ig með þökkum þegin. Fyrst og fremst þarf að safna hlutafiár- framlögum og loforðum um þau. Margvíslegur annar stuðn- ingur getur einnig komið að góðum notum. Til að greiða fvrir hlutafjár- söfnuninni hefur verið opnuð skrifstofa að Skólavörðustíg GB. Verður hún opin alla daga kl. 5—8. Sími 3490. — Öli bréf um þetta ber að senda beint til skrifstofunnar eða í pósthólf 095. — Lögfræðiskrifstofa Kristjáns Guðlaugssonar hrl. í Hafnarhúsinu veitir einnig upp- lýsingar. Þar geta menn einnig skrifað sig fyrir eða greitt af hendi hlutafé. Reykjavík, 0. júií 1945. KÚLUVARP. 1. Bragi Friðriksson (K.R.) 14.07 m. 2. Vilhjálmur Vilmundarson (K.R.) 14.18 m. 3. Ásbjörn Sigurjónsson (Á.) 13.20 m. 4. Sigurjón Ingason (Umf. Ilvöt) 13.04 m. SPJÓTKAST. 1. Stefán Sörensen (H.S.Þ.) 48.10 m. 2. Halldór Sigurgeirsson (Á.) 47:76 m. 3. Sigurjón Ingason (Umf. Hvöt) 43.41 m. 4. Árni Friðfinnssón (F.H.) 40.84 m. Stjórn og liúsnefnd Breiðjirðingafélagsins. Orðscndinrj frá kirkjugörðunum. Til 20. sept. verður skrifstorutími í báðum görðum aðeins kl. 11—12 árd. á laug- ardögum. Aðra virka daga á venjuleg- um tímum. Allir þeir, er ætla sér að vinna í görðunum, verða að tilkynna það umsjónarmönnunum og fá sam- þykki til þess sem vinna á (annars en ræktunar og hreinsunar reita). Allir þeir, sem eiga eða hafa umsjón með reitum, scm ekki hefur verið gengið frá, og eru eldri en frá þessu ári, áminnast um að draga það ekki lengur; ella geta þeir búizt við að allir slíkir reitir verði hluðnir upp á þeirra kostnað. I’eir, sem kunna að hafa gert ráðstöfun til að fá gengið frá reitum sínum þó fram- kvæmd sé ekki ihafin, geri svo vel oð' tilkynua það á skrifstofum garðasna. ♦ Nefnd til að at- huga orsakk um» . ferðaslysa mi Frcttatilkynning frá ríkissLj6minni. Dómsmálaráðherra hefur hinn 6. þ. m. falið þeim Gissuri Berg- steinssy ni, h æs taré ttai’dómara, sakadómaranurn í Revkjavík, Bergi Jónssyni, og lögréglu- stjóranum í Reýkjavík, Agnari Kofoed-IIansen. að athuga og gera tillögur um, svo fljótt sem verða má, hvaða ráðstafanir skuli gera í því skyni að koma í veg fyrir hin tíðu og sífellt vaxandi umferðaslys hér í bæn- um og annars staðar á landinu. Þióðviljinn líyrrah'afsvígsíöðvarnar Kirkjufélag Vest- r ur-lslendinga 60 ára Frcttatilkynning jrá ríkisstjóminni. Prófessor Ásmundur Guð- mundsson var viðstaddur há- tíðahöld þau, sem fram fóru í Winnipeg dagana 21.—20. júní, þegar minnzt var 00 ára afmælis hins evangélisk-lúterska kirkju- félags Vestur-íslendinga, en þangað fór próf. Ásmundur sem fulltrúi íslenzku þjóðkirkjunn- ar. Séra Valdimar Eylands, séra Egill Fáfnis, dr. Richard Beck og Grettir Jóhannsson, ræðis- maður, tóku á móti honum á flugvellinum, en þangað kom hann daginn sem hátíðin hófst. Athöfnin hófst með guðs- þjónustu í fyrstu lútersku kirkj- unni, en þar messaði séra Valdi mar Eylands, en séra Egil Fáfnis prédikaði. Séra Harald ur Sigmar, forseti kirkjufé'lags ins, gaf skýrslu og próf. Ás: mundur talaði. Á föstudag var afmælisin mjnnzt í ræðum, sem sér Kristinn Ólafsson. séra Sigurð ur Ólafsson og séra Guttorinu Guttormsson fluttu. Á laugar- dag kom til þingsins Franklin Clark Fry, forset.i lútersku kirkjufélaganna í Ameríku, og flutti hann ávarp. Þá fóru einn- ig fram hljómleikar, sem frú Snjólaug Sigurðsson stýrði. Á sunnudag flutti próf. Ásmund- ur vinakveðjur frá biskupi ís- lands og ríkisstjórn, og var þeim ákaft fagnað Fundinn sátu 13 prestar, 50 fulltrúar og meir cn 000 manns aðrir. Ásmundur prófessor afhenti séra Haraldi Sigmar fálkaorðuna. Séra Run- ólfur Marteinssön minntist 100 ára afmælis séra Jóns Bjarna- sonar. Á mánudag fóru fram hljóm- leikar vestur-islenzks æskulýðs. og fluttu þar ræður séra Har- aldur Sigmar, Bjárni Bjarna- son, Pétur Sigurgeirsson og Fry forseti. Á þriðjulag Iauk þing- inu með því að 'saniþykkt var ályktun þess efnis að skora á biskupinn yfir íslandi að garast heiðursforseti kirkjufélagsins. Kveðjur bárust frá presta- sfcéfnu íslenzku þjóðkirkjunnar, biskupi og mörgum öðrum. Þegar stríðinu í Evrójm var lokið var sóknin gegn Japönum hert. — Efsta myndin sýrur bandarískt beitiskip á Kyrrahafi, efst á myndinni til vinstrí sést flugvélamóðurskip. — Onnur myndin: Bandarísku sjóliðunum hefur heppnazt landgangan og skjóta á stöðvar Japana með 75 mm. sprengjuvörpu. Búningarnir eru dílóttir til þess að þeir líkist landslaginu og sjáist siður. — Þríðja myndin sýnir brezkt skriðdreka- og fótgöngulið sœkja fram. — Neðsta myndin: Brezkur hermaður veitir sœrðum félaga sínum fyrstu hjálp.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.