Þjóðviljinn - 09.08.1945, Qupperneq 1
Samkomulag um
reísingu stríðs-
glæpainauua
Verða dæmdir í herrétti
Samkomulag hefur verið
undirritað milli stjórna Sovét-
ríkjanna, Frakklands, Bret-
lands og Bandaríkjanna um
refsingu stríðsglæpamanna.
Stríðsglæpamennirnir munu
verða dæmdir af herrétti, sem
mun hafa aðalbækistöðvar
sínar í Berlín og munu full-
trúar stórveldanna fjögurra
sitja í réttinum. Þeir stríðs-
glæpamenn, sem brotið hafa
af sér gagnvart einstökum
ríkjum, munu þó verða dregn-
ir fyrir dóm í viðeigandi ríkj-
um og dæmdir samkvæmt lög
um þeirra.
Fyrstu réttarhöldin yfir
stríðsglæpamönnum munu
hefjast í Nurnberg 1. septem-
ber n. k. og verða Ribbentrop
og fleiri háttsettir nazistafor-
ingjar þar dregnir fyrir dóm.
Potsdamsamþykkt-
inni fagnað
Kristinn Andrésson alþing-
ismaður fór nýlega flugleiðis
til Norðurlanda til þess að
sitja þing norrænna þing-
manna. Þjóðviljinn fékk eft-
irfarandi skeyti frá honum í
gær, var hann þá staddur í
Stokkhólmi:
„Flugferðin unaður. Sól-
skinshiti daglega. Umræðu-
efnið í dag: atomsprengjan.
Potsdamráðstefnunni fagnað
hér; Finnar sérstaklega á-
nœgðir. Pieck ritar að Þjóð-
v.erjar hafi ékki getað búizt
við jafnvœgum skilmálum.
Fljúgum á morgun til Kaup-
mannahafnar“.
10. árgangar.
CMBfflMOBBMHI
Fhnmtudagur 9. ágúst 1945
175. tölublað.
Sovétríkin lýsa yfir styrjöld á hendur Japönum
Stríðsyfirlýsingin gekk í gildi á miðnætti í nótt. Yfirlýsingunni fagiíað
mjög í Bretlandi og Bandaríkjunum
Páll Sigurðsson verk-
fræðingur látinn laus
Páll Sigurðsson verkfræð-
inyur, einn hinna 10 manna
sem Bandaríkjamenn af-
hentu sakadómara hinn 3.
þ. m. var látinn laus úr
gæzluvarðhaldi í morgun.
Moskvuútvarpið tilkynnti í gær, að Molo-
toff, utanríkisþjóðfulltrúi Sovétríkjanna, hefði
kalíað sendiherra Japans í Moskvu á sinn fund
í Kreml og tilkynnt honum, að Sovétríkin
hefðu lýst yfir styrjöld á hendur Japönum og
gengi yfirlýsingin í gildi frá og með miðnætti
á aðfaranótt 9. ágúst samkvæmt Moskvutíma.
Eftir að þetta hafði verið tilkynnt, var stríðs-
yfirlýsingin lesin upp í útvarpið.
Á sama tíma var stríðsyfirlýsingin kunngerð í
London og Washington. Hefur henni verið fagnað
mjög í löndum Bandamanna, þar sem þátttaka
Sovétríkjanna í Kyrráhafsstyrjöldinni hlýtur að
verða til þess að stytta stríðið mjög, jafnvel þó að
svo fari ekki, sem margir búast við, að Japanar
muni nú sjá sitt óvænna og gefast upp skilyrðis-
laust, þegar í stað.
í yfirlýsingunni segir, að
Sovétríkin hafi ákveðið að
segja Japan stríð á hendur
samkvæmt ósk bandamanna
þeirra í styrjöldinni gegn
Þýzkalandi, en þeir hafi farið
fram á það, eftir að Japan
hafði hafnað tilboði Bretlands
Bandaríkjanna og Kína um
skilyrðislausa uppgjöf, sem
gefið var út á Potsdamráð-
stefnunni 26. júlí sl. Sovétrík-
in geri þetta til þess að
tryggja að allsherjar friður
komizt á sem fyrst í heimin-
um með sem minnstu tjóni á
mannslífum og verðmætum
og til þess að koma í veg fyrir
það, að Japan verði 'fyrir
sömu hörmungum og þýzka
þjóðin varð fyrir í lokaátök-
unum í Evrópustríðinu. Jap-
anska stjórnin geti því sam-
kvæmt ofanrituðu skoðað sig í
stríði við Sovétríkin frá og
með fimmtudeginum 9. ágúst.
Kort, sem sýnir afstöðu Kína, Síberíu,
Mansjúríu og Japanseyja
Milli 10 og 20 mænuvdkitilfelli í
Rvík. Veikin væg eiin - þó eitt dauðs-
íall af völdum hennar
Milli 10 og 20 manns hafa sýkzt af mœnusótt hér í
Reykjavík.
Veikin er vœg enn, en þó hefur ein kona látizt
af völdum mænusóttar.
Fyrsta tilfellisins varð vart 31. júlí sl. og var sjúk-
$
lingurinn nýkominn frá Selfossi. Veikinnar hefur orð-
ið samtímis vart í austur- og vesturbænum, Klepps-
holti og Seltjarnarnesi. Talið er að sumir sjúkling-
anna muni hafa sýkzt fyrir hálfum mánuði.
Mœnuveiki mun hafa orðið vart í Hafnarfirði í
júnímánuði sl.
Samtímis því að Molotoff
las yfirlýsinguna fyrir jap-
anska sendiherranum í
Moskvu, gekk sendiherra
Sovétríkjanna í Tokío á fund
japanska utanríkisráðherrans
og fékk honum stríðsyfirlýs-
inguna í hendur.
Molotoff kallaði síðan
sendiherra Bretlands, Banda-
ríkjanna og Kína á sinn fund
í Kreml og skýrði þeim frá
stríðsyfirlýsingunni. Sagði
Moskvuútvarpið, að þeir
hefðu fagnað henni mjög.
Truman kallar saman
blaðamannafund
Síðdegis í gær kallaði Truman
Bandaríkjaforseti saman
blaðamannafund í hvíta hús-
inu í Washington. Þegar blaða
mennirnir komu, voru þar
staddir fyrir yfirmenn héirs
og flota, utanríkisráðherrann
og ýmsir nánustu samstarfs-
menn forsetans. Truman sagði
brosandi við blaðamennina:
„Eg hef aðeins eitt að segja
ykkur: Sovétríkin hafa lýst
yfir stríði á hendur Japönum.
Annað er það ekki.“
Tilkynning frá Downing
Street
Attlee, forsætisráðherra
Bretlands, gaf í gærkvöld út
tilkynningu frá forsætisráð
herrabústaðnum í Downing
Street 10 varðandi stríðsyfir-
lýsingu Sovétríkjanna. í til-
kynningunni segir m. a.: Við
Bretar höfum jafnan fyllilega
skilið hina erfiðu aðstöðu Sov-
étríkjanna, sem báru hitann
og þungann 1 baráttunni gegn
Þýzkalandi nazismans. Hins
Frh. á 8. síðu.
Hirosjimo að hálfu leyti í rústum
Atómsprengjan hefur ekki verið reynd aftur
Nákvæmar fréttir hafa enn ekki borizt um tjón-
ið, sem varð í japönsku borginni Hirosjimo, þegar
atómsprengjunni var varpað á hana á mánudag, en
það mikið er vitað, að um helmingur borgarinnar,
um 10 ferkílómetrar, er algerlega í rústum og fimm
verksmiðjubáknum hefur verið jafnað við jörðu. En
sagt er, að ekki sé hægt að lýsa því í orðum, hve
áhrif sprengingarinnar hafa verið stórkostleg.
Fjórar loftárásir voru gerð-
ar á Japan í gær, en eingöngu
venjulegar sprengjur voru not
aðar. Risaflugvirki réðust á
Tokío og nágrenni. Einnig
Sameiginleg her-
námsstjórn Banda-
manna í Áusturríki
Sovétríkin, Bretland, Banda
ríkin og Frakkland hafa nú
komizt að samkomulagi um
hernámsstjórn Austurríkis.
Eins og kunnugt er, var það
eitt þeirra mála, sem um var
rætt á Potsdamráðstefnunni
og ekki náðist fullnaðarsam-
komulag í. Hernámssvæði
hvers ríkisins um sig hafa nú
verið ákveðin. Þau munu öll
í sameiningu sjá um hernám
Vínarborgar.
Hernámsstjórn Bandamanna
í Austurríki mun leitast við
að undirbúa algeran skilnað
Austurríkis við Þýzkaland,
koma á fót stjórn, sem geti
voru gerðar loftárásir á borg-
irnar Fúkojama og Javota.
Truman forseta hefur verið
afhent skýrsla um áhrif atóm-
sprengjunnar, sem varpað var
á Hirosjimo á mánudag, en
hún hefur enn ekki verið gerð
opinber. ,
Nánar um atómsprengj-
una.
Atómsprengjan var reynd í
fyrsta sinni í Nýja-Mexíco í
Bandaríkjunum. Vísindamenn
irnir, sem viðstaddir voru, er
sprengjan var reynd segja að
mikill uggur hafi verið í þeim
um það, hvernig fara mundi.
Vissu þeir í rauninni ekkert
um það, hve aflmikil sprengj-
an væri. Þeir segjast hafa
verið í algerri óvissu um það,
hvort þeir myndu vera á lífi
eftir sprenginguna, eða hvað
það snerti, hvort Nýja-Mexico
mundi ve.ra til. Allt gekk þó
að óskum.
ráðið öllum málum ríkisin- og
undirbúa jarðveginn fyrir
frjálsar kosningar 1 Austur-
i ríki sem fvrst.