Þjóðviljinn - 09.08.1945, Side 8
Fjórir af fremstu her shöfðingjum Bandamanna í Berlín.
w
Frá vinstri: Montgomery, Ei senho'wer, Súkoff og de Tassigny. — Þeir undirrituðu upp-
gjafarsamninginn í Berlin
þJÓÐVILJINN
„Auðna fylgi íslenzka þjóðvsldinu66
Fólkaflokkiirinn og Sjálfstýrisflokkurinn mót-
mæla ummælum tveggja færeyskra stjórnmála-
manna um viðhorf Færeyinga til lýðveldisstofn-
unar á íslandi
Joanhes Patursson, formað ur Fólkaflokksins og Ricliard
Long, formaður Sjálfstýrisflokksins hafa sent Færeyingafé-
laginu í Reykjavík svohljóðandi skeyti:
Aukakosningar í N.-Þingeyjarsýslu
Gísli Guðmundsson segir af sér þingmennsku vegna
vanheilsu. — Framboðsfrestur er til 17. þ. m.
Samkvæmt frétt frá ríkisstjórninni hefur Gísli Guðmundsson al-
þingismaður sagt af sér þing'mennsku sakir vanheilsu, og skal kosn-
ing alþingismanns í hans stað fyrir Norður-Þingeyjarsýslu fara fram
á þriðjudaginn 18. september n. k. Framboðsfrestur er til 17. þ. m.
Notaðar hafa verið heim-*
ildir í lögum til. að fella
niður auglýsingafrest, og
frestur til að ieggja fram
kjörskrár hefur verið stytt-
ur, þannig að þær skulu
fram lagðar 5 vikum fýrir
kjördag. Lagt hefur verið
fyrir hlutaðeigandi yfirkjör
stjórn að undirbúa kosning
una, og sjá um að hún fari
fram lögum samkvæmt.
Söltun undirbúin
á Raufarhöín
Fréttaritari Þjóöviljans
á Raufarhöfn símaði í
gærkveldi:
Veðurblíða á Nmiðunum
undanfarna daga, en engin
síld hefur borizt hér að
landi. Skipin öll fyrii- vest-
an. Fengu eitthvað af síld
í gær en mjög lítið í dag.
— Komið er hér salt og
tunnur frá Óskari Halldórs-
syni, og ætlar liann að salta
hér ef einhver síld fæst.
„Verksmiðjukarlinn“, blað
verkamanna við verksmiðj-
una kom út á laugardag-
inn. Fiytur hann greinar og
ýmsan fróðleik. Rilstjóri
er Gunnar Finnbogason.
Ekki er brætt í verksmiðj
unum, en verkamenn vinna
að vegalagningu í þoi'pinu.
Landssíminn hefur sent
hingað talstöð, svo hægt sé
aö hafa samband við skip
úr landi. Talstööina rekur
Björn Ólafsson loftskeyta-
maður
r r
Oskar Jónsson (l.R.)
setur nýtt met í 1500
metra hlaupi
Á innanfélagsmóti IR í
fyrrakvöld, setti Óskar Jóns
son nýtt íslandsmet í 1500
m. hlaupi. Hljóp vegalengd-
ina á 4:9,4 mín.
Gamla metið setti Geir
Gígja árið 1927 og var það
4:11 mín. Sigurgeir Ársæls-
son úr Ármanni hefur áður
hlaupið þessa vegalengd á
sama tíma og Geir Gígja
Fifflm menn brenn-
ast í Olafsvík
Fimm menn brenndust í
fyrrakvöld er sprenging
varð í vélarúmi báts í Ólafs-
vík.
Báturinn ætlaði að leggja
af stað til Hellissands, er
sprengingin varð í vélinni.
Pétur Hjartarson, eigandi
bátsins, brendist mest, var
hann niðri í vélarrúminu
þegar sprengingin varð.
Hinir mennirnir fjórir voru
uppi og brendust þeir á
andliti og höndum. Voru
þaö þeir Guöbjartur Berg-
þórsson, Björgvin Sigurðs-
son, báðir héðan úr bænum
og Guölaugur GuömundSr
son og Leó Guðbrandsson,
báðir 'írá Ólafsvík.
Gert var að sárum þeirra
í Ólafsvík, en fengin flug-
vél til aö flytja þá Pétur
Hjartarson og Reykvíking-
ana tvo hingaö til bæjarins.
Kjötverðlagsnefnd
ræðir væntanlegt
kjötverð
Kjötverðlagsnefnd situr
nú á rökstólum til að ræða
væntanlegt verð á nýslátr-
uðu dilkakjöti.
Nefndin hefur haldið tvo
fundi um málið, en engar
ákvarðanir munu hafa verið
teknar enn.
Knattspyrnumót íslands:
Valur sigraði Víking
með 9:0
Knattspyrnumót íslands
hélt áfram í gærkveldi og
kepptu þá Valur og Víking-
ur. Leikar fóru þannig að
Valur vann með 9 mörkum
gegn engu. í lok fyrri hálf-
leiks hafði Valur sett eitt
mark en Víkingur ekkert.
Fulltrúar Alþýðu-
sambandsins og
Búnaðarfélags-
ins ræðast við
Alþýðusambandið til-
nefndi í gær fulltrúa sína
til þess að ræða við fulltrúa
þá er auka-búnaðarþingið
kaus í fyrradag.
Fulltrúar Álþýöusam-
bandsins eru þeir Hermann
GuÖmundsson Þorsteinn
Pétursson og Gunnar Bene-
diktsson.
Fulltrúar Búnaðarfélags-
ins eru, eins og Þjóðviljinn
hefur áður skýrt frá, þeir
Hafsteinn Pétursson, Sig.
Jónsson frá Arnarvatni og
Þorsteinn Þorsteinsson.
Áttu þeir einn viðræðu-
fund í gær og munu senni-
lega ræðast við aftur í dag.
Islenzkir fulltrúar á
ráðstefnu norrænna
bankamanna
Tveir fulltrúar íslenzkra
bankamanna fóru nýlega
til Norðurlanda til að sitja
ráðstefnu norrænna banka-
manna í Stokkhólmi. Mun
ráðstefnunni nú lokiö.
Fulltrúar þessir voru þeir
Klemens Tryggvason hag-
fræðingur og Þormóður Ög-
mundsson lögfræðingur.
Síld veidd í reknet á
Faxaflóa
í gær höfðu verið salt-
aðar á Siglufirði 2650 tunn-
ur síldar, en samtals á öllu
landinu 5500 tunnur.
Nokkur síld til söltunar
barst til Siglufjarðar í gær.
I gær höfðu borizt til Ðal
víkur 450 tunnur til söltun-
ar og er það fyrsta síld, sem
þar er söltuð á sumrinu. í
sumar eru þar starfandi
tvær söltunarstöðvar, Sölt-
unarstöð Dalvíkur og sölt-
unarstöð Jóns Gíslasonar
útgeröarmanns í Hafnar-
firði, vinna á báðum stöðv-
unum samtals 70 stúlkur.
Fjórir vélbátar frá Akra-
nesi hafa stundað síldveið-
ar með reknet í Faxaflóa.
Hafa þeir farið 4—7 ferð-
jr ,og aflað frá 180 tunnur,
hefur síld þessi verið fryst.
til beitu. ú
„Vegna þess að færeyskur
stjórnmálamaður A. Samu-
elsen og færeyskur blaða-
maður Louis Zachariassen
hafa í viötali við danska
blaöið Politiken 17. júlí
sagt, að allir Færeyingar
teldu, að íslendingar hefðu
átt að bíöa með að stofna
íslenzka þjóöveldið, þar til
Danmörk væri orðin frjálst
land, senda færeyski Fólka-
flokkurinn og Sjálfstýris-
flokkurinn á lögþingi Fær-
eyja ísienzku þjóöinni þessi
boö:
Það er óviðeigandi og ó'
sæmilegt, að Færeyingar á-
telji gerðir islendinga í
sjálfstæðismálinu í útlend-
um blöðum.
Það eru rangar upplýsing
ar, sem þessir menn hafa
gefið um færeysku þjóðina.
Fæi'eyingar yfirleitt telja,
flafin bygging
nýrrar rafstöðv-
ar í Vestmanna-
syjum
Byrjað var á nýrri raf-
stöðvarbyggingu í Vest-
mannaeyjum um miðjan
júlí s.l.
Byggingin sjálf, án véla
og innréttingar á að kosta
475 þús. kr. og á að vera
lokið fyrir 1. sept. 1946.
Fjórir eftirtaldir bygging
armeistarar Óskar Kárason
múrai’ameistari og trésmíða
meistararnir Magnús Magn-
ússon, Engilbert Jóhanns-
son og Óskar Jósúason hafa
tekið að sér aö koma hús-
inu upp, gera þaö fok-
helt, fyrir 475 þús. kr., en
aðeins tvö tilboö bárust í
bygginguna, hitt tilboðið
var frá Ársæli Sveinssyni
og var það á annað hundr-
að þúsund krónum hærra
en tilboð fjórmenninganna.
— ÞórÖur Runólfsson Rvík
gerði teikninguna ajð hús-
inu.
Ráðgert er aö í bygging-
unni veröi, auk vélasala,
nauðsynleg skrifstofuher-
bergi og herbergi fyrir
starfsmenn stöövarinnar.
Vestmannaeyjabær hefur
fest kaup á vélum til stöðv-
anrrnar frá Englandi.
Fram til þessa hafa Vest-
mannaeyjar . aöeins haft raf
magn til ljósa, en þegar
nýja rafstööin hefur verið
byggð á bærinn einnig að
hafa rafmagn til suöu og
til iönaöar.
að íslendingar hafi haft full
an og óskertan rétt til aö
slita sambandslagasáttmál-
anum og enduistofna þjóð-
veldi og að íslendingar hafi
fært sönnur á þennan rétt
með þjóðaratkvæöagreiðsi-
unni, með áður óþekktri
þátttöku og að kalla sam-
hljóða atkvæðum.
Að þessi frásögn þeirra
félaga er ósönn, sannar með
al annai-s fagnaðarhátíðin,
sem haldin var hér á landi
17. júní 1944 íslenzka þjóð-
veldinu til heiðurs.
Eins og Færeyingar fögn-
uðu þá í birtingu íslenzka
þjóðveidinu, þannig fagna
þeir einnig nú og meta
þann lífsmátt sem þetta
unga þjóðveldi þegar hefur
sýnt.
Auðna fylgi íslenzka þjóö
veldinu nú og á ókomnum
öldum.
Berið íslenzku blöðunum
þessi boð okkar.
Joannes Patursson.
Richard Long.“
Héraðsmót í frjálsum
íþróttum milli Borg-
firðinga og Kjal-
nesinga
Frjálsíþróttakeppni miili
Borgfirðinga og Kjalnes-
inga fór fram sl. sunnudag
að Fcrjukoti. — Sigruðu
Borgfirðingar með 7943 stig
um. Kjalnesingar hlutu
7497 stig.
Voru þátttakendur fjórir
í hverri íþróttagrein, tveir
fra hvoru íþróttasambandi.
Stig voru reiknuö eftir
finnsku stigatöflunni.
Keppt var í hlaupi, 100
m. og 400., hástökki, lang-
stökki, þrístökki, spjótkasti,
krxnglukasti og kúluvai’pi.
Mótið gekk fremur greiö-
lega þrátt fyrir óhagstætt
veöur.
Stríðsyfirlýsingin
Framhald af 1. síðu.
vegar höfum við aldrei efað,
að Sovétríkin myndu ganga í
lið með bandamönnum sínumN
til þess að vinna bug á síðasta
árásarríkinu, þegar er ástæð-
ur leyfðu og þau gætu flutt
herafla ' sinn frá Evrópuvíg-
stöðvunum og austur að
Kyrrahafi. Stríðsyfirlýsing
Sovétríkjanna á hendur Jap-
önum er enn ein sönnun fyrir
þeirri einlægni og einingu,
sem ríkir meðal Bándamanna-
ríkjanna.