Þjóðviljinn - 25.08.1945, Síða 4
ÞJÓÐVILJINN
Laugardagur 25. ágúst 1945
tXtgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður Guðmundsson.
Stjórnmálaritstjórar: Einar Olgeirsson, Sigfús Sigurhjartarson.
Ritstjórnarskrifstofa: Austurstræti 12, sími 2270. (Eftir kl.
19.00 2184).
Afgreiðsía: Skólavörðustíg 19, sími 2184.
Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399.
Prentsmiðjusími 2184.
Áskriftarverð: í Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuði.
Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Ábúðarrétturiim á sjónum
Það er gleðiefni öllum sæmilegum mönnum að ríkis-
stjórnin hefur enn á ný sýnt stórhug sinn með því að geri
kaupsamning um 30 togara í Englandi.
Sjálfsagt verður þessi ráðstöfun stjórnarinnar kölluð
„svikráð og landráð“ af hrunstefnumönnum Vísir og Tím-
ans, eða svo sagði Vísir eitt sinn, að það væru svikráð og
landráð ef farið væri að kaupa ný framleiðslutæki áður
en búið væri að tryggja að þau bæru sig. En hvað sem
þeir hrunstefnumenn kalla þessar framkvæmdir, þá kalla
réttsýnir menn þær bjargráð.
Högum okkar íslendinga er svo háttað að við hljótum
að búa á sjónum kringum landið, jafnvel fremur en á land-
inu sjálfu. Yfirgnæfandi meirihluta þess sem við öflum
okkur til lífsframfæris hljótum við að afla úr sjó, bresti
þjóðina tæki til þess getur hún ekki lifað menningarlífi.
Stórvirkar athafnir ríkisstjórnarinnar, sem að því
miða áð þjóðin fái í hendur hin fullkomnustu veiðiskip
nútímans, eru því undirstaða undir það að þjóðin geti lifað
því lífi sem henni sæmir á komandi árum.
Eitt meginatriði er það sem við megum ekki gleyma
í sambandi við búskap okkar á sjónum. Ábúðarréttur okk-
ar þar er hvergi nærri eins vel tryggður eins og á land-
inu. Margar þjóðir sækja á fiskimið íslands. Engin sam-
vinna er hafin milli þjóðanna um hagnýtingu og skiptingu
miðanna, þar gildir enn hin villimannlega frjálsa samkeppni.
En þjóðunum er nú að verða ljósara og ljósara að við
svo búið má ekki standa. Að því hlýtur að draga að gert
verði samkomulag um hagnýtingu fiskimiðanna. Alþjóða-
reglur hljóta að verða settar um í hve ríkum mæli veiðar
verði stundaðar á hverju veiðisvæði, og þá um leið hvaða
þjóðir fái rétt til að hagnýta hvert svæði.
Við íslendingar teljum okkur eiga tvímælalausan for-
gangsrétt að miðunum kringum ísland. Engin þjóð hefur
jafngóða aðstöðu til að nýta þau sem við, og engri þjóð er
slík lífsnauðsyn að nýta þau sem okkur.
Þótt þessar röksemdir séu veigamiklar, munu þær þó
ekki verða metnar fullgildar á alþjóðaþingum, nema að
þjóðin sýni og sanni að hún hafi atorku og framtak til
að nota þessi fiskimið og afla þjóðunum þar með þeirra
matfanga sem þær þurfa að fá úr auðlindum íslandsmiða.
Við höfum þegar sannað að sjómannastéttin okkar er
afkastamest allra sjómannastétta heimsins, við fiskiveiðar.
Meðalhlutur íslenzka fiskimannsins er 67.2 smálestir á ári.
Meðalhlutur fiskimanns í Bretlandi er tæplega 21 smálest.
Færeyjum 19^2, Noregs 8 og Nýfundnalandi tæpar 6 smá-
lestir. En því miður hefur það einnig komið 1 ljós að við
kunnum ver að hagnýta aflann en allar aðrar þjóðir, því
engin þjóð fær eins lítið fyrir hvert kg. sjávaraflans eins
og íslendingar. En eigi að síður eru þessi miklu afköst
íslenzkra fiskimanna ein sterkasta röksemdin fyrir því að
það sé réttmætt og sjálfsagt að fela okkur fyrst og fremst
að nota fiskimiðin við ísland til að afla sjálfum okkur
og öðrum fæðu, en til viðbótar þessu verður að sýna að
við höfum hug og dug til að afla þeirra tækja, sem með
þarf, það er skipa af fullkomnustu og beztu gerð. Þetta er
Nýbyggingarráð og ríkisstjórnin að framkvæma. Hún er
að skapa þjóðinni lífsmöguleika og gerá það sem gert verð-
ur til að tryggja henni ábúðar'rétt á hafinuJcringum land-
, ið, en það-er stærsta mál þjóðarinnár að sá ábúðarréttur
verði henni tryggður. .
Biblíufræðingur Vísis ritar
skemmtilegan heimskuvaðal í
leiðararúm blaðsins á þriðjudag-
inn undir fyrirsögninni: ,,Falsspá-
menn“. Er höfundum biblíunnar
lögð þar orð í munn, sem þeir
reyndar aldrei hafa sagt. í
greininni segir: ,,... falsspámenn
hafið þér jafnan á meðal yðar,
stendur í biblíunni“. l»að er leið-
inlegt að „ókristilegt kommún-
istablað" skuli þurfa að benda
hinum þíramídaþenkjandi guðs
voluðu Vísisritstjórum á, að
þessi orð standa hvergi í biblí-
unni, nema til sé einhver sérút-
gáfa af þessu helga riti, sem
Vísismenn nota til uppsláttar,
þegar öll vopn eru þrotin til
„baráttu gegn bolsévismanum“.
Nei, góði Vísismaður, ef þú
ætlar að grafa upp hverja bók
þér til hjálpar í hinni þýðingar-
lausu baráttu, þá ættirðu að
leita í annarri bók fremur en
þeirri, sem greinir frá einum
hinum merkasta sósíalista allra
alda, Jesús frá Nazaret.
En annars skil ég vel mistök
þín. í biblíunni stendur nefni-
lega: „FÁTÆKA hafið þér jafn-
an á meðal yðar.“. Og hver getur
undrazt það, þó að FÁTÆKUR
breytist hjá Vísi í FALSSPÁ-
MAÐUR? Það er tungunni tam-
ast sem hjartanu er kærast. En
ef notað er hið rétta orð, kemur
setningin alveg rétt út: ,,Fátæka
hafið þér jafnan á meðal yðar“
stendur í biblíunni. Slíkt er eng-
in nýjung, en illa getur farið, ef
of rnargir" þeirra öðlast efnalegi;
sjálfstæði og andlegan þroska,
því að þá afnema þeir auðvalds-
skipulag fátæktarinnar, sem Vís-
isdindlarnir hafa sitt lifibrauð
af að verja.
Illgirnin ræður
o
Enn eru í fersku minni hin
ar fávíslegu árásir Vísis á
fiskimálanefnd út af fisk-
flutningunum á s.l. vetri.
Varð Vísir sér þá svo mjög
til skammar með fullyrðing-
um sínum er ekki áttu sér
stoð í veruleikanum að blað-
ið hefur haft hægt um sig
nokkra hríð. En • í gær hóf
Vísir þessar árásir að nýju,
og hefur auðsjáanlega engu
gleymt og ekkert lært.
Innrætið er hið sama og
áður, illgirnin eins. Heitasta
ósk þeirra manna, er Vísi
skrifa, er sú að atvinnuveg-
unum og þá fyrst og fremst
sjávarútveginum vegni illa.
Það hlakkar í Vísi í hvert
GÓÐUR OG HLJÓÐUR GESTUR
í LANDI
Það kann að virðast rangt að
telja nokkurn íslending gest á
íslandi, og ekki er það af neinni
löngun til að láta þá kenna hins
minnsta kala sem dvalizt hafa
langtimum erlendis, að svo er
tekið til orða. En samkvæmt
venjulegri skilgreiningu orðsins
hlýtur það þó að eiga við þá
íslendinga, sem dvelja flestum
stundum erlendis; en gista ísl’and
aðeins skamma hríð endrum og
eins.
Jón Helgason hefur gist ætt-
jörð sína í sumar. En það hefur
verið ótrúlega hljótt um þenn-
an gest, allt of hljótt myndu
víst flestir segja. Ekki mun það
þó stafa af því, að landar hans
hafi ekki haft fullan hug á því
að leika við sitt eftirlæti, heldur
hinu, að maðurinn hefur sjálfur
óskað að fá að vera í friði og
ekki kært sig um að mikið væri
látið með hann. Það var auð-
heyrt, er hann kom fyrst til
landsins, að hann vildi ekkert
með blaðasnápana hafa. Hann
leitaði brátt út í náttúruna eftir
heimkomuna til að komast í
snertingu við ástmold sína og
ættjörð (og ef til vill einnig til
að komast burt frá skarkalan-
um og ágengnuna fréttamönnum).
Við verðum því enn sem fyrr að
láta okkur nægja þá kynningu,
sem við getum af honum hlotið
með því að lesa verk hans.
„UR LANDSUÐRI"
Það mun ekki meira en ára-
tugur, síðan almenningi á ís-
landi tók að berast til eyrna, að
við Eyrarsund austur dveldist
íslenzkur menntamaður, sem
væri óvenju hnyttinn hagyrð-
ingur. Ýmsar af vísum hans
urðu brátt landfleygar, og svo
var mikill sumra kraftur, að
þær kváðu svo gjörsamlega nið-
ur þá drauga, pem þeim var
beint gegn, að enginn vildi eftir
það láta sér við þá bendlað.
Allir muna, hvílíkur voða veðra-
gangur varð hér í landi árið
1938, þegar Guðmundur Hagal’n
lét frá sér fara sína dæmalausu
bók: ,,Sturlu í Vogum“. Sá, er
þetta ritar, hlýddi á vindmikinn
unglingafræðara, sem hvorki
vildi standa Ólafi Thors né öðr-
um bókfróðum mönnum að baki,
lýsa því yfir við nemendur 1
eldri deild Laugaskóla, að á því
léki lítill vafi, að „Sturla í
Vogum“ myndi valda aldahvörf-
um í íslenzkum bókmenntum! En
svo kom bara Jón Helgason með
sínar fjórar sterku ljóðlínur, og
síðan hefur varla nokkur mað-
ur viljað láta um sig spyrjast,
að hann teldi „Sturlu í Vogum“
til bókmennta.
Árið 1939 kom á íslenzka
bókamarkaðinn ljóðabók, er bar
nafnið: „Úr landsuðri". Höfund-
ur hennar var þessi hnyttni Is-
lendingur við Eyrarsund austur.
Það þurfti ekki að hvetja menn
til að kaupa þessa bók. Hún
rann út, var lesin, lærð og rædd
um land allt, lesin aftur og aft-
ur, þangað til hún var bókstaf-
lega ekki til lengur sem bók.
En ljóðin standa nú þrykkt á
andlegt bókfell þúsunda íslenzkra
ljóðunnenda, og þar er til þeirra
gripið, þegar mönnum finnst við
eiga. Og aftan við er þá ævin-
lega skeytt: ,,Eins og þar stend-
ur“, en ekki: „eins og Jón Helga-
son segir“. Þetta er að vera
þjóðskáld.
Jón hefur flutt eitt erindi í
útvarpið um íslenzka bókaútgáfu
í Danmörku á stríðstímanum.
Það, sem einkenndi þetta erindi
var hið dæmafáa yfirlætisleysi.
Þessi maður, sem okkur er tið-
ast að ætla, að sé gagnkunnur
öllu rituðu máli, sem út kemur
á Norðurlöndum, hikar ekkert
við að segja: Um þessar bækur
sem hann tiltekur, mun ég ekki
ræða, því að þeim er ég ókunn-
ugur eða á þær her ég ekki
skyn. Og þegar hann ræðir um
bók, sem allir vissu, að hann
átti drýgstan þátt í að velja
kvæði í og gefa út, þá orðar
hann það svo: „Eg var viðstadd-
ur, þegar kvæðin voru valin“.
Og hann gat þess aðeins, að
hann hefði verið viðstaddur,
vegna þess að hann þurfti þess
með í öðru sambandi. Mikið
gætu þeir af þessu lært, sem
byggja ræður sínar upp úr
nokkrum tíu álna löngum égum
með nokkrum orðum inn á milli
í hvert skipti sem þeir opna sinn
munn.
Það væri leitt, ef þessi gest-
ur færi svo úr landi, að fólk
fengi ekki að hlusta á hann
með „augunum", og svo er um
fleiri íslendinga, sem nú dvelj-
ast hér í landi, en fara utan, er
haustar að. Eg vildi stinga því
að þeim íslendingum, sem nú
eru nýkomnir heim, að það yrði
áreiðanlega vel þegið, ef þeir
efndu til opinberra allsherjar
skemmtana, þar sem margir
hinna nýkomnu kæmu fram á
sjónansviðið. Ágóðanum væri vel
til fallið að verja til dæmis til
styrktar starfsemi íslendingafé-
laganná í Höfn. Slíkt tækifæri
væri og tilvalið til að sópa kaup-
endum að þeim bókum, sem
gefnar eru út í Höfn um íslenzk
efni o. s. frv. Eitt er áreiðan-
legt: Bæði hinir nýkomnu og
við, sem heima höfum dvalið,
gætum haft ómetanlegt gagn af
slíkum „menningartengdamót-
sinn er hann sér hilla undir
von um ófarir atvinnuveg-
anna, og þá grípur hann til
fullyrðinga, en hitt skiptir
Vísir engu, hvort nokkuð er
hæft í því er hann segir —
því illgirnin ræður.
Af öllum þessum sökym er stórhuga framkvæmdum
ríkisstjórnarinnar og Nýbyggingarráðs í skipakaupunum
fagnað, og með hverri nýrri framkvæmd á því sviði fylkir
þjóðin sér fastar að ,baki stefnu ríkisstjórnarinnar, enda
er stefna hennar, — „sem arðbáerasta atvinna-fyrir alla“ —-
krafa þjóðarinnar.
Endurbætur á Stýri-
mannaskólanum
gamla
Bæjarráö hefur heimil-
að borgarstjóra að láta
gera endurbætur á gamla
Stýrimannaskólanum fyrir
Gagnfræðaskóla ■ Reykvík-
inga..
Orðsending frá Mæðrastyrks-
nefnd. Konur þær sem fara i
boði nefndarinnar að Laugar-
vatni, mæti í Þingholtsstræti 18
kl. 9. f. h. mánudáginn 27. þ. m.