Þjóðviljinn - 25.08.1945, Blaðsíða 6
6
ÞJÓÐVIL JINK
Laugardagur 25. ágúst 1945
Storkurinn
„Sjáum til!“ sagði fíkjutréð hugsandi. „Eg veit
ekki um neina skepnu, sem lýsingin á nákvæm-
lega við. — Jú, bíddu nú við! Það er þó vænti ég
ekki krókódíllinn? Hann er ferfættur, hefur lang-
an hala og syndir í kafi eins og fiskur. Þarna kom
það! En ég veit náttúrulega ekki, hvernig hann
er á bragðið“.
„Er hann hér?“ spurði storkurinn og vatn kom
í munninn á honum af tilhlökkun. „Flýttu þér að
vísa mér á hann“.
„Ja, hvort hann er hérna. Það er mesti fjöldi
af krókódílum hér- Bara að þeir séu ekki of stór-
ir handa þér. Satt að segja eru sumir þeirra.karl-
ar í krapinu og aðrar skepnur langar ekki til að
verða fyrir hrekkjum þeirra“.
„Hafðu ekki áhyggjur af því,“ sagði storkurinn.
„Þetta eru auðvitað einhverjar lyddur og minni
máttar dýr, sem hafa beyg af þeim. Salamandra
verður aldrei annað en salamandra. Eg segi þér
satt, að ég hef borðað þær með' góðri lyst heima í
Danmörku. Og þær stærstu eru beztar.“
„Mundu hvernig fór með snákinn-“ sagði fíkju-
tréð.
„Vertu ekki að minna mig á snákinn. Þá var
ég ókunnugur hérna. En nú þekki ég ykkur öll.
Hvar er krókódíllinn? Eg er matbráður.“
„Já, já. Vertu rólegur. Krókódíllinn er í Níl.
Fjöldi krókódíla! Horfðu bara út á fljótið. Eg skal
segja þér til, ef einhver þeirra stingur upp trýn-
inu.“
Storkurinn starði út á fljótið litla stund, sem
honum fannst þó aldrei ætla að líða. Hann var
svo óþreyjufullur-
„Þarna er hann!“ sagði fíkjutréð. „Sjáðu! Sjáðu!
Sérðu ekki litla ey? Rétt hjá henni kemur eitthvað
upp úr vatninu. Það er trýni á krókódíl. Og ég sé
ekki betur en það sé einn þeirra stærri.“
„Eg sé hann ekki héðan,“ sagði storkurinn. „En
eyna sé ég. Nú fer ég og sezt á hana. Þá sé ég
salamöndruna.“
Storkurinn flaug.
„Bíddu! Bíddu við! hrópaði fíkjutréð á eftir hon-
um. „Ertu frá þér. Þetta er engin ey. Það er haus
á Nílhesti. Varaðu þig!“
Ring Lardner:
Hnefaleikakappinn
ÞETT4
Piltur í íslenzkuprófi átti
aö beygja oröið kona í öll-
um fölluin fleirtölu. þetta
var við Menntaskólann á
Akureyri. Eins og menn
vita, er kvennaskpli að
Laugalandi í Eyjafirði. Pilt-
urinn var alveg á því hreina
með þrjú fyrstu föllin: „það
eru konur, um konur, frá
konum, til . . . . ”, en þá
strandaöi hann.
Kennarinn vildi létta und-
ir með honum og sagði, að
það væri menntastofnun
hér frammi 1 firöi, sem væri
kennd viö þessa eignarfalls-
mynd. Þá rann upp ljós fyr-
ir drengnum, og hann ruddi
beygingunni út úr sér í
snatri: „Það eru konur, um
konur, frá konum/ til
kvennaskóla.”
Skólastjóri nokkur, sem
þótti dálítið utan viö sig
stundum, var að ávarpa
nemendurna og hóf ræðu
á þessa leið: „Góðir hálsar
og konur! Er nokkur hér,
sem ekki er viðstaddur?”
klukkan fjögur og liggja fyr-
ir stundarkorn.
— Eg þarf engrar hvíldar
með til að geta lamið þenna
náunga, sagði Midge. Hann
mun liggja nóg fyrir okkur
báða.
Hann hló jafnvel hærra en
hann hafði lungnaþol til og
stikaði út úr salnum meðan
horft var á hann undrunar-
og aðdáunaraugum.
Það lengsta sem Midge
komst í átt til hafnarinnar
var á hornið hjá Boylston
og Tremont, og daman sem
beið hans var eftirtektarverð-
ari sjón en afli hins heppn-
asta Massachusetts-fiski-
manns. Og hún gat líka talað
— sennilega meira en fiskur-
inn.
— Ó, drengur! sagði hún,
og nokkrar silfurtennur
komu í ljós meðal þeirra sem
voru úr gulli.
— Ó, þú bardagamaður!
Midge brosti til hennar.
— Við skulum fara eitt-
hvað og fá okkur snafs. Einn
sakar ekkert.
Fimm mánuðum síðar, í
New Orleans, eftir að hann
hafði breytt útliti Buds Cross
í þriðja sinn, lauk Midge við
æfingarnar undir keppnina
um meistaratitilinn við Hol-
lendinginn.
Þegar hann kom í gistihús-
ið eftir lokaæfinguna stað-
næmdist hann hjá piltum að
norðan, sem höfðu komið alla
leið til þess að sjá hnefaleika-
meistara sigra á ný, því úr-
slit þessarar keppni voru tal-
in svo viss að jafnvel sér-
fræðingana renndi grun í
þau.
Tommy Haley náði í póst-
inn og lykilinn að herbergi
Midges. Hann var í baði, þeg
ar Midge kom upp.
— Nokkur póstur? spurði
Midge.
— Þarna á rúminu svaraði
Iialey frá baðkarinu.
Midge tók bréfabunkana og
leit á þau. Hann valdi þrjú
bréf úr bunkanum og lagði
þau á borðið. Hinum fleygði
hann í bréfakörfuna. Svo tók
hann hin þrjú og hélt á þeim
stundarkorn, horfði út í loft-
ið og virtist annars hugar. Að
lokum leit hann aftur á ó-
opnuð bréfin, stakk einu í
vasann, henti hinum, en hitti
ekki bréfakörfuna.
— Helv....... sagði hann
beygði sig niður og tók þau
upp.
Hann opnaði bréfið, sem
var stimplað í Milwaukee og
las:
Elskulegi eiginmaður.
Eg hef skrefað þér oft og
mörgum sinnum og aldrei
feingið þau, svo ég skrefa
þér enn og vona þú fáir það
og svarir. Mér leiðist að
þurfa að ergja þeg með á-
áhyggjum mínum og mindi
ekki gera það, ef það væri
ekki vegna barnsins og ég er
ekki að biðja þig að skrefa
mér, heldur að senda eitthvað
af peningum, þeir eiga eki að
vera ferer meg, heldur barnið
því það hefur verið veikt síð-
an í ágúst og læknirin segir
að það geti eki lefað megið
leingur ef það fær eki betra
viðurværi, en eins og ástæð-
urnar eru nú er slíkt als eki
hægt. Sam hefur ekki unnið
í heilt ár og það sem ég vinn
fyrir dugir yarla fyrir húsa-
leigunni. Eg er ekki að biðja
um peninga ferir sjálfa meg
heldur að senda ferir því sem
ég skulda, þegar þú átt hægt
með, ég held það sé um 36
dollarar. Góði, reyndu að
senda þá upphæð, það dugir
mér, en ef þú getur það ekki
þá reyndu að senda eitthvað.
Konan þín,
Emma.
Midge reif bréfið í tætlur
og fleygði þeim á gólfið.
— Peningar, peningar, pen-
ingar! sagði hann. Það er eins
og það haldi að ég sé búinn
til úr tómum peningum. Ætli
sú gamla heimti ekki peninga
líka. Hann opnaði bréfið frá
móður sinni:
Kæri Mikael. Connie vildi
endilega að ég skrifaði þér til
að segja að bú verðir að sigra
Hollendinginn, hann segist
vera viss um að þú sigrir og
bað mig að biðja þig að skrifa
og segja okkur frá því en ég
býst ekki við þú hafir tíma
til að skrifa, annars hefðum
við fengjð bréf frá þér fyrir
laungu en ég vildi óska að þú
gætir skrifað eina eða 2 lín-
ur, því að það myndi verka
betur á Connie en heil flaska
af meðölum, Það væri mikil
hjálp ef þú gætir sent mér
eitthvað af peningum öðru
hyoru ef þú mátt missa þá
og nokkrar línur ef bú hefðir
tíma til að skrifa aðeins það
myndi gleðja Connie hugsaðu
bér bara að hann hefur nú
legið rúmfastur í þrjú ár
Connie segist óska þess að þú
vinnir.
þín mamma
Ellen F. Kelly.
— Datt mér ekki 1 hug,
sagði Midge. Þau eru öll eins.
Þriðja bréfið var frá New
York og hljóðaði svo:
Hunangið mitt: — Þetta er
síðasta bréfið sem þú færð
frá mér áður en þú keppir,
en ég ætla að senda þér
skeyti á laugardaginn, en ég
get ekki sagt í skeytinu eins
mikið og mig langar-til, þess
vegna skrifa ég til að segja
þér að ég bið fyrir þér að þú
megir sigra í keppninni.
Berðu hann miskunnar-
laust, hunangið mitt, og
hlífðu honum ekki, og
gleymdu ekki að senda mér
skéyti' þegar þú ert búinn.
Gefðu honum gömlu vinstri
handar höggin þín á nefið og
vertu ekki hræddur við að af-
skræma hann, því hann gæti
ekki orðið verri en hann er.
En láttu hann ekki skemma
andlitið á fallega drengnum
mínum. Ætlarðu að muna
það, hunangið mitt.
Jæja, hunangið mitt, ég
vildi gefa mikið til að fá að
horfa á bardagann, en ég
reikna með að þú elskir
Haley meira en mig því
annars myndir þú ekki láta
hann stía mér frá þér svo
lengi. En þegar keppninni er
lokið getum við yerið eins og
okkur listir og sagt Haley að
fara til fjandans.
Jæja hunang, ég sendi þér
skeyti á laugardaginn, og ég
var nærri búinn að gleyma
því, að þú þarft að senda mér
meiri peninga, tvö hundruð
býst ég við, þú þarft að senda
þá í símaávísun eins fljótt og
þú getur. Þú gerir það hun-
angið mitt.
Eg sendi þér skeyti á laug-
ardaginn og gleymdu ekki
hvað mér þykir vænt um þig.
Jæja, vertu bless elskan og
góða skemmtun.
Grace.
— Þau eru öll eins, sagði
Midge. Peningar, peningar,
peningar.
Tommy kom úr hliðarher-
berginu og gljáði allur eftir
baðið.
— Eg hélt að þú lægir fyr-
ir, sagði hann.
— Eg ætla að gera það,
sagði Midge og fór að losa
reimarnar á gulum skónum.
— Eg kem til þín klukkan
sex; það er bezt fyrir þig að
fá matinn hingað upp til þess
að losna við þessi montprik
þarna niðri, ég verð að fara
og láta þessa fugla fá að-
göngumiða.
—- Hefurðu frétt nokkuð
frá Goldberg, spurði Midge.
— Já, sagði ég þér það
ekki. Fimmtán vikur á fimm
hundruð ef við vinnum. Og
við getum fengið tryggingu
fyrir tólf þúsundum og einka-