Þjóðviljinn - 04.10.1945, Qupperneq 7
Fimmtudagur 4. okt. 1945
frlOÐVILJINN
Frá Simdhöllinni'
Sundæfingar sundfélaga
byrja í kvöld kl. 8,45 og verðu í vetur á mánu-
dags-, þriðjudags-, miðvikudags-, fimmtudags- og
föstudagskvöldum.
Aðrir baðgestir eru því áminntir um að koma
fyrir kl. 8 — annars komast þeir ekki í Sund-
höllina.
Hús með
lausum íbúðum
við Efstasund, Hjallaveg, Hverfisgötu,
Laugarnesveg og Óðinsgötu eru til sölu.
Uppl. gefur:
Fasteigna & Verðbréfasalan
(Lárus Jóhannesson hrm.)
Suðurgötu 4. Símar 4314, 3294.
Höfum nú daglega:
Nýtt slátur
Mör
Lifur
Hjörtu
Svið
ásamt úrvals
dilkakjöti
BORFELL
Skjaldborg. Sími 1506.
L
S í
manumer
okkar, sem áður var 5060 er nú eftirleiðis
1279
Verksmiðjan Merkúr h.f.
Ægisgötu 7.
Fiðurhreinsun
KRON
Aðalstræti 9B. Sími 4520.
Bæjarpósturinn
Frh. af 4. síðu.
stafni, auk einhliða bóknáms.
Böm, sem bera út blöð verðá"
oft talsvert á sig að reyna í mis-
jöfnum veðrum. En „enginn
verður óbarinn biskup" og hæfi-
leg áreynsla og útivist er börn-
unum eins nauðsynleg og hæfi-
legur svefn. Foreldrar verða að-
eins að gæta þess, að búa börn-
in út með hliðsjón af veðráttunni
á hverjum tíma.
ÁBYRGÐARSTARF
Svo er það fjárhagshliðin. Það
verður ekki annað sagt, en að
kaup við að bera út blöð sé
vel viðunandi. Og gaman er
fyrir bömin að geta unnið sér
inn peninga sjálf og að nota þá
skyn&amlega. Það er ánægjulegt
að finna brennandi áhuga hjá
barni fyrir starfi, sem því hefur
verið trúað fyrir. Og enginn
skyldi halda að það sé ekki
ábyrgðarstarf að bera út blöð.
Nei, það er óhætt að slá því
föstu, að barn, hvort sem það
er drengur eða telpa, sem ber
vel út blöð, er efni í nýtan mann
eða konu.
Auðvitað hugsið þið, lesendur
góðir, þegar þið lesið þessar
línur, að „hver skari eld að
sinni köku“. Við reynum að telja
fram þá kosti sem blaðaútburður
hefur fyrir börn sem að hon-
um vinna, áhrif starfsins á hug
og hönd. Eg hygg að vísu, að
ýmislegt megi að þessu starfi
finna, ekki síður en 'annarri
vinnu, en eitt erum við áreið-
anlega sammála um, sem sé það,
að blöðin viljum við fá — og
lesa, og til þess að slíkt megi
verða, vantar Þjóðviljann mörg
dugleg börn til að bera blaðið
til kaupenda, sérstaklega í Vest-
urbænum. Við heitum þess vegna
á alla velunnara blaðsins að ljá
okkur lið.
Urborginni
Næturlæknir er í læknavarð-
siofunni Austurbæjarskólanum,
sími 5030.
Næturvörður er í Ingólfsapó-
teki.
Næturakstur:
1633.
Hreyfill, sími
—
Munið
Kaífisöluna
Hafnarstræti 16
Okkur vantar röska
sendisveina
ÞJÓÐVIL JINN
Til sölu
og sýnis þrí þráða sauma-
vél (Owerlock).
Verzlunin Þórelfur
Bergstaðastræti 1.
Sími 3895.
Gluggatjaldastengur komnar aftur.
Verzl Brynja
FÉLAGSLÍF
I. R.
Kaffikvöld
fyrir alla, sem ætla að
æfa hjá félaginu í vetur,
verður í kvöld kl. 8% í
Tjarnarcafé (uppi). Rætt
verður um vetrarstarfið.
Áríðandi að allir mæti.
Á föstudag kl. 8V2 verð-
ur kaffikvöld fyrir yngri
félaga í Aðalstræti 12
(uppi). Fjölmennið!
Stjómin.
1
Alþingi vantar nokkra
þingsveina,
14 ára eða eldri. Um-
sœkjendur snúi sér til
skrifstofu Alþingis.
Ljósatími ökutækja er frá kl.
18.35 til kl. 6.00.
Útvarpið í dag:
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þór-
arinn Guðmundsson stjórnar).
a) Tatarasvíta eftir Coleridge-
Taylor. b) Vals eftir Jae Grit.
c) Serenade eftir Braga. n)
Marz eftir Ralf.
2'.50 Frá útlöndum (Jón Magn-
ússon).
21.10 Hljómplötur: a) Tvöfaldur
kvartett syngur (Jón ísleifs-
son stjómar). b) Kling-klang-
kvintettinn syngur.
21.25 Upplestur: Kvæði (Kol-
beinn í Kollafirði).
21.40 Hljómplötur: Konsert fyrir
fjögur píanó og hljómsveit,
eftir Vivaldi.
Námskeið í sænsku fyrir al-
menning. Þeir sem skráðir voru
á biðlista í háskólanum eru beðn
ir að koma til viðtals mánudag
8. okt. kl. 5(4 í 2. kennslustofu
háskólans.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir
gamanleikinn Gift eða ógift, eft-
ir J. B. Priestley, í kvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar eru seldir í Iðnó
frá kl. 2 í dag.
Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir
gamanleikinn Hreppstjórinn á
Hraunhamri, eftir Loft Guð-
mundsson, annað kvöld kl. 9. —
Hljómsveit leikur á uhdán ' áýn-
ingunni. — Aðgöngumiðar eru
seldir kl. 4—7 í dag.
Skipafréttir. „Brúarfoss" fór
frá Reykjavík 29. sept. til Grims-
by. „Fjallfoss" fór frá Reykja-
vík 27. sept. til New York. „Lag-
arfoss“ fór frá Siglufirði 28. sept.
til Kaupmannahafnar og Gauta-
borgar með viðkomu í Leith.
„Selfoss", fór frá ísafirði kl.
3.30 í fyrradag til Sauðárkróks.
„Reykjafoss“ fór frá Gautaborg
29. sept. „Yemassee“ fór frá
Reykjavík 20. sept. til New
York. „Buntline Hitch" kemúr
til New York 15. okt. „Span
Splice" fór frá Halifax 30. sept.
„Rother" fór frá Langeyri kl. 5
í fyrradag áleiðis til Reykja-
víkur. „Lesto“ tefst í Leith vegna
viðgerðar. Búizt við að það getí
byrjað að lesta í byrjun næstu
viku. „Lech“ er í Englandi.
„Rán“ kom af veiðum árdegis
i gær og fór áleiðis til Englands,
síðdegis.
Noregsfarar þurfa ckki árituð
vegabréf. íslendingar sem ferð-
ast til Noregs, þurfa ekki lengur
að láta árita vegabréf sín.
UNGLINGA VANTAR
Strax til að bera Þjóðviljann til kaupenda
víðsvegar um bæinn
Afgreiðsla Þjóðviljans
Skólavörðustíg 19, sími 2184.
4