Þjóðviljinn - 06.10.1945, Blaðsíða 1
10. órganjrur
Laugardagur 6. okt. 1945.
224. -tölublað.
Fyrri kveðjuhljóm-
leikar Samkórs
Reykjavíkur vöktu
mikla hrifningu
Samkór Reykjavíkur hélt
í gær kveðjuhljómleika fyr-
ir söngstjóra sinn, Jóhann
Tryggvason. Var kórnum
furkunnar vel tekið, og varð
að endurtaka sum lögin og
syngja aukalög. Anna Sigr.
Björnsdóttir annaðist und-
irleik. Dóttir Jóhanns, Þór-
unn, lék Sónötu í G-dúr
op. 49 nr. 2, eftir Beethov-
en. Þórunn er aðeins sex
ára og vakti leikur hennar
aðdáun áheyrenda.
Á sunnudaginn endurtek-
ur kórinn hljómleikana, og
verður það síðasta tæki-
færið til að heyra til þessa
ágæta kórs aö þessu sinni,
því Jóhann er á förum til
Englands.
Skipafréttir.. „Esja“ var á
Akureyri í gær, og „Súðin“ á
Flatey á Breiðafirði. „Tryggvi
gamli" og „Sindri komu af veið-
um í gær, og fóru áleiðis til
Englands.
Framkvæmdanefnd alþjóðasambands verkalýðsins
hvetur lýðræðisríkin til að slíta stjórnmála-
sambandi við Spán og Argentínu
Frakkinn Saillant kosinn aðaliítari sambandsins
Hin nýkjörna framkvæmdanefnd alþjóða-
sambands verkalýðsins hélt fyrsta fund sinn
í París í gær. Fyrsta verk hennar var að kjósa
aðalritara fyrir sambandið, og hlaut ritari
franska verkalýðssamhandsins, Louis Saillant,
kosningu.
Nefndin gerði ályktanir um ýmis mál, þar
á meðal um afstöðuna til fasistastjórnanna á
Spáni og Argentínu.
Skoraði nefndin á lýðræð-
isríkin að slita þegar stjórn-
málasamtoandi við lönd þessi.
Ef það væri gert, væri stórt
skref stigið í áttina til að
koma þeim frá völdum og
tryggja þar með friðinn í
heiminum.
KOSNING SAILLANT
: Saillant var studdur áf
Ný vatnsæð frá Gvendarbrunnum
290 lítrar á sek. — Verð: 1 millj. 172 þús. kr.
A að vera tilbúin á næsta hausti
A s.l. vori fól bæjarráð
Sigurði Thoroddsen verk
fræðingi . að rannsaka á
hvern hátt bezt væri að
Kosningar
í Sovétríkjunum
Tilkynnt var í Moskyu í
gær að kosningar til Æðsta
ráðs Sovétríkjanna myndu
fara fram 10. febrúar næst-
komandi.
bæta úr vatnsskorti bæjar
ins.
Hefur hann fyrir nokkru,
skilaö fullnaðarskýrslu um
rannsókn þessa og var hún
til fyrri umræðu á bæjar-
stjórnarfundi í fyrraíiag og
var samþykkt aö leggja
nýja vatnsæð frá Gvendar-
brunnum, samkvæmt . áætl
un Sigurðar. og á veitan að
flytja 290 lítra á sekúndu
og kosta 1 millj. 172 þús.
kr. A vatnsæð þessi aö vera
komin upp fyrir haustið
1946.
hinum róttækari verkalýðs-
samböndum, en hin íhalds-
samari studdu Sohevenels,
forseta Amsterdamsambands-
ins til aðalritaraembættisins.
Bráðlega verður kosinn for
seti sambandsins, og er talið
líklegtað það verði Sir
Walter Citrine, forseti brezka
verkalýðssambandsins.
Framkvæmdanefndin átaldi
harðlega þá framkomu stjórn
arvaldanna í Grikklandi og
Transvaal að neita fulltrúum
frá verkalýðssamböndum þess
ara landa um fararleyfi á
Parísarþingið.
SAMKOMULAGSANDI
RÍKTI Á ÞINGINU
Fréttaritari brezka útvarps-
ins á Parísarþinginu skýrði
frá störfum þess í gær.
Helzta einkenni þingsins
sagði hann að hefði verið sam
komulagsandi sá, sem þar
hefði rí'kt. í þeim málum,
snm ágreiningur var um,
voru allir aðilar reiðubúnir
að slaka á kröfum sínum, svo
að samkomulag næðist. Hann
sagði, að sambandið myndi
setja sér þrjú höfuð mark-
mið. Að styðja alþjóðastofn-
un sameinuðu þjóðanna,
vinna að bættum kjörum og
vinnuskilyrðum verkamanna
um allan heim og leitast við
að tryggja frið í heiminum
með því að útrýma fasisma
og fjárhagsregum og þjóð-
félagslegum orsökum ófriðar.
Sambandið mun og leggja
sérstaka áherzlu á að styðja
hin ungu verkalýðssambönd
oýlendnanna í baráttu þeirra
gegn arðráni og kúgun.
Japanska stjórnin
biðst lausnar
Japanska stjórnin sagði af
sér í gærmorgun. Kom það
til af því, aö MacArthur
hafði krafizt þess, að innan
ríkisráðherranum og æðstu
mönnum lögreglunnar væri
vikið frá. __
Joshida, sem var japansk
ur sendiher-a í London fyr
ir styrjöldina er nú að
reyna að mynda nýja
stjórn.
Nimitz, flotafcringi Band i
manna á KýiTaháfi hclr.
ræðu á Bandaríkjaþincí :
gær. Sagði hann að jap-
anski flugllotinn hefði ver
ið mun sterkari er Japanar
gáfust upp, en við árásina
á Pearl Harbour. En Banda
menn hefðu veriö búnir að
ná yfirráðum á sjónum og
það hefði verið þeim
drýgst til sigurs.
Leikfélag Reykjavíkur sýnir
gamanleikinn „Gift eða ógift“
eftir J. B. Priestley, á morgun
kl. 8.
VIj ólkui'skömmtun tekin upp
í Reykjavík og Hafuarfirði
Dagskammtur barna verður 1 líter og
fullorðinna 2 desilítrar
Viðskiptamálaráðuneytið hefur í samráði við
bæjarstjómir Reykjavíkur og Hafnarfjarðar og
Mjólkursamsöluna, géfið út reglugerð um skömmt
un á mjólk í Reykjavík og Hafnarfirði, er gildir
á tímabilinu frá október þ. á. til marz 1946.
Skömmtunarseólarnir verða ! gegn framvísun A-seðla til
Flugleiðir bandaríska flugfélagsins American Export Airlines.
(Sjá grein á 8. siðu).
tvennskonar: A-seðlar, sem
gilda fyrir þá sem fæddir
eru 1931 og síðar, og B-seðlar
fyrir fuliorðna. Gildir hver
reitur á A-seðlum sem kaup-
heimild fyrir 1 lítra.af mjólk,
en reitur á B-seðlum fyrir 2
desilítrum, hvern dag.
Þeir sem geta lagt fram
vottórð frá lækni um að þeir
purfi meiri mjólk en reglu-
gerðin segir fyrir, geta fengið
skipt á A- og B-seðli.
Afhending mjólkurseðla
fer fram á skömmtunarskrif-
stofum Reykjavíkur og Hafn-
arfjarðar. Þurfa heimilisfeð-
ur að útfylla eyðublöð, þar
sem greint er frá nöfnum,
fæðingardögum pg fæðingar-
árum, allra heimilismanna.
Verða þeim síðan afhentir
skömmtunarseðlar, eftir því
sem skýrslan segir til um.
Mjólkurbúðirnar mega ekki
afgreiða aðra mjólk en þess-
ir skömmtunarseðlar gilda
fvrir, til kl. 1.30 e. h., en eft-
ir þann tíma er heimilt að
afgreiða mjólk án skömmtun-
arseðla.
Hafi of lítil mjólk borizt
til bæjarins einhvern dag,
hefur forstjóri Samsölunnar
heimild til að fyrirskipa að
mjólk Kkuli aðeins afhent
kl. 1.30 e. h., og' eftir þann
tíma aðeins út á seðla. Þá
er líka heimilt þegar þannig
stendur á, að nægilegt mjólk-
urmagn hefur borizt til bæj-
arins, að afgreiða hálfan lítra
út á reita B-seðla, og sé engin
hætta á að allir geti ekki
fengið þá mjólk, sem þeir
óska eftir að kaupa, er leyfi-
legt að selja mjólk án
skömmtunarseðla þann dag.
Jón Þorleifsson
opnar málverka-
sýningu í dag
Jón Þorleifsson listmálari
opnar mál verkasýni ngu í
Sýningaskála myndlistar-
manna, kl. 10 f. hríí dag.
Á sýningunni verða 45
olíumálverk og 15 vatnslita.
myndir. Auk ýmissa sam
stillinga, verða þarna mynd
ir frá Siglufirði, Akurevri,
Mývatni, Þingvöllum. rn~>-
fellsnesi og víðar. E'rl i
þessara mynda herur v- ' 7
sýnd áður, og eru margar
þeirra gerðar á þessu ári.
Sýningin. veröur opin í 12
daga.