Þjóðviljinn - 31.10.1945, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 31.10.1945, Blaðsíða 4
■ xSt Miðvikudagur 31. .okt. 1945: TJtgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Sigurður Guðmundsson. Stjómmálaritstjórar: Einar Olgeírsson, Sigfús Sigurhjartarson. Bitstjórnarskrifstofa: Austurstræti 12, sími 2270. (Eftir kl. 19.00 2184). Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, sími 2184. Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399. Prentsmiðjusími 2184. Áskriftarverð: í Reykjavík og nágrenni: Kr. 6.00 á mánuðL Úti á landi: Kr. 5.00 á mánuði. Prentsmiðja Þjóðviljans h. f. Lækninga- og upplýsingastöð í stað „kjallarans“ Það var athygliverður fundur, sem haldinn var í Listamannaskálanum um áfengismálin í fyrra kvöld. Fund urinn sýndi að Reykvíkingar eru sammála um að áfeng- isnautn sé það vandamál sem kalli nú á alla góða karla og konur til starfa gegn því sem aflaga fe.r. • En hvað er þá til ráða?. Tvennt var það einkum, sem þeir er á fundi þessum töluðu virtust hafa áhuga fyrir. í fyrsta lagi hvað hægt væri að gera fyrir þá menn, sem fallið hafa fyrir ofur- borð vegna ofdrykkju og í öðru lagi, hvað hægt væri að gera til að koma í veg fyrir að fleiri og fleiri leggðust í þeirra slóð. Þetta eru spurningar sem vissulega ber að svara. Hver sá sem kynnir sé.r líf ofdrykkjumanna hér í bæn- um, manna sem gista í „kjallaranum“ um nætur og rangla um Hafnarstræti á daginn, veit að þurfi nokkrir menn á aðstoð og samúð að halda eru það þessir menn. Þetta eru sjúkir menn, sem þurfa bæði á líkamlegri og andlegri umönnun að halda. í hverju ætti slík umönnun að vera fólgin? í staðinn fyrir að lögreglan flytur þessa menn nú í „kjallarann", þarf að komast á sú skipan að hún flytji þá til læknis. Lögreglan ætti skilyrðis- og tafarlaust að taka hvem einasta mann, sem sökum áfengisnautnar er ekki sjálfráður orða og æðis, á götum úti eða í opinberum samkomu- eða greiðasölustöðum, og flytja hann til læknis, er hefði það verk með höndum að annast þessa sjúku menn. Þessi læknir þyrfti að ráða yfir nokkrum sjúkra- klefum, þar sem hann gæti haldið sjúklingum sínum nokkra daga, eða vikur eftir atvikum, og jafnframt þyrfti að gera ráðstafknir til að gefa þeim aðstöðu til að hefja heilbrigt starfsldf. 1 sem fæstum orðum sagt, í stað „kjallarans“ þarf að koma lækníngastofa, sjúkraklefar og upplýsinga- og hjálparstöð fykir ofdrykkjumenn, og aðstandendur þeirra. Ýmsir þessara manna þyrftu síðan að fara til langdvala á heimili, eins og það sem nú starfar í Kald- aðarnesi, þar sem þeim gefst tæklfæri til að herða hug og hönd við nýtileg störf og góðan aðbúnað, og verða þannig færir um að taka aftur þátt í hinu daglega lífi starfandi manna. Þegar slíkri vist væri lokið greiddi upplýsingastöðin svo götu þeirra eftir bví sem föng stæðu til og þurfa þætti. Þingstúka Reykjavíkur hefur komið upp vísi að slíkri upplýsingastöð, en hún þyrfti að þróast í þá átt, sem lýst er hé.r að framan, og ætti slíkt vissulega að vera kleift með samstarfi bæjarins og Þingstúkunnar.. • En hvað á að gera til að hindra að fleiri og fleiri fari út í fen ofdrykkjunnar? Flestir benda á sterkt alraenningsálit gegn ofdrykkj- unni, sem bezta vopnið. Það er mikið satt í því. En hverjir geta myndað það almenningsálit? Naum- ast þeir sem sjálfir „eru með“ eins og það er kallað. Þar er erfitt að standa með glasið í hendinni og ætla að beina mönnum frá foræði ofdrykkjunnar. JVefndarálit um verðlagningu landbúnaðar- vara Minnihluti landbúnaðar- nefndar neðri deildar hefur skilað eftirfarandi áliti um frumvarp til laga um verð- lagningu landbúnaðaraf- urða: „Frumvarp þetta er sam-, hljóða bráðabirgðalögum frá 20. ágúst sl. og hefur þegar komið til fram- kvæmda. Það felur í sér miklar breytingar til bóta á því skipulagi, sem ríkt hef- ur um verðlagningu og sölu landbúnaðarafurða. í staö fjögurra nefnda,, sem ráðið hafa yfir þessum málum, kemur ein 5 manna nefnd. t. Formaður hennar er nú for- stöðumaður búreikninga skrifstofu ríkisins og með honum fjórir bændur, sinn úr hverjum landsfjórðungi, kosnir af búnaðarráði, sem er samkvæmt ákvæðum frumvarpsins nefnd 25 bænda og bændafulltrúa, er landbúnaðarráðherra velur til að fjalla um þau mál, sem í þessu sambandi koma til greina. Landbúnaöarnefnd hefur. rætt þetta frumvarp og i samþykkt að fella inn í það efni viðaukabráðabirgða- laga frá 20. september. En um afgreiðslu málsins í heild er nefndin ekki sam- mála. Við undirritaðir leggj um til, aö frumvarpið verði samþykkt án frekari br'eyt- inga, Barði Guðmundsson er hvorki með né móti, cn. þeir Bjarni Ásgeirsson og Jón Sigurðsson eru andvíg ir frumvarpinu og munu skila séráliti. Alþingi, 26. okt. 1945 Jón Pálmason, Sigurður Guðnason". Dvöl, 2. hefti þ. á. hefur blað- inu borizt. Efni: Reikningsskil, saga eftir Kristmann Guðmunds- son. Jarðarför, saga eftir John Steinbeck. í rökkrinu, kvseði eft- ir Harald Magnússon. Dagur ís- land, 17. júní 1944; kvæði eftir Steingrím Baldvinsson. Hin dul- arfulla Ráskaeyja, saga eftir Hákon Mielehe. Frjálsir straum- ar, kvæði eftir Kára Tryggva- son. Á Ytrihnúk, kvæði eftir Jónas Jóhannesson. Rakarinn og frændi hans, sem sirkustígurinn beit höfuðið af, saga eftir Wilí- iam Saroyan. sagan um skozku kóngsdótturina, eftir Hans M. Debers. Ljóðasmíði gefur gull, saga eftir Konrad Bercovici. Eig- inl^onur, eftir Peter Freuchen. Miðstöð íslenzkrar alþýðumenn- ingar, eftir Þórunni Magnúsdótt- ur. Regn, eftir W. Somerset Maugham (framhaldssaga): Um bækur o. fl. Sósíalistafélag Reykjavíkur heldur fund í Listamannaskál- anum 1. nóv. kl. 8,30 e. h. fyrir félagsmenn og gesti þeirra. DAGSKBÁ: 1. Sigfús Sigurhjartarson: Bæjar- stjórnarkosningarnar og blaða- skrifin. 2. Björn Bjamason: Frá alheimsþingi verkalýðsins í París. 3. Orðrómurinn um hernaðarstöðv- ar á íslandi Enginn sósíalisti má láta sig vanta í Listamannaskálann á fimmtudaginn. Stjómin. ÞÁÐ sem koma skal! Raunhæft ástalíf Er fyrsta nútíma handbókin um samlíf karls og konu. — Kemur út í næsta mánuði. Hina prýðilegu þýðingu annaðist Ásbjörn Stefánsson. Efnisyfirlit: 1. kafli: Ágrip líffærafræði 7. kafli: 2. — Lífeðlisfræði 3. — Kynkvatir og sál- fræði 4. — Samfarirnar 5. — Meðgöngutímiog fæðing 6., — Getnaðarvamir Innsiglaðar myndir 8. 9. 10. 11. Fóstureyðing og fósturlát Samræðissjúk- . dómar Mansal Vanmætti og ó- frjósemi Lokaþáttur . Auk þess*eru í bókinni 11 innsiglaðar myndír í tveimur litum Raunhæft ástalíf var endurprentuð 15 sinnum í Englandi á stuttum tíma. í»ó bókin sé berorð, er hún hreinskilin og sönn! Læknavísindin hafa gert allar eldri bækur um þessi efni úreltar. Raunhæft ástalíf kostar í bandi aðeins rúmar 20 krónur Fræðsluhringurinn, Pósthólf 733, Reykjavík Sendið mér .eintak af Raunhæft ástalíf Nafn .................... Heimili .............;... Tryggið yður eintak í tíma! NB. Það skal tekið fram að bókin er aðeins fyrir fullorðna, og verða pantanir af- greiddar í þeirri röð sem þær berast oss. FRÆÐSLUHRINGURINN, Pósthólf 733, Reykjavík Skynsamlegasta ráðið er því að hafna áfengisnau’tn með öllu, það missir enginn neitt,, sem honum er nauð- synlegt við það, en hver sem- það gerir fær aðstöðu til að móta almenningsálit gegn .áfengisnautn og það er bezta leiðin eins og sakir standa til að forða mönnum frá ofdrykkjunni. Iijónaband. S.l. laugardag voru gefin sam- an. i hjónaband aí séra Bjama Jónssyni ungfrú Kristín Karls- dóttir (Bjarnasonar bakara) Freýjugötu 9 og. Eggert Laxdal (Laxdals listmálara) Ásvallagötu 33. Heimili .ungu hjónanna er á Ásvallag. 33.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.