Þjóðviljinn - 22.11.1945, Page 1
þJÓÐVI UINN
10. árgangrur Fimmtudagur 22. nóv. 1945 264. tölublað
Verkfall hjá General
Motors
1 gærmorgun hófst verk-
fall næstum 300.000 verka-
manna í verksmiðjum Gen-
eral Motors í 20 ríkjum
Bandaríkjanna.
Verkamennirnir hafa
krafizt 40 stunda vinnu-
viku og 30% kauphækkun-
ar. — General Motors er
mesta iðnfyrirtæki Banda-
ríkjamia og Union of Auto-
Frh. á 8. sióu.
De Gaulle myndar stjórn
Jöfn hluttaka þriggja stærstu flokkanna
De Gaulle myndaði nýja stjórn í Frakklandi
í gær. Hann er sjálfur forsætis- og landvama-
ráðherra. — Kommúnistaflokkurinn, Sósialdemó-
krataflokkurinn og Alþýðlegi lýðvóldisflokkurinn
eiga 5 ráðherra hver í stjóminni. — Maurice
Thorez, — hinn kunni leiðtogi franskra kommún-
ista, — er ráðherra án sérstakrar stjórnardeildar.
Islenzkir menntamenn:
Vér heitum á íslenzku þjóðina að
standa traustan vörð um
sjálfstæði landsins
Lesið hið nýútkomna hefti af Tímariti
Máls og menningar
í fyrradag kom út hefti af Tímariti Máls og menn-
ingar; sem eingöngu er helgaö sjálfstæðismáli íslcndinga.
Það voru menntamennirnir íslenzku sem fyrstir hófu,
við hlið íslenzkrar alþýðu, baráttuna fyrir endurheimt
sjálfstæðis landsins. Það voru menntamennirnir og alþýð-
an sem þrautseigast og bezt háðu þá baráttu unz tak-
markinu var náð og freisið fengið á ný.
Það eru hinir sömu aðilar sem vökulastir hafa reynzt
á varðinum um sjálfstæði lýðveldisins; með þessu hefti
af Tímariti Máls og menningar hafa islenzkir mennta-
menn sýnt að þeir ætla sér að reynast erfð sinni trúir.
Enginn, sem teljast vill íslendingur og lætur sig
nokkru skipta sjálfstæði landsins, ætti að láta hjá
líða að lesa þetta hefti — nú þegar. í það rita —
auk ritstjórans, Kristins E. Andréssonar — eftirtaldir
menn: Jóhannes úr Kötlum: Eiður vor; Einar Ól. Sveinsson
dr. phil.: Sjálfstæðismálið; Halldór Kiljan Laxness: Gegn
afsali landsréttinda og eyðingu þjóðarinnar; Aðalbjörg
Sigurðardóttir: Sigríður i Brattliolti; Lárus Sigurbjörns-
son: Grímsey; Bolli Tlioroddsen: Erum við íslcndingar?;
Björn Sigfússon: Á að meta sjálfstæði íslands til peninga?;
Theodóra Thoroddsen: Ekki með voru samþykki; Jónas
Haralz: Styrkþegar eða sjálfstæð þjóð; Ólafur Jóh. Sig-
urðsson: íslenzk æska heimtar skilyrðislaust afsvar;
Emil Björnsson: Efndanna verður krafizt; Einar Olgeir-
sson: Úr ræðu 18. júní 1944; Katrín Thoroddsen: Eyðing
íslandsbyggðar og Þórbergur Þórðarson: Á tólftu stundu.
Allir ræða þessir þjóðkunnu menn um sjálfstæðis-
mál þjóðarinnar, — ræða það af fullkominni alvöru og
einurð. í ritstjórnargrein farast Kristni E. Andréssyni
svo orð:
„í nafni allra þeirra kynslóða íslendinga,
sem barizt hafa fyrir sjálfstæði landsins, og
í nafni óborinna kynslóða, sem eiga eftir að
l>ygrgrja, þetta land, skorum vér á íslenzku
þjóðina að standa á verði og hefja mótmæli
gegn því, að nokkru erlendu herveldi séu
leyfðar bækistöðvar hér á Iandi.“
Charles de Gaulle tókst
að mynda stjórn í Frakk-
landi í gær með þeirri mála
miðlun, að hann er sjálfur
landvarnaráöherra, en hef-
ur sér við hlið kommúnist-
an Tillon, sem vígbúnaðar-
ráðherra og auk þess her-
málaráðherra úr flokki Ai
þýðlegra lýðveldissinna. —
Utanríkisráðherrar og inn-
anríkisráöherra eru hinir
sömu og í fráfarandi stjórn
—, lýðveldissinninn Bidault
og sósíalistinn Tixier.
Ráðherrar án sérstakra
stjórnardeilda eru fjórir, —
einn frá hverjum hinna
þriggja stóru flokka og einn
frá hægri-mönnum. Maurice
Thorez, aðalritari franska
Kommúnistaflokksins, er
einn þeirra. — Aðrir ráð-
herrar Kommúnistafl. auk
vígbúnaðarráðherra, sem er
nefndur áöur, — eru Fran-
cois Billoux efnahagsmála-
ráðherra, — Marcel Paul
iðnaðarframleiðsluráðh. og
Ambrose Croizat verkamála
ráðherra.
Bretar færa út kvíarn-
ar á Jövu
Bretar tóku rafstöðina og
útvarpsstöðina í Surabaja á
Jövu í gær. Þeir fluttu lið
þaðan í flugvélum til borgar
innar Sernaraug á miðri
eynni. —
Yfirforingi Breta á Jövu
hefur skipað fyrir, að hinar
indonesisku hersveitir Hol-
lendinga skuli fluttar burt
frá Batavíu, höfuðborg
Jövu, og alveg burt af
eynni.
í hersveitum þessum eru
innlendir menn frá eynni
Amboina, þar sem Hollend
ingar hafa jafnan aflað sér
nýliða í her sinn. — Ljóst
er af fyrirskipuninni, aö
hershöfðinginn treystir ekki
þessu liöi.
Nýr bandarískur yfir-
hershöfðingi í Evrópu
Bandaríkjastjórn hefur
skipað MacNany hershöfð-
ingja eftirfnann Eisenhowers
hershöföingja, sem yfirfor-.
ipgja bandaríska hersins í
Evrópu. — Eisenhower hef-
ur veriö skipáöur yfirmaðui'
bandaríska hersins í stað
Marshall hershöfðingja.
SKAFTFELLINGAR!
Munið skemmtifundinn
annað kvöld að Hótel borg.
Tryggið ykkur miða í tíma. manna
Þjóðaratkæðagreiðslu
frestað í Grikklandi
Hin nýmyndaða ríkis-
stjórn Frjálslynda flokksins
í Grikklandi heíur ákveðið
að fresta þjóðaratkvæða-
greiðslunni um framtíð kon
ungdoemisins til 1948.
Seinast í gærkvöld frétt-
ist, að Damaskinos ríkis-
stjóri Iicfði sagt af sér.
Blöð konungssinna láta
mikla óánægju í ljós út af
þessari ákvörðun, en önn-
ur blöð fagna henni, þar
sem þau telja ekki unnt
að halda frjálsar kosningar
á meðan kvislinga-lögreglan
og vopnaöir flokkar kon-
ungssinna beita alþýöuna
cfbeldi. — .Georg „Grikkja-
konungur“ hefur mótmælt
þessari ákvörðun stjórnar-
innar.
MacNeil, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Bretlands, hef
ur verið í Aþenu undan-
Mágnús Kjartans-
son heiðursfélagi
Hlífar
A fundi verkamannafé-
lagsins Hlíf var Magnús
Kjartansson málarame:st&~
gerðUr að heiðursfélaga með
eftirfarandi samþykkt.
„Fundur haldinn í Verka-
mannafélaginu Hlíf 19. nóv.
1945, samþykkir að gera
fyrrverandi formann félags-
ins, Magnús Kjartansson
málarameistara til heimilis
Öldugötu 13, Hafnarfirði að
heiðursfélaga í tilefni af
sextugsafmæli Magnúsar.“
Er þessi samþykkt gerð
til þess að sýna Magnúsi
Kjartanssyni örlítinn þakk
lætisvott Verkamannafélags
ins Hlíf, fyrir gott starf unn
ið í þágu Hafnfirskra verka
♦----------------------♦
Flokkurinn
Sósíalistafélag
Reykjavíkur
Deildarfundir verða í öllum
deildum í kvöld kl. 8,30 e. h.
á venjulegum stöðum. Mjög
áríðandi mál á dagskrá.
Félagar, starfið er í fullum
gangi, nú ríður á að allir
leggi hönd á plóginn, svo
ávöxturinn verði sem bezt-
ur.
Mætið öll i kvöld.
Formenn deildanna erU
beðnir að hafa saaiband við
skrifstofuna í dag.
STJÓKMN
Æ. F. R.
Félagar!
Ferðir í Rauðhóla á laugar-
daginn verða sem hér segir:
Frá Skólavörðustíg 19 kl. 4
og kl. 8,30 siðdegis. Þátttak-
endur í seinni ferðinni erú
oeðnir að gefa sig fram 5
skrifstofunni fyrir kl. 7,30 á
laugardagskvöld. — Auk þess
fer strætisvagn frá Lækjar-
torgi kl. 6,15 á laugardags-
kvöld.
Munið eftir svefnpokunum.
Kl. 9 á sunnudagskvöld
hefst skemmtifundur i Aðal-
stræti 12. Þar fiytur Eggert
Þorbjarnarson ræðu, ennfrem
ur verður upplestur og dans.
— Góð músík.
Nánar auglýst á morgun.
Á félagsfundinum á mánu-
ilagskvöld er dagskráin þessi:
1. Félagsmál. 2. Bæjar-
stjórnarkosningarnar. 3.
Ræða: Einar Olgeirsson. 4.
kvikmynd.
Fundurinn hefst kl. 9
stundvíslega í Bröttugötu 3a.
Félagar hittumst öll um
helgina!
SKRIFSTOFAN
er opin alla virka daga kl.
6—7,30 síðdegis. Þar er tekið
á móti félagsgjöldum og gefn-
ar allar nánari upplýsingar
um starfsemina.
Komið sem oftast i skrif-
stofuna.
Stjórn Æ. F. R.
4-------t----------»---------♦
Dynamo sigraði
Arsenal með 4:3
Rússneski knattspyrnu-
flokkurinn Dynamo sigraði
brezka Arsenalkappliðið
með 4:3 mörkum í London
í gær. — Þoka var svo svört
að við lá að keppendurnir
neydudst til að hætta í
miðju kafi. — Áhorfendur
voru um 50.000.
Danir þakka
Ríkisstjórninni hefur bor-
izt þákkarskeyti frá herra
Barner Rasmussen, skólastj.
tekniska skólans í Kaup-
manna'höfn, en bágV. " ' 'utn.
nemendum þess s'ióía hcfur
verið úthlutað n.k’iru af
fatnaði þeim, sern Lands-
söfnunin sendi til Danmerk-
ur.