Þjóðviljinn - 08.05.1946, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 08.05.1946, Blaðsíða 1
FLOKKURINN Sósíalistakonur! Munið fundinn í kvöld kl. 8.30 að Röðli. Stjórnin. Skemmtikvöld heldur 26. deild Sósíalistafé- lags Reykjavíkur, að Þórs- kaffi, föstudaginn 10. maí. — Þar verður margt skemmti- legt að sjá og heyra. Enginn sósíalisti lætur sig vanta i Þórskaffi á föstudaginn. Fjölmennur fundur Sósíalista í gær- kvöld Sósíalistafélag Reykjavíkur hélt fund í gærkvöld í Breið- firðingabúð, og var salurinn þéttskipaður. Einar Olgeirsson, alþingis- maður, rakti í snjallri og ýt arlegri framsöguræðu gang mála á síðustu Alþingum og lýsti stjórnmálaviðhorfinu. — Aðrir ræðumenn voru. Sigurð ur Gíslason, Ottó Þorláksson, Tryggvi Pétursson, Ragnlieið- ur Möller, Sigfús Sigurlijartar son og Þuríður Friðriksdóttir. Áhugi og einliuga stemning ríkti á fundinum. 11. árgangur. Miðvikudagur 8. maí 1946 102. tölublað. Bretar láta undan kröfti Egypta um brottflutning brezks herliðs -j Kœra Arabar Breta? Talið er að foringjar Ar- aba í Palestínu séu að und- irbúa kæru á hendur Bret- um fyrir brot á umboðs- stjórnarheimiid þeirra í Pal- estínu. Indverska verkalýðs- hreyfingin krefst sjálf- stæðis fyrir Indland Einn af indversku leiðtog unum, sem brezka ráðherra- nefndin hefur rætt við er N. M. Joslii. Skýrði hann ráðherrunum frá afstöðu indversku verka- lýðshreyfingarinnar. „Verka- lýðshreyfing Indlands ber fram í þessu máli aðeins eina kröfu“, sagði hann, „þá, að Bretar afhendi indverskri ríkisstjórn stjórnartaumana og hafi sig á brott.“ Fraoska stjórnin sitnr áfram Franska stjórnin samþykkti samhljóða í gœr, að hún sæi ekki ástœðu til annars en sitja áfram þrátt fyrir úrslit atkvœðagreiðslunnar um stjórnarskrárfrumvarpið. Kornflutningur Bandaríkjanna helmingi minni en lofað var Ackerson varautanríkisráð- herra Bandaríkjanna, skýrði frá því í gcer, að meira en helming vantaði á, að Banda ríkin hefðu staðið við skuld- bindingar sínar um kornút- flutning í fyrstu viku maí. Deilur hafa orðið í mat- vælaúthlutunarnefndinni mill um fulltrúa Breta og Banda- ríkjamanna um kornflutn- inga til Indlands og Japan. Brezkir íhaldsmenn ævareiðir Attlee forsætisráðherra skýrði frá því í neðrimálstofu brezka þingsins í gær, að Bretar myndu fara með allt her- lið sitt úr Egyptalandi. Brottflutningur herliðsins var að- idkrafa Egypta í sambandi við endurskoðun brezk-egypzka sáttmálans. Herbert Morrison skýrði frá því, að ef Bretar hefðu ekki lofað að fara á brott með her sinn myndi egypzka stjórnin liafa neitað öllum samningum. Framboð: irnr ans- Fær Kommúnistaflokkur Bretlands inngöngu í Verkamannaflokkinn? Sterk verklýássambönd styðja inntöku- beiðnina hh Talið er að eitt aðalhitamálið á þingi brezka Verka- mannaflokksins, sem halda á um hvítasunnuna, verði beiðni Kommúnistaflokks Bretlands um inngöngu í Verka- mannaflokkinn. Vmis voldugustu verkalýðssambönd Bretlands, iim- an Verkamannaflokksins, hafa skorað á þingið að sam- þykkja inntökubeiðnina og munu fulltrúar þeirra beita sér fyrir samþykkt þeirra. son í GuIIbringu- og Kjósarsýslu Churcill tók t'.l máls á eftir' Attlee og kvað boðskap hans hafa verið sár vonbrigði fyr- ir sig. Með því að fara úr Egyptalandi væru Bretar að kasta á glæ með skömm, á- rangri mikils erfiðis. Krafð- ist Churchill umræðna strax í gærkvöld um boðskap Attlees og var það samþykkt. Telja heimsveldið í voða. Anthony Eden talaði fyrir hönd íhaldsmanna og spurði stjórnina, hvernig hún ætlaði að verja Súesskurðinn án hers, flota og flugliðs í Egyptalandi. Þetta mál varð aði ekki einungis Bretland heldur öll samveldislöndin þar ’sem Súesskurðurinn væri líftaug heimsveldisins. Attlee kvað nú myndi verða samið við Egypta á jafnréttisgrundvelli um rétt Breta til að flytja herlið á vettvang til varnar Súesskurð inum, ef hætta væri á ófriði. Morrison, formælandi stjórn- arinnar í neðri málstofunni, sagði íhaldsmenn ekki gæta þéss, að aðstæður í Egypta- landi væru breyttar frá því sem áður var. Egyptar litu svo á, að þeir væru ekki- sjálfstæðir meðan erlendur her væri í landi þeirra. Eden kvað stjórnarandstöð una krefjast þess, að fá að láta mótmæli sín í ljós með atkvæðagreiðslu. Rúnnenar fá Transsylvaníu Á fundi utanríkisráðherr- anna i París í gær varð sam- komulag um að Rúmenía skyldi fá Transsylvaníu, sem Hitler afhenti Ungverjum 1940. Molotoff lagði til, að hald- in yrði ráðstefna þeirra ríkja, sem íiggja að Dóná, um sigl- ingaréttindi á ánni. Bevin og Byrnes mótmæltu tillögunni. Til að afstýra þessari „hættu“ á einingu brezku al- þýðunnar hefur ritari Verka mannafl. skýrt svo frá, að fyrir þingið verði lagðar víðtækar breytingar á flokks lögunum, á þá leið, að sósíal- istískum stjórnmálaflokkum verði ekki framar heimilað að ganga í Verkamanna- flokkinn, en núverandi flokkslög gera ráð fyrir sam- bandi sósíalistiskra stjórn- málaflokka og verkalýðsfé- laga. Verið er að afnema vinnu- deilulögin sem brezka íhaldið barði í gegn 1927. Sam- kvæmt þeim urðu meðlimir verkalýðsfélaga því aðeins taldir pólitískir meðlimir Verkamannaflokksins að þeir æsktu þess sérstaklega. Nú er þessu breytt þannig, að meðlimir verkalýðsfélaga teljast pólitískir meðlimir flokksins nema þeir tilkynni að þeir vilji vera utan hans. 'jEr búizt við að þetta muni þegar á næsta ári fjölga flokksmeðlimunum um 3— 3V-> milljón. „Daily Worker“ blað Kommúnistaflokksins, segir að stjórn Verkamanna- flokksins vilji berja í gegn breytingu á flokkslögunum nú vegna þess að stóraukin áhrif verkalýðssamtakanna í flokknum munu tryggja samþykkt á upptökubeiðni Kommúnistaflokksins. Sverrir Kristjánsson verður frambjóðandi Sósíalistaflokks ins í Gullbringu- og Kjósar- sýslu við alþingiskosningarn- ar í sumar. Sverrir Kristjánsson er íædd- ur 7. febrúar 1908. Hann inn- ritaðist í Menntaskólann í Rvík 1923, tók stúdentspróf 1928. Las næsta vetur heimspeki og tók heimspekipróf við háskólann hér vorið 1929. Fór um haustið til Danmerkur og stundaði sagn- fræði við Kaupmannahafnarhá- skóla til 1937, en 1938 kom hann heim og hefur verið kennari við Gagnfræðaskóla Reykvíkinga síð an. Hann er fyrir löngu þjóð- kunnur fyrir hin ágætu útvarps- I erindi sín. Hann var frambjóðandi Sósial istaflokksins í Rangárvallasýslu í kosningunum 1942. Bandalag ísleiizkra listamaraia mótmælir dvöl erlendra herja á Islandi Eftirfarandi tillaga var samþykkt á að- alfundi Bandalags islenzkra listamanna 4. þessa mánaðar: „Aðalfundur Bandalags íslenzkra lista- manna ályktar: Dvöl erlendra herja í landi voru á friðartímum og umráð þeirra yfir íslenzkum landsvœðum er skerðing á sjálf- stœði voru, enda ósamrýmanleg fullveldi landsins og stofnar þjóðerni voru, tungu og menningu í voða. Fyrir því teljum vér, að engu erlendu ríki megi veita hér ítök né herstöðvar og skorum á íslenzk stjórnarvöld og íslenzku þjóðina í heild að vísa á bug öllum tilmœl- um í þá átt.“

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.