Þjóðviljinn - 08.05.1946, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 08.05.1946, Blaðsíða 8
»' 4‘ Listsýning Norðurlandaþjóðanna í Osló . Mikil þáttaka íslenzkra listamanna Itcuui 8. júní næstkomandi opnar Skandinavisk Kunstfor- bund sýningu í Qslo, og veröa þar sýnd lislaverk frd öllum Noröurlöndunum. Er liér aöeins um «ð ræöa verk eftir núlifandi málara, og miin sýningin þvi gefa glögga hu/gmynd um þaö, hversu komiö er listaþroska hverrar þjóöár fyrir sig. íslenzkir listmálarar senda 77 verk á þessa sýningu, 'i8 olíumálverk og 29 vatnslitamyndir og raderingar. Framboð: Jóhann J. E. Kúld í Mýrasýslu Nefnd sú, sem kosin var til að velja myndirnar á Islands- deild sýningarinnar var skipuð þessum mönnum: Þorvaldi, Skúlasyni, Ásgrími Jónssyni, Jóni Þorleifssyni, Jólianni Briem og Sigurjóni Ólafssyni. Stærð myndanna réði mestu um það, hve mörg verk voru tekin eftir hvern málara. Islenzkir þátttakendur í sýn- ingunni verða þessir: Ásgrímur Jónsson, Jóhann Briem, Finnur Cellótónleikar Erlings Blöndal Bengtson Cellósnillingurinn Erling Blöndal Bengton hélt fyrri tónleika sína í Gamla Bíó í gærkvöldi við fádæma hrifn- ingu áheyrenda. — Dr. Urbantschitsch annaðist und- irleik. Erling mun halda síðari tónleika sína næstkomandi föstudag. r--------- Frá kosningaskrifstofunni KJÖRSKRÁ Kjörskrá til Alþingiskosn- inga liggur frammi í skrif- stofunni. Kjósendur Sósíalistaflokks- ins, einkum þeir, sem flutt hafa í bæinn á tímabilinu okt. 1945—1. marz 1946 og þeir sem oft eru utanbæjar við vinnu eða nám, ættu ekki að láta dragast að athuga kjörskrána, svo tími vinnist til þess að kæra þá inn, ef nöfn þeirra hafa fallið út. KJÓSENDUR ERLENDIS Á AJþingi var samþykkt að gefa íslenzkum kjósendum er- lendis tækifæri til að kjósa hjá sendifulltrúa ríkisins. Kjósendur Sósíalistaflokks- ins eru beðnir að láta kosn- ingaskrifstofuna vita strax um kjósendur flokksins, sem erlendis dvelja, og gefa upp heimilisfang þeirra. Sími kosn ingaskrifstofunnar er 4824. Jónsson, Jón Engilberts, Jón Þorleifsson, Jóhannes Kjarval, Guðmundur Einarsson frá Mið- dal, Kjartan Guðjónsson, Kristín Jónsdóttir, Sigurður Sigurðsson, Gunnlaugur Seheving, Snorri Arinbjarnar, Svavar Guðnason, Þorvaldur Skúlason, Barbara Árnason, Gréta Björnsson og örlygur Sigurðsson. Sýningin verður opnuð þann 8. júní í Kunstnernes Hus og Nalionalgálieriet í Osló. En síð- armeir verður hún sennilega haldin bæði í Stokkhólmi og Kaupman nahöfn. Islenzku listaverkin verða send út með Lagarfossi næst þcgar hann fer til útlanda Skákeinvígið I gærkvöldi var háð að Röðli fyrsta skákeinvígi þeirra Ásmundar Ásgrímsson ar, íslandsmeistara í skák og brezka skáksnillingsins Mr.! B. H. Wood. Skákin varð bið- skák og staðan eftir 34. leik | svarts (Wood) er þannig: ! Hvítur: Kgl; Del; Hcl; Hc2; ! Re2; c3; e5; f2; g3; h4. Svartur: Kg8; Da5; Ha3; Hc4;, Ra4; d5; e6; f7; g7; h6. Skákunnendur fjölmenntu og urðu rnargir frá að hverfa. Árni Snævarr útskýrði fyrir áhorfendum skákina. Skákin verður tefld til úr- slita eftir hádegi í dag. r i Unglingareglan 60 ára á morgnn. Á morgun 'er unglingareglan 60 ára hér á landi. — Þann dag fyrir 60 árum var barnastúkan Æskan nr. 1 stofnuð hér í bæn- um. Hefur hún starfað síðan og notið mikilla vinsælda. — Nú starfa hér í bænum 5 barna- stúkur. Hér í bænum verður efnt til hátíðahalda í tilefni af afmælinu, eins og annarsstaðar, þar sem barnastúkur starfa. Hátíðahöldin verða eins og hér segir: Klukkan 1 á morgun safnast félagar barnastúknanna saman við Góðtemplarahúsið. Verður farið þaðan í skrúðgöngu undir fánum Reglunnar og gengið um nokkrar götur bæjarins og svo í Dómkirkjuna. Þar verður hlýtt messu. Séra Árelíus Níelsson prédikar, en biskup landsins, herra Sigurgeir Sigurðsson, þjón ar fyrir altari. Kl. 5 verður hátíðafundur i Æskunni nr. 1 í Góðtemplarahús inu. Um kvöldið flytur Ingimar Jóliann J. E. Kúld veröur frambjóöandi Sósíalistaflokksins i Mýrasýslu viö alþingiskosning- arnar í sumar. Jóhann J. E. Kúld er fæddur 31. des. 1902 að Ökrum í Mýra- sýslu. Ólst hann þar upp fram yfir fermingaraldur. Hafði Ifann byrjað að lesa undir inntöku- próf í Meiintaskólann, þegar fað ir hans dó. Varð hann þá að fara að vinna fyrir sér og flutt- ist liingað til bæjarins og stund- aði alls konar verkamanna- vinnu og sjómennsku. Hann var í siglingum 1923—1926, lengst af í Noregi. Hann fluttist til Ak- ureyrar 1926. Var cinn af stofn- endum Sjóinannafélags Norður- lands 1928 (nú Sjómannafélags Akureyrar), átti sæti í sljórn þess og kom víða við sögii í verklýðsiélagshrey f i ngu n n i fyr- ir norðan, Novudeilunni og sjómannaverkföllunum 1929 og 1936. - Til Reykjavíkur fluttist hann 1941. Jóbann Kúld hefur við margt fengizt um dagana, alla verka- mannavinnu og sjómennsku, ís- hafsferðir og björgunarstörf lijá brezka sjóliðinu, eyrarvinnu og verzlunarstörf — og ritstörf. Ilefur hann skrifað 5 bækur úr lífi sjómanna, kom sú fyrsta út 1939. Hann var einn af aðal- hvatamönnum að sjofnun Sain- bands íslenzkra berklasjúklinga. Hann hefur m. a. átt sæti í stjórn Sósíalistafél. Rvíkur og var í framboði fyrir Sósíalista- flokkinn við alþingiskosningarn ar 1942. Hann var stofnandi Koinmún- jstaflokksins óg síðar Sósíalista- flokksins. Jóhannesson kennari, erindi í át varpið um unglingaregluna Dg starf hennar. N. k. sunnudag kl. 1 verður barnaskemmtun í Gamla Bíó, sem barnastúkurnar annast. — Aðgangur verður ókeypis fyrir félaga barnastúknanna. Um kvöldið annast unglinga- reglan barnatíma útvarpsins. Þess er fastlega vænzt að for- eldrar barna þeirra, sem í barna stúkunum eru, stuðli að því að þau mæti í skrúðgöngunni, og hafi með sér litla íslenzka fána, ef þau eiga þá. Vitanlega eru allir templárar yngri sem eldri, velkomnir í skrúðgönguna, og þess óskað að hún verði sem fjölmennust. Aðalfimdur Bandalags íslenzkra listamanna Bandalag íslenzkra lista- manna hélt aðalfund sinn 4. þ. m. Voru þar tekin fyrir ýmis mál og kosin stjórn Bandalags- ins. Formaður var kosinn Lárus Pálsson, leikari, en meðstjórn- endur Sigurður Guðmundsson, arkitekt, Halldór Kiljan Laxness, rithöfundur, Helgi Pálsson, tón- skáld, og Sigurjón Ólafsson, myndhöggv-ari. Þessar tillögur almenns efnis voru samþykktar á fundinum: 1. Fundurinn felur stjórninni að leita samninga við ríkisstjórn- ina um að teknar verði upp í næsta fjárlagafrumvarp fjárveit- ingar til listamanna á 18. gr. og 15. gr. éins og áður var. 2. Bandalag íslenzkra lista- manna skorar á ríkisstjórnina að hlutast til um, að Island gangi í alþjóðleg samtök til verndar höf- undaréttindum (Bernarsamband- ið). 3. Tillaga um herstöðvamálið ('birt á forsíðu blaðsins í dag). Innbrot í rammaverzlun I gærkvöld gerði ámerískur hermaður tilraun til að brjótast inn í rammaverzlun Axels Corl- es við Smiðjustíg. Fólk sem var statt þarna í nánd gerði lög- reglunni aðvart og náðist her- maðurinn eftir stuttan eltingar- leik. Siglfirzkir verkamenn mót- mæla leigu á herstöðvum Eftirfarandi tillaga var samþykkt á fundi í verkamannafél. Þrótti á Siglufirði, sem haldinn var 26. nóv. sl. „/ tilefni af orðrómi, sem gengið hefur um kröfur erlends herveldis um að fá her- stöðvar á leigu á íslandi, samþykkir fuiul- ur í Verkamannafélaginu Þrótti á Siglu- firði að skora á Alþingi og ríkisstjórn að hafna öllum slíkum tilmcelum hvaðan sem þau koma. Fundurinn telur að hvorld ríkis- stjórn né Alþingi liafi heimild til að leigja eða selja erlendum ríkjum hluta af landinu, litla eða stóra“. ÓgnaröU í Grikldandi Lætur brezka stjórnin undan kröfum grískra fasista? Síðan konungssinnar tóltu við stjórn í Grikkiandi hef- ur ástandið í landinu stórum breytzt til hins verra. Of- beldisflokkar hægri manna vaða uppi. Síðastliðna 10 daga bafa 13 pólitísk morð verið framin og eru allir hinir myrtu úr hópi vinstrimanna. Lögreglan, sem er liin sama og vann fyrir Þjóðverja á hernámsárunum, lætur hermdar- verkamennina afskiptalausa, ef liún þá ekki lijálpar þeim. Konungssinnar, sem fyrir styrjöldina studdu hina fasist isku einræðisstjórn Metaxas krefjast þess, að þjóðarat- kvæðagreiðsla um konungs- dæmi í landinu fari fram Þe§ ar í stað. Lœtur Bevin undan? Bevin utanríkisráðherra Breta, sem hafa öflugan her í Grikklandi og bera ábyrgð á friði og reglu í landinu, — lýsti því yfir fyrir kosning- arnar, að brezka stjórnin vildi ekki að þjóðaratkvæða- greiðslan færi fram fyrr en 1948 svo að mjnni hætta væri á óeirðum. En brezka blaðið „Daily Telegraph“ skýrir frá því í gær, að brezka stjórnin hafi breytt um stefnu og muni láta undan kröfum kon ungssinna. Kvislingar gerðir ráðherrar. Það hefur vakið mikla at- hygli, að grískir konungssinn ar reyna ekki einu sinni að leyna fasistiskum skoðunum sínum. Þannig unnu tveir ráðherrar í stjórn þeirra fyrir Þjóðverja á hernámsár- unum í baráttunni gegn grísku andstöðuhreyfingunni.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.