Þjóðviljinn - 30.05.1946, Blaðsíða 7
Fimmtudagur 30. maí 1946.
ÞJÓÐVILJINN
7
Helgidagslæknir í dag: Friðrik
Einarsson, Efstasund 55, sími
6665.
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, Austurbæjarskólanum,
sími 5030.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
apóteki.
Næturakstur. annast Hreyfill.
Sími 1633.
Heimsóknartími spítalanna:
Landsspitalinn: Kl. 3—4 alla
virka daga, kl. 2—4 sunnudaga.
Hvítabandið: Kl. 3—4 og 6,30.
Landakotsspitalinn: Kl. 3—5 alla
daga. Sólheimar: Kl. 3—4,30 og
7—8 e. h. alla daga.
Landsbókasafnið er opið alla
virka daga kl. 10—12 f. h., 1—7
og 8—10 e. h. Þjóðskjalasafnið
er opið alla virka daga kl. 2—7
e. h. Þjóðminjasafnið er opið
sunnudaga, þnðjudaga og fimmtu
daga, kl. 1—3 e. h. Bæjarbóka-
safn Reykjavíkur: Lestrarsalur-
inn er opinn alla virka daga kl.
10—12 f. h. og 1—10 e. h. —
Utlánsdeildin er opin kl. 2—
10 e.h. Náttúrugripasafnið opið
sunnudaga, þriðjudaga og
fimmtudaga kl. 2—3 e. h.
Útvarpið í dag:
11.00 Morguntónleikar, plötur.
a) Konsert fyrir þrjú pianó
eftir Bach.
b) Cellokonsert í D-dúr eftir
Tartini.
c) Klarinett-konsert í A-dúr
eftir Mozart.
14.00 Messa í Fríkirkjunni, séra
Árni Sigurðsson.
15.15—16.30 Miðdegistónleikar
plötur:
a) Nelson Eddy syngur.
b) 15.50 Wanderer Fantasie eft!
ir Schubert.
c) 16.15 Tilbrigði eftir Ar-
ensky.
19.25 Dansar eftir Grieg, plötur.
19.35 Lesin dagskrá næstu viku.
20.20 Útvarpshljómsveitin, Þórar-
inn Guðmundsson stjórnar:
a) Miniature suite eftir Eric
Coates.
b) Schatzwaltzer eftir Johann
Strauss.
20.50 Dagskrá kvenna, Kvenrétt-
indafélag Islands:
Erindi: Tillögur kvenna í stjórn
arskrármálinu, frú Auður Auð-
uns cand. juris.
21.15 Tónleikar: Wanda Land-
owska leikur lög eftir Couperin,
plötur.
21.25 Frá útlöndum, Gísli Ás-
mundsson.
21.45 Frægir söngmenn, plötur.
22.30 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
19.25 Harmonikulög, plötur.
20.30 Útvarpssagan: „Pílagríms-
ferð til Beethovens" eftir Ric-
hard Wagner, Einar Jónsson
magister.
21.00 Útvarpstríóið: Einleikur og
tríó.
21.15 Erindi: Frumreglur foryst-
unnar, Grétar Fells rithöf.
21.35 Maí-söngvar, plötur.
22.05 Symfoníutónleikar, plötur:
a) Konsert fyrir tvö píanó eft-
ir Baeh.
b) Symfónía nr. 5 eftir Beet-
hoven.
23.00 Dagskrárlok.
Kaupið Þjóðviljann
•---»——tt-----«—•—
Skipafréttir: Brúarfoss er í
Hull, fer þaðan sennilega á föstu-
dagskvöld til Reykjavíkur. Fjall-
foss fór frá Akureyri á hádegi í
gær til Húsavíkur. Lagarfoss er
í Kaupmannahöfn. Selfoss fór frá
Isafirði á hádegi í gær til Reykja
víkur. Reykjafoss er í Leith.
Buntline Hitch kom til Reykja-
víkur 21. þ. m. frá New York.
Salmon Knot kom til New York
24. þ. m. Sinnet fór frá Reykja-
vík 25. þ. m. til New York. Em-
pire Gallop kom til Reykjavíkur
24. þ. m., fór í gærmorgun 30.
þ. m. til Akureyrar. Anne fór
frá Reyðarfirði kl. 13.00 28. þ.
m. til Leith. Leoh er í Reykjavík.
Lublin er í Reykjavík, fer á laug
ardag til Englands. Horsa hefur
væntanlega farið frá Leith í gær
29. þ. m.
—
FÉLAGSLÍF
____________
' . ....
Ferðafélag Islands ráðgerir að
fara gönguför um Heiðmörk n.k.
sunnudag. Lagt af stað kl. 10 ár-
degis frá Austurvelli. Ekið að
Silungapolli, en gengið þaðan um
Mörkina. Brúarfellsgjá skoðuð.
Gengið til Vífilsstaða eða til
Hafnarfjarðar. Fólk hafi með sér
nesti. Farmiðar seldir hjá Kr. Ó.
Skagfjörð til kl. 12 á laugardag.
Iþróttaráð Reykjavíkur. Dóm-
aranámskeiðið hefst á föstudag-
inn kl. 8.30 í Háskólanum. Þeir,
sem ekki hafa látið skrá sig, en
hafa hugsað sér að vera með,
geta látið skrá sig þá. Hafið leik-
reglurnar með.
I.O.G.T.
Þingstúka Reykjavíkur. Fund-
ur annað kvöld kl. 8.30 að Frí-
kirkjuveg 11. —• Dagskrá: Stig-
veiting, kosning fulltrúa til stór-
stúkunnar, erindi frá þjóðhátíð-
arnefnd, húsreikningurinn, önnur
mál.
Þingtemplar.
St jórnmálarabb
Frti. af 4. síðu.
ctii sem hefur veruleg likindi lil
að komast á þing Katrin Thor-
oddsen, fjórði maðurinn á lista
Sósíalistaflokksins í Reykjavík.
Bjarni Benediktsson veit, að
konur í Sjálfstæðisflokknuir.
hafa orðið fyrir miklum von-
brigðum með framboðin. Stjórn
Sjálfstæðisflokksins liefur alstað
ar hundsað konurnar, það málli
ekki hjóða konu franr í neinu
af þeim kjördæmum, þar sem
Sjálfstæðisfl. getur ráðið
júngsæti — og raunar ekki ;ö{Sr-
um heldur. Sama er að segja um
Alþýðuflokksklíkuna og Fram-
sóknarflokkinn.
En þeir herrar í stjórnum
flokkanna eru samt smeykir við
þessa opinberu fyrirlitningu á
vilja kvennasamtakanna í land-
inu, á vilja kvenna í sinum eig-
in flokkum. Þeir óttast þá stað-
reynd, að aðeins Sósíalistaflokk
urinn hefur sett ágætan fulltrúa
kvenna í sæti, sem reykvískar
konur munu sameinast um að
gera að öruggu ^sæti.
Í.S.t.
K.R.R.
r
Knattspyrnumót Islands
Fjórði leikur mótsins verður háður í kvöld kl. 8,30
á Iþróttavellinum og keppa þá:
Akureyringar og Akurnesingar
Dómari verður Guðjón Einarsson.
Mótanefndin.
Marteinn rauði
Framhaíd af 5. síðu.
þýzka hergagnaiðnaðinn gegn
því, að Danir fái stál og kol.
Hann er furðuleg mannteg-
lind, sambland af stórsvindl-
ara og flokksleiðtoga. Það er
Parvusmálið, sem þarna er
fyrirmyndin.
En samtímis því að Pelli,
sem ekki er lýst eftir beinni
fyrirmynd, en er alveg mann-
leg og persónulega ekki frá-
hrindandi persónugervingur
endurbótastefnunnar á stríðs-
árunum, fetar jafnt og öruggt
upp að hátindum hins póli-
tíska valds, lifir Marteinn
hinu erfiða lífi alþýðuskálds-
ins. Hann vill ekki slá af, og
ekki verður honum auðgengn
ara er hann lendir í hjóna-
band, sem fer illa. Hann vinn
ur fyrir sér með blaðagrein-
um og fyrirlestrum, sem lítið
er borgað fyrir. En kringum
hann vex ríkulegur gróður.
Því hann er í samræmi við
lífsmagn alþýðunnar, og á
nærfærinn og hlýjan hug.
Og hann er alltaf 1 leit að
því sem koma skal, því ein-
hversstaðar hlýtur alþýðan
að skilja köllun sína og hefja
baráttu á ný. Hann hneigist
um tíma að syndikalistum,
hugmyndir þeirra voru að
vísu ruglingslegar, en það
var uppreisn í þeim. Hann
byggir von sína á uppreisnar
arminum í æskulýðshreyf-
ingu sósíaldemókrata. — En
það er ekki fyrr en í Stokk-
hólmi, er hann fréttir um
Lenín og byltinguna, að hann
sér móta fyrir dögun.
Og mann grunar, að nú
hefjist baráttan milli hins
smáborgaralega og hins bylt-
ingarsinnaða sósíalisma, og
hann muni fagna því, —
barátta er betri en kyrrstaða
og afturför.
Það morar af fólki í þess-
ari miklu bók, með Pella og
Martein sem aðalsöguhetjur,
er berjast innbyrðis, þó þeir
Okkur vantar nú þegar
G.'iSSA-V •« 11 r-r ~ -1
konu til hreingerninga
í skrifstofum, 2—3 tíma á dag. — Umsækj-
endur tali við okkur, sem fyrst.
Samband íslenzkra samvinnufélaga.
Garðsláttuvélar
Nokkur stykki af mjög vönduðum garð-
sláttuvélum nýkomin. Vélarnar safna
saman heyinu um leið og þær slá, auk þess,
sem þær valta völlinn.
SPORT
Austurstræti 4.
Sími 6538.
séu tengdir sterkum vina-
böndum. Sumt af því er teikn
að sterkum ,skýrum drátt-
um, ritstjórar, stjórnmála-
menn, borgarar og verka-
menn. Öðrum, og þá einkum
móðurinni, er lýst með þeim
innileik, sem menn þekkja
úr minningarbókunum. Hér
er hún öldruð en gædd sama
dugnaði og fjöri og áður.
Þetta er bók í stóru sniði
og hún fjallar um mikilvæg-
ustu vandamál danskrar
alþýðu. Vonandi endist Nexö
kraftar til að skrifa líka
skáldsöguna miklu um árin
milli styrjaldanna, þegar
„klofningsmennirnir“, en svo
nefndi Pelli, þegar á árum
heimsstyrjaldarinnar fyrri,
hverja uppreisn gegn hinni
skammsýnu tækifærisstefnu
og flokkskerfi sósíaldemó-
krata, læra af því sem gerð-
ist í Sovétríkjunum, og Pelli
kemst enn hærra, allt upp á
hátind þjóðfélagsins.
Hans Kirk.
u Maðurinn minn
ÞORSTEINN B. LOFTSSON
fyrrum bóndi á Stóra-Fljóti verður jarðsunginn að
Torfastöðum laugardaginn 1. júní lil. 2.
Bílferð verður frá Bifreiðastöðinni Heklu kl. 10.
Fyrir hönd aðstandenda
Vilhelmína Loftsson.
wmmmBmmsamamBmamammammmmmammE
Takið eftir.
Kaupum notuð hús-
gögn og lítið slitin
jakkaföt.
Fornverzlunin
Grettisgötu 45. Sími
5691.
]