Þjóðviljinn - 09.11.1946, Page 4
4
Þ J ÓÐVIL JINN
Laugardagur, 9. nóv. 1946.
þlÓÐVILJINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokjrurirm
Ritstjórar: Kristinn E. Andrésson, Sigurður Guðmundsson, áb.
Fréttaritstjóri: Jón Bjamason.
Ritstjómarskrifstofur; Skólav örðust. 19. Símar 2270 og 7500
(eftir kl. 19.00 eínnig 2184).
Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, sími 2184.
Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399.
Prentsmiðjusími 2184.
Askriftarverð; kr. 8.00 á mánuði. — Lausasölu 50 aurar
eint
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
- ................ ■ i—■»
Abyrgðin á framkomu
tslands í alþjódamáluin
Island er nú tekið formlega inn í hinar sameinuðu þjóð-
ir. Það hefur verið tekið vinalega við oss þar. Og nú er
mikið undir því komið að fulltrúar Islands komi þannig
fram þar, að þeir verði landinu til sóma og starfi í samræmi
við frelsisást þjóðar vorrar og virðingu hennar fyrir mann-
réttindum.
Island hefur sjálft um sjö alda skeið verið raunverul. ný-
lenda annarra rikja. Isl. þjóðin hefur mörgum þjóðum sár-
ar fengið að finna það, hvað þjóðarkúgun er. — Þann rétt,
sem vér ísl. heimtum sjálfum oss til handa, viljum vér og
viðurkenna handa öðrum. Sjálfstæði allra þjóða, mann-
réttindi og jafnrétti án tillits til litarháttar eða kyns, þjóð-
flokks eða tungu, hljótum vér Islendingar að virða og kref j-
ast að virt sé, hver sem í hlut á.
Islenzka þjóðin ætlast til þess að fulltrúar hennar
standi á verði um þessi mannréttindi á þingi hinna
sameinuðu þjóða. Islenzka þjóðin mun ekki viðurkenna rétt
neinnar einnar þjóðar eða þjóðflokks til þess að drottna
yfir öðrum eða svifta aðra þjóðflokka réttindum.
Þing sameinuðu þjóðanna fær nú eitt af slíkum málum
til meðferðar, kæru indverskra manna í Suður-Afríku út
af kúgun þeirri, er hvítir menn beita þá. — íslenzka þjóð-
in stendur einhuga með kröfunni til jafnréttis. Sósíalista-
flokkurinn vildi tryggja það að fulltrúar Islands yrðu sér
ekki til skammar og sviku hugsjónir þjóðar sinnar með
því að fara að taka afstöðu með „yfirþjóðinni", þeg-
ar um svona mál væri að ræða — og kröfðust því þess að
samkomulag væri haft í svona málum um afstöðu íslands.
En íhaldið og Alþýðuflokkurinn vildu einir geta ráðið, svo
kunnir sem fulltrúar þeirra eru að þýlyndi við engilsax-
neska auðvaldið. Þess vegna sendi Sósíalistaflokkurinn
ekki fulltrúa í nefndina, meðan svo er astatt um stjórn
landsins, sem nú er.
„FLOTTHEIT"
BERGMÁLS.
Sá, sem stjórnar Bergmáli
Vísis, á það til að vera æði
„flott“ á prentrúm blaðsins, þeg
ar honum þykir mikið liggja við.
Fyrjr um það bil einum mán-
uði fór hann að hafa miklar á-
hyggjur af því, hvaða isenzkt
nafn ætti nú að gefa flugvellin-
um á Reykjanesi, og síðan hef-
ur það verið því nær fastur
liður í dálkum hans, að þar hafa
birzt ibréf eftir hina og
aðra menn, flesta ónafngreinda.
sem með nákvæmum rökum og
heimspekilegum tilvitnunum í
náttúrufræði, landafræði og
sögu, hafa sýnt fram á það í eitt
skipti fyrir öll, að þetta eða
hitt nafnið væri það eina rétta,
ÖU önnur nöfn væru ómöguleg
og ónotandi.
MIKILL KOSTNAÐUR.
Eg get ímyndað mér, að þess
ar rökræður hafi kostað Vísi
hátt upp í tug metra af dálks-
breiðu lesmáli. En maður getur
ekki verið að súta slíkt, þegar
annað eins stórmál er á ferðinni
og það, að finna gott íslenzkt
nafn á ameríska herstöð.
Hitt er aftur á móti öllu
verra, að nú; þegar þessum ein-
kennilegu umræðum er lokið,
samkvæmt tiikynningu Berg-
málsmannsins, þá kemur það
upp úr kafinu, að flugvöllurinn
á Reykjanesi er ennþá kallaður
Kef 1 avíkurf lug völlur!
Sem sagt, mikið starf til eins-
kis unnið.
„GÁRUNGARNIR“ OG
VÍKVERJI.
Vikverji Morgunblaðsins
minntist Htillega á þefta mál
í gær, og orsakaði það ofurlít-
inn fjörkipp hjá hinni ,,myst-
isku“ kímnigáfu hans. Hann seg-
ir, að „gárungarnir" (en þeir
eru sú ógæfusama manntegund,
sem Verður að bera ábyrgð á öll
um þynnstu bröndurum Vík-
verja), vilji nú kalla Keflavíkuf
völlinn „Ákaviti", vegna þess,
að atvinnumálaráðherrann forð-
ist hann eins og heitan eldinn!
Væri ég „gárungi", mundi ég
krefjast skaðab. af Víkv. fyrir að
bendla mér við annan eins grát-
lega misheppnaðan brandara og
þennan.
WALL STREET-V ÖLLUR.
Víkverji og Bergmál eru á
einu máli um það, að almenn-
ingur fylgist mikið með hinum
skríngilegu rökræðum um nafn-
ið á ílugvellinum á Reykjanesi.
Eg hef ekki orðið var við þetta
Að vísu hef ég fengið eitt bréf
er fjallar um málið, og ætla ég
að birta hér niðurlag þess, og
það, sem þar kemur fram, slær
botninn í málið, hvað snertir
þessa dálka. Bréfinu lýkur þann-
ig:
„Það er því vonlaus leikur, að
ætla sér að finna gott íslenzkt
nafn á flugvöllinn á Reykjanesi
fyrst um sinn. Eins og nú
standa sakir, v.æri eðlilegast að
kalla hann Trumans-tak eða
4
Wall Street-völl“.
GANGSTÉTTIRNAR VIÐ
AUSTURSTRÆTI —
,,SKANDAL“.
Það er kominn tiími til að
helluleggja að nýju gangstéP-
irnir við Austurstræti. Hellurn-
ar á þeim eru svo eyddar, brotn-
ar og alla vega úr lagi gengnar,
að þegar rigning er, safnast
vatn þarna í stóra polla. Eink-
um er þetta slæmt á syðri gang
stéttinni.
Eg vil því beina þeim tilmæl-
um til Einars Pálssonar, verk-
fræðings, sem hefur stjórn
gatnaviðgerðarinnar á hendi, að
hann siái svo um, að gangstétt
irnar við Austurstræti verði
hellulagðar að nýju hið bráð-
asta.
Það er alveg óafsakanlegt
að viða í úthverfum bæjarins
kemst fótgangandi fólk varla
leiðar sinnar án þess að ösla
forarpolla upp i ökla, og þegar
ástandið er orðið það sama á
f jölförnustu götunni, þá getur
það á reykvisku ekki kallazt
annað en ,;skandal“.
Reykvíkingar eiga heimtingu
á að geta gengið þurrum fót-
um um bæ sinn allan en fyrst
og fremst um hjarta hans.
Árni Ketilbjarnar:
Sjálístæðisverkainaðitr svarar grein Sveinbjarnar
Hannessonar um hhitfallskosningar
Sjálfstæðlsverkamenn afbiðja afskipti óvið-
komandi afla af inálunt verkal.samÉakanna
★
Þá er og hugsanlegt að til kasta þings hinna samein.
uðu þjóða komi að ræða ágang þann, er Bandaríkjaauð-
valdið sýnir nú, um að ná herstöðvum út um heim. — Hvern
ig lízt Islendingum á að fela þeim Bjarna Ben. og Finni
Jónssyni að fara með atkvæði íslands, þegar slík mál eru
rædd, — einmitt þeim mönnum, sem ákafast hafa barizt
fyrir því að Island leigði Bandaríkjunum dulbúnar her-
stöðvar og tæki þannig afstöðu með þeim í fyrirhuguðu á-
rásarstríði þeirra gegn Evrópu? — Menn muna enn kröfur
Alþýðublaðsins um að engilsaxnesku þjóðirnar færu í stríð
gegn Sovétríkjunum, ef Hitler heppnaðist ekki að sigra þau.
Ummæli þessara herra er því íslenzku þjóðinni kunnug.
Heiður Islands er í hættu í augum allra þjóða meðan
slíkir menn ráða atkvæði þess á alþjóðasamkundu. Þeir
hafa nú þegar sett smánarblett á skjöld þess með fram-
komu sinni í herstöðvarmálinu hér. Það þurfti að afstýra
því að þeir hefðu tækifæri til að halda slíkri þýlyndis-
stefnu áfram á þingi sameinuðu þjóðanna. Baráttunni fyr-
ir því að tryggja heiður Islands á þeim vettvangi verður
haldið áfram.
Eg verð að segja það, að |
ég varð undrandi,. þegar ég
las grein hr. Sveinbjarnar
Hannessonar í Morgunhlað-
inu 31. okt, þar sem hann
ræðir um frumvarp Jóh. Haf
steins um hlutfallskosningar
í verkamannafélögum, og
heldur þvi fram að frunwarp
ið sé borið fram á Aliþingi
eingöngu eftir óskum okkar
sjólfstæðismanna. — Þetta er
algerlega rangt, við Sjálfstæð
isverkamenn óskum ekki eft
ir íhlutun Alþingis um innri
mál varðandi verkalýðssam-
tökin.
Verkamenn vilja sjálfir
ráða kosningafyrirkomulagi
í félagssamtökum sínum, sem
æskilegt er, og eru þeir eng-
aniveginn þakklátir Jó(h. Haf
stein vegna afskipta hans af
þessu máli.
Við verkamenn sjáum
I enga ástæðu til þess að fara
að lögbjóða hlutfallskosning
ar í verkalýðsfélögunura,
fremur en í öllum öðrum fé-
lagsskap. Eg býst við að sam-
vinnufélög og öll önnur fé
lagssamtök, vilji sjálf ráða
öllum sínum innri málum,
án ihlutunar hins opinbera.
Hr. S-veinbjörn ræðir um í
grein sinni, stórkostleg póli-
tísk átök á næsta Aliþýðusam
bandsþingi, og er ekki hægt
að skilja annað en hann óski
eftir illvígum deilum.
Eg get frætt hr. Sveinbj.
á því, að við sem kosnir vor
um fulltrúar af verkalýðssam
tökunum, vorum ekki valdir
með það fyrir augum, að eiga
í ill'vígum deilum innibyrðis,
heldur vorum. við kosnir til
þess að vinna saman í sátt og
samlyndi að einingu verka-
lýfesamtakarma, á stéttan- og
lýðræðisgrundvelli, ennfrem-
ur að öllum félags- og fram-
faramálum, íslenzkri alþýðu
til hagsbóta og blessunar.
Hr. Sveinbjörn Hannesson
spáir samvinnu Sjálfstæðis-
og Alþýðuflokksverkamanna
í verkalýðsfélögunum og á
Aliþýðusambandsþingi- —
Sjálfstæðisverkamenn eru yf
irleitt vel þroskaðir félags-
lega, og munu því vinna með
öllum þeim sem stuðla vilja
að alkherjar einingu verka-
lýðssamtakanna, og ennfrem
ur að öllum góðum mólum
sem til uppbyggingar geta
orðið allri alþýðu þessa lands.
Við Sjálfstæðisverkamenn
munum hiklaust fylgja sann
færingu okkar, og látum
ekki pólitískan braskaralýð
ráð$tafcL okkur eftir eiginn
geðþótta...
Framhald á 7.síðu.