Þjóðviljinn - 14.11.1946, Qupperneq 6
6
ÞJÓÐVILJINN
Fimmtudagur, 14. nóv. 1943.
Þetta eru bækurnar.
sem Reykvíkingar velja til hátíðagjafa, því að þær
eru fagrar að útliti, fróðlegar að efni, og vandaðar
að vinnu.
Anna frá Stórubwg
Jón Trausti er einn vinsælasti rithöfundur þjóðai'-1
innar. Anna frá Stóruborg er ógleymanleg skáld-
saga, bæði yngri og eldri lesendum. Allir hrífast að
þeim manndómi og karlmennsku, sem lýst er í sög-
unni, hinni fórnfúsu ást og baráttu, þar sem allt er
lagt að veði. — Óskabók ungra stúlkna.
Kabloona
Hvíti maðurinn
Ferðasaga eftir heimsfrægan ferðalang og rithöf-
und. Kabloona hefur komið út á fjölmörgum þjóð-
tungum og hvarvetna átt geysilegum vinsældum
að fagna, enda opnar hún lesandanum nýjan og
framandi heim. — Bókin er myndum skreytt, og
vönduð í hvívetna, en þó ódýr. Tilvalin handa táp-
miklum drengjum.
Inkarnlr í Pern
I bókinni er lýst einum hinna merkilegu þjóðflokka,
sem nú eru horfnir, hinni sérkennilegu menningu
þeirra, háttu mog siðum, baráttu þeirra við hvítu
mennina og endalokum þeirra sem þjóðar. — Það er
mikill fengur í að eignast þessa bók. Þér ættuð að
skoða þessa bók þegar þér komið næst í bókabúð.
Lygn streynair Bon
Þessi heimsfræga skáldsaga er útbreiddasta og við-
urkenndasta skáldsaga frá Rússlandi byltingarinnar.
— Um hina hraustu, marglyndu, blóðheitu og syngj-
andi Donkósakka. Þessa bók má ekki vanta í neitt
heimilisbókasafn.
Þér getið valið um:
Islenzka skáldsögu í viðhafnarútgáfu.
Heimsfræga ferðasögu, vandaða, en ódýra.
Fræðandi bók handa hverjum sem er.
Eina stórbrotnustu skáldsögu síðari ára.
Fást allsstaðar ennþá.
Bókaútgáia GUÐI6NS ð. GUÐIÓNSSONAR
I I I ! I t l-I 1 1 1 1 1 I , .I-[.,l..r..t I 1
Alþýðusam-
Framh. af 1. síðu.
bandinu og verkalýðssamtökun-
um óviðkomandiH
Var hún felld með 139 atkv.
gegn 54, að viðhöfðu nafnakalli
Síðan var ályktunin sem að
framan er skráð samþykkt.
Atvinnu-
mál
og verkalýðs-
Stúdentalélagi5 75 ára
Fundur hófst í gær kl. 10 og
hafði Lúðvík Jósefsson fram-
sögu um atvinnu- og verkalýðs-
mál. Eftir töluverðar umræður
voru einróma samþykktar álykt-
anir atvinnumálanefndar um að
þingið leggi sérstaka áherzlu á
eftirfarandi:
Uppbyggingu fiskiðnaðarins
með forgöngu ríkis og bæja; að
áfram verði haldið að kaupa ný
fiskiskip eftir því sem þörf kref
ur; að hraðað sé byggingu fiski
hafna með vönduðum verbúð-
um; að ríkið byggi stórvirka
síldarsöltunarstöð; að allar síld-
arverksmiðjur landsins verði
ríkis- eða bæjareign; að land •
helgin verði stækkuð; að komið
verði á fót fullkomnum vísinda
legum rannsóknum í þágu sjáv-
arútvegsins; að ný atvinnutæki
verði staðsett þar sem hagkvæm
ast er frá þjóðhagslegu sjónar-
miði; að byggingarframkvæmdir
verði settar undir stjórn þess
opinbera; að jafnframt ýtarleg-
um rannsóknum á náttúrugæð-
um landsins verði hafizt handa
um nýtingu á fossaafli og jarð-
hita til stórvirks iðnaðar; að
stjórnarvöldum beri að tryggja
fjármagn til uppbyggingar at-
vinnuveganna.
Fræðslumál
Á fundi kl. 2 hófust umræður
um fræðslumál og hafði Sigur-
Framh. af 1. síðu.
1895 tók félagið upp alþýðu-
fræðslu sína að nýju með því
að efna til opinberra fyrirlestra
og var þeirri starfsemi síðan
haldið áfram sleitulaust fram á
þriðja tug þessarar aldar. Fyrir
lestrar þessir voru lengst af
mjög vinsælir og höfðu mikil
og merk áhrif. Með þeim fékk
alþýða Reykjavíkur tækifæri
til að kynnast flestum helztu
menntamönnum landsins og
öðlast nýja þekkingu og ný
sjónarmið. Loks má geta þess
að Stúdentafélag Reykjavíkur
safnaði fé til að láta reisa líkn
eski Jónasar Hallgrímssonar og
var það afhjúpað 16. nóv. 1907,
en það er fyrsta líkneski sem
nokkrum Islendingi hefur verið
reist.
Þótt menningarstarf stúdenta
félagsins hafi verið merkilegt
mun félagsins lengst verða
minnzt fyrir þátt þess í sjálf-
stæðisbaráttu Islendinga. Það
var eins og áður er sagt stofn
að í pólitískum tilgangi sama
árið og hin illræmdu stöðulög
voru sett. Það skipaði sér frá
upphafi í fylkingarbrjóst þeirra
manna sem báru fram kröfur
Islendinga á einarðastan hátt.
Var mönnum þá oft heitt í
hamsi. Til dæmis var stúdenta
félaginu kennt um það að 1.
apríl 1872 var dregin upp
dula á flaggstöngina fyrir fram
an landshöfðingjahúsið með á-
letruninni: „Niður með lands-
höfðingjann“, og þótti sumum
mikið hneyksli. Þáttur stúd-
entafélagsins og stúdenta í sjálf
stæðisbaráttunni var mikill og
merkilegur og verður að engu
rakinn hér. Þó má geta þess
að stúdentafélagið hafði frá upp
hafi mikil afskipti af fánamál-
inu. Árið 1873 teiknaði Sigurð-
ur Guðmundsson fána fyrir Is-
land að undirlagi stúdenta, það
var hvítur fálki á bláum
grunni. Hlaut fáni þessi miklar
vinsældir og var að lokum tek-
inn upp sem merki landsins
1903. Síðar barðist félagið ötul
lega fyrir bláhvíta fánanum.
Sjálfstæðisbaráttan við Dani
hefur verið til lykta leidd með
um það mál. Var ályktun
+ i fræðslunefndar samþykkt ein-
róma.
Giftar konur og-
skattalögin
'Katrín Thoroddsen flytur frum
varp á Alþingi um að giftum
konum, er vinna utan heimilis
síns, sé heimilt að telja fram sér-
staklega til skatts þær tekjur,
sem þær hafa af atvinnunni,
err tekjurnar nemi meiru en
svarar til 1500 kr. grunnlauna.
Var frumvarpið til 1. umræðu í
gær, og vísað til 2. umræðu og
íjárhagsnefndar.
Amerískur lögreglumaður
fýnir skammbyssu á
Laugavegi
Nýl. rakst amerísk herbifreið á
lenzka bifreið á Laugaveginum,
móts við húsið nr. 103. — Varð
nokkurt hark og læti út af at-
burði þessum og meðan íslenzk
og amerísk lögregla var að stilla
til friðar, tapaði ' einn ameríski
lögregluþjónninn skammbyssu
sinni. — Var hún ófundin þegar
síðast fréttist.
fullum sigri Islendinga. En svo
sveinn D. Kristinsson framsögu | þörmulega hefur tekizt til um
hið nýfenga sjálfstæði vort að
nú hefur nýtt ríki fengíð ítök
á Islandi og enn hafa íslenzkir
menn gerzt umboðsmehn er-
lendrar þjóðar. Ný bar'átta er
hafin, sjálfstæðisbaráttan við
Bandaríkin. I þeirri baráttu hef
ur Stúdentafélag Reykjavíkur
þegar sýnt að það á enn hinn
sama anda og fyrir þrem ald-
arfjórðungum, að baráttan fyr
ir sjálfstæði landsins er því heil
agt mál. Herstöðvasamningur
Ólafs Thors varð stúdentum
hvatning til nýrrar baráttu eins
og stöðulögin forðum. Fyrsta
þætti þeirrar baráttu lauk með
ósigri Islendinga. En saga stúd
entafélagsins mun kenna með-
limum þess að harðna við
hverja raun, kvíða engu þótt
eitt áhlaup mistakist. Afmælis-
ósk Þjóðviljans til Stúdentafé-
lags Reykjavíkur er sú, að það
megi sýna sömu einbeitni, festu
og stórhug í hinni nýju sjálf-
stæðisbaráttu og það sýndi í
baráttunni við Dani, að það
berjist af alefli þar til yfir lýk-
ur með fullum sigri hins ís-
lenzka málstaðar.
Jazzhliémleikar
Framh. af 5. síðu.
Haggart mjög skemmtilega o%
vöktu óhemju hrifningu áheyr-
enda.
Hljómsveitin er bezt í hægum
lögum „swingar“ vel milli-
„tempói“ (C. Jam Blues) en er
nokkuð hasafengin í hröðum
lögum. Hún var bezt í Blues in
my heart, C Jam Blues og
Mood for love, en verst í
Cement Mixer og Hey ba ba re
bop. Söngurinn var ákaflega leið
inlegur.
Framkoma hljómsveitarmann-
anna var skemmtileg og óþving
uð, og Featherstonhaugh endaði
hljómleikana vel með nokkrum
þakkarorðum, tók fón sinn og
klarinett, hneigði sig og fór.
Framkoma ýmsra áheyrend-
anna var aftur á móti leiðinleg
Klöpp og hróp og flaut í miðj-
um lögum á eftir sólóum og alls
konar gauragangiir, sem oft
eyðilagði byrjun á næstu sóló.
Svoleiðis hegða menn sér á
íþróttavellinum og á hnefaleika-
mótum, en ekki i hljómleikasal.
Einu sinni varð lögreglan að
skerast i leikinn, og varð af því
nokkurt stapp og rifrildisgangur
á loftinu, sem tru-flaði sóló Sev-
mours í Blues for Jaok. Þá setti
að honum óstöðvandi hlátur og
gekk á ýmsu á sviðinu. Seymour
skemmti sér áreiðanlega bezt
allra á hljómleikunum. — Fg
ætla að taka það fram að ég var
á seinni hljómleikunum á þriðiu
daginn. Sem sagt, hljómsveitin
var skemmtileg, en margir áheyr
enda voru ósköp leiðinlegir.
J. M. Á.
Trygginga- og oryggis-
mál
Þá hafði Hermann Guðmunds-
son framsögu um trygginga- og
öryggismál. Höfðu ýmsar bre.vt-
inga- og viðaukatillögur verið
felldar inn í upphaflegar till. ör-
yggismálanefndar og voru álykt
anir um þessi mál samþykktar
einróma.
Alþýðusambandið skorar
einróma á Alþingi að
fella frv. Jóh. Hafsteins
Þá hófust umræður um frv.
Jóh. Hafstein um hlutfallskosn
ingar í verkalýðsfélögin.
Var einróma samþykkt álykt-
un sem lýsir frumv. þetta ó-
skammfeilna árás á verkalýðs-
samtökin og skorar á Alþingi
1 að fella það.
Því næst hófust umræður um
fjárhagsáætlun sambandsins.
Gestir forseta íslaiids og
atvinnumálaráðherra
í dag fara fulltrúar Alþýðu-
samibandsþingsins í heimsókn að
Bessastöðum til forseta * íslands
og í kvöld sitja þeir boð atvinnu-
málaráðherra að Hótel Borg.
< UMFR
Æfingar félagsins verða sem
hér segir;
Þriðjud. kl. 19,20—20,10 frjáls
íþróttir og hand'knattleikur
karla. Kl. 20-00—20,55 ísl.
glíma.
Fimmtudaga kl. 19.20—20 10
frjálsíþróttir og handknatt-
leikur karla. Kl. 20.00—20-55
ísl. glíma.
Laugardaga kl 1945téf20.10
ísl. glíma.
Innanfélagsmót Ungmanna-
félags Reykjavíkur í frjáls-
íþróttum fer fram næstu kvöld.
Upplýsingar hjá Stefáni Run-
ólfssyni í síma 5740.