Þjóðviljinn - 07.01.1947, Blaðsíða 4
4
Þ JOÐVILJINN
Þriðjudagur, 7. janúar 1947.
þJÓDVILIINN
Útgefandi: Sameinlngarflokkur alþýöu — SósíalistaflofcKurinn
Ritstjórar: Kristinn E. Andrésson, Sigurður Guömundsson, áb.
Fréttaritstjóri: Jón Bjamason.
Ritstjóraarskrifstofur; Skólavörðust. 19. Símar 2270 og 7500
(eftir kl. 19.00 einnig 2184).
Afgreiðsla: Skólavörðustig 19, sími 2184.
Augiýsingar: Skólavörðustíg 19 simi 6399.
Prentsmiðjusími 2184.
Askriftarverð; kr. 8.00 é mánuöi. — Laususöiu 50 aurar
eint.
' Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
FiivamtÍM ára pflaia iflialdsins
Með leiðara Morgunblaðsins s. 1. sunnudag er fram-
kvæmdarhug íhaldsins rétt lýst. Blaðið kvartar undan, hve
seint gangi að mynda stjórn, og kennir þar um stefnuskrám
flokkanna, hve ýtarlegar þær séu, og býsnast mjög yfir:
Settar eru fram stefnuskrár, sem nægja myndu 50
ár fram í tímann ef framfylgja ætti út í æsar. Svo kíta
menn um hvert atriði í þessum löngu stefnu- og starfs-
skrám unz svo fer að lokum, að menn gefast upp í öllu
þessu mo!dviðri.“ (Leturbr. hér).
Hver skyldu vera þau framkvæmdaratriði, sem íhald-
inu vaxa svo átakanlega í augum ? Hvað er þetta moldviðri,
sem íhaldið sér ekki út úr?
Sósíalistar leggja til, að á næstu 5 árum verði bætt
við 25 nýjum togurum, og gætu þá landsmenn árið 1950
átt um 75 togara. Er þetta einhver fjarstæða eða þjóðinni
svo um megn, að þurfa myndi 50 ár til framkvæmda? Geta
má til samanburðar, að 1927 áttu íslendingar 48 togara, og
miðað við fólksaukningu síðan í bæjum og sjávarþorpum
væri fjölgun togaranna upp í 75 sízt úr hófi fram, heldur
skilyrðislaus nauðsyn.
Ennfremur leggja sósíalistar til, að reist séu a. m. k.
5 fiskiðjuver á næstu 5 árum. lítvegnum eru þau lífsnauð-
syn, svo að farið sé að vinna úr framleiðslunni á nýtízku
hátt fyrir erlendan markað. Ihaldinu ofbýður sá tilkostn-
aður. Samkv. Morgunblaðinu vill það fá 50 ár til að koma
þeim upp. En hvað munu slík fiskiðjuver kosta ríkið ? Einar
25—30 millj. kr., eða litlu meira en fer til vegalagninga á
einu ári.
Þannig mætti taka hvert atriði af öðru úr stefnuskrá
sósíalista. Þau eru ekki aðeins framkvæmanleg, heldur
er það einnig þjóðfélagsleg skylda að hefjast handa um
framkvæmd þeirra, því að þau leggja grundvöll að vaxandi
velmegun þjóðarinnar á næstu árum.
Framkvæmdir síðustu tveggja ára hefðu eitthvað átt
að geta kennt, jafnvel hinu stirðnaðasta afturhaldi. Tillögur
sósíalista 1944 þóttu þá býsn mikil og skýjaborgir. Þá
lögðu þeir til, að keyptir yrðu 20—30 togarar, og hefur
slíkt þegar verið gert. I ýmsum greinum hefur á þessum
tveimur árum verið jafnmiklu áorkað sem á tímum heilla
kynslóða áður. T. d. hafa verið reistar síldarverksmiðjur,
sem aukið hafa afköst úr 40 þús. málum á sólarhring upp
í 77 þús. mál, þ. e. á tveim árum hafa afköstin nærri tvö-
faldast. Sama er um skipastólinn.
En þessum framkvæmdum hefur afturhaldinu staðið
ógn af. íhaldið sundlar við slíkan straumhraða fram-
kvæmdanna. Það er ekki vant honum. Það sem eðlilegt
er að gera á 5 árum, finnst íhaldinu varla hugsanlegt á 50
árum. Og ótti þess við nýsköpunina hefur fyrir löngu
snúizt upp í f jandskap við hana og tilraunir til að stöðva
hana. Fjármagn, sem til hennar var ætlað, hefur verið
fengið heildsölum til sóunar, og hefur fjármálaráðherra
íhaldsins jafnvel gengið í móti lögum til að draga fé frá
nýsköpuninni.
Og hvað felst raunverulega í leiðara Morgunblaðsins,
þeirri íhaldshugsun, sem þar kemur fram um 50 ára planið.
L.kkert annað en óbein tillaga um að stöðva alla nýsköpun
í landinu. Framkvæmdatillögur Sósíalistaflokksins eru ein-
göngu miðaðar við það að halda nýsköpuninni áfram af
sama krafti og hingað til. Eftir hugsunarhætti Morgun-
blaðsins, sem hefur þó dag eftir dag verið að básúna ást
sína á nýsköpuninni, ætti þjóðin að leggja árar í bát, taka
'io-: r -ii: • '.T ; •■... 1' (){; : ■« »;
BÖLVAÐ KRAPIÐ
Menn bölva krapinu sem ver-
ið hefur á götum bæjarins síð-
ustu dagana; og þeir, sem voru
búnir að óska eftir snjó, dauð-
sjá eftir öllu saman, og óska
þess nú heitast, að hann hefði
aldrei komið. Já, það er gamla
sagan. Snjórinn er ekki fyrr
kominn á götur Reykjavíkur,
en hann hefur breyzt í forar-
krap. Og þetta hefur í för með
sér hina mestu raun fyrir fóta
búnað fólksins; leðurskór verða
óðara gegnsósa af vatni og jafn
vel vönduðustu skóhlífar geta
ekki haldið sokkum eigandans
þurrum, því krapið nær honum
stundum upp í ökla.
Já, menn bölva krapinu, en
fá litið að gert til að fjarlægja
það. Þeir verða að bíða þess, að
ráttúran sjái aumur á þeim
með því að bræða krapið og
veita því burtu sem rennandi
vatni. Að vísu reyna yfirvöld
bæjarins að bæta ástandið nokk
uð með því að láta moka krap-
inu á fjölförnustu götunum upp
á bíla og flytja það burt, en
þetta er seinlegt verk og krapið
heldur áfram að hrjá vegfar-
endur í stærstum hluta bæjar-
ins.
★
HVAÐ SKAL GERA?
Þegar menn verða fyrir erfið-
leikum eða óþægindum, fer í-
myndunarafl þeirra oft af stað
með miklum látum. Þeir fara
að hugsa upp ráð til að yfir-
stíga erfiðleikana og koma í veg
fyrir að óþægindin hendi þá að
nýju. Vafalaust hafa margir
hugsað um það í gær, og fyrra-
tíag, hvernig koma megi í veg
fyrir, að þetta viðurstyggilega
krap safnist fyrir á götum bæj-
arins; og trúlegt þykir mér, að
fieiri en einn liafi velt því fyrir
sér, hvort ekki mætti nota Hita-
veituna til þess arna. Taka t. d.
vatnið, sern kemur vel volgt úr
húsunum eftir að hafa hitað
ofnana og nota það til þess að
bræða krapið. En auðvitað þarf
Hitaveitan að vera í betra lagi
en núna, til þess að gagn verði
að þessu.
*
UM FRÉTTAFLUTN-
ING ÚTVARPSINS
„Áhugaskákmaður" hefur
skrifað mér, og kvartar hann
mikið undan því, að útvarpið sé
oft seint á sér með fréttir. Þann
ig segir hann að fréttir
af EM-mótinu hafi verið slæ-
lega fluttar í útvarpinu og t. d.
hafi „svo að segja hvert manns
barn á landinu vitað, að Huse-
by var orðinn Evrópumeistari
Fráhvarf
Það sem tapazt hefur á liðnu I
eða liðnum árum, skal nú fljót
iega unnið aftur, og ekki er
ráð nema í tima sé tekið, þess-
vegna hefjum réttan boðskap
með nýju ári og tilgangurinn
helgar meðalið, því þegar vér
Morgunblaðsmenn sjáum frá-
hvarf fólksins í vaxandi mæii
frá okkar góðu og gömlu
vcnjum, þá er okkur nóg boð-
ið. Við skulum t. d. hafa það
fimm dálka yfirskrift eða yfir
þvera síðu blaðsins, að
Rússar séu krafðir reiknings-
skila af Bandaríkjunum, þeir
skulda þeirn bara „hugsið y<kk-
ur“ 71.000 milljónir króna. En
þeir, sem eru í hópi fráhvarfs-
manna reikna dæmið frá byrj-
un, þá minnir að í sjálfu Morg
unblaðinu hafi staðið oftar en
einu sinni að Rússar hafi misst
7 eða 8 millj. manna í stríðinu
við að uppræta nazisma og
fasisma úr heiminum, og sú
uppræting var og er reiknuð
öllum heiminum til tekna, jafn
vel Morgunblaðsmönnum, sem
og öðrum manntegundvun. Og
mig minnir að Bandaríkjamenn
hafi haldið stranga dóma yfir
höfuðpaurunum, sem eftir
tórðu. Og mig minnir að Morg-
unblaðið talaði um þá miklu
mannmergð, sem Rússaveldi
byggði og að vesturveldin svo
kölluðu liugsuðu sér að leggja
þeim til tæki eins og hægt
væri í staðinn fyrir að þeir
legðu til menn til að sigrast á
ófreskjunni miklu í Mið-Ev-
rópu, sem losnað hafði úr
böndum. Og hvort er yfirleitt
virt meira mannslífið eða dautt
efni. Til allrar hamingju minn
ir mig Morgunblaðið stundum
segja: „komust mennirnir af“
þótt farkosur færist.
En kannski er mannslífið
rússneska minna virði hjá
Morgunblaðinu heldur en ame-
rískar vélar og tæki, og skyldi
það nú ekki einmitt vera til-
fellið hjá Mogga mínum. Oft
gumar hann meira af tilbún-
um tækjum og vélum hjá
Bandaríkjamönnum heldur en
upp gamla íhaldssleifarlagið og vera alltaf á eftir timanum.
Eða hvaða nýsköpun væri það að ætla þjóðinni 50 ár til
að kaupa 25 togara og að reisa 5 fiskiðjuver. Slíkt væri
ekki nýsköpun, heldur atvinnustöðvun, f jandskapur við alla
nýsköpun, allan framkvæmdahraða.
Morgunblaðið hefur varla gert íhaldinu mikinn greiða
með því að ljósta þannig upp um innræti þess. Aiþýða lands-
ins mun hafna 50 ára plani þess. Hún mun ekki leggja
árar í bát, ekki stökkva frá nýsköpuninni, heldur aðhyllast
tillögur sósíalista um djarfar og hraðar framkvæmdir.
í kúluvarpi áður en útvarpið
kom með fréttina." Og nú segir
bréfritarinn, að sama sagan sé
að endurtaka sig í sambandi
við skákmótið í Hastings. Hann
heldur því fram, að ekki hafi
verið minnzt á þetta mót, fyrr
er, búið var að tefla 5. umferð-
ina. Eg hef ekki fylgzt nógu
vel með þessum málum til að
geta noklcuð um það sagt, hvort
þessar fullyrðingar eru sannleik
anum samkvæmar eða ekki. En
ef enginn fótur er fyrir þessu,
þá mun ég auðvitað fúslega
birta leiðréttingu, ef fréttastofa
útvarpsins telur ástæðu tii að
bera hana fx-am.
¥
MISSKILIÐ
HLUTVERK
Þá hef ég fengið eitt skamm-
abréfið enn. Það er frá „Y.
Kl.“, sem segir, að ég misskilji
hlutverk mitt, þegar ég noti
þessa dálka til að.rífast um list
og annað slíkt, sem ekkert
komi bæjarlífinu við. Slíkar um
ræður eigi heima á öðrum stöð-
um í blaðinu. Mitt hlutverk sé
aðeins það, að hafa gætur á
bæjarlífinu og vekja athygli á
kostum þess og löstum.
Eg vil svara þessum manni
því, að ég mun eftir sem áður
ræða um það, sem er efst í huga
mér í það og -það skiptið, og
ég ætla alls ekki að einskorða
skrif mín nákvæmlega við það,
sem snertir lifið í bænum okkar,
þótt slíkt efni hljóti auðvitað
að vei'a aðalefni þessara dálka.
Og eins og listin komi ekki bæj-
arlífinu við?
því, hvernig kjörum þeirra,
sem framleiða þau sé háttað.
Þið fráhverfsmenn skuluð nú
samt ekki lialda að það, sem
Morgunblaðið segir, vaki bein-
linis fyrir því, nei, oftast er
bara komist klaufálega eða al
veg skakkt að orði.
Morgunbl. meinar það t. ö.
bókstaflega þegar það segir
ykkur í einlægni að varast
hættuna í austri, en trúa held-
ur á það sem í vestrinu býr,
það vilji ýkkur þó alltaf vel,
þrátt fyrir mestan þátt ausr-
ursins í að eyða nazisma- og
fasisma- skrímslinu.
Nei, reymslan er ólygnust og
það er hún sem er að gagn-
taka æ fleiri og fleiri og þakka
má það í mörgum tilfellum lyg-
um Moggans í garð þess nýja,
sem fólkið flyklcist til.
Á fimmtu síðu Moggans í
dag er sagt að kommúnisminn
nái aldrei neinum völdum í
menningarlöndum. Er ísland
þá svona menningarsnautt að
dómi Moggans að *4 hluti Al—
þingis skuli vera skipaður rót-
tækum sósíalistum? Nei, enn
er Mogginn að ljúga, lesandi
sæll, og oftast gegn betri vit-
und. Hann veit að vaxandi
menntun hefur í för með sér'
vaxandi sósíalisma, því annars
væri til lítils að læra, ef menn
tækju upp á því að starfa í
berhögg við það sem námið
fiytur þeim. í hverju landi eru
það einmitt menntamennirnir
fyrst og fremst, sem standa
með verkalýðnum, og þetta veit
meira að segja Mogginn sjálf-
ur. En það er ekkext undarlegt
þótt Mogganum finnist þeir
apar, sem fá opin augu fyrir
sannleikanum, og að þar hafi
Framh. á 7. síðit