Þjóðviljinn - 07.01.1947, Blaðsíða 6
Þ JOÐVIL JINN
Þriðjudagur, 7. janúar 1947.
€
•fr-H i I ^,r.r.I.-NHH-H"H-H-H"H"Fl"I"I"H"H-H-**-H"H"H-H"H-*»g»|r^^^g^
J ¥imbílstjóraSé!agið ÞRÖTTUR
heldur
í!
j
Jólatrésskemmtun
;; í Tjarnarcafé laugardaginn 11. janúar kl. 3,30 e. h. ;;
Dansleikur
fyrir fullorðna hefst kl. 10 e. h. — Aðgöngumiðar
seldir í stöðinni.
Skemmtinefndin.
SAGAN UM GOTTLOB
Tilkynning
rá Isiendingasagnaáfgáfunni
Næstu kvöld verða Islendingasögurnar bornar til
j; þeirra áskrifenda, sem ekki hafa sótt þær.
Áskrifendur geta þó enn vitjað bóka sinna í Bóka-
4 verzlun Finns Einarssonar, Austurstræti 1.
Sparið yður útgjöld og okkur fyrirhöfn. Sækið
bækumar í Bókaverzlun Finns Einarssonar.
íslendingasagnaútgáfan. ::
Bókhald - Bréfaskriflir
Garðastræti 2. — Sími 7411.
BÓKHALD, bréfaskriftir á dönsku, ensku, frönsku,
þýzku. — Fjölritun, vélritun.
Ennfremur þýðingar á verzlunarbréfum úr ítölsku
og spönsku. — Löggiltar skjalaþýðingar á ensku.
■H„ FPFH-H-H-H-H-F4-H-H--H-H-H-W-H-H-I-H-H-I--H-H--H-1-+*
OSS VANTAR
nskkrar stúlkur til að gegna ílugfreyjustörf-
um í flugvélum vorum.
Lágmarkskröfur umsækjenda, sem hér segir:
Aldur: 18 til 25 ára.
Menntun: próf frá gagnfræðaskóla eða hlið-
stæðum skóla. Nokkur kunnátta í ensku og
dönsku.
Góð framkoma.
Væntanlegir umsækjendur komi til viðtals í skrif-
stofu vora í Lækjargötu 4, kl. 4—5 fimmtudag 9.
þessa mánaðar.
Engar upplýsingar gefnar í síma.
Flugfélag Islands.
j-H"H"l-FPI":";"I--H"H"H-l*-H-*-H"H"H"H"H"b**-H--H-H-:-*-H"Hh
— Já, í því er ég sammála
Erlköning, að hann varð áreið-
anlega fyrir slysi. Við skulum
ekki láta það hafa of mikil áhrif
á okkur.
— Nei, segir Elsa, ég held
meira að segja að það sé eitt-
hvað ennþá saklausara. Herra
Hanssen var dálítið skotinn í
mér, hann bað mín eins og geng
ur og gerist — já, mjög nýlega.
Svo komst hann að því, að þetta
var ekki framkvæmanlegt — og
þá fór hann vitanlega leiðar
sinnar.
— Eintóm nærgætni sem
sagt? En hvað þá með hattinn
og myndavélina.
— Hann kemur og sækir það,
þið megið reiða ykkur á það.
Annars gætum við komið því
á hótelið, þar sem hann býr.
—Nei, nú er klukkan orðin
hálf níu, við verðum að fara að
komast af stað. Enda þótt heim
urinn tortímist verðum við að
útvega okkur einhverja aura
fyrir mat.
Anna ætlar á skrifstofuna.
Hún er sú eina, sem hefur fasta
stöðu, skrifstofustúlka hjá kaffi
bætisfyrirtækinu Fuchs & Syn,
Sagha og Andrés í leikhúsið.
Páll ætlar á fund og Brúnó á
ritstjórnarskrifstofu með smá-
grein. Erlköning fer.
— Eg þarf að halda áfram
út að Mótól, lít ka.nnski inn
seinni partinn. Annars ættu þið
að vera vör um ykkur. Tékkn-
eska lögreglan er starfsöm
núna, og ég hef fengið skipan-
ir um að hafa auga með ykk-
ur. — Nei, veit ekki neitt ná-
kvæmlega.
Elsa sest við ritvélina, hin
fara í yfirhafnirnar.
— Gott veður í dag, segir
Páll.
Elsa lýtur undrandi yfir vals-
inn, áður en hún setur pappír-
inn í. Stendur hálfvegis upp af
stólnum og stingur andlitinu
alveg niður í vélina.
— Er eitthvað að ? spyr
Andrés.
— Nei — það er aðeins. .. .
Andrés beygir sig yfir hana
og horfir líka. Hann vill alltaf
líta út sem vélameistari, þegar
ritvélin á í hlut.
— Nei, hver skrattinn. Hvað
er þetta nú eiginlega. Sjáðu.
Hinir koma nú á vettvang og
horfa á vélina.
— Er eitthvað að ?
Andrés bendir á valsinn.
— Já, hvað er þetta?
— Getið þið ekki lesið, hvað
stendur þarna?
Á valsinn eru skrifuð nokk-
ur orð.
f jarlægja verður því viðkomandi
samstundis, liann situr ineð uppl
— Þetta er augljóst, hrópar
Andrés ofan í vélina.
— Hvað er augljóst? spyr
Elsa. Afritspappírinn hefur ver
ið rifinn, og þess vegna hefur
þetta komið rétt á valsinn.
— Já, en orðin.
— Jæja, jæja, taktu þessu nú
rólega, segir Páll. Stilltu þig
um að öskra svona. Þú sérð
drauga og forynjur.hvar sem
þú lítur. Þetta er sjálfsagt eitt
af skáldverkum Antoníusar, er
það ekki, leyndarráð ?
— Lofaðu mér að sjá, lof-
aðu mér að sjá. Hm, nei, það
er ekki ég, sem hef skrifað
þetta.
— Það eru svikarar meðal
okkar, segir Andrés hátíðlega.
—Æ, haltu kjafti. Þú ert alltaf
svo hátíðlegur. Eg býst ekki við
að nokkur taki afrit af uppljóst
ursbréfi. Og þú álítur vonandi
ekki, að einhver af okkur sé
n jósnari ?
— Ja, hver hefur þá skrifað
þetta ?
Ilann horfir í kringum sig.
Enginn svarar. Hann lítur á
Elsu. Hún ypptir öxlum. Á
Önnu. Hún hristir höfuðið. Hið
sama gera allir aðrir.
— Þetta getur vel verið búið
að standa þarna lengi.
- Nei, það er óhugsandi. Eg
sá sjálfur, þegar Anna þvoði
valsinn í gær. Var það ekki?
Hún kinkar kolli.
Þau horfa dálítið hikandi
hvert á annað.
— En eitthvert okkar hlýtur
að hafa skrifað þetta. Ertu
viss um, að þetta hafi ekki get-
að farið fram hjá þér, Anna?
þegar þú þvoðir valsinn?
— Vitanlega er hún viss um
það, svaraði Andrés fyrir hana.
Eg horfði á, hvað hún gerði
það vanalega.
Þau steinþegja andartak. Síð-
an segir Páll:
— En hvernig skiljið þið
þetta? — Fjarlægja verður því
viðkomandi samstundis, hann
situr með uppl — ritað á ung-
versku.
— Þetta er alveg augljóst,
hrópar Andrés. Við höfum svik
ara hér meðal okkar, hann hef-
ur komizt að einhverju, og það
á að nema eitthvert okkar á
brott nákvæmlega á sama hátt
og Denísu.
— En drottinn minn, það er
ekki tekið afrit af þess konar
bréfum. Og ■— ef þetta væri eitt
hvert okkar — þá mundu ekki
slík bréf vera skrifuð heima.
Það hlyti að vera altof mikil
áhætta — ef þetta, sem þú segir
er á annað borð hugsanlegt.
— Tíminn getur hafa verið
naumur. Bréfið þurft að afhend-
ast strax í gær. Og með afritið
— jú, nú veit ég það: Bréfritar-
inn vitanlega ætlað sér að nota
afritið, en eyðilagt frumritið.
Það er miklu erfiðara að þekkja
ritvélaletur á afriti en frumriti.
— Þetta er nú fjandi undar-
legt. Við skulum hugsa um
þetta, öll saman. Hefur ekkert
okkar skrifað neitt í þessa átt?
Ef ekki í gær, þá kannski ein-
hvern tíma áður. Þetta getur
hafa orðið eftir, þegar valsinn
var þveginn.
— Öhugsandi. Það er alger-
lega óhugsandi eins og ég hef
sagt.
Andrés er rauður í framan og
næstum því ógnandi á svipinn.
Hin horfa hvert á annað.Vit-
und föl.
Nú hafa þessar sex manneskj
ur haldið saman í mörg ár, í
blíðu og stríðu og margs konar
raunum. Þau þekkja hvert ann-
að út í yztu æsar. Skaplyndi og
fortíð. Og svo ætti eitt þeirra
að vera svikari, útsendur frá
óvinunum, reiðubúinn að steypa
hinum í glötun.
Þetta er ákaflega ósennilegt.
Brúnó sezt niður og er þreytu
legur.
—■ Við verðum að fá þetta
upplýst.
Hin setjast einnig niður. Páll
gengur á ný að ritvélinni og
rannsakar skriftina.
:— Útlitið er ekki gott, segir
hann. Við verðum að taka þetta
til náinnar athugunar.
— Já, nú verð ég að fara, seg
ir Anna.
— Nei, þú verður að vera
kyrr á meðan.
— Nei, ég verð að komast á
skrifstofuna. Þið getið upplýst
þetta án mín.
— Þú verður hér kyrr, segi
ég. Enginn má fara.
— Kannski þú grunir mig,
konuna þína.
— Þig ekki síður en okkur
hin. Þú mátt að minnsta kosti
til með að vera kyrr.
— Anna sezt niður, reið.
— Munið þið eftir sögu Chest
ertons, byrjar Brúnó, en Páll
grípur fram í fyrir honucm:
— Hvenær var það í gær,
sem þú þvoðir valsinn?
•—• Um klukkan fjögur. Eftir
að ég hafði skrifað nokkra við
skiptareikninga.
— Og hvað gerðirðu svo?
— Ef þú grunar mig, þá
skjátlast þér. Svo fór ég ofan
í borgina. 1 kvikmyndahús.
— í kvikmyndahús. Já, ein-
mitt.
— Er þetta grunsamlegt?
— Þegiðu. Á meðan er húsið
sem sagt mannlaust. Hver kom
fyrst heim?
— Eg, svarar Elsa. I fylgd
með Norðmanninum. Það hefur
líklega verið um klukkan sjö.
— Voru dyrnar læstar þá?
— Við skulum sjá; já, þær
voru það.
— Og þess sáust engin merki,
að einhver ókunnugur hefði ver
ið á ferli?
— Ekki tók ég eftir því.
— Notaðirðu ritvélina?
— Nei.
— Var Norðmaðurinn hér
tímann ?
-— Já — það er að segja nei.
Hann skauzt niður í Korsíku
til þess að kaupa salamí.
•— Varstu þá ein á meðan?
— Já, í hér um bil tíu mínút-
ur.
— Sem sagt tveir möguleikar,
fullyrti Andrés.
-— Nú ættir þú að reyna að
skammast þín og halda kjafti,
Andrés. Notaði nokkur annar
ritvélina í gær ?
— Eg skrifaði á póstkort,
segir Sagha. Annars er ég ekki
búinn að senda þau ennþá. Er
með þau hér.
— Eg byrjaði líka á því að
skrifa dálítið, bætir Brúnó við.
Eg hef það líka hérna. Það
urðu aldrei nema nokkur orð.
Hann les upphátt:
Kon-fut-se scgir á einum stað,
að einungis mestu vitringarnir
og heimskustu asnarnir taki
eingum breytingum........
— Nei, hættu nú þessu. Við
höfum engan áhuga á ritsmíð-
um þínum þessa stundina.