Þjóðviljinn - 01.02.1947, Side 8
/
Frá Skógræktaxfélagi Reykjavíkur:
Tvesiiit aðkailandi: Fjáröflim
Éfl verklegra framkvæmdii eg
ráílsilisg ^íarf sm. í Fossvogsst.
Aiika-aðalfundur var haldiun í Skógræktarfélagi Reykja-
víkur í Félagsheimili Verzlunarmanna miðvikudaginn 29.
janúar.
Fyrir fundinum lá tillaga frá félagsstjórninni um liækk-
un meðlimagjalda úr 10 upp í 20 krónur fyrir ársfélaga og
200 upp í 400 krónur fyrir æfifélaga og var hækkunin sam-
þykkt með samhijóða atkvæðum fundarmanna.
Skógræktarfélag Reykja-
in starfsemi í Fossvogsstöð-
inni, aukning á plöntuupp-
víkur var stofnað 24. október
sl. um leið og skipulagsbreyt
ing var gerð á Skógræktar-
félagi íslands, er bað var gert
að hreinu sambandsfélagi
héraðsskógræktarfélaga í
landinu.
Leiddi af þeirri skipulags-
breytingu, að stofna þurfti
héraðsskógræktarfélag í Rvík
og annað í Hafnarfirði og eru
því Reykvíkingar sem áður
voru meðlimir í Skógræktar-
félagi íslands nú meðlimir í
Skógræktarfélagi Reykjavík
ur (en jafnframt að vísu
meðlimir í Skógræktarfélagi
Íslands, með því að Skógrækt
arfélag Reykjavíkur er innan
vébanda Skógræktarfélags Is
lands).
Ennfremur leiddi af skipu-
lagsbreytingunni verkaskipt-
ing, þannig að Skógræktar-
félag íslands sem undanfarið
hefur haft með höndurn verk
legar framkvæmdir í skóg-
rækt á landi skógræktarfé-
lagsins í Fossvogi, og hefur
ennfremur nokkur undanfar
in ár haft umráðarétt yfir
skógræktargirðingunni við
Rauðavatn, mun nú láta af
verklegum framkvæmdum,
en Skógræktarfélag Reykja-
víkur tekur nú við bæði Foss
vogsstöðinni og Rauðavatns-
stöðinni.
Hin nýkjörna stjórn hefur
mikinn áhuga á því, að láta
nú siá á næstu árum, að
stofnað hefur verið sérstakt
skógræktarfélag fyrir Reykia
vík. og eftir að samþykkt
hafði verið tillaga um hækk-
un meðlimagjaldanna, gaf for
maður- félagsins fundinum
stutta skýrslu um fyrirætl-
anir stjórnarinnar-
Efst á stefnuskránni er auk
Klukkan 10.15 í gærmorgun
varð árekstur milli jeppa-bif-
reiðarinnar P-108 og strætis-
vagnsins R-978, á gatnamótum
Suðurgötu og Skothúsvegar.
Skemmclust báðar bifreiðarnar
mikið.
Jeppa-bifreiðin kom austan
Skotln'isveg og ætiaði að beygja
norður Suðurgötu, en í sama
bili kom strætisvagn norðan
Suðurgötu og rákust þeir sam-
an þarna á gatnamótunum.
Miklar skemmdir urðu á báð
um bifreiðunum, sérstaklega
jeppa-bifreiðinni, en engin
tneiðsli á mönnum.
eldi og aukin og bætt rækt-
un á landinu, en fyrsta spor
ið í þá átt er framræsla, sem
að sjálfsögðu kostar töluvert
mikið fé.
Tvennt er nú aðkallandi.
sagði formaður, til þess að
Framh- á 6. síðu
•-------------------------•
Á nú að hlaupa frá
öllum hröfum?
Hermann Jónasson sagði í
umræðum á Alþingi um bún
aðarmálasjóð, að Framsókn-
arflokkurinn gengi aldrei inn
í neina ríkisstjórn, nema
lögunum um búnaðarmála-
sjóð væri breytt í samræmi
við kröfur Framsóknarflokks-
ins.
Það skyldu þó ekki eiga að
verða efndirnar á þessum orð
um Hermanns, sem öðrum
digurmælum Tímamanna, að
hlaupið verði frá öllum kröf
um flokksins, vegna þess að
Vilhjálmur Þór og Jón
Árnason heimta stjórnarsam-
vinnu við heildsalavaldið
hvað sem það kostar?
■ n s # e«
4--------------------------«
S.I.B.S.-flugvélin til
sýnis í dag
í kvöld verður dregið í
happdrætti S.Í-B.S. um flug-
vélina, 'hina glæsilegu og
margumtöluðu. Happdrættis-
miðar verða seldir eittbvað
frameftir deginum, en nú eru
líka allra síðustu forvöð að
kaupa þá.
Stjórn S.Í.B.S. hefur ákveð
ið að gefa nú bæjarbúum
tækifæri til að skoða flug-
vélina gaumgæfilega og verð
ur hún til sýnis við höfnina
milli Ingólfsgarðs og Björns-
bryggju eftir kl. 1.30 í dag-
Bandaríkin vilja kaupa
Grænland
Framh. af 1. síðu.
Bandaríska blaðið ,,News
week“ segir nýlega, að er
Rasmussen var á þingi SÞ í
New York í vetur, hafi
Byrnes, þáv. utanríkisráð-
herra Bandarikjanna, engin
loforð viljað gefa honum, um
að Bandaríkjamenn myndn
uppfylla ákvæði Grænlands-
saimningsins um að fara á
brott með lið sitt frá Græn-
landi.
Tónlistarsýningin:
llagrn* Islands
I dag veröa eingöngu flutt
verk eftir íslenzka höfunda
á tónlistarsýningunni, og í
kvöld veröa almennar umrœð
ur um listmál:
12.30 Verk eftir Björgvin Guð-
mundsson o. fl.
14.00 Verk eftir Árna Björns-
I son; Hallgrím Helgason og
Helga Pálsson.
15.00 Lög eftir Jónas Helgason
Helga Helgason, Sveinbjörn
Sveinbjörnsson og Bjarna
Þorsteinsson.
16.00 Lög eftir Sigfús Einarsson,
; Jón Laxdal, ísólf Pálsson, Sig
valda Kaldalóns, Sigurð Þórð
arson og Árna Thorsteinson.
17.30 Verk eftir Jón Leifs.
18.00 Verk eftir Pál ísólfsson,
Karl O. Runólfsson, Þórarinn
Guðmundsson og Emil Thor-
oddsen.
18.45 Elsa Sigfúss og Stefán ís-
lendi-ngur syngja.
19.30 Lúðrasveit Reykjavíkur
leikur islenzk lög (á Austur-
velli ef veður leyfir, annars í
skálanum).
20.45 Karlakórinn „Fóstbræðux“
syngja. Jón Leifs talar um
þjóðlög og rím. Tónleikar og
upplestrar íslenzkra lista-
manna. Almennar umræður
um listmál.
Deginum er ætlað að sýna á-
grip íslenzkra tónsmíða. Minnst
af því sem íslenzk tónskáld
hafa samið er til á plötum. —
Menn verða því að láta sér
nægja að sjá sýnishorn hand-
rita, skrár tónverka og allskon
ar greinargerðir. Reynt verður
að vanda sem mest til dagskrár
kvöldsins, — seinustu kvölddag-
skrár sýningarinnar. Undirbún-
ingux er hafinn að almennum
umræðum um listmál á íslandi.
Nýtt efni hefur tónlistarsýn-
ingunni borizt frá Noregi (með
flugvél) og frá Svíþjóð (með
Lagarfossi). — Verður það að
líkmdum komið upp í dag eða
á morgun.
Búnaðarritið birtir fár-
ániega grein eftir Jón
H. Þorbergsson
Nýútkomið Búnaðarrit birtir
furðulega grein eftir Jón H.
Þorbergsson bónda á Laxa-
mýri. Hún nefnist: ,,Er land-
búnaðurinn stórhættulegur fyr
ir þjóðina“, og segir í upphafi
I hennar, að Brynjólfur Bjarna-
son, menntamálaráðherra, hafi
komizt svo aö orði í umræðum
um fjárlögin fyrir síðastliðið
ár, að landbunaður hér á
landi sé „stórliættulegur fyrir
þjóðina.“ Út af þessari fárán-
legu staðhæfingu, sem auðvit-
að hefur ekki við minnstu rök
að styðjast, er síðan spunnin
árásargrein á menntamálaráð-
herra, og blessaður bóndinn
tekur sér fyrir hendur að af-
sanna, að ein aðalatvinnugrein
landsmanna sé stórhættuleg
fyrir þjóðina(!!)
Það er að vísu ekki furða, þó
að til séu einstaka fáráðlingar
í fjölmennri stétt, en að Bún-
aðarritið skuli láta sér sæma
að birta annan eins þvætting
og þessa grein Jóns H. Þor-
bergssonar er stórfurða.
I
Framlag IsSands Éll hjálpar-
sÉnfneinar sameiimdu þfeeel-
aeieea nm 10 mlllj. kr.
Island var, eins og kunnugt er, meðal stofnenda hjálp-
ar- og endurreisnarstofnunar hinna sameinuðu þjóða —
UNNRRA —.
Á stofnþingi UNRRA í desember 1943 var samþykkt
ályktun þess efnis, að skora á ríkisstjómir þeirra þjóða,
sem að stofnuninni stæðu, að þær greiddu framlag til
UNRRA, sem næmi 1% af þjóðartekjum lilutaðeigandi
lands fyrir tímabilið 30. júní 1942 til jafnlengdar 1943.
Þar sem ekki eru til skýrsl-
ur um þjóðartekjur íslands
fyrir greint tímabil var ákveð-
ið að miða framlag Islands við
þjóðartekjur ársins 1942. —
Þjóðartekjur Islands árið 1942
námu kr. 546.340.000,00, en
samkvæmt því yrði framlag ís-
lands til UNRRA samtals kr.
5.463.400,00.
Á þingi UNRRA sem haldið
var í London í ágúst 1945, var
skorað á ríki þau, sem að
UNRRA stæðu, að greiða stofn
uninni viðbótarframlag er
næmi sömu upphæð og fram-
lag það sem lagt var til í upp-
hafi að hvert ríki greiddi stofn-
uninni.
Af hálfu íslands var ákveð-
ið að viðbótarframlag þetta
♦------------------------♦
Járnsmiðir fá lagiær-
ingar á samningnm
Uppsagnarfrestur á samning
um Félags járniðnaðarmanna
var útrunninn í gærkvöld. —
Járnsmiðir fóru fram á ýms-
ar lagfæringar á samning-
um og náðist samkomulag
milli félagsins og meistar-
anna um þær Iagfæringar.
♦ •-----------------------♦
Tundurdwfi
rehur víða
um land
Þrátt fyrir hreinsun á tund-
urduflabeltum eru enn tölu-
verð brögð að því, að dufl reki
hér á Iand og hafa Skipaútgerð
ríkisins nýlega borizt skýrslur
uin eftirgreind dufl:
1. Gerð óvirk af Haraldi
Guðjónssyni, Reykjavík. Eitt í
Vestmannaeyjum 12. f. m. og
annað á Reykhólsfjöru í Skaga
firði 25. þ. m.
2. Gerð óvirk af Skarphéðni
Gíslasyni, Hornafirði. Eitt á
Viðboðsfjöru 20. f. m., annað
á Flateyjarfjöru 8. þ. m. og
þriðja á Skálafellsfjöru 10. þ.
m.
3. Gerð óvirk af Helga Ei-
ríkssyni, Fossi, Vestur-Skafta-
fellssýslu. Eitt á Kálfafells-
fjöru 13. f. m. og annað á
Núpsstaðarfjöru 15. f. m.
Allt voru þetta segulmögnuð
tundurdufl. Þá eru fréttir af
nokkrum duflum, sem rekið
hafa á Austurlandi, einkum
norðan til, og hefur verið starf
að að því að undanförnu að
gera þau óvirk, en skýrslur um
þetta eru enn ókomnar tii
Skipaútgerðar ríkisins.
skyldi greitt með sendingu ull
ar til UNRRA, alls 6250 böll-
um, en verð þeirra var talið
samsvara um 600 þús. dollur-
um eða tæplega 4 millj. ísl. kr.
Auk ullarframlagsins hefur
Island greitt hjálparstofnun-
inni framlag sem svarar 794.
055,94 dollurum, og ennfremur
í reksturskostnað stofnunar-
innar frá upphafi 20.000,00
dollara.
Samkv. þessu hefur heildar-
framlag það sem ísland hefur
greitt UNRRA numið 1414.055,
94 dollara eða sem svarar tæp-
lega 10 millj. ísl. króna, og
verður því að telja, að Island
hafi fyllilega fullnægt skyldum
þeim, sem það tók á sig með
því að gerast aðili að alþjóða-
stofnun þessari.
Til fróðleiks má geta þess, að
ísland var fyrsta , ríkið sem
innti af hendi framlag til fram-
kvæmda hjálparstofnunarinn-
ar.
(Tilkynning frá utanrík
isráðuneytinu).
Dauðasiys á
Siglufirði
Það slys varð á Siglufirði s. 1.
miðvikudagskvöld, að maður að
nafni Ólafur Vilhjálmsson, hrap
aði i stiga og beið bana.
Slys þetta vildi til í Gildaskál
anmn á Siglufirði og er það í
annað sinni að dauðaslys hlýzt
af að maður fellur úr þessum
sama stiga.
Það var Jón Björnsson stúd-
ent er fórst á sama hátt fyrir
nokkrum árum síðan. Ólafur
lætur eftir sig konu og ung
börn.
!§kj aMstFgMisf.se
ÁrneaMias
Þrítugasta og fiimmta
skjaldarglíma Ármanns er í
kvöld í Tripolileikhúsinu á
Melunum.
Keppendur eru 12 frá 4 fé-
lögum: Ármanni og ung-
j mennafélögunum Hvöt,
jVöku og Ingólfi.
Þetta er 6. skjöldurinn
sem keppt er um og var
keppt um þenna skjöld fyrst
í fyrra og vann Guðmundur
Ágústsson hann. — í 34 ár
hefur skjaldarglíma Ármanns
hitað Reykvíkingum og svo
mun og verða í kvöld.