Þjóðviljinn - 01.06.1947, Page 4
4
Þ J ÓÐ VJLJINN
Sunnudgaur 1. júni 1947
þlÓÐVILJIHN1
L
Útgefandi: Sameiningarflokknr alþýðu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson, áb.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Ritstjórnarskrifstofur: Skólavörðust. 19. Símar 2270 og 7500
(eftir kl. 19.00 einnig 2184).
Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, sími 2184.
Auglýsingar: Skólavörðustíg 19, sími 6399.
Prentsmiðjusími 2184.
Áskrií'tarverð: kr. 8.00 á mánuði. — Lausasöluverð 50 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
i
Síðustu árin hefur afstaða alþjóðar til siávarútvegsins
gerbreytzt, með hinni miklu nýsköpun í þessum undir-
stöðuatvinnuvegi Islendinga hefur sjávarútvegurinn nálg-
ast þann heiðurssess, sem honum ber meðal atvinnuvega
Islendinga.
Enn vantar mikið á, að þessi skilningur á gildi sjómanna-
stéttarinnar fyrir þjóðlífið allt sá viðurkenndur, enn vant-
ar mikið á að sjómannadagurinn sé sá há'tíðisdagur þjóð-
arinnar allrar, sem dagur sjómanna ætti að vera. Það er
enn fjarri því að sjómenn geti sjálfir notið dagsins eins
og skyldi, notið hans sem hátíðisdags. I undirbúningi þessa
tíunda sjómannadags hefur þótt nauðsynlegt að birta sér-
staka áskorun til skipstjóra, að þeir reyndu að hafa ákip
sitt í höfn þennan dag, stjórnendur hátíðahaldanna hafa
ekki verið alveg óttalausir um að flestir starfandi sjó-
menn kynnu að vera á bak og burt, bundnir við vinnu sína
þennan dag eins og svo marga aðra hátíðis- og frídaga
landfólksins.
Togarar nýsköpunarinnar sigla nú í höfn einn af öðr-
um og verður svo allt þetta ár. Lífsskilyrði hins stór-
aukna flota, og þar með þjóðarinnar allrar, er að hér eftir
sem hingað til fáist nægilegur f jöldi ungra, hraustra manna
til starfs á flotanum, manna, sem gera sér sjómennsku að
ævistarfi. Á þessu mikla vandamáli er gripið vettlingatök-
BÆJARPÖSTIRINN
— ^[njnn ••
ÚKVALSLIÐIÐ
Margir eru óánægðir með
skipan úrvalsliðsins, sem á að
keppa við Bretana, enda varla
við öðru að búast. Knattspyrn-
an skiptir mönnum í marga
illsættanlega fiokka. Sumir
fylgja þessu félagi skilyrðis-
laust að málum, aðrir hinu, og
livorir um sig telja liðsmenn
síns félags eina verðuga þess
að fá að spreyta sig á að setja
jnark hjá Bretanum. Hér í
bænum eru starfandi fjögur
knattspj’rnufélög, og hverju
þeirra fylgir ákveðinn nópur á-
hugamanna. Það er erfitt að
gera öllum þessum andstæðu
hópum til hæfis. Þeir sem velja
menn í úrvalsliðið komast ekki
hjá því að móðga fleiri eða
færri áhugamenn, með því að
ganga framhjá uppáhaldsknatt-
spyrnumanni þeirra. Við eigum
marga ágæta knattspyrnumenn,
en í úrvalsliði er ekki pláss fyr-
ir fleiri en 11.
¥
ÓÞARFLEGA DAUFT
HLJÓÐIÐ I MÖNNUM
Það er ekki ástæða til þess
strax að bölsótast yfir úrvals-
liðinu. Við skulum sjá, hvern-
ig strákarnir standa sig á þriðju
daginn kemur, og ef frami-
staðan verður mjög léleg, höf-
um við fullan rétt til að lileypa
okkur í æsing og ’neimta breyt-
lingar á liðlnu; ákveðna menn
! út, og nýja menn (að okkar
dómi betri menn) inn í staoinn.
Annars finnst mér óþarflega
d|iuft hljóðið í mönnum yfir-
leitt, þegar þeir tala um þessa
kappleiki við Bi’etana. „Eg er
hræddur um, að okkar menn
fái aldeilis ógurlegt rótar-
burst“, þetta er viðkvæðið. Eg
geri allt eins ráð fyrir því, að
sti’ákarnir standi sig bara vel.
Að vísu hefur framistaðan hjá
þeim ekki verið glæsileg í vor.
En þeir hafa oft komið mönn-
um á óvart, og hví skyldu þeir
ekki alveg eins gera það nú’?
Við megum ekki gleyma því, að
ef við sýnum þeim vantraust,
drögum við úr þeim kjarkinn
og sigurviljann, en með því að
sýna þeim traust, veitum við
þeim hinsvegar mói’alskan
stuðning.
¥
ALLI GUÐMUNDS
En það er eitt, sem öðru frem
ur vekur athygli í sambandi
við úrvalsliðið. Alberts Guð-
mundssonar er þar hvergi getið.
„Hvað er að Alla?“ spyrja menn
og vilja fá skýringu. Eg hef
gi’ennslast eftir þessu hjá
nokkrum áhrifamönnum um
knattspyrnumál, en þeir hrista
höfuðið og færast undan að
svara. Það lítur sannarlega út
fyrir, að hér séu „uglur í mýr-
inni“, eins og þar stendur. Alli
Guðmunds er almennt talinn
okkar leiknasti knattspyrnu-
maður, en hann er ekki með í
úrvalsliði, sem keppa á við út-
lenda knattspyrnusnillinga! Eft
ir því sem ég bezt veit,' liggur
sökin ekki hjá þeim sem völdu
í úrvalsliðið, og berast þá bönd
in að Alla sjálfum.
¥
„SPORTSMANSHIP"
Einhver hvíslaði því að mér,
j að Alli ætti það til að móðgast
yfir smámunum, jafnvel hætta
af þeim sökum við þátttöku í
kappleik á seinustu stundu. En
ég á bágt með að trúa þessu.
Slíkt og þvílíkt hefur hann að
minnsta kosti tæplega lært hjá
þeirri þjóð, sem kvað hafa orð-
ið ,,sportmanship“ í hávegum.
Vonandi fæst einhver til að gefa
skýringu á þessu og bezt væri,
að það yrði Alli sjálfur.
Einnig vekur það athygli, að
Siggi Óla er ekki í úrvalsliðinu,
en skýringin á því er sú, að
hann er veikur. Annars var víst
ætlunin að hann yrði fyrirliði
á Vellinum.
Þlngsályktunartillaga itin
kyggingsi uppeldisheisatilis
nefndir ekki að standa ráðþrota
við að bjarga unglingum, sem
ekki var hægt að bjarga vegna
skorts á hælum.
um. Sá skilningur verður að ná tökum á öllum sem ráða
sjávarútvegsmálum, að einungis með því að gei’a sjó-
mennsku trygga og vel borgaða vinnu og sjómönnum séu
tryggð beztu vinnuskilyrði og hæfilegur hvíldartími, verður
hægt að manna flotann því úrvali íslenzkra vinnustétta,
sem hann þarfnast.
Meðal útgerðarmanna sjálfra virðist enn mikið vanta á
að þessi skilningur ríki. Eitt dæmi nægir: Togarahásetarn-
ir hafa með harðri baráttu unnið sér rétt til 8 stunda
hvíldar á sólarhr., og þessum ákvæðum um hvíldartíma, sem
talin eru fela í sér 16 klukkutíma vinnuskyldu á sólarhring,
er viðhaldið eftir að flestar aðrar vinnustéttir hafa tryggt
sér 8 stunda vinnudag og 16 stunda hvíld! Alþýðusamtök
landsins samþykktu á þingi sínu sl. haust að beita sér
fyrir leiðréttingu þess öfugmælis, að afkastamestu verka-
mönnum þjóðai’innar, togarahásetunum, skuli boðin slík
vinnuskilyrði. Forseti Alþýðusambandsins og formaður
Dagsbrúnar fluttu frumvarp á Alþingi, þar sem farið var
fram á 12 tíma hvíld á sólarhring fyrir togaraháseta. Þá
gerist það, að samtök útgerðarmanna beita. sér af alefli
gegn frumvarpinu, tína fram gatslitnu röksemdirnar um að
„útgerðin beri ekki“ slíka sjálfsagða réttarbót til handa
togarahásetum, og nota tækifærið til að ympra á kaup-
lækkun. Þeir fá því ráðið með fulltingi Sjálfstæðisflokksins,
Framsóknarflokksins og Alþýðuflokksins að málið er látið
daga uppi. Sjómenn eru fúsir til samvinnu við útgerðar-
menn um sameiginleg áhugamál, en þeir munu taka meira
mark á athöfnum og afstöðu til réttindamála sjómanna og
lífskjara, en þeirra fallegu orða sem án efa verða sögð í
dag um einingu og samhug.
I grein Áka Jakobssonar, „Sjómenn eiga inni hjá þjóð-
inni“ bendir hann á brýnustu verkefni, sem leysa þarf til að
tryggja framtíð sjávarútvegs og sjómannastéttar á íslandi.
Tryggja verði sjómönnum hærri laun en greidd eru í landi og
öryggið aukið með góðu lágmarkskaupi, mánaðarfrí með
fullum launum, togarasjómönnum tryggður með löggjöf 12
stunda hvíldartími og sjómenn fái ívilnanir um gjaldeyri og
skattfrjálsar tekjur.
Sjómannastéttin á heimtingu á því að þannig verði að
henni búið. Hún ætlar sér ekki að una lengur við lofsyrðin
ein, heldur siá til þess að athöfn fylgi.
ílutt a£ Katsínu Thoroddsen, Gylfa Gíslasyni, Sig-
urði Hlíðar og Helga Jónassyni
Þingmenn úr fjórum flokkum Katrín Thoroddsen, Gylfi Þ.
Gíslason, Sigurður Hlíðar, Helgi Jónasson, fluttu eftirfarandi
tillögu til þingsályktunar um uppeldismál:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa lög-
gjöf um stofnun athugunarstöðva fyrir börn, sem eru andlega
rniður sín, og uppeldisheimili fyrir pilta og stúlkur, sem eru á
glapstigum siðferðislega, sbr. lög um vernd barna og ung-
menna, og leggja frumvarp um stofnun slíkra stöðva fyrir
næsta reglulegt Alþingi“.
í greinargerð segir:
í löguim um vernd bama og
unigmenna er svo kveðið á, að
stofununrr þeim, sem í þessari
þ ngsályktunartillögu ræðir um,
skuli komið upp þegar
fé er til þess veitt í fjár-
lögum. Flutningsmönnum er ljós
þörf slíkra stöðva og vænta þess,
að Alþingi sýni málifiu fullan
skilning. Bréf frá barnaverndai’-
nefnd Reykjavíkur til heilibrigð-
is- og féla-gsmálanefndar Nd. er
prentað með sem fylgiskjal.
Reykjavík, 19. maí 1947.
í frumvarpi því til laga um
vernd barna og ungmenna, sem
lagt var fyrir Alþingi s.l. vetur,.
var gert ráð -fyrir þvi, að rík-
isstjórninni væri skylt að stofna
og láta reka hæli fyrir börn og
unglinga, sem eru á glapstigum.
Barnaverndarnefnd Reykjavík-
ur lagði mikla áherzlu á þetta
atriði, því að það er stór þáttur
af staríi nefndarinnar að fjalla
um mál afbrota- og vandræða-
barna.
'Það er bæði gömul og ný saga;
að alltaf eru nokkrir unglingar
hér í sbæ og víðar, sem fátt aðhaf
ast annað en það, sem bæði er
þeim og öðrum til óþurftar.
Stundum er hægt að bjarga þess
um unglingum með því að koma
þeim á góð sveitaheimili. En oft
fer svo, að heimilin eru ekki
vandanum vaxin, og svo hitt, að
þau geta ekki haldið börnunum
vegna ofríkis foreldranna, sem
sækja börnin með valdi, eða þá
að unglingarnir strjúka.
Afleiðingin verður því sú oft-
sinnis, að ekki tekst að ná börn-
unum úr götusolli og slæmum
félagsskap,. og fá þau þá að halda
áfram vandræðaferli sínum.
Þessu til sönnunar má nefna
allt of mörg dæmi. Þess má geta,
að nú hefur nefndin til meðferð-
ar mál nokkurra drengja, sem
allir þyrftu að fara burt. Einn
þessara drengja hefur t. d. fram-/
ið 9 lögregluaíbrot, verið þrisvar
sendur úr bænum, en alltaf kom-
ið heim aftur og tekið til fyrri
iðju. Mörg dæmi eru þessu lík.
Eí til væru hæli fyrir drengi
og stúlkur, þyrftu bárnavemdar-
í hinum nýju barnaverndarlög-
um er ríkisstjórninni ekki gert
að skyldu að re.isa umrædd hæli,
fyrr en til þess hefui; verið veitt
fé í f járlögum, en það hefur-enn
ekki verið gert.
Barnaverndarnefnd telur, að
við svo búið megi eigi lengur
standa, að ekki séu til þær stofn
anir, sem um hefur verið rætt
hér að framan, og leyfir sér hér
með að skora á heilbrigðis- og fé-
lagsmálanefnd neðri deildar Al-
þingis að taka mál þetta til athug
unar og fyrirgreiðslu á þann veg
sem hún telur vænlegastan til ár-
angurs.
F. h. Barnaverndarnefndar
Reykjavíkur
Jónas B. Jónsson, formaður.
Vörybílí
r Austin - vörubíll til sölu
sýnis á Bergþórugötu 11A|
iaiingjarnt verð.
;; í fjarweru ;;
••minni næstu2 mánuði gegn-..
•■ir hr. iæknir Sigurður Samú-.!
• •elsson læknisstörfum mínum.X
• ■ Viðtalstími hans er kl. 1—
"e. m. í Lækjargötu 6 A. Sími"
I.2929. Heimasími 1192. "
[ Jbjörn GUNNLAUGSSON • j
HH-H-H-l-I-l-l-l-I-I-l-I-H-H-l-l-l-b