Þjóðviljinn - 14.08.1947, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 14.08.1947, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 14. ágúst 1947. ÞJÓÐVILJINN Hin árlega úthlutun Sovét- verðlaunanna er mikill viðburð ur í menningarlífi Sovétrikj- anna. Uppskera liðins árs er mæld og vegin, og maður fær góða hugmynd um, hvað nýtt hefur komið fram, og á hvaða atriði megináherzla er lögð. Þetta á við um allar gr. menn ingar og vísinda, og þótt við f jöllum hér einungis um úthlut- un bókmenntaverðláunanna, er það ekki til að gera lítið úr öðrum þáttum menningarlífsins, heldur til þess, að reyna að lýsa innan ákveðins ramma þeim stefnum, sem mestu ráða í Sovétríkjunum í dag. Það er vissulegá ekkert leynd armál, að sovétbókmenntirnar í dag hafa fundið sér viðlag, og ýmsir erlendir froðusnakkar hafa í því tilefni þótzt geta séð fram á lögboðnar eða herskyld- ar sovétbókmenntir, sem ættu séf ekki annað hlutverk en lof- syngja flokksstefnuna, ef bezt léti 'í ýmsum tóntegundum. Við höfum- hinsvegar ástæðu til að ætla, að viðlagið muni þvert á móti leiða af sér fágaðri list, og þegar maður kynnir sér þau verk, sem hafa verið sæmd Stalínverðlaununum sem beztu skáldrit ársins, fær maður öfl- uga staðfestingu á þessari skoð- un. Önnur fyrstu verðlaunin fyr- ir skáldsögur féllu í hlut ungs og til þessa ókunnugs Lenin- grad-rithöfundar, Elmar Griin, fyrir skáldsöguna „Sunnanvind- ur“, sem fyrir skemmtilega til- viljun birtist fyrst í október- hefti hins margumtalaða tíma- rits „Zvezra“. „Sunnanvindur“ er bók, sem er í alla staði jnjög athyglisverð, einkum með tilliti til þess, að sagan gerizt á Norð urlöndum. Aðalpersónan er finnskur leiguliði, Einári Pit- kániemi, smávaxinn maður, sem mitt í hinni fjárhagslegu og líkamlegu kúgun, sem hann verð ur að sæta, hefur ringlast af hinum taumlausa stórfinnska á- róðri, og á langa og torsótta Ieið fyrir höndum til að öðlast skilning á stöðu sinni í heimin- um. Það er styrjöldin, sem verð ur til þess að Einári rumskar. Vígbúnaðinum sjálfum er lýst. á sterkan og sannfærandi hátt. Við sjáum Einari fyllast æðis- gengnu hatri á Rússunum. Hann trúir því, að hann sé send ur út af örkinni til að verja land sitt fyrir hinum „blóð- þyrstu Bolsévikum", sem hinn ósigranlegi finnski her muni bráðlega koma fyrir kattarnef. En rás viðburðanna kemur hon um fljótlega á aðra skoðun. Strax í fyrsta bardaganum, í ná vígi við særðan rauðahersmann, í fangavistinni, þár sem hann kynntist lifandi rússnesku fólki eins og það gengur og gerist, opnast augu hans fyrir lýginni, sem hr. Kurkimáki og aðrar blóðsugur hafa haldið að hon um og allri finnsku þjóðinni. Einári snýr heim sem nýr maður, og það sem meira er, hann snýr heim til nýs lands, sem að minnsta kosti er farið að kynna sér lýðræði. Elmar Griin er fágaður skáld sagnahöfundur. Stíll hans getur virzt dálítið þurr og snúðugur, en styrkur hans liggur einmitt í þessari listrænu hlédrægni. Lýsingarnar á hinni þungbúnu finnsku náttúru eru frábærilega vel gerðar, og hann þekkir til Erik Horskjœr: smtfr á Stalmverðlaununum í bókmenntum hef- ur nýlega verið úthlutað, og í greininni segir danski höfundurinn Erik Horskjær frá þeim sovéthöfundum, sem hlotið hafa þessa bók- menntalegu viðurkenningar. hlýtár það sem hann skrifar um. Griin er af eistlenzkum ætt um, og það er sennilega skýr- ingin á hinni staðgóðu þekk- ingu hans á baltneskri náttúru og baltnesku fólki. Við hér í Danmörku vitum ekki of mikið um Finnland, og Griin hefur gert þessum umbrotatímum betri skil en finnskar bókmennt ir geta stært sig af í dag. Bók hans er í fremstu röð skáld- sagna. Hin fyrstu verðlaun fyrir skáldsögur hlaut kvenrithöfund urinn Vera Panova fyrir skáld- söguna „Samferðamenn". Það er erfitt að gera tæmandi þýð- ingu á nafninu, sem á rússn- esku er „Sputniki“. Það eru tvö orð 'í rússnesku: „poputniki11 og „sputniki", sem bæði má þýða með orðinu „samferða- menn“, hið fyrra er notað um fólk, sem að vísu er samf., en allt um það án samb. hvert við annað, en hið síðara felur í sér annað og meira: Fólk, sem er samferða að einu og sama marki fyrir eitt og sama mál- efni. Það er síðari merkingin sem felst í titlinum á bók Veru Panovu. „Samferðamenn“ segir frá fólki í sjúkralest á stríðs- árunum, ■— litlum heimi út af fyrir sig, vandamálum hans og órjúfandi bræðralagi, og það fólk, sem við kynnumst þar, lif- ir og starfar samkvæmt sömu lögmálum og við sömu skilyrði og allur þorri manna í hinu víð áttumikla landi. Vera Panova hefur ekki einungis viljað draga upp mynd af hinu glæsilega framlagi sovétþjóðarinnar til varnar lands síns. Á bak við frásögnina vakir ósk hennar, að lýsa hinum nýju hugsjónum kommúnismans, hinu nýja mannkyni, sem með viðmóts- þrótti sínum gegn raunum styrj aldarinnar hefur sannprófað ó- sigranleilt sinn. Það er margt í „Samferðamönnum“, sem bend ir fram yfir stríðið og vanda- mál þess, og kannske er það einmitt þetta, sem vegur skáld- söguna yfir flestar aðrar stríðs bókmenntir. Svipaðir kostir einkenna einn- ig hina þrjá annarra-verðlauna- höfunda fyrir skáldsögur. Pjotr Versjigora var fyrir stríðið kvik myndaleiðbeinandi í Kiev, en rás viðburðanna kom honum í kynni við hina nafnfrægu bryn- drekasveit Kovpaks hershöfð- ingja, en í henni barðist hann sem liðsforingi. Lýsing hans á bryndrekastyrjöldinni „Fólk með hreinan skjöld“, ^yakti j mikla athygli, þegar hún kom J út, og það með réttu. Versji- gora hefur lýst persónum sín- um af djúpri lífsvizku og ósveigj anlegri sannieiksást — baráttu félögum sínum, fólki með hrein an skjöld gagnvart þjóð sinni. Viktor Nekrasoff, sem er höf- undur bókarinnar „I skotgröf- um Stalíngrad", er liðsforingi í verkfræðingahersveitunum Ýms ir kunna að' halda því fram, áð- ur en þeir hafa lesið bókina, að efninu „Stalíngrad“ hafi þegar verið gerð tæmandi skil í bók- menntunum, en við megum ekki gleyma því, að bardagarnir um þessa heimskunnu borg hljóta ævinlega að vera ofarlega í hug- um sovétþjóðanna, og með hin- um kjarnyrta, ljósa stíl sínum hefur'Nekrasoff vissulega bætt ýmsu við myndina af hetju- vörn Stalingrad. Þriðji höfund- urinn, sem hlaut önnur verð- launin fyrir skáldsögur, er gam- all kunningi dönsku þjóðarinn- ar: Boris Polevoj varð fyrstur sovéthöfunda til að kveða sér hljóðs í Danmörku hernámsár- anna, með frásögn sinni af fyrstu dögum stríðsins, „Að baki víglínu fjandmanna", sem var gefin út í trássi við þýzka, setuliðið af Kommúnistaflokki Danmerkur. Þá kynntumst við honum- sem töfrandi rifhöfundi, og liin nýja skáldsaga hans, sem hlotið hefur Stalínverðlaun in, „Saga um ósvikið karl- menni“, staðfestir til fulls ágæti hinna fyrstu kynna. Þetta er frásögn af sovétflugmanni, sem er skotinn niður á bak við víg- línu óvinanna og verður að sigr ast á ofurmannlegum þjáning- um til að brjótast í gegn til sinna eigin manna og geta hald ið áfram baráttunni. Veiting fyrstu verðlaunanna í ár fyrir leikrit kom engum á óvart, sem gert hefur sér far um að fylgjast nokkurn veginn með sovétbókmenntum. Það gat enginn vafi léikið á því, að þau hlutu að falla í skaut Konstant in Simonoff fyrir hið hárbeitta, tímabæra og ágæta leikrit „Rússneska vandamálið“. í fám orðum sagt afhjúpar höfundur- inn þar hið maðksmogna „rit- frelsi“ blaðakosts auðvaldsríkj- anna. Það er. leikrit, sem standa mun styr um í nánustu framtíð, og það ætti ekki að fela það fyrir dönskum leikhúsgestum. Önnur verðlaun fyrir leikrit hlaut maður með norrænu nafni, Ágúst Jakobsson, einn stór- brotnasti persónuleiki í eist- lenzkum bókmenntum. I fjölda skáldsagna og leilcrita hefur hann, síðan hann kom fyrst fram sem rithöfundur 1927, kortlagt hið eistlenzka samfé- lag, fylgt þróun þess frá því að vera hálffasistiskur vanskapn- ingur til sovétlýðveldis, og leik- rit hans, „Lífið í kastalanum", tekur til meðferðar aðalþáttinn í sögu Eistlands nútímans ■— umsköpun frá hinu gamla til hins nýja lífs. „Kastalinn" er hluti menntamanna, sem hann lýsir hér, þeirra manna, sem reyndu að múra sig inni, hliðra sér hjá vandamálunum. Með glæsilegri dramatískri leikni dregur Jakobsson upp mynd af ýmsum hópum eistlenzkra menntamanna og leiðir hesta Konstantin Simonoff. þeirra saman. Fáein af verkum Jakobssonar hafa hingað til ver ið fáanleg á öðrum málum en eistlenzku, og það er því enn þakkarverðara, að nefndin frá æðsta ráði Sovétríkjanna, sem ber fram tillögur um, hverja skuli sæma þessum mikla heiðri, hefur veitt honum verðuga at- hygli, og verðlaunin munu vafa laust stuðla að því, að meira verður þýtt og lesið af hinum veigamiklu verkum hans. Hvað Ijóðskáldunum viðvík- ur, er erfiðara að gera þeim viðunandi skil vegna þess, hvers eðlis listgr. þeirra er, en stutt kynning ætti þó ekki að koma að sök. I því sambandi er einnig vert að veita því athygli, að fjögur af þeim fimm skáldum, sem verðlaunin hlutu, eru ekki af rússneskum uppruna. Önnur fyrstu verðlaunin hlaut lithau- isk skáldkona Salome Neris, sem andaðist 1945. Því miður er mér ókleift að gefa neina liugmynd um skáldskap hennar svona undirbúningslaust, en þau orð, sem hún, óbreytt kennslukona, hóf með skáldskap arferil sinn 1931, geta staðið sem fagurt minnismerki yfir einu mesta skáldi Lithauen: „Héðan í frá ætla ég að berjast gegn arðræningjum verkalýðs- ins, og í skáldskap mínum mun ég leitast við að vinna með hinum eignalausa múg á þann hátt, að ljóð mín túlki viðleitni hans og hugsjónir í baráttu al- þýðunnar og verði mér vopn í þeirri baráttu". Hin fyrstu- verðlaunin hlaut Grússíumaður- inn Símon Tjikovani fyrir „Ljóð ið um Davíð Guramisjvili“, grúsískt skáld og frelsishetju frá 18. öld. Önnur verðlaunin hlutu þrjú skáld: Aleksander Tvardovskij fyrir prýðilegt dramatískt ljóð, „Húsið við veginn“, um eigin- konu rauðahersmanns, sem þrátt fyrir það, að hún er barns hafandi, er hrakin í þrælkun t:il Þýzkalands, og þar fæðir hún barnið í hræðilegri eymd. Þrátt fyrir hið óhugnanlega efni kvæð isins, bregður 'fyrir í því tærri ljóðrænu. einkum í lýsingunni á börnunum, og stöðugt lifir vonin um frclsið. Petr Brovka, sem einnig hlaut önnur verð- laun, er Hvítrússi eða Belo- rússi. Ljóð hans eru í nánum tengslum við belorússnesk þjóð- kvæði, og hið alþýðlega form Fyrir þremur árum áttu ís lendingar á sjötta hundrað milljónir króna innstœður er lendis. Aldrei á ævi sinni - hafði ísl. þjóðin verið svo rik þarna voru auðævi saman komin sem hefðu getað tryggt henni undirstöðu að velmegun allra þegna sinna. •k En þessi auðæfi lentu í ránshöndum. Hefði Sósíalista- flokkurinn ekki hafið nýsköp unarhugsjónina til vegs í ís- lenzku stjómmálalífi, er hætta á að öll þessi auðœfi hefðu farið sem eyðslueyrir, megnið í hina gráðugu gróða hít sníkjudýranna á íslenzka þjóðarlíkamanum, heildsal- ana. Sósíalistar lögðu til að all- ar innstœðurnar erlendis yrðu notaðar til nýsköpunar atvinnuveganna, og er ekki ólíklegt að því hefði fengizt framgengt við myndun ný- sköpunarstjórnarinnar 1944, ef Alþýðuflokkurinn hefði ekki með ,,skilyrði“ sínu, lækkað kröfumar niður í 300 milljónir. Mestur hluti hinna inn- stæðnanna hefur farið í ráns hít sníkjudyranna, ofsagróða heildsala, húsasvindlara og annarra braskara, vegna þess að svindlararnir þafa undir- tökin í Sjálfstœðisflokknum, og fjármálastjórn Péturs Magnússonar og J óhanns Jósefssonar hefur verið eins og heildsalarnir sjálfir sætu þar — og kannski hafa þeir setið þar! (S. Árnason & Co.) Nú sjá þessir fjármálaspek ingar Sjálfstœðisflokksins ekkert annað ráð en að táka dollaralán J Bandaríkjunum, til þess að íslenzku heildsala- sníklarnir haldi áfram að græða jafnhóflaust og hingað Framh. á bl. 7. þeirra verður enn áhrifameira vegna hins nútímalega inni- halds. Enn ljóðrænni er Úkra- ínumaðurinn Andrej Malysjko, sem er þriðja skáldið er hlaut önnur verðlaun, en hann sækir einnig efniviðinn í kvæði sín. béint frá raunveruleikanum. ÖIL þessi fimm skáld færa okkur eitthvað sérkennilegt og verð- *mætt úr riki sovétskáldskapar- ins, þó hvert með sínum hætti, og maður hlýtur að fagna þeim fjölbreytileik, sem kemur fram við úthlutun verðlaunanna. Yfirleitt verður ekki annað sagt, en að þessar verðlauna- bókmenntir séu ágæt afsönnun þeirrar fullyrðingar, að bók- menntir í sósíalísku landi glati lífi sínu og margbreytni. Sovét- bókmenntirnar láta enn að scr kveða, einnig á heimsmæli- kvarða, bæði hvað viðvíkur list gildi og efnisvali. Erik Horskjær. 1

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.