Þjóðviljinn - 24.09.1947, Qupperneq 5
- Miðvikudaginn 24. sept. 1947.
ÞJOÐVlLJINN
5
Var Bretland þvingað til þátttöku í
Parísarráðstefnunni?
„Hjálp“ Bandaríkjanna yrði til að gera Evrópu að banda-
rískri nýlendu — áiit eins sérfræðings Verkam.flokksins
brezka í Bandaríkjamálum
Parísarráðstefnunni um „hjálp“ Bandaríkjanna er
lokið. Bevin, brezki utanríkisráðherrann, hélt hátíðlega
ræðu um gildi ráðstefnunnar, óskaði þeim þjóðum til hain-
ingju, sem þar dönsuðu eftir bandariskri músík.
En hvað var bak við þátttöku Breta í Parísarráðstefn-
unni? Sé rétt á málum haldið í grein þeirri sem hér fer á
eftir, rituð af Londonfréttaritara norska Arbeiderbladets,
Anders Buraas, hafa Bretar í sambandi við ráðstefnu
þessa mjög leikið tveim skjöldum, látið líklega við Banda-
ríkjamenn en gert jafnframt ráðstafanir til að hefja náið
og meir og minna innilokað samstarf i viðskiptamálum
milli landa brezka heimsveldisins.
Arbeiderbladet gerði grein þessa að aðalfrétt á öft-
ustu síðu, með sterkri fimrn dálka fyrirsögn: „Öflugt
bandarískt aðhald að stjórninni í London. „Vinsamlegt
ráð“ frá Stassen: „Hrindið verkalýðsstjórninni!“ Lítil trú
á Marshalláætluninni. Bretar halda fast við forréttindi
heimsveldisins.“ (Kannski gæti Alþýðublaðið eitthvað
lært af þessu).
í greininni, sem er frétta-
bréf frá London, segir Buraas
meðal annars:
Bandarískt aðhald í því
skyni að fá brezku stjórnma
til að láta af sósíalistískri
pólitík verður ákafara með
hverjum degi. Harald Stass-
en, forsetaefni Repúblikana,
fær nú inni hjá Beaver-
brookblöðunum fyrir ný ,,vin
samleg ráð“ til Bretlands Af-
klæddur öllu orðskrúði er
innihald greinarinnar bein
hvatning til Breta að losa sig
við ríkisstjórnina. Fáið ykkur
nýja stjórn, sem metur ein-
staklingsframtakið. og banda-
rísk hjálp mun veitast hinni
hraustu brezku þjóð' Hjálpin,
sem Stassen vill láta er þessi:
Bandarískt hjálparráð á að
sjá brezkum iðnaði fyrir fram
leiðslupöntunum, leggja í
hann fé og skipuleggja fram-
leiðslu hans og afhéndingar.
Sem endurgjald fyri-r hjálp-
ina á að tryggja Bandaríkja-
mönnum aðgang að brezkum
hráefnalindum. Með öðrum
orðum, bandarískir peninga-
menn eiga smám saman að
taka stjórn brezka iðnaðar-
ins.
Aðspurður um álit á grein
þessari segir einn áhrifamað-
ur brezka Verkamannaflokks
ins að læknislyf Stassens hafi
þegar verið gefið Belgíu, Hol-
landi, Lúxembúrg og Ítalíu.
Bandarískt fjármagn streym-
ir til þessara landa, og banda
rískt eftirlit með auðlindum
landanna er að komast í fast
horf. En, segir maðurinn, við
hér í Bretlandi tökum aldrei
það meðal. Engin líkindi eru
til þess að brezkir verkamenn
þiggi bandaríska fjárfestingu
í atvinnulífi Bretlands.
Auk þessa beina bandaríska
aðhalds, sem haft er með
blaðaskrifum og ummælum
áhrifamikilla stjórnmála-
manna, á berzka stjórnin við
að stríða óbeina þvingun eins
ákafa og ólíkt hættulegri.
'Bretland þarfnast hjálpar
utan frá til endurreisnarinn-
ar. Vegna ónógrar dollara-
eignar er nú aðeins um
tvennt að velja, Evrópu eða
heimsveldið brezka. Á al-
þjóðaverzlunarráðstefnunni í
Geneve seint í ágúst skýrði
Harold Wilson frá vali Bret-
lands. Bretar hafa kosið
heimsveldið, vegna þess að
það er frekar aflögufært en
hin hrjáða Evrópa. Valið er
stutt tilfinninga- og siðferðis-
rökum. Yfirlýsing Wilsons
var eins og bitið væri í hönd
bandaríska auðmagnsins. Að-
alatriðið í verzlunarpólitík
Bandaríkjanna eftir stríð hef-
ur yerið að fjarlægja alla
tálma, sem hindra frjáls við-
skipti. Forréttindakerfið, sem
tryggir viðskipti landanna
innan brezka heimsveldisins,
hefur verið þyngstur Ijár í
þúfu. Bandaríkin vilja eyða
því. Ákvæði þar að lútandi
er í brezk-bandaríska láns-
samningnum og það ákvæði
hefur átt þátt í að skapa f jár-
hagsvandræði Breta.
Samtímis heldur Bretland
áfram að stjórna „samvinnu-
ráðstefnu um efnahagsmál
Evrópu“ í París. Þar hefur
verið borin fram tillaga um
evrópskt tollabandalag. Til-
lagan er sprottin af ósk um
að geta samið evrópska við-
reisnaráætlun, er „vakið geti
áhuga Bandaríkjanna.“ —
Bandaríkjamenn hafa ekki
farið dult með að slík áætlun
yrði talin mjög ' mikilvæg.
Bretar voru þarna komnir í
slæma klípu. Þeir eru ev-
rópskir skímarvottar Mars-
halláætlunarinnar. Þeir eiga
ekki hægt með að taka «f-
stöðu, sem eyðileggur Mars-
halláætlunina. En er Bretar
hafa kosið að byggja endur-
reisn sína á heimsveldinu,
geta þeir ekki um leið verið
þátttakendur í evrópsku tolla
bandalagi. Þeir fundu leið,
lögðu til að Parísarráðstefnan
skyldi kjósa rannsóknarnefnd
til að athuga tollabandalags-
málið. Bretar eru ekki and-
vígir sjálfri hugmyndinni um
tollabandalag. Hugmyndin er
ágæt, en Bretland getur ekki
verið með í slíku bandalagi
nú, af fjárhagslegum ástæð-
um. Eftir 5—10 ár kannski.
Þá var það að Norðurlönd
tóku afstöðu, sem var eins og
gjöf af himnum send. Norð-
urlöndin lýstu yfir í París,
að þau yrðu ekki einu sinni
með í svo sakleysislega út-
lítandi ráðstöfun og rann-
sóknarnefnd. Norðurlönd
hafa þannig tekið forustu í
andstöðu gegn myndun ev-
rópsks tollabandalags. Það
kemur í ljós, að þessi afstaða
kom Bretum alveg á óvænt,
og það segir sig sjálft, að
gjöfin var meir en vel þegin.
Gefið hefur verið í skyn, að
ný fyrirmæli hafi verið send
símleiðis frá forsætisráðherra
ibústaðnum til Wilsons í Gen-
eve, þegar er kunnugt var
um afstöðu Norðurlandanna
í París. Upplýst er að meðal
fjármálamanna hafi miklar
vonir verið tengdar við ev-
rópskt tollábandalag, einskon
ar sjálfviljuga uppgjöf Ev-
rópu er átt hefði að gefa
bandarísku auðmagni trausta
fótfestu í Evrópu.
Það er almennt álit í Lon-
don, að hvort sem bandarískt
hjálpartilboð komi í mynd
Marshalláætlunarinnar eða
annarri,y verði tilboðið mor-
andi af skilyrðum. Upphafleg
'hugmynd Marshalls var góð
og verðug hinni rooseveltsku
hefð. En engir hér gera sér
miklar vonir um að Banda-
ríkjaþing samþykki hjálp,
sem ekki gefi af sér við-
skiptahagnað.
Einn af sérfræðingum
Verkamannaflokksins í Banda
ríkjamálum segir það þannig:
„Það, sem Bandaríkjamenn
hafa í huga, og það eina, sem
þing þeirra vildi samþykkja,
er að gera Evrópu að banda-
rískri nýlendu. Jú, það gæti
fært okkur meiri mat og fatn
að, en það yrði á kostnað
þess, sem okkur er kærara.
Frqjnhald á 7. síða
Eftir Georg Branting
(Niðurlag)
En nú var stundin komin.
Yfirstjórn ættjarðarfylkingar
innar boðáði aiiúennan vopna
búnað þann 9. september. Og
þegar birti af degi hlýddi öll
þjóðin þessu kalli með brenn-
andi áhuga. Á þessum eina
fagnaðardegi var ekki ein-
göngu stjórninni, heldur einn
ig öllum gömlum stjórnarhátt
um sópað burt.
Þennan dag fæddist hin
nýja Búlgaría. Tugþúsundir
manna og kvenna, sem elsk-
uðu frelsið, höfðu á umliðn-
um árum fórnað lífi sínu til
að þessi dagur gæti risið upp.
Á nokkrum dögum voru allir
pólitískir fangar leystir úr
haldi og hinir hötuðu böðlar
fangelsaðir í þeirra stað. Ó-
segjanlegri byrði var létt af
landinu, þjóðin var borin á
fagnaðarbylgju, sem risti
djúpt eins og allar risabylgj-
ur.
Eftir kosningarnar 1945 var
aðalábyrgðin lögð á herðar
Dimitrovs, aðalbrautryðjanda
ættjarðarfylkingarinnar, sem
með rómuðu hugrekki hafði
boðið Göring byrginn við
þinghúsbrunann 1933. Allir
gerðu sér ljósa þá erfiðleika,
sem framundan voru, landið
var mergsogið og styrjöldinni
engan veginn lokið.
Og Dimitrov hefur borið
ábyrgðina síðan ásamt for-
ustumönnum ættjarðarfylk-
ingarinnar. Hann ber hana
ennþá, þó að Trumans-stefn-
an ógni og þjaki Balkan-
skaga. Og á þessari stundu
lítur þjóð hans á hann sem
elskaðan föður, sem vekur
traust allra með reynslu
sinni, festu og djúpri vizku.
íbúar Búlgaríu líta á hann
sem óbifanlega ímynd þeirr-
ar ,,eftirstríðsstefnu“, sem
andstöðulhreyfingin hafði sam
einazt um og hefur nú að
miklu leyti orðið að veru-
leika í tveggja ára áætlun.
★
Sagan um þjóðhátíðardag
Búlgaríu gerir mönnum kleift
að skilja eðli stjórnarstefnu
landsins. Skæruhernaður og
andstöðuhreyfingar voru alls
staðar þar sem nazisminn kúg
aði þjóðir utan Þýzkalands.
En í öðrum löndum var
stjórnmálaþróunin ekki hin
sama og hér er lýst — þegar
sigur var unninn og friður
kominn á, var valdi frelsis-
hreyfinganna bægt frá og
„eðlilegu“ stjórnarfyrirkomu-
lagi komið á. Júgóslavía er
eina landið, sem fór sömu
leiðir. Það er einkennandi fyr
ir ástandið í Búlgaríu, að
menn gátu þar í órofnu sam-
hengi framkvæmt þá frelsis-
stefnu, þá nýsköpunarstefnu,
sem sjálf þjóðin hafði úr-
skurðað nauðsynlega á hinum
erfiðu árum. Það sem hafði
mótazt og myndazt á dögum
kúgunar og áþjánar sem hug-
mynd um hina réttu lands-
stjórn, hið raunverulega lýð-
ræði — það var eitthvað af
þeirri hugsjón, sem nú var
hægt að framkvæma og lifa
fyrir. Eg er sannfærður um,
að það er einmitt þetta „eitt-
hvað“, sem gefur nú hinum
búlgörsku og júgóslavnesku
þjóðum mátt til svo sérstæðr
ar hrifningar og framtaks, að
jafnvel gerókunnugir aðkomu
menri verða þess varir.
Og þó ætti þetta nýja stjórn
arfyrirkomulag ekki að vera
sérlega fyrir okkur Svía. Að
miklu leyti, já, í aðalatriðum,
er litið á þjóðfélagsmálin eins
og við gerum. Við skulum
líta á eitt atriði, eitt aðalatr-
iði: ,,Eignaréttinn“, þegar um
hin stóru framleiðslutæki er
að ræða. í hinni sósíaldemó-
kratisku eftirstríðsstefnu okk
ar Svía hafa komið fram þær
kröfur, sem við gerum til
einkaiðnaðar. Hann má halda
áfram að vera „einka“-iðnað
ur, en hann verður jafnframt
að kóma öllu þjóðfélaginu að
gagni. Hann á að leggja fram
full vinnuafköst og uppfylla
skyldur sínar við þjóðfélagið
á sanngjörnum grundvelli. Ef
hann gerir það ekki — verður
þjóðfélagið að taka til sinna
ráða.
í stjórnarskrá hinnar nýju
Búlgaríu er mikilvægt atriði,
þar sem eignarrétturinn er
settur undir vernd ríkisins,
en um leið er þess krafizt, að
eignin sé notuð þjóðinni í.
hag. Þetta er það þjóðfélags-
lega sjónarmið, sem hefur
sigrað.
Þegar Dimitrov var að tala
um þýðingu hins nýja þjóðhá
tíðardags, sagði hann: ,,Með
9. september hefst nýtt tíma-
bil í sögu okkar — tímabil
hins raunverulega lýðræðis,
tímabil ættjarðarfylkingarinn
ar.---------Þjóðfélag okkar
er ennþá byggt á eignarrétt-
inum; hinar fyrri þjóðfélags-
stéttir eru enn til og hafa sín
eigin áhugamál. En innan
þessa þjóðfélags hefur mynd-
azt lýðræðislegt stjórnarfar,
gagnger breyting hefur orð-
ið á þeim öflum, sem ráða
mestu í opinberu lífi. Þetta
hefur einnig haft í för með
sér breytingu á því hlutverki
sem þessi öfl gegna innan
ríkisins í opinberu lífi, einka-
lífi, menningar- og fram-
leiðslulífi. Ríkisvaldið er nú
í höndum þjóðarinnar, þ. e.
ríkisvaldið, sem áður rændi
og kúgaði þjóðina, er nú orð-
ið að þjóðarvaldi sem hefur
það markmið að vinna fyrir
þjóðina og aðeins þjóðina".
Og hann lýsti nánar þeirri
Framhald, á 7. síðrl