Þjóðviljinn - 02.10.1947, Page 4

Þjóðviljinn - 02.10.1947, Page 4
4 ÞJOÐVILJINN Fimmtudagur 2. október 1-947 ■ þlÓÐVILJINN Ctgefandi: Sameiningarfl.okkur alþýðu — Sósíaiistaílokkurinn Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson, &b. B'réttaritstjóri: Jón Bjarnason. Ritstjórnarskrifstofur: Skólavörðustíg 19. Sími 7500. Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, sími 2184. Auglýsingar: Skólavörðustíg 10, eímí 6399, Prentsmiðjusími 2184. Aakriftarverð: kr. 8.00 á mánuðl. — Lausasöluverð 50 aur. elnt. JPrentsmiðja Þjóðviljans hJ. Þlngið og hrunstjórnin Alþingi komið saman. Þingmeirihlutinn, sem ber ábyrgð á átta mánaða úrræðalausri hrunstjórn, fær nú til meðferðar það á- stand, sem þessi stjórn hefur skapað vitandi vits á valdatíma sín- um. Fer varla hjá því að fari um eiahvem háttvirtra þingmanna, sem þarf á ný að fara að leika fyrir opnum tjöldum hið lítt öf- undsverða hluverk ábyrgðarmanns slíkrar stjómar, ábyrgðar- manns vesælasta og álitsrýrasta forsætisráðherra sem ísland hef- ur átt, — ábyrgðarmanns utanríkisráðherra er litar daglegar sorpgreinar í Morgunblaðið og reynir að sannfæra erlendar við- skiptaþjóðir um að verð íslenzkra útflutningsvara sé alltof hátt, ábyrgðarmanns hins svonefnda menntamálaráðherra og gróðiu’- húsaeigandans, sem sér um að eytt sé gjaldeyri í blómla-uka nú í haust, — ábyrgðarmanns Emils þess Jónssonar, er frægastur er af nótnaskriftum og glæpatali um verkamenn, — ábyrgðarmanns Jóhanns Þorkels Jósefssonar, sem reynt hefur af alefli síðustu mánuðina að farga nýsköpunaifyrirtækjum en er annars frægur sem eigandi dæmds svindlarafyrirtækis og fyrir útflutning ríf- Iegra dollaraheimanmunda. Enda mun ríkisstjómin orðin tals- verð hrollvekja allmargra þingmanna stjómarflokkanna. * Stjóm þessi hefur emnig þá sérstöðu meðai íslenzkra ríkis- stjóma að hún hefur svikizt til valda á fölskum forsendum. Að- eins einn af stuðningsmönnum hennar, að vísu sá ákafasti, Jónas Jónsson frá Hriflu, var af samkembingi Framsóknar og Sjálf- stæðisflokksins í Suður-Þingeyjarsýslu kosinn á þing í fyrra sumar með svipaða stefnu yfirlýsta og hrimstjómm hefui síðan fylgt. Flestir þeirra lofuðu kjósendum allt annarri stefnu í kosn ingabaxáttunni fyrir rúmu ári. Allir frambjóðendur Sjálfstæðis- flokksins og Alþýðuflokksins munu hafa lofað kjósendum sínum ao þeh’ skyldu stuðla að eflingu og framhaldi nýsköpunarinnar. En , þegar á fyrsta vetri kjörtímabilsins láta þeir brúka sig til þess að hnoða saman afturhaldsstjórn sem leggur dauða hönd á mörg mikilvægustu nýsköpunarfyrirtækin. stöðvar það sem með nokkni móti var hægt að stöðva og stefnir atvinnulífi og út- flutningsmálum landsmanna í mikla hættu. Stuðningur þing- manna, sem kosnir voru til að framfylgja nýsköpunarstefnunni, við núverandi ríkisstjóm er ósvífið dæmi um algera fyrirlitningu þeiria á vilja kjósenda shina og blygðunarleysi gagnvart hátíð- legum kosningaloforðum. Þó er annað dæmi enn blygðunarlausara. Hver einasti núver- andi þingmaður stjómarflokkanna, nema Hriflu-Jónas, sór og sárt við lagði í kosningabaráttunni í fyrra að standa gegn er- Iendri ásælni og neita tilmælum erlends stórveldis um ítök hér á landi. Sjálfsagt hafa margir þeirra gert það af einlægni og ekki vitað um samspii flokksforingja sinna og bandarískra stjómar- vaída. Bandaríkjamaðurinn Valdimar Bjömsson sem fylgdist öll- um mönnum betur með þessum málum, lýsti því yfir opinberlega í blaðagrein, hvernig lcröfur Bandaríkjanna voru látnar liggja í þagnargildi um skeið vegna kosninganna. En þá var ekki eftir neinu að bíða. Og það fannst 31 þingmaður sem gekk á bak orða sinna við þjóðina og afsalaði dýrmætum landsréttindum til er- lends stórveldis. * Þessir þingmenn sitja enn á þingi, styðjandi rambandi stjórnar- hró afturhaldsins ,sem orðið er að viðundri innan lands og utan. Hvernig hugsa þessir þingmenn sér framhald þessa kjörtíma- biis síns? IJalda þeir áfram eftir þeirri hrunstefnu, sem þeir hafa flækt sig í, svíkja meira og meira, komast lengra og lengra frá sönnum vilja fólksins sem hefur sent þá á þing? Ætla þeir að gera þetta í því trausti að langt sé til kosninga, í því trausti að takast megi að blekkja þúsundir hrekklausra kjósenda til fylgis við menn, uppvísa að óorðheldni? Eða kjósa nógu margir að bjarga heiðri sínum, Alþingis og þjóðarinnar með breyttri stefnu. Því svara þeir með þingstörfum næstu raánuði. F1 u g á æ 11 u n Frá og með 29. 9. verða flugferðir vorar frá Reykjavík sem hér segir: Mánudaga: Til Akureyrar — Keflavíkurflv. — Vestmannaeyja Þrið judaga: Til Akureyrar — Egilsstaða (um Akureyri) — Hólmavíkur — Keflavíkurflv. — Vestmannaeyja Miðvikudaga: Til Akureyrar — Fagurhólsmýrar — Isaf jarðar — Keflavíkurflv. — Vestmannaeyja Fimmtudaga: Til Akureyrar — Fáskrúðsf jarðar — Keflavíkurflv. — Neskaupstaðar — Keyðarfjarðar — Vestmannaeyja Föstudaga: Til Akureyrar — Keflavíkurflv. — Kópaskers — Vestmannaeyja Laugardaga: Til Akureyrar — Hornaf jarðar — ísaf jarðar — Keflavíkurflv. — Vestmaimaeyja Sunnudaga: - Til Keflavíkur Nánari upplýsingar í skrifstofum vorum: Á Reykjavíkurflugvelli Símar 5040 og 6600 (fimm línur). í Læjargötu 4 Símar 5040 og 6600 Flugfélag íslands h,f. |liggur ^-H-l-HH-H-H-H-l-i-M-H-H Um þingtímann sinnir Eggert læknir Stein- þórsson sjúkrasamlagssjúkl- ingum mínum að læknast. sinni Vesturg. 4. Viðtalstími hans er kl. 4—6 e. h. Sjálf anast ég allar heimavitjanir og verð til viðtals að Hafnar stræti 8, mánudaga, miðviku dagaa og laugardaga kl. 9 —9,30, á öðrum tímum eftir samkomulagi. KATKÍN THORODDSEN læknir. Auglýsing nr. 10,1947 Srá skömmtunarstjéra. 4- + Viðskiptanefndin hefur samþykkt, samlcvæmt heimild í 2. gr. reglugerðar frá 23. sept. 1947 um sölu og afhendingu benzíns og takmörkun á akstri bifreiða, eftirfarandi reglur um sölu og af- hendingu á benzíni til annarar notkunar en bifreiðaaksturs og notkunar handa flugvélum: 1. Aðili, sem þarf benzin til notkunar samkvæmt samþykkt þessari, getur sótt um það til lögreglu- stjóra í viðkomandi umdæmi, að sér verði út- hlutað benzíni. Skal umsóknin skráð á þar til gerð eyðublöð, sem skömmtunarskrifstofa ríkis- ins leggur til, og skal þar tekið fram um hvers konar vél er að ræða, hestorku vélarinnar, ben- zíneyðslu á vinnustund og áætlaðan vinnustunda- fjölda fyrir hverjar komandi tvær vikur. 2. Lögreglustjórum er heimilt, hverjuni í sínu um- dæmi, að úthluta benzíni til þeirra nota, sem hér um ræðir, fyrirfram fyrir allt að tveim vikum í einu. Standi sérstaklega. á, þannig, að um óvenju- legar fjarlægðir notanda (vélarinnar) frá skrif- stofu lögreglustjóra eða umboðsmanns hans eða frá benzínbirgðum sé að ræða, skal þó heimilt að úthluta benzíninu fyrir lengri tíma í einu en tvær vikui’. - -— 3. Lögreglustjói'um er heimilt að ákveða magn þessara benzínskammta með hliðsjón af benzín- eyðslunni og hinum áætlaða vinnustundafjölda vélanna, eftir að hafa fullvissað sig um að rétt sé frá skýrt um það hvorttveggja í umsókninni. 4. Óheimilt er benzínsölum að afhenda hreinsað benzín, annað en sárabenzín, í stærri skömmtum en 100 gr., án sérstakrar skrifíegrar heimildar frá lögreglustjóra eða skömmtunarskrifstofu ríkisins. 5. Úthlutanir á benzíni samkvæmt samþykkt þess- ari skulu fara fram með því, að veita sérstök inn- kaupsleyfi, á þar til gerðum eyðublöðum, sem skömmtunarskrifstofa ríkisins leggur til, og má ekki úthluta benzínmiðum (reitum) í þessu skyni. Rejkjavík, 25. sept. 1947 Skömmtimarstjórinn, 4 J-H4-H-4-1-+4-W-H-44-4-4-Í-H-44-4-H-4H-4-44-4+-I-H-H-H-H-H-Í-H. usti birgðakönnun á benzíni Með tilvísun til reglugerðar um sölu og afhend- ingu benzíns og takmörkun á akstri bifreiða frá 23. september 1947 er hér með Iagt fyrir alla þá, sem eiga eða hafa undir höndum benzínbirgðir hér í í umdæminu, fram yfir það, sem er á geymum far- artækja, að tilkynna mér það þegar í stað skriflega, hversu miklar slíkar birgðir eru og hvar þær eru geymdar. Rögreglustjórimi í Reykjavik, 1. október 1947. Sigurjón Sigurðsson Í — settur — H-I-I-I“l-44444-H-H-I"l-I"I"i"I"I"H-l-H-H-444-)-I-H-l-I-44n-I-4-r-HH Frönskunámskeið Alliance Francaise í Háskóla Islands, tímabilið október — desember hefjast í byrjun októbermánaðar. Kennarar verða Magnús G. Jónsson mennta- skólakennari og André Rousseau sendikennari. Kennslugjald 150 krónur fyrir 25 kennslustundir, sem greiðist fyrirfram. Væntanlegir þátttakendur gefi sig fram á skrif- stofu forseta fél., Péturs Þ. J. Gunnarssonar, Mjó- stræti 6 sími 2012 fyrir 8. október.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.