Þjóðviljinn - 02.10.1947, Page 8
VATMSVEITAN AUKIN
Nýja vatnsæðin frá Svendarbrunnsm fiytur um 2S
fiisiiiii tonn á dag
Nýja vatnsæðin frá Gvendarbrtmnum var tekin í notk-
un í gær. Við það eykst neyzluvaín bæjarbúa um 25 þús.
tonn á dag, eða 290 lítra á sekúndu. Er þetta þriðja og
mesta aukning, sem gerð er á Vatnsveitu Reykjavíkur.
Heiidarkostnaðurimi verður rúmar 6 milljónir króna.
Stoppiianinn á nýju vatnsæðinni var opnaður kl. 6.10 e. h.
í gær og iögðu borgarstjóri, bæjarráðsmenn og starfsmenn
Vatnsveitunnar hönd að þti verki.
Tíðindamaður blaðsins átti í gær stutt við-
tal við Einar Ögmundsson vörubílstjóra og innti
hann eftir áliti lrans og stéttarinnar yfirléitt á ben-
zínskömmtun þeirri sem hófst í gær. Einar lagði
fram benzínskýrslu sem sýndi að hann hefur und-
anfarið notað 900 lítra á mánuði, en samkvæmt
skömmtuninni á hann að fá 400!
Aukning Vatnsveitunnar er
þannig að ný aðalæð er lögð
frá nýju inntaki í Gvendar-
brunnum. Þessi æð, sem er um
11 km. á lengd, á að geta flutt
290 1/sek. eða rúm 25 þús. toim
á dag. Með því sem fyrir er
geta runnið 530 1/sek. af vatni
til bæjarins, þegar rennslið er
eins og það getur orðið mest,
miðað við hálffullan geymi. Ný-
ir geymar til vatnsmiðlunar
verða ekki byggðir fyrst í stað,
enda ekki nauðsynlegt vegna
þess að það vatnsmagn, sem er
fyrir hendi er svo ríflegt að
þess gerist ekki þörf. Þessi nýja
vatnsæð er tengd við bæjarkerfi
Vatnsveitunnar fyrir utan
vatnsgeymana á Rauðarárholti
og er þar líka í sambandi við
gejTnana.
Framkvæmd verksins
Undirbúningur þessa mann-
virkis hófst árið 1945. Sigurð-
ir Thoroddsen, verkfræðingur
gei’ði áætlun um verkið, en að
öðru leyti hefur V'atnsveitan séð
um stækkun þessa og Rögn-
valdur Þorkelsson deildarverk-
fræðingur Vatnsveitunnar haft
umsjón með verkinu.
Vinna við aukninguna hófst
í apríl 1946, en 23. sept. sl. var
/
Sigurður Sigurðsson listmál-
ari frá Sauðárkrólii opnar sýn-
ingu í Listamannaskálanum kl.
2 í dag.
Þetta er fyrsta sýning Sig-
urðar hér á landi, en hann hefur
tekið þátt í mörgum sýningum
erlendis og hlotið góða dóma. Á
sýningunni verða 60 málverk,
auk teikninga.
Sigurður varo stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri
1937 en stundaði síðan í 5 ár
nám við Listaháskólann í Kaup
mannahöfn.
Guttnar ICrisMiss-
8®n syetgur I
iapla lié
Gunnar Kristinsson heldur
söngskemmtiui ? Gamla Bíó ki.
7,15 í kvöki. Dr. Lirbantsehitsch
inun annast undirleik.
Gunnar stundaði söngnám sl.
vc-tur hjá óperusöngvaranum
Jóseph Hislop í Stokkhólmi.
Hann er á förum til frekara
íms erlendis.
síðasta pípan lögð. Alit að 4,5
km. af leiðinni varð að sþrengja
fyrir pipum. Gera varð stíflu-
garð við Gvendarbrunna og var
steyptur 30 cm. þykkur veggur
í stíflugarðinn miðjan til að
geru hann þéttan.
Vatnsmagiiið
Vatnsveitan var lögð 1908—9
og flutti þá 39% 1/sek. til bæj-
arins. Árið 1923 var hún aukin
svo að hún flutti 96 1/sek. Ár-
ið 1933 var hún enn aukin svo
að hún flutti 240 1/sek. Eftir
nuverandi aukningu getur hún
flutt 530 1/sek. Út frá vatns-
magni og íbúatölu má reikna
hve margir lítrar koma að með-
altali á hvern íbúa á sólarhring,
en þá kemur í ljós að árið 1908
voru það 301 1. Árið 1923 hafði
fjölgað það í bænum, að ekki
voru nema 165 1. á íbúa á sólár-
hring, en eftir aukninguna það
Jón Gíslason bóndá
tekur sæti á þingi í
stað Gísla Sveinssonar
Alþiugi var sett í gær. líófst
þingsetning með því aS þing-
menn hlýddu messu í Dóm-
kirkjunni, hjá séra Sigurjóni
Árnasyni.
I þingliúsinu liófst setningar-
athöfnin með því að forseíi Is-
lands, hr. Sveinn Björnsson
setti þingid. Minntist hann þess
að frá endurreisn Alþingis fyr-
ir 104 árum er þetta 82. sam-
| koma þess, en 67. í röðinni og
j 50. aðalþing frá því það féklt
af'tur löggjafarvald fyrir 73 ár-
um.
Að böiðni forseta risu þing-
menn úr sætum og minntust
ættjarðarinnar með ferföldu
húrrahrópi.
Aldursforseti Björn Krist-
jánsson, þm. Norður-Þingey-
inga stýrði fundi og minntist
hlýlega tveggja þingmanna, er
látizt höfðu í sumar, Ingvars
Pálmasor.ar. 1. þm. Sunnmýl-
inga og Garðars Þorsteinssonar,
2. þm. Eyfirðinga. Vottuðu
þingmemi minningu þcirra virð-
ingu með því að rísa úr sætum.
I stað hinna látnu þingmanna
koma varamenn þeirra, Ey-
steinn Jónsson og Stefán Stef-
ánsson.
Kjörbréf hins nýja þing-
manns Vestur-Skaftafellssýslu,
Jóns Gíslasonar, var rannsakað
og samþykkt með samhljóða at-
kvæðum, og tók hann sæti á
þingi.
ár urðu 415 1. á íbúa. Árið 1933
var' talan aftur komin niður í
259 1. en hækkaði við aukning-
una það ár upp í 650 1. Nú
höfðum við 392 1. á íbúa fyrir
s-tækkunina, en eftir að nýja að-
alæðin er tekin í notkun getur
hver íbúi að meðaltali fengið
allt að 865 lítra af köldu vatni á
sólarhring. Þessar tölur eru að
vísu ekki nákvæmar vegna þess,
að Seltjarnarnesið og nokkuð
af Digraneshálsinum fær vatn
frá Reykjavík.
Nóg eftir
Þurrkasumarið 1945, þegar
vatn var alstaðar með minnsta
móti hér, mældist 600 lítra
rennsli á sek. úr uppsprettum
þeirn, sem nýja æðin liggur úr,
þar eru því enn eftir 310 1/sek.,
þegar minnst er, auk ýmissa
annarra linda.
Kauphækkim
Samningar hafa náðst milli
klæðskerasveinafél. Skjald-
borg og Félags íslenzkra iðn
rekenda um kaup stúlkna á
hraðsaumastofum. Hækkar
grunnkaup stúlknanna um
15. kr. á mánuði, en að öðru
leyti er samningurinn svo til
óbreyttur. Gildir samningur
þessi til 15. apríl 1948.
Samkomuiag' náðist á sátta
fundi í fyrradag milii Skjald
borgar og ldæðskerameistara
um að fresta verkfalli klæð-
skerasveina til 15. október.
Náist samningar þá eða fyrr
gikla þeir frá 1. október.
Nýsköpunartogari bsejarins
íngólfur Arnarson, seldi 3902
kit í Grimsby í fyrradag fyrir
11 þús. 462 sterlingspund.
Thor Thors hefur
framsögu í Palestínu-
málinu
1 Hinn 25. september var Tlíor
Thors einróma kosinn fram-
sögumaður nefndarinnar sem
hefur Palestínumálið til. af-
greiðslu en formaður hennar er
dr. Evatt utanríkisráðherra
Ástralíu.
(B''réttatilkyiining frá utan-
ríkisráðuneytinu).
Forsetakosningum var frest-
að að beiðni ríkisstjómarinnar
og er nú hnakkrifizt í stjórnar-
flokkunum um embættin, eink-
um forseta sameinaðs þings og
forseta neðri deildar. Úrslit
þeirra deilna sjást væntanlega í
i dag.
— Er þessi benzinskömmtun
ekki stórvægileg árás á lífskjör
atvinnubílst jóra ?
— Við höfum varla gert okk-
ur Ijóst hvað vakir fyrir þeim
mönnum er bera ábyrgð á þess-
ari benzínskömmtun því það
sjá allir heilvita menn að
skammtur sá er vörubifreiöum,
smáum sem stórum, er ætlaður
Einar Ögmuadsson
getur aldrei orðið til að vinna
fyrir brýnustu lífsnauðsynjum.
Vörubifreiðum er ætlaður
skammtur frá 200—500 lítra, en
ef vörubifreið er í venjulegri
tímavinnu þarf hún 8—900 lítra
á mánuði, og fer benzínnotkun
sumra þar fram úr, allt eftir
því hvaða akstur menn stuiida.
Það er því auðsætt, að verði
ekki breyting á benzínskammt-
inum þýðir það niðurskurð á
atvinnulegum möguleikum vöru
bifreiðastjóra, og þótti okkur
nóg komið.áður frá hendi þess
opinbera með hinum gegndar-
lausa og skipu’agslausa innflutn
ingi vörubifreiða og sölu setu-
liðsbifreiða, sem skapað hefur
alvarl. atvinnuleysi í stéttinni.
— Hvernig var benzínskömmt
un stríðsáranna framkvæmd
gagnvart ykkur? -
— Aukaskammtur fyrir at-
vinnubifreiðastjóra var yfirleitt
fáanlegur; og má p.ogjá áð yfi-
þeirri skömmtun þyrftum ’ ið
ekki að kvarto. Sú skömmtun
virtist ekki vera háð ströu "um
reglum, en aftur á móti virðist
vera rnjög flókið kerfi utan um
þessa skömmtun og næsta erf-
itt að fá aukaskammt, því ef
skila þarf vinnuskýrslum frá
viðkomandi vinnuveitanda, þá
er það alveg ókleift fyrir félags
menn ,,Þróttar“, þar sem þeir
vinna á mörgum vinnusjtöðvum
sama daginn.
— Var leitað álits félags ykk
ar um þessar ráðstafanir?
Mér vitanlega var það ekki
gert, því þar kemur sérstaklega
tvcnnt til, annarsvegar er það
útilokað að stuðzt hafi verið við
ilit þeirra er þekkingu hafa á
'iessum málum, og svo hitt að
iað virðist vera föst regla \-ald
lafanna að sniðganga stéttar-
amtök bifreiðastjóra er þeir
gera ráðstafanir varöandi san
ök þeirra. Að sjálfsögðu hefði
’aldhöfunum borið að leita álits
téttarfélaga bifreiðastjóra og
a þau til samvinnu, því ég fuii-
rrði að það muni ekki standa
i þeim að taka þátt í raunhæf-
im ráðstöfunum til lagfæringar
i því ástandi sem nú þegar hef
ur tekizt að skapa í atvinnumál
um. Við Iiöfum út af fyrir sig
ekkert við benzínskömmtun að
athuga ef hún styðst við vitur-
legar reglur, en við mótmælum
með öllu að ein atvinnustétt sé
tekin fyrir og þær ráðstafanir
séu gerðar varðandi atvinnulega
afkomu hennar, að hún er svipt
möguleikum tii að bjarga sér.
— Eru nokkrar líkur á því að
þið fáið lagfæringu á þessum
ráðstöfunum?
— Um það skal ég ekkert fu 11
yrða, málið er á byrjunarstigi,
en það verður að óreyndu að
ætla að valdhafarnir sjái á hve
miklum rökum sú réttlætiskrafa
stéttar okkar er byggð, að benz
ínskammtur til atvinnubifreiða-
stjóra sé aukinn svo að þeir geti
stundað atvinnu sína óhindrað.
\
Kjötverðið greitt
niðiir lir ríteissjóði
Ríkisstjórniii hefur ákveðið
að greiðii uíður \erð á kinda-
kjöti. Nemur sú niðurgreiðsla
kr. 1,76 á kg. af diíka- og geld-
fjárkjöti i. ílokks.
Verð á nýju dilkakjöti í smá
sölu verður því kr. 11,35 pr. kg.
frá mánaðamótum.