Þjóðviljinn - 25.10.1947, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 25.10.1947, Qupperneq 4
4 WOÐVILJINN Laugardagur 25. október 1947. þJÓÐV Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — SósialÍBtaflokkurinn Ritstjórar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson, áb. Fréttaritstjóri: Jón Bjamason. Ritstjórnarskrifstofur: Skólavörðustíg 19. Simi 7500. Afgreiðsla: Skólavörðustíg 19, aiml 2184. Augiýsingar: Skólavörðustig 19, aími 8399. Prentsmiðjusimi 2184. Aakriftarverð: kr, 8.00 á mánuðl. — Lausasöluverð 60 aur. eint. Prentsmiðja Þjóðviljans hJ. — ef þeir þora! Fyrir tveim dögum var skýrt frá árangri tveggja fyrstu vikna Þjóðviljasöfnunarinnar hér í blaðinu. Safn- azt höfðu kr. 31.410.00 á þeim tírna og er það góður árang- ur, betri en áætlað hafði verið. Á þeim þrem vikum sem nú eru eftir á hins vegar að safna kr. 45.590.00, svo að stuðn- ingsmenn blaðsins mega ekki draga af sér ef takmarkið á að nást. Sú söfnun sem nú fer fram er Þjóðviljanum lífsnauð- syn, ef hann á að geta haldið áfram baráttu sinni. Þjóð- viljinn hefur ekki að baki sér auðmagn hinna 200 ríku i Reykjavík, hann verður að treysta á fórnfýsi þúsundanna nú eins og að undanfömu. Og nú eins og að undanförnu fylgist auðstéttin með því full eftirvæntingar hvort tak- markinu verður náð, hvort alþýða landsins fylkir sér um blað sit-t. Þessi söfnun getur því orðið einskonar pólitísk loftvog og jafnvel haft áhrif á árásarfyrirætlanir afturhaldsins. Það eru engar gunnreifar kempur sem nú stjóma landinu og sitja á svikráðum við lífsafkomu alls almennings. Ráð- herramir og þingmenn þeirra tvístíga og velta vöngum í aðgerðarleysi. Eigum við að þora eða eigum við ekki að þora? Þjóðviljasöfnunin getur orðið þeim nokkur visbend- ing um það, hvers þeir megi vænta — ef þeir þora! Ríkisútvarpið er orðið áréðurstæki afturbaldsins l m „Heimska og fólska“ Jónas Þorbergsson hefur sent blaðinu þetta orðprúða bréf sem svar við ummælum Gall- harðs um Einar Nielsen: ,,I smáletursdálki Þjóðviljans í gær er ritað um danska miðil inn Einar Nielsen af meiri heimsku og fólsku en títt er jafnvel þar, sem blaðamennska stendur á mjög lágu stigi. Jafn vel Ekstrabladet í Kaupmanna höfn, sem hefur orð á sér fyrir að forðast ^annindi og sem hef ur ástundað ofsóknir á hendur þessum og öðrum miðlum, myndi liafa beðið mikinn álits- hnekki við að birta slíka 'grein. ¥ „Fólskuverk og fávís- legar lygar“ I íslenzkum spíritistum er ó- ljúft að standa í illdeilum um andleg mál og vilja forðast hverskonar áreitni í garð ann- arra á þeim vettvangi. Hinsveg ar líta spíritistar svo á, að full vissa hvers manns, byggð á reynslusannindum og óyggjandi athugunum um persónulegt á- framhaldslíf einstaklinga, myndi gerbreyta viðhorfi manna til lífsins og sambúð þeirra á jörðinni. Vegna les- enda Þjóðviljans er því ekki unnt að láta afskiptalaust þetta fólskuverk án þess að mótmæla þeim fávíslegu lygum, sem þar er hrúgað saman. Nægir þá að birta hér eftirfarandi staðreynd ir. „Þéttriðað flugnanet" Árið 1920 stóð mikill storm- ur í dönsku blöðunum um þenn an miðil. Ofsækjendur hans stóðu á svipuðu menningar og þekkingarstigi og þessi smá- letursritari Þjóðviljans. Nokkr ir áhugamenn í hópi spíritista, sem með þrautreyndum eftirlits aðferðum höfðu sannfærzt um líkamningafyrirbærin, gerðu of sækjendunum tilboð um að að velja nefnd vísindamanna til að ganga úr skugga um sannindin í þessu máli. Auk annarra varúðarráðstaf- ana tók nefndin það ráð, til fullrar tryggingar gegn því að brögðum yrði beitt, að slá utan um miðihnn og stólinn, sem hann sat á þéttriðuðu flugnaneti með föstum botni, lokuðu á all ar hliðar og að ofan með snúr um, sem tilraunamennirnir sjálfir höfðu vald á meðan á tilraunafundunum stóð. Meðal rannsóknarmanna voru próf. dr. med. V. Heiberg, dr. med I. Viberg og Th. Thorsen, læknii-. Þessir menn, auk margra ann arra er rannsóknarnefndina skipuðu, vottuðu síðan, að lík- amningafyrirbærin hefðu gerzt og að óhugsanlegt væri að miðl inum hefði verið unnt að beita brögðum. „Sorpritari, varmennska og klælöshögg" Um misþyrmingar þær og fjandskap, sem þessi miðill varð fyrir í Noregi, getur ekki orðið rætt hér, í svo stuttu máli. Um það mál liggja fyrir fullar skýrslur, er kunna að verða birtar síðar. Hitt er ó- hætt að staðhæfa, að þar réði hvorki vísindamennska né drengskapur. Jafnvel veðmál um stóra fjárhæð stóð að baki ofsóknunum. Sorpritara Þjóð- viljans hefðu getað verið til- tæk handhægari sönnunargögn. Þegar þessi miðill kom fyrst hingað til lands, árið 1924, gengust þeir Einar Kvaran og Haraldur Níelsson fyrir að láta beita fullu visindalegu eftirliti á fyrstu fundunum, sem haldn ir voru. Auk þeirra sjálfra, síra Kristins Daníelssonar og fleiri manna úr stjórn félagsins, voru til valdir þeir dr. Halldór Han- sen og Guðm. próf. Thorodd- sen til að stjórna og beita þessu visindalega eftirliti. Greinargerð þessara manna er að finna í fundarskýrslum, sem eru birtar í Morgni árið 1924. Eins og áður er tekið fram, tel ég nauðsyn til bera, vegna lesenda Þjóðviljans, að senda blaðinu þessi fáu orð, og mun láta þau að svo stöddu nægja. Eg hef óbeit á að eiga orða- stað við menn, sem af um- hyggju fyrir vanþekkingunni gera sér hverskonar var- 'mennskuvopn tiltækileg. Klæk- ishögg voru að fornu metin til svívirðingar þeim er greiddu. Reykjavík, 23. október 1947. Jónas Þorbergsson“. Núverandi stjórn hefur allt frá upphafi lagt einstakt kapp á að bæta það upp með áróðri sem henni mistókst í vejki, og þar sem henni hefur mistekizt allt sem hún hefur tekið sér fyrir hendur til þessa, .hefur áróðurinn orðið æ ofsafengnari og háværari. Einn af ráðhernmum, dóms- og utanríkismálaráðherrann Bjarni Benediktsson hefur fórn- að öllum tíma sínum til blaðaskrifa og ekki mátt vera að því að sinna embættisstörfum, og er hann þó ólatur maður eins og kunnugt er. En stjórnin 'hefur ekki látið sér nægja að beita öllum blaðakosti sínum til sameiginlegra átaka af meira ofur- kappi en dæmi eru til síðan á dögum Finnagaldursins, held- ur hefur hún beitt útvarpinu á sama hátt, gert það að á- róðurstæki gegn íslenzkum sósíalistum og sósíalisma í heim- inum. 1 útvarpsráði eiga nú sæti tveir af blindustu sósíal- istafjöndum þessa lands, þeir vinirnir Jóhann Hafstein og Stsfán Pétursson, og þeir hafa sannarlega ekki legið á liði sínu. Þeir eiga auðsjáanlega engin áhugamál í sambandi við útvarpið önnur en þau, að koma í það sem mestum og mögnuðustum áróðri, hitt láta þeir sér í léttu rúmi liggja þótt dagskráin verði æ andlausari, kauðskari og heimsku- Iegri. Gott dæmi um þetta er erindaflokkurinn „Frá útlönd- um“, sem ætlað er að veita hlustendum skilgóða og óhlut- dræga fræðslu um alheimsmál og skýra nánar hinar dag- legu fréttir. Þessum flokki hefur undanfarið verið breytt í ómengaðan áróður afturhaidsins, sósíalistaníð, Sovét-níð og Bandaríkjadekur. Til þess að sjá um hann hafa verið valdir fréttastjórar stjórnarblaðanna, til þess að ,,fræðsla“ utvarpsins væri í algeru samræmi við áróður dagblaðanna. Þeir hafa skipzt á Þórarinn Þórarinsson, Benedikt Gröndal og nú síðast ívar Guðmundsson og allt þeirra hjal hefur verið sama sinnis, einsýnn pólitískur áróður af ofstækis- fyllsta tagi. Á sama tíma er svo einn vinsælasti útvarps- maður síðustu ára rekinn fyrir að lýsa hinum „alíslenzka" Keflavíkurflugvelli fyrir þjóðinni sem „á“ hann. Þetta er að sjálf=ögðu óleyfileg misnotkun á ríkisút- Frumvörp sósíaiista um orðof blutar- sjómanna og hagnýtingu Faxaflóa- síldar komin til 2. umr. Tvö frumvörp sósíalistaþingmanna voru til 1. umræðu í neðri deikl í gær, og var vísað til 2. umræðu og nefndar. Annað var frumvarp Hermanns Guðmundssonar og Sigurðar Guðnasonar um brcytingu á orlofslögunum, en sú breyting tryggir hlutarsjómönnum ótvíræðan og óskert- an rétt til orlofs á kostnað útgerðarmanna, ef að lögum verður. Hitt var frumvarp er Hermann Guðmundsson og Áki Jakobsson flytja um ráðstafanir til hagnýtingar og mark- aðsöflun fyrir Faxaflóasíld, og fjallar um skipun sérstakr- ar „faxasíldarnefndar“ er skipuleggi þau mál. • Orlofsfrumvarpið er svohljóð andi: 1. gr. laganna orðist svo: Lög þessi gilda um allt fólk, sem starfar í þjónustu ann- arra, hvort heldur einstaklinga eða hins opinbera. Ná lög þessi jafnt til þeirra, er taka laun sín í hluta af verðmæti, sem hinna, er taka laun sín í peningum. Undanteknir eru þó iðn- nemar, sbr. 9. gr. laga nr. 100 11. júní 1938 um iðnaðarnám. 2. gr. 15. gr. laganna orðist svo: Kröfur á hendur vinnuveit- endum samkvæmt lögum þess- um fyrnast eftir sömu reglum og kaupkröfum samkvæmt lög- um nr. 14 frá 20. okt. 1905, um fyrningu skulda og ann- arra kröfuréttinda. 3. gr. Lög þessi öðlast gildi. Greinargerð. Frv. þessu samhljóða fluttu sömu flm. á síðasta þingi, en það náði ekki fram að ganga. Fylgdi þá frumvarpinu svo hljóðandi greinargerð: „Breyting sú, sem gert er ráð fyrir í þessu frumvarpi á 1. gr. orlofslaganna, er gerð til þess að afnema þann órétt, sem hlut arsjómenn hafa orðið að búa við, og tryggja það, að allir sjómenn hefðu ótvíræðan og óskertan rétt til orlofs að öllu leyti á kostnað útgerðarmanna. Það liggur í augum uppi, hversu ósanngjarnt það er, að svi starfstéttin, sem viðurkennt er, að vinni eitt erfiðasta og þarfasta verkið, skuli ekki njóta réttar til jafns við aðr- ar starfstéttir landsins, að þvi er snertir skilyrði til hvíldar og hressingar. Samkvæmt 15. gr. orlofslag- anna, eins og þau eru nú, fyrn- ast kröfur um orlof á hendur atvinnurekendum, ef þær hafa eigi verið viðurkenndar eða lög sóljn hafin áður en næsta or- lofsár er liðið, frá því kröfurn- ar stofnuðust. Þrásinnis hefur það komið fyrir, að launþegar hafa tapað óvéfengjanlegum rétti sínum til orlofs ýmisa or- Framhald á 5. síðu. varpinu og illt til þess að vita fyrir hlustendur að þeir geti átt von á að sérhver óvalinn áróðurssnati afturhaldsins vaði inn á heimili þeirra í hvert skipti sem opnað er fyrir útvarjiið. Hlustendur, sem halda útvarpinu uppi með fé sínu, standa nú alveg berskjaldaðir fyrir ofstæki þeirra Stefáns Péturssonar og Jóhanns Hafsteins. Og það væri vissulega tími til kominn að hlustendur mynduðu með sér samtök, ef unnt væri að koma í veg fyrir að útvarpið sykki ekki aðeins andlega heldur og stjórnmálalega niður á menningarstig stjórnarblaðanna.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.