Þjóðviljinn - 25.10.1947, Síða 5

Þjóðviljinn - 25.10.1947, Síða 5
Laugardagur 25. október 1947. WOÐVlLJINN 5 Sverrir Kristjjríti sson : QfvsrpsráS Aj: öllum þeim mörgu „ráð- um“, sem þjaka þessa marg- mæddu þjóð, er Útvarpsráð án efa húmorlausast og liæfileika snauðast. Það er jafnvel stund um hægt að brosa að f járhags ráði og skömmtunarráði, og þau gefa þó fólkinu brauð. En títvarpsráð, sem er launað til þess að sjá fólkinu fyrir nokk- urri skemmtan, er ekki einu sinni broslegt. Það er bara leið inlegt. En þetta leiðinlega ráð hefur slíka vígstöðu, að leið- indin leggur af því inn á hvert einasta heimili, er á annað borð liefur eignazt útvarpstæki. Og hvert einasta heimili verður að gjalda stóran skattpening fyr- ir fúllyndi þessara háu ráðs- manna. Já, framfarirnar á þessu landi eru ekki teknar út með sældinni. Síðustu mánuði hefur einn okkar efnilegustu blaðamanna, Jónas Árnason, flutt nýjan út- varpsþátt, „Heyrt og séð“. Er- indi þessi hafa mörg verið lireinasta afbragð, glöggar at- huganir á lífi líðandi dags, blandaðar góðlátlegri kímni. Þau voru nýstárleg að allri gerð, hressandi svali í Ijósvak anum. Útvarpinu til sóma og hlustendum til ánægju. Menn, sem annars loka fyrir útvarpið nema til að hlusta á síðiistu bjargráð ríkisstjórnarinnar okk ar, opnuðu fyrir „Heyrt og séð“, og fólki af öllum stétt- um og úr öllum flokkum kom saman um, að Útvarpsráði væri þó ekki alls varnað. Útvarpstíð indi birtu þakkir frá hlust- endum, er létu þá von í ljós, að þáttur þessi yrði ekki látinn lognast út af. En nú var Útvarpsráði nóg boðið. Hinir vísu mandarínar hugsuðu þessari gikkslegu þjóð þegjandi þörfina. Þeir vissu, að þjóðin gat lokað fyrir útvarp- ið, ef svo bar undir. Nú skyldi hún fá að kenna á því, bölvuð vanþakklætisrófan sú arna! Og þeir lokuðu fyrir skemmtun fólksins. Útvarpsráð hafði eng in bréf upp á það, að því bæri skylda til að verða íslenzkum hlustendum til yndisauka. Út- varpsráð hafði allt önnur skip unarbréf. Um hvatir ráðsins í þessu máli er allt á huldu — opinberlega. Víst er um það, að þegar Jónas Árnason hafði sagt frá för sinni til Keflavík- urflugvallar sunnudagskvöldið 5. október, fékk Útvarpsráð eitt af sínum frægu ósjálfráðu viðbrögðum. Þessi ósjálfráðu viðbrögð ráðsins þykja sjaldan góðs viti í Stofnuninni. Venju lega vita þau á það, að hið • svefnlétta hlutleysi Útvarps- ins hafi hrokkið upp. Hlutleysi útvarpsins er ákaflega óvært, svo að allir ganga á flókaskóm í Stofnuninni til þess að vekja ekki sakleysingjann. En stund- um dugar *'"ð jafnvel ekki til. hasn Stundum er eins og einhver að sókn sé að þessu barni og þá vaknar það við. hvert hljóð — já, þó ekki sé annað en að hundur gelti suður á Kefla- víkurflugvelli. Og þá er þunnt móðureyra í Útvarpsráði. Gárungar höfuðstaðarins segja, að það hafi verið greyið hann Sloppy Joe, er hafði rask að næturfriði Útvarpsráðs í þetta skipti og gert það svo úfið í skapi. Greyið Sloppy má sanna, að laun heimsins eru vanþakklæti. Því að um það verður ekki villzt, að Sloppy hafi orðið þjóð sinni til mikils sóma á þeim vettvangi, þar sem tvíbýlið er bæði vandsetið og veðrasamt. Það er kunn- ara en frá þurfi að segja, að íslendingar eru mjög tregir til náms á engilsaxneslía flug- vallatækni. En Sloppy lærði tungu Engilsaxa svo rækilega, að hann gleymdi móðurmálinu og gelti með amerískum hreim. Er það þá ekki í fyrsta skipti í sögu íslands, að málleysingj- a.rnir geri mönnunum skömm. En þess var varla að vænta, að óvitringurinn mætti sjá það fyrir, að fjórir vitringar í Út- varpsráði mundu hasta á hann fyrir þetta og bregða honum um kommúnistiskan áróður og landráð. Þeir segja vestur í Ameríku, að það sé ekkert sældarbrauð að lenda í klónum á körlum þeim, sem eru í „Óamerísku nefndinni“ frægu. Þó hefðu þeir ströngu dómarar áreiðanlega sýknað Sloppy. En í • Útvarpsráði þykir fínt að vera kaþólskari en páfinn. Þó skal þess getið sem gert ]er. Útvarpsráð hafði óljósan ' grun um, að lilustendum hefði litizt vel á Sloppy. Það vildi því gefa fólkinu nokkrar sára- bætur. Sunnudagskvöldið 19. október, réttum tveim vikum eftir að sagan af Sloppy hafði vakið viðeigandi truflun í sál- arlífi Útvarpsráðs, las Gunnar Stefánsson hjartnæma sögu í Útvarpinu af „Hundinum í Næf urholti“.. Það eru nú góðar taugar í Útvarpsráði, þrátt fyr ir allt! En þetta var líka góð- ur hundur, ekki eins menntað- ur og Sloppy, en bljúgur og blíður eins og íslenzkur Al- þýðuflokksmaður, sem hefur ekki enn etið af skilningstré góðs og ills. Þó hafði hundur- inn í Næfurholti góða greind, því að hann skildi til fullnustu langa ræðu, sem Gunnar Stef ánsson hvíslaði í eyra honum á Hekluhrauni, enda mun 1 Gunnar hafa mælt á íslenzka tungu. Og er þá lokið þeim þætti Út varpsráðs, er að dýrunum snýr. Sverrir Kristjánsson. í leii ú Fyrir nokkrum dögum aug- lýsti ég eftir húsnæði, Eg aug lýsti í Mogganum eins og marg ir fleiri. Sagt er, að hann græði álitlegar fúlgur á hinum miklu húsnæðisvandræðum höfuðstað arbúa og má segja, að þar hafi eigendur blaðsins og helztu stuðningsmenn skarað rækilega eld að sinni köku, enda þótt það hafi aftur á móti orsakað, að eldurinn lculn aði á heimili fátæka mannsins, sem lítið hefur til að bíta og brenna. En það er nú önnur saga, þótt sorgleg sé. Eg var heiðraður með upp hringingu í tilefni af minni tuttugu og tveggja króna aug- lýsingu í Mogganum. I síman- um var ein mektarfrú í bænum, kaupsýslukona að aðalatvinnu. Ennþá hefur ekki verið kunn- ugt, svo ég muni, að hennar veitingahús hafi verið sektað fyrir of hátt verð á veitingum, eins og komið hefur fyrir sum önnur. Þessi veitingakona átti liús, ef til vill er þó maður- inn hennar skrifaður fyrir því, því að hún ku nefnilega eiga mann, þótt hann komi hér ekki við sögu. Þessi mektarkona kvaðst hafa íbúð til leigu og aðspurð svaraði hún því, að sú íbúð væri í nýju húsi. Þegar leið á samtalið kom þó fram, að íbúðin væri á Leifsgötu. Þá fór ég ósjálfrátt að efast um að húsið væri nýtt, enda þótt það væri sýnilega yngra en frú in, sem enn var þó á léttasta skeiði og bar á sér öll ein- kenni velmegunar.. Eitt af því sem þarna bar á góma, var fyr irframgreiðsla á húsaleigu. Fyr irframgreiðsla á húsaleigu er nefnilega eitt af þeim hlunnind um, sem margir leigutakar verða aðnjótandi um þessar mundir og mun einn fyrrver- andi heildsali eiga heiðurinn af því að hafa verið með þeim fyrstu til að hágnýta sér þessa mikilsverðu möguleika til að fá ódýr og hagkvæm lán hjá fé- litlum mönnum. Kannski hefur þetta líka þótt fínt og hann fengið viðurnefnið ,,fíni“ á eft ir sínu mjög svo algenga skírnarnafni. Ekki komst ég þegar að því, hversu mikillar fyrirfram- greiðslu var krafizt. Samtal mitt við þessa mektarfrú end- aði svo með því, að hún bauð mér í ökuferð (bíltúr á Reykja víkurmáli) með sér neðan úr miðbæ og upp á Leifsgötu, ef ég óskaði að skoða íbúðina, áð- ur en ég tæki hana á leigu, sem var auðvitað mjög vel boð ið. Vitaskuld átti ég að leggja til bílinn, það var ekki nema sjálfsögð kurteisisskylda þeg ar kona átti í hlut. Eg fékk bílinn og ók af stað, hitti frúna á ákveðnum stað og ók með hana að hinu há- reista húsi liennar. Þar fórum við að sjálfsögðu inn um dyrn ar og staðnæmdumst að lokum í rúmgóðum stofum. Veggirnir hefðu haft gott af því að vera málaðir, því að auðsjáanlega var langt um liðið síðan íbúðin hafði verið máluð, því að húsið var nefnilega ekki alveg nýtt, heldur byggt í byrjun síðasta stríðs. Ef til vill hafa eigend- urnir ekki haft efni á því að halda við húsinu. Þessi mis- skilningur með aldur hússins reyndist stafa af því að frúin mundi ekki gerla, hvenær síð- asta stríð er talið hefjast og skal ég ekki lá henni það, þar sem Kínverjar voru t. d. bún ir að berjast við Japana árum saman og þola af þeim þungar búsifjar, án þess að því væri verulegur gaumur gefinn eða reynt að stemma stigu fyrir það. Húsið var sem sagt ekki gamalt, þótt það væri byggt á ódýrum tíma miðað við bygg ingakostnað nú á dögum. Stof- urnar virtust líka geta orðið prýðileg íbúð fyrir húsnæðis- lausan fjölskyldumann. Það er þægilegra að íbúðirnar séu það rúmgóðar að hægt sé með sæmilegu móti að ganga um herbefgin, þótt eitthvað af hús gögnum sé inni í þeim. Eg var búinn að fá að vita, að óskað var eftir mikilli fyr- irframgreiðslu. Nú fékk ég að vita hvað íbúðin átti að kosta á mánuði. Hún var fjögur her- bergi og eldhús og átti að kosta aðeins tvö þúsund krónur á mánuði og ársleigan, tuttugu og 4 þús. að greiðast fyrirfram. Þér finnst þetta kannski ótrúlegt, af því að á einu ári mundi leigjandinn greiða fyrir íbúðina ríflega það sem hún kostaði þegar húsið var byggt. Satt er það, að ekki hefur íbúð in lækkað í verði við að vera notuð í nokkur ár, þótt málningin nuddaðist burt á nokkrum stöðum. Hin augljósu ágæti steinsteyptra veggja komu bara einmitt betur í ljós og hefði það sízt átt að draga úr hróðri þessarar ágætu íbúð ar, enda var ekki á málninguna minnzt af minni hálfu. Fátt eitt man ég af viðskipt um okkar eftir þetta, nema livað ég þakkaði henni fyrir ökuferðina að skilnaði, er ég hafði skilað henni á þann stað er ég tók hana. fyrst. Síðan hef ég ekki séð þessa mektar- frú. Einn af mörgum. Enda þótt norski Verka- mannafl-okkurinn hafi tapað allmörgum fulltrúum í bœj- arstórnarkosningunum er Al þýðublaðið samt uppnumið af hrifningu og birtir eina frétt ina annarri gleiðletraðri. A- stœðan er sú að kommúnistar töpuðu 4000 atkvœðum. Þetta litla tap, sem vart getur talizt til stórtíðinda, vegur fullkom- lega upp fulltrúatap Verka- mannaflokksins og fylgisaukn ingu hægri flokkanna í aug- um ritstjórans. Ef kommúnist ar aðeins tapa, hversu lítið sem það er, fær ritstjórinn móðursjúkt fagnaðarflog. All ir aðrir atburðir skipta hann engu máli■ ★ En þá er ritstjórinn ekki jafn ánœgður með 'úrslit frönsku kosninganna. Það er að vísu ekki fylgisaukning de Gaulles sem angrar hann, heldur hitt að kommúnistar uku fylgi sitt og verkalýðs- flokkarnir tveir hafa nu hrein an meirihluta í Frakklandi í fyrsta sinn. Þegar hann fœr fréttir um að forustumenn sósíalista og kommúhista í Frakklan'di• hvetji til sam- starfs þessara beggja flokka gegn de Gaulle fœr hann móð ursjúkt heiftarflog og skrifar þannig feitletrað á fyrstu síðu (s.l. fimmtudag): „Geta menn hugsað sér aðra eins flærð? Mánuðum saman hafa franskir kommúnistar svívirt jafnaðarmenn sem „svikara og „sósíalfasista“ og magnað hvert vdrkfallið af öðru á níði um stjórn þeirra (Rama- diers). Nú hafa þeir fengið svarið við ábyrgðarleysi sínu og skepnuskap í kosninga- sigri de Gaulles; og þá koma þeir skríðandi til jafnaðar- manna og segja: „Kommún- istar heita á sósíaldemókrata til samstarfs gegn afturhalds- fylkingu de Gaulles!“ ★ Nei samvinna gegn fasisma er vissuíega ekki stefna Stef- áns Péturssonar. Stefna hans felst í slagorði Göbbels heit- ins: „Barátta gegn kommún- ismanum“ Leikfélag Reykjavíkur sýnir hinn bráðskemmtilega gaman- leik Blúndur og blásýra annað kvöld. Er það 5 sýningin. Að- göngumiðasala er í dag, sbr. auglýsingu í blaðinu á öðrum stað. Frumvörp sósíalista Framhald af 4. síðu saka vegna, svo sem erfiðrar aðstöðu í dreifbýli eða á af- skekktum stöðum til þess að ná í lögfræðilega aðstoð svo og vegna þess, að ýmsir hafa gengið út frá og talið eins og sjálfsagðan hlut, að fyrning kaupkrafna og orlofskrafna, sem svo mjög eru tengdar hvor annarri í eðli sínu, fylgdust að, enda virðist liggja í hlutarins eðli, að svo eigi að vera.“ Síðar mun skýrt nánar frá frumvarpinu um Faxaflóasíld- ina.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.