Þjóðviljinn - 12.11.1947, Qupperneq 3
Miðvikudagur 12. nóv. 1947.
ÞJÓÐVILJINíN
Spurningar til fiugmálaráðherra
I-Ir. ritstjóri.
Eg vil hér með biðja yður
að birta nokkrar spurningar, til
úlausnar fyrir flugmálaráð-
herra. Stöðu sinnar vegna tel
ég hann bera sérstaka skyldu
til andsvara.
Eg veit að í framtíðinni munu
loftleiðirnar verða mikið notað-
ar til samgangna á íslandi og
milli íslands og annarra landa,
ennfremur munu útflutningsvör
ur íslendinga verða fluttar eins
í lofti, sem á legi.
Fyndist mér því rétt að þjóð
in fylgist mjög vel með því sem
gerist i flugmálum okkar.
Tímarit er að vísu gefið út
um flugmál og margt hefur þar
verið vel sagt, en of lítið þó og
nær til of fárra ennþá.
Þó vil ég undanskilja grein
hr. Jóhannesar Snorrasonar í
3. tbl. þ. á.; mun ég síðar birta
athugasemdir við hana ef aðr-
ir verða ekki búnir að því áður. 1 að ?
urflugvöllmn og þar upplýstar
aðgerðir núverandi rikisstjórn-
ar til aðstoðar Bandaríkjunimi
við að troða á rétti okkar at-
vinnu- og viðskiptalega i viðbót
við herstöðvahneykslið sem al-
þjóð er kunnugt.
En — Er nú líka verið að
eyðileggja Reykjavíkurflugvöll
inn og gjöra flugumferðastjórn
okkar óstarfhæfa?
Er ætlunin, að slá því föstu,
að íslendingar geti ekki, sökum
vanefna og vankunnáttu, ann-
azt sinn þátt í alþjóða flugsam-
göngum, þrátt fyrir yfirlýsing-
ar nokkurra mætra sérfræðinga
annarra þjóða, er séð hafa byrj
unarstarf okkar og talið það
með ágætum ?
Er það meiningin að biðja, eða
bjóða svo Bandaríkjunum að
annast flugurnferöarstjórnina
iyrir okkur ?
Til Iiveis var fiugráö stofn-
Á Alþingi hefur undanfarið
verið rætt nokkuð um Keflavík
Var það stofnað til að gefa
Flugfélagi Islands séraðstöðu,
♦
JÓLABÆKUR
Gjafabækur
jofcm
Sagnaþættir Þjóðólfs. Fögur og smekkleg útgáfa. af
þessum gömlu og vinsælu þáttum, nokkuð aukin.
Enginn sá, sem ann sögu landsins og þjóðlegum
fræðum má fara á mis við það að eignast þessa
fallegu bók. Vegleg tækifærisgjöf. — Verð ób. kr.
40,00, í rexinbandi 55,00 og fögru skinnb. kr. 70,00.
Vísindamenn allra alda. Bók þessi hefur að geyma
ævisögur rúmlega tuttugu heimsfrægra vísinda-
manna, skemmtilega skrifaðar og fróðlegar. Þessi
bók hentar fólki á öllum aldri, en sérstaklega vel
valin gjöf handa ungmn möxmum. títgáfa bókarinn-
ar og allur frágangur er svo fagur og vandaður, að
sérstaka athygli vekur. — Kostar í fögru bandi
kr. 35.00.
Hershöfðinginn hennar. Skemmtilegur og spennandi
róman eftir Daphne du Maurier, höfund „Rebekku1
M.jög kærkomin gjöf handa konum á öllum aldri. —
Bókin er nálega 500 bls. í stóru broti, en kostar þó
aðeins kr. 32,00 heft og 45,00 í góðu bandi.
Á skákborði örlaganna. Hin fræga metsölubók Hol-
lendingsins Hans Martin. Áhrifamikil og^spennandi
róman, sem heldur athygli lesandans fanginni frá
fyrstu línu til hinnar síðustu. — Verð ób. kr. 20,00
og ib. 32,00.
Bækur handa börnum og unglingum
Systkinin í Glaumbæ. Þessa frábæni barna- og ung-
lingabók lesa ungir sem gamlir sér til óblandiimar
ánægju, enda er þetta ein af hinum fáu ,,klassisku“
unglingabókum. Er einkum ætluð telpum 12—16
ára. — Verð ib. kr. 20,00
Leyndardómar f jallanna. Þessi skemmtilega drengja-
saga Jóns Björnssonar kom fyrst út á dönsku og
hlaut mikið lof leiðandi manna í uppeldis- og skóla-
málum, auk þess sem allir strákar voru sólgnir í
hana vegna þess hve skemmtileg hún er. — Verð
ib. kr. 18,00.
Framantaldar bækur fást hjá bóksölum um land allt
og beint frá útgeí'anda.
Draupnisútgáfan — Iðunnarútgáfan
til að auðgast á f'.ugsamgör.g-!
um, á kostnað annarra flugfél. j
og ríkissjóðs?
Sem kunnugt er, voru alveg
sérstakar aðferðir notaðar við
að búa flugráð til.
Þar er formaður flugráðs
einnig flugvallastjóri ríkisins,
ekki flugmálastj. eins og ,,mis-
ritazt“ hefur í sumum dagblað-
anna og „mislesizt“ hefur af
ráðherra í þingræðu ef ég man
rétt.
Starf flugvallastjóra er fram
kvæmdastjórn á rekstri flug-
valla ríkisins og hefði samkv.
eðli sínu átt að vera undir yfir-
stjórn flugmálastjóra.
Heyrzt hefur, að flugvalla-
stjóri ríkisins og formaður flug
ráðs, sem af flestum var talinn
óhæfur lögreglustjóri í Reykja
vík, hafi orðið að fá einhverja
stöðu, vegna sambanda sinna
frá því embætti.
En — br. flugmálaráðherra,
er það heppileg ráðstöfun og
| líklega til góðs árangurs í vanda
sömu starfi, sem lífsafkoma
þjóðarinnar mun síðar byggjast
mikið á, að setja þar mann, með
miklum völdum, eingöngu af
því að „einhversstaðar varð
hann að vera“ ?
Eða var þessi ráðstöfun
kannski, vitanUi vits, gerð til að
koma á því öngþveiti og eyði-
leggingarstarfi og starfsleysi,
sem nú er gert af þessum óláns-
manni, til að undirbúa jarðveg
Sigurðsson
— Kveðjuorð —
„Mjök erum tregt tungu at
hræra“. Þannig hefst Sonator-
rek, og svo varð mér, þegar sú
sorgarfregn barst, að Steinþór,
Sigurðsson væri látinn. Hvei’n-1
ig mátti það vera, að hann, at-
hafnamaðurinn mikli, hinn á-
gæti félagi og foringi, væi’i nú
skyndilega horfinn frá öllum
þeim verkefnum, sem hann
með svo miklum ágætum vann
að, nú á bezta skeiði.
Mér yar vel kunnugt um
liæfni Steinþórs og mikilvirkni
sém vísindamanns, en það voru
einnig önnur mál, sem hann tók
þátt í af miklum dugnaði og
áhuga, þar á meðal skíðamál-
in, en skíðaíþróttinni unni Stein
þór af alhug og hafði unnið um
rnargra ára skeið að eflingu
hennar og framgangi.
Það var árið 1937, að ég
kynntíst Steinþóri fyrst, þá við
fjölmennt skíðamót í Hveradöl-
unum, en síðan hef ég liaft þá
ánægju að vinna með honum
að þessum málum, en þau hafa
emnig verið mín áhugamál.
Steinþór var hvers manns hug-
ljúfi, þeirra sem honum kynnt-
ust, vegna mannkosta sinna og
viðfeldni. Hann var fæddur
foringi, enda hefur ekkert þótt
ráðið í nokkrum þeim málum,
sem viðkoma skíðaíþróttinni
nauðsynlegasta fyrir alla þá,
sem með þessi mál hafa að gera.
Steinþór var aðallivatamað-
ur að stofnun Skíðasambands
Islands, sem stofnað var árið
1946, og leiddi þá af sjálfu sér,
að hann tæki við formennsku
þess, en þá um leið lét hann af
störfum sem formaður Skíða-
ráðs Reykjavíkur.
Með stofnun sambandsins
koma skíðamál Islendinga fyrst
undir eina stjórn og sjálfstætt
skipulag, og ég vona, að sá
draumur Steinþórs Sigurðsson
ar rætist, að íslenzkir skíða-
menn eigi eftir að standa jafn-
fætis erlendum skíðamönnum í
þessari fögru og hollu íþrótt.
Það er ómetanleg gæfa okk-
ar, sem skíðaíþróttinni unnum,
að hafa notið leiðsagnar og á-
gætrar forystu Steinþórs Sig-
urðssonar á undanförnum ár-
um, og það má óhikað segja,
að hann hafi orðið öllum skíða-
mönnum á landinu harmdauði,
því að með honum er fallinn í
valinn ekki einasta ötull og
traustur foringi, heldur einnig
hinn bezti drengur.
Ólafur Þorsteinsson.
inn fyrir áróður um, að íslend nema hans umsögn kæmi þar
ingar séu ekki færir um stjórn
sinna flugmála?
Eg veit að ég tala her fyrir
munn flestra þeirra er við flug
mál okkar starfa þó, (saman-
ber flugvallanefnd sællar minn
ingar), alltaf fáist einhverjir, ef
vel er að unnið, til að haga áliti
sínu í samræmi við vilja rikis-
stjórnarinnar. Ari Guðmundss.
Athugasemá frá
Jóni á Yztafetll
Eg deildi á flokksblöðin í út-
varpserindi mínu um „Daginn
og veginn" í gærkveldi, meðal
annars fyrir það hve þeim
væri gjarnt ag flytja litaðar
fréttir og frásagnir. Þjóðviljinn
er svo vinsamlegur að staðfesta
réttmæti þessarar ásökunar
minnar með því að flytja litaða
og villandi frásögn af ummæl-
um mínum um hlutleysi útvarps
til.
Honum bárust ótal efni til
úrlausnar, fýrir utan þau, sem
hann var sjálfur upphafsmað-
ur að. Sem formaður Skíðaráðs
Reykjavíkur um margra ára
skeið, eða frá stofnun þess
1938 til 1946, var hann kjörinn
forustumaður okkar hér í
Reykjavík, og vann hann af
eindæma dugnaði og fórnfýsi
að skipulagningu og framför-
um skíðaiþróttarinnar hér á
landi, meðal annars með því að
taka saman, ásamt öðrum val-
inkunnum dugnaðarmanni,
handbók skíðamanna, en í henni
eru lög og reglur fyrir íslenzka
skíðamenn, og er hún þvi hin
ms.
Ummælin voru á þennan veg:
„Útvarpið er hlutlaust. Það
er vel farið ef svo má skilja að
þar skuli aldrei ráða skoðana
kúgun flokkanna og öll sjónar-
mið séu þar jafn rétthá til
sóknar og varnar, en ef hlut-
leysi útvarpsins væri í því fólg-
ið að þar megi engir nema ai-
þingismenn í útvarpsumræðum
varpa fraih hluttækum skoðun-
um á þjóðmálum,, þá verður út-
varpið samselit flokksbiöðunum j
legt og ræðumennirnir þar vera
alltof hræddir við að brjóta
hlutlcysi. Er það satt, að ung-
um manni hafi verið ýtt í burtu
frá hljóðnemanum með skemmti
lega þætti, vegna þess að hann
hafi ekki talað með nægri virð-
ingu um einn hæstvirtan heið-
urshund suður í Keflavík?“
Eg bið lesendurna að bera
þetta saman við frásögn Þjóð-
viljans og athuga hvort ekki er
nokkuð annar blær yfir um-
mælum mínum en Þjóðviljinn
vill vera láta.
p. t. Reykjavík 11. 11 1947.
Steinþór Sigurðsson var fædd
ur í Reykjavík 11. jan. 1904,
sonur hjónanna Önnu Magnús- ■
dóttur frá Dysjum á Álftanesi
og Sigurðar Jónssonar fyrrv.
skólastjóra við Miðbæjarbarna-
skólann. Að loknu stúdentsprófi
1923 hóf Steinþór nám við Hafn
arháskóla með stjörnufræði
sem aðalnámsgrein en lagði
jafnframt stixnd á efna-, eðlis-
og stærðfi’æði og lauk mag.
scient-prófi ái-ið 1929.
Næstu tíu árin var hann kenn
ari við menntaskólana norðan-
lands og sunnan, en varð skóla
stjóri Viðskiptaháskóla íslands
1938 og gegndi því starfi til árs
ins 1941 að skólinn var lagóur
niður. Varð Steinþór þá aftur
kennari við Menntaskólann í
Reykjavík og verkfræðideild Há
skólans. Steinþór var þátttak-
andi í landmælingum Islands
árin 1930—38 og telja kunnugir
að hann eigi ekki minnstan þátt
í hvað sú mæling var vel af
hendi leyst.
Jón Sigurðsson
frá Yztafelli.
um það að varna þeim máls sem
skóða vilja þjóðmál frá eigin Þjóðviljinn leggur það fús-
bæjardyrum, án þess að horfa' lega undir dóm lesenda sinna,
geguum litað flokksgler. * hvort hin stuttorða frásögn
Mörgum okkar finnst útvarp i hans hafi verið „lituð og vill-
ið alltof hátíðlegt og þunglama,' andi“.
Steinþór var áhugamaður um
allt er laut að ferðalögxrm og
íþróttamálum, einkum skíðaí-
þróttinni. Hann átti sæti í stjórn
Ferðafélags Islands, var for-
maður Skíðaráðs Reykjavíkur
og Skíðasambands Islands er
það var stofnað, og átti sæti í
milliþinganefnd í iþróttamálum.
Þá var Steinþór framkvæmda-
stjóri rannsóknarnefndar um
náttúru Islands. Hann var
kvæntur Auði Jónasdóttur
(Jónssonar alþingismanns).
Steinþór naut almennrar hylli
þeirra mörgu er einhver kynnl
höfðu af honum sem náttúru-
fræðing, ferðafélaga og íþrótta-
ieiðtoga, en hans er ekki minnsfc
saknað sem góðs drengs. ,