Þjóðviljinn - 26.11.1947, Side 5

Þjóðviljinn - 26.11.1947, Side 5
Miðvikudagnr 26. nóv. 1947. ÞJÓÐVILJINN 5 BRÉF Stokkhólmi 14. nóvember. í gær féll snjór í Stokkhólms borg og nú liggur haustlaufið á snjónum. Þeir, sem sáu „The Iceman í:—eftir O’Neill í gær- kvðld, biðu þess allt kvöldið að Ismaðurinn kæmi, en nei, ekki var hann sýnilegur í leik- liúsinu. Þegar út kom, var hann þar. Það snjóaði og snjórinn var jafnfallegur og snjór ann- arra landa. Þetta er þó ekki fyrsti snjór, sem fellur yfir Stokkhólm, því að einn morgun vaknaði fólk í ýmsum húsum við það, að einhverjir voru að viðra rúmföt á efri hæðunum, og þegar gægzt varð út um gluggana, var loftið fullt af snjókornum. En sá snjór bráðn aði á svipstundu. Mönnum komu í hug orð Villons: Hvað varð um forna snjóa? Það liggur nærri að nú snjói á frönsku í Svíþjóð, að minnsta kosti í bókmenntaheiminum, því að í gær veittu þeir Svíarnir André Gide bókmenntaverð- laun Nóbels. Stokkhólmsblöðin taka misjafnlega undir kjörið. Vinstri blöðin eru óánægð og nefna aðra höfunda sem hefðu átt að hreppa hnossið, en hægri blöðin segja frá án þess að brydda á óánægju né á- nægju. Það komu aðrir höfund ar til greina, m. a. enska skáld- ið T. S .Eliot og frönsku rit- höfundarnir Mauriac og Du- hamel, sem báðir njóta þess heiðurs að skrifa undir nafn sitt ,,de l’academie francaise", en það veitist ekki nema út- völdum. I augum margra er tit- illinn ,,dc l’academie francaise“ merki afturfarar og stöðnunár nú á dögum og finnst þeim akadcmídð standa bókmenntum þeirra algjörlega fyrir þrifum. Það hefur þann starfa, sem kallaður er að hreinsa og við- halda tungunni eða m. ö. o. krækiberja og lúsatínslu á bók- menntasviðinu. Ennfremur hef- ur það ekki viðurkennt ýms orð af því sem t. d. Corneille skrifaði áður fyrr, svo að bet- ur hefði farið, að það hefði starfað þá, en ekki nú. Það er varla nokkur Frakki, sem ekki skrifar vel nú á dögum, en þar fyrir er ekki sagt að hver og einn sé mikill rithöfundur. Þeir þykjast vera aftur úr tímanum. Það er til smá saga um Arthur Gravan, sem spurði André Gide eitt sinn þreytulegum og gam- allegum tón: ,,Hr. Gide, hvar erum við í tímanum?“ En Gide sem skildi ekki skensið svar- aði: ,,Þrjú korter í 6.“ Nóg um bókmcnntir, þar eð vér erum eltki í Frans, heldur Svíþjóð hinni köldu. Hún ber nafn með rentu þessa dagana og við, sem nýkomin erum frá Islandi, söknum heita vatnsins. Þó hefur komið heitt vatn í húsin einu sinni í haust og . áttu þá víst Stokkhólmsbúar að fá sér jólabaðið. En sú varð frá Stokkhólmi raunin á, að þeir ruku naktir í baðið og þótti svo dónalegt, að síðan hefur ekki komið heitt vatn í vatnsæðar húsanna. I suðurhluta bæjarins hefur þó verið nóg um hituna, því að þar hefur hver stórbrimiun ver- ið á fætur öðrum. Það varð uppvíst, að strákar á aldrinum 14—16 ára voru valdir að ein- hverjum íkveikjum og höfðu farið í þann leik til að sjá rauða, fallega loga. Síðar kom í ljós, að þeir höfðu logið á sig fleiri íkveikjum en þeir höfðu valdið, til þess að sýnast meiri karlar fyrir félögunum. Hér er margt skammtað eins og heima, nema fatnaður. Heima getur maður fengið sér í eina ermi, en hér er ekki hægt að fá í uppslög fyrir gjaldeyr- isskorti. Það er sárt að sjá eftir síðasta gjaldeyri landsins í óþarfa eins og mat og hús- næði. Kaffiskammturinn er lít- 511 og fer síminnkandi. Svo er það vínið. Því er úthlutað sam kvæmt kerfi Bratts nokkurs og væi'i í lagi, ef það misbyði ekki kvenréttindunum á gróf- asta hátt. Til þess að fá sér tvær fingurbjargir af brenni- víni þurfa karlmenn nær því aö sprengja sig á ’ mat, en kven- fólk fær ekki nema eina fifig- urbjörg, þótt það borði heirn- mgi meira og jafnvel springi. Kvenréttindm eru sem sé tioð- dn illilega í svaðið, hvað sem bindindismálum viðkemur. Svo mikil lotning er fyrir kerfinu að menn Ieggja sig almennt undir það, enda eru Svíar litlir sem engir merm ti! að brjóta x-eglur. Það kom stxilka frá íslandi til Svíþjóðar og hafði aldrei séo sporvagn . fyrr. Þegar hún sá þá bláu, sem aka hér um stræti með sitjandi og stand- andi fólki, spurði hún: „Hvað er þétta bláa, sem rennur eftir götunum og dansað er í?“ Hún komst að því síðar, hversu fjarri því fer, að dans- að sé í þeim. Það er satt að segja eins og að vera við jarð- arför að fara með þeim og versta skyssa, sem hægt er að gera, er að hlæja. Þeir eru nú í þann veginn að bæta umferðina hér, alveg eins og fólkið væri ekki nógu reglu- samt fvrir. Expressen, eitt af dagblöðunum, gerðist höfuð- paurinn i að kénna mönnum umfei’ðarreglur og bauð hverj- um þeim, sém fæi’i rétt yfir götuna, 50 ki'ónur. Þá vildi svo til, að menn, sem alltaf hafa stiklað á gulu röndunum, sem merktar eru fyrir fótgangandi, fói’u að taka hliðarstökk og ýirtist enginn geta fylgt settum reglum. Einstaka fengu verð- laun og voru þeir afmyndaðir þar sem þeir voru að fi'emja afrekið að fara rétt yfir götuna þannig, að hringur var settur um þá á myndunum og viðkom andi beðnir að bígefa sig á skrifstofu blaðshis, til að taka á móti verðlaunum. Komu minnst 1000 manns til að fá verðlaun fyrir hvern einn sem fékk hring um höfuðið, því erf- itt var að greina manninn á myndinni, Fyrstu verðlaun sem veitt voru hlaut baniavagn. Það minnti talsvert á kappreiðarnar fyrir austan fjall, þegar hest- urinn Skjóni fékk 1. verðlaun og var það silfurbikar, en hryssan Bleik 2. verðlaun og var silfui'kaffisett. Var kaffi- drykkja og dans á eftir. Loks komst umferðin í samt lag aftur og nú þræða íbúarnir gulu strikin og fá engin verð- laun. Þrátt fyrir það, segja þeir ennþá mikið „tack, tack, taek“ og þrælast á því frá morgni til kvölds. Svarið við því er „tack, tack, tack“ og finnst oss löndum það minna helzt á gagl, en erum samt óð- fluga að nema. Svíar hafa ó- umi’æðilega þörf fyrir ao titu- lei'a fólk og segja þessa sögu í því sambandi: Það var áður fvrr í sveitinni, að fangar sem þóttu meinlitlir, voru léðir á hin og þessi heimili til vinnu. Eitt sinn fékk frú nokkxir í Örebro einn faixgann að láni til að vinna í garðhium sínum, og sem hún átti að skipa hon- um fyrir vei-kum, vissi hún ekki vel hvernig hún átti að á- varpa liann. Þar eð hana grun- aði að hann væri dæmdur fyrir þjófnað, þá hóf hún máls: „Vildi ekki heri'a þjófurinn klippa grasið meðfram stignum og þegar þjófui’inn lxefur gert það, vill liann ekki raka mölina og síðan, þegar þjófurinn hef- ur lokið því, vill þá ekki þjóf urinn gjöra svo vel að konxa imx í eldhús og fá sér kaffi.“ En þá reiddist ávarpaður og sagði vonzkulega: „Þjófar gera hitt og þjófar gera þetta — ég er .fjandinn fjarri mér enginn þjófur. Eg er brennuvargur." Alltaf hafa Svíar gætt hins ítrasta hlutleysis, jafnt nú á j fundum sameiixuðu þjóðanna senx áður. Ehxhver lét svo um mælt, að næst skyldu Svíar láta til sín taka á fuixdi RÞ og stinga upp á einþverju róttæku. T. d. því, að sameinuðu þjóð- irnar efndu sér í bekki í stað stóla, sem notaðir hafa verið á fundum, svo að Svíar þyrftu ekki að verða á milli stóla. Th. Mmmmia — Þórir Þó margt sé nú ráðið af nxálefnum vorum og högum, þeir mínnast þess lítt er fylgjast með sögunnar gangi, að þú varst hinn fyrsti sem frá er getið í sögum að fénaðist drjúgum á verzlun og innanlandsprangi Þó saga vor kannski á stundum sé grálynd og glettin og geti látið í triráðar meiningar skína, er það víst tæplega hending að heildsalastéttin til Hænsa-Þpris rekur tilveru sína. En þjóð, senx taldi sér Iöngunx á liðnum dögum Ijóma hxers afreks skylt við gleymsku að þyrma, það gáleysi lilýtur að gremjast í fræðunx og sögum ef getið er ekki sem skyldi þíns j,öndyegisfirma“. Og xíst hafði saixxtíðin nxargt þér tii foráttu að finna og fésýslustarf þitt var mörgum áhyggjum hlaðið; svo börðust eklvi i þjónustu hugsjóna þinna á þímmi dögum Vísir og Morgunblaðið. En það er svo algengt að þeir senx brautina ryðja þiggi að launum misjafna dónxa og harða. Því bæri nú fjrrnefndum blöðum þá hugmynd að styðja að braskarastéttin reisi þér minnisvarða. Og til þess að engum takist með réttu að segja’unx tilefni slíks eitthvað misjafnt né að því finna mun f,jármálaráðhcrra Íslands, Jóhann úr Eyjum afhjúpa x'arðann í nafni flokltsbræðra sinna. GAMLI. N E I S T I Framhald al' 8. síðu. hafi verið á Hafnarfjörð sem fyrirmyxxdarbæ Alþyðuflokks- :ns, má segja að síðustu árin hafi eitt íhald ráðið flestu unx stjórxx bæjarins. Menn geta gerzt áskrifendur eða keypt Neista í lausasölu hjá afgreiðslu Þjóðviljans. Rit- stjórn og afgreiðslu annast ÓI- afur Jónsson Strandgötu 41 Hanfarfirði, Vestur í hafinu aðeins fjöru tíu sjómílur danskar undan Vest fjörðum liggur nxesta eyland jai’ðar, Grænl. landið sem Islend ingar námu til fonxa og byggðu, lifðu þar lífi sínu og háðu sína baráttu um aldir, runixu loks saman við annan aðkomuþjóð- flokk, Skrælingjana, glötuðu tungu sinni og hinni íslenzku búandmenningu, en hófu í stað inn veiðimemxingu hinna nor- rænu þjóða í hærra veldi og til- einkuðu sér ennfremur að ýmsu leyti siði og háttu Skrælingj- anxxa. Út af þessum samruna Islend inga og Skrælingja eru nútíma Grænl. konxnir, en sumir þeirra bera enn norrænt yfirbragð. Þetta mun vera hin almenna skoðun erlendra fræðimanna, og má í því efni vísa til ekki ó- merkari manns en bandaríska landkönnuðarins og mannfræð- ingsins Vilhjálms Stefánsson- ar. Að vísu halda Daxxir því emx fram, að ísl. fornu hafi dáið út á einhvern undraverðan liátt, úr lxor og úrkynjun eða verið drepnir í styrjöld við Skræl- ingja. En þetta er ekki hægt að taka alvarlega, þar sem það stangast á. við staði'eyndir, og að öðru leyti er vitað, að þessa kenningu hafa Danir reynt að lemja inn í umheimhhx af mik- illi óbilgirni vegna þcirra hags- muna, sem þeir gætu e. t. v. af því haft. Að skiljanlegum ástæðum hef ur Grænland verið oss Islend- ingum hugstætt á umiiðxxum öldunx, og svo er það enn í dag. Og eftir að það varð kunnugt, að landbúnaður hafði verið lagður íxiður í Grænlandi og bændabyggðirnar þar stæðu í eyði, hafa oftar enn einu siixnx kömið fram raddir um það, að Islendingar ættu að endur- byggja þær og setjast þar að. Þannig kom sameiginlegri stjórn beggja landamxa þetta til hugar laust fyrir 1730, og rétt eftir 1850 hófst töluverð hreyfing í Þingeyjarþingi um að flytjast til Grænlands. Voru haldnir um þetta mál allmarg- ir fundir í sýslunni. Skamm- sýnum mönnum tókst þó að sveigja þessa hreyfingu inn á aðrar brautir, sem sé Brasilíu- ferðir. Þannig fór um þessa á- gætu hugmynd. Um það leyti, sem okkur sjálfum tókst að losna úr greipum Dana, á grundvelli Ganxla sáttmála og i skjóli þeirrar frelsishreyfingar sem þá fór um heiminn, komu fram ýmsar raddir, sem liéldu því fram að Grænland ætti að fylgja Islandi út úr sambandinu við Dani. Fylgdust Islendingar með því málefni af rniklum á- huga. Báru ýmsir hugsjóna- og gáfumenn þessa kenningu fram svo sem skáldið og menntamaðurinn Einar Bene- diktsson. Um þetta leyti hóf dr. Jón Dúason að rita um Grænland og réttax'stöðu þess. Hafa nú þessi árin verið að koma á prent frá hans hendi mikil rit um þetta efni svo sem alþjóð er kunnugt. Framhald á 6. síðu,

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.