Þjóðviljinn - 26.11.1947, Page 6

Þjóðviljinn - 26.11.1947, Page 6
6 68. eftir MICHAEL SAYESS ALBEET E. KAHM Reilly gerði allt hugsanlegt til að hindra. lánið. Hann setti upp einkaskrifstofu á Broadway er brátt varð að- alstöð baráttunnar gegn SoVétríkjunum. Ógrynni af á- róðursefni tók að flæða þaðan víðsvegar um Bandarík- in, sent í pósti til áhrifamikilla ritstjóra, blaðamanna, kenpara, stjórnmálamanna og verzlunárhöida. Reilly fór í fyrirlestraferð til að skýra almenningi frá „hætt- inni af bolsévismanum og ógnun hans við menningu og heimsverzlunina“. Hann átti allmörg „trúnaðarsamtöl“ við fámenna, vaida hópa Wall Street-manna og auðugra iðjuhölda víða í Bandaríkjunum. „Bæði með opinberum fyrirlestrum og blaðagreinum" ritar-frú Reilly. „barðist Sidney gegn láninu til bolsé- víka. Og ekki þarf frá að skýra hvernig liann vann alger- an sigur með einni uppljóstruninni eftir aðr'á, og lánið var ekki veitt.“l) Bítrátta gegn láninu var þó ekki aðalstarf Reillys í Bandaríkjunum. Hann ætíaði sér fyrst og fremst að stofna vestan hafs deild úr Alþjóðasambandi gegn bol- sévisma, er lagt gæti drjúgan fjárskerf til hinna ýmissu samsæra gegn Sovétríkjunum, sem hann hafði á prjón- unum í Evrópu. Deildir úr sambandi Reillys voru þá þegar starfandi í Berlín, London,- París og Róm og auk þess í öllum ríkjum „sóttvarnarbeltisins“ frá Eystra- salti til Balkanskaga. I austur-Asíu var deild, kostuð af Japönum, í Harbin, Mansjúríu, undir forustu hins al- ræmda kósakkaforingja Semjonoffs. í Bandaríkjunum voru engin slík samtök, en nógur efniviður í þau. Hinir rússnesku hvítliðavinir Reillys kynntu hann brátt áhrifaríkustu og auðugustu sambandsmönnum sínum í Bandaríkjunum, er helzt voru líklegir til að leggja fram fé í samtök hans gegn Sovétríkjunum. „Hvað fjáröflun snertir er hér einmitt rétti staðurinn“, ritar Reilly þetta ár í trúnaðarbréfi til eins erindreka síns í Evrópu, ,,en til þess að fá peningana þarf að'leggja fram ákveðnar áætlanir sem sennilegt er að hægt sé að framkvæma, og áþreifanlegar sannanir þess að minni- hlutinn geti áður en langur tími líður endurskipulagt fyrirtækið. ,,Minnihlutinn“ sem Reilly nefnir svo á rósamáli sínu var gagnbyltingarhreyfingin í Sovétríkjunum. „Endur- skipulagning fyrirtækisins“ þýddi fall sovétstjórnarinn- ar. „Með slíkum forsendum væri hægt að ná sam- bandi við voldugasta bílaframleiðandann hér, sem hefði áhuga á einkaleyfum ef hann fengi sönnun (en ekki tóm orð) um að þau séu nothæf. Tækist að vekja áhuga hans væri fjáröflun að miklu leyti tryggð.“ Að því er segir í minningum frú Reilly átti maður hennar hér við Henry Ford. 2. Njósnarinn Bl. Foringi hvítliðasamtakanna í Bandaríkjunum var upp- gjafaliðsforingi úr keisarahernum, Boris Brasol, fyrrum njósnari í Okrana, er eitt sinn hafði verið saksóknari í hæstaréttti Pétursborgar. Hann kom til Bandaríkjanna 1916 sem rússneskur fulltrúi á ráðstefnu Bandamanna í New York, og varð eftir það um kyrrt í Bandaríkjunum sem erindreki keisarastjórnarinnar. Brasol var lítill maður, óstyrkur og kvenlegur, alræmd- ur fyrir gyðmgahatur. Árið 1913 hafði hann verið einn aðalmaðurinn í Beilis-málinu, er leynilögregla. keisarans reyndi að sanna að gyðingar fremdu helgisiðamorð og 1) Sidney Reilly gat raunar ekki þakkað sér einum þann sigur. Til voru menn i Bandaríkjunum, sem engu síður lögðu sig i framkróka til að hindra lánið. Meðal þeirra var Herbert Hoover, þáverandi verzlunarráðherra; hafði sízt dregið úr andúð hans á bolsévíkum. „Verzlun milli Bandarikjanna' og Rússlands", sagði Hoover við Maxim Litvinoff 31. marz 1921, „er miklu fremur pólitískt mál en efnahagslegt meðan bolsé- víkar ráða þar ríkjum". 1 ÞJÓÐVILJINN Miðyikudagur 26. nóv. 1947. Framhald af 5. síðu. Fjölda íslendinga er það ljóst, hvílíkir hagsmunir það væru fyrir Isléndinga að öðl- ast full yfirráð yfir Græiilandi. Jarðlög eru þar frá flestum tímabilum jarðsögunnar og því málmauðug mjög, þar eru kol og marmari í stói’um stíl. Þá var þess og getið í dönskum fréttum á s.l. hausti, að olía væri þar í jörðu, á svæði sem væri á stærð við Sjáland. Þó éru það e. t. v. fiskimiðin sem mcísf koma til greina fyrir okk ur nú í svipinn. Þau eru ein allra auðugustu fiskimið í heimi, svo sem kunnugt er. Margt þykir benda til þess að fiskimið vor •geti orðið upþur- in í náinni framtíð ef ekkert er gert til þess að hamlá því. Enn fremur gæti svo farið að fiskur og síld legðist frá landi og leitaði meira í liafið við Græn- land, þar sem það er kaldara en nú er við strendur Islands. Haldi hitafarsbreytingar þær, sem nú ganga yfir, áfram að . aukast og sjórinn við ísland að hitna í vaxandi mæli, þá er ekkert líklegra en fiskur og síld leiti á kaldari mið. Þá gæti orðið erfitt um afkomu vora, ef vér þyrftum að sækja um leyfi til Dana til þess að veiða á Grænlandsmiðum. Og svo er nú komið að útgerðar- mönnum hefur þótt svara kostn aði að senda togara á Sval- barðamiðin við Bjarnarey og jafnvel alla leið austur t'il Hvíta hafs. Sjómenn vorir og út- gerðarmenn liafa líka löngum verið vakandi um þetta mál og má. í því efni minna á samþykkt ir fiskiþinganna á umliðnum árum og nú síðast á samþykkt 11. þings F.F.S.Í. í síðasta mánuði, þar sem skorað var á þing og stjórn að taka ákvcðna afstöðu til Grænlands og vinda að því • bráðan bug. Þing og stjórn hefur nefnilega enga op- inbera afstöðu tekið til máls- ins. Þögn ráðandi manna þjóð- félagsins um þetta mál er ann- ars með öllu óskiljanleg. Blöð vissra flokka virðast hafa veríð með öllu lokuð fyrir þessu máli, en þó sýnist sem ý þær lokur séu nú sem óðast að skreppa frá, og er það vel far- % ið. Raddirnar eru að verða svo % margar og háværar, að þing og stjórn verður að fara að taka afstöðu til málsins, enda máski 9llÍlllliiUllllllllllivillj|inil!ii!lllllIHIJIIil!ll[lUIIIlli(IUll!lUl{U!l!II8UR!in!l!lillI[!Illllu(RllIlinillil011 D A V I Ð ir uiGræsiW? hver síðastur. Til er starfandi nefnd, sem á að semja um deilumál íslend- inga og Dana, þar á meðal hand ritamálið. Einn þessara nefnd- armanna sagði í ræðu á fjöl- mennum fundi í sölum háskóla vors, að íslenzka nefndin hefði skýrt dönsku nefndannönnun- um frá því, að þegar handrita- málið væri til lykta leitt. þá væru ekki annað en smámál sem semja þyrfti um á milli þjóðanna. Þessi frásögn nefnd- armannsins hefur vakið mikið umtal. Eg veit ekki hve víðtækt umboð nefnd þessi hefur feng- ið frá íslenzlca ríkinu, en ég vil draga það mjög í efa að hún hafi haft nokkurt umlíoð til þess að mæla þessi orð. Út á meðal fjöldans, þar sem rætt er um þetta mál, eru flest ir á eitt sáttir um að Grænland liafi verið nýlenda íslendinga til forna, enda er mörgum kunn ugt um niðurstöður Vilhjálms Finsens hæstaréttardómara í því efni. Um hitt eru svo fleiri í vafa, hvort sá réttur hafi haldizt óslitið til þessa dags. Um réttarstöðu Grænlands á alþýða manna eðlilegá erfitt með að mynda sér sjálfstæða skoðun. Jafnvel lagadeild há- skóla vors er þess ekki umkom- in. Við hana starfar enginn þjóðréttarfræðingur og kennsla sú í alþjóðarétti, sem þar fer nú fram er á frumstigi. Vér verðum því enn sem komið er að styðja oss við skoðanir er- lendra þjóðréttarfræðinga. Ehin nafnkunnur þjóðréttarfræðing- ur, sænski íslandsvinurinn dr. Ragnar Lundborg hefur látið álit sitt í ljós. Fellur það álit hans íslendingum mjög í vil, því að hann telur rétt íslend- inga til Grænlands að fornu og nýju efalausan, smb. dagb. Vísir. ' I kröfunni til Grænlands felst engin stórveldastefna eða ný- lenduásælni eins og einhverjum gæti í fljótu bragði fundizt. Ef íslendingar álíta sig eiga land- ið og gera opinbera kröfu til þess, verður það auðvitað gert á grundvelli réttra laga, og vér mundum verða að hlýta þeim dómi, sem alþjóðadóm- stóll kvæði upp. Ekki ætti þetta heldur að verða til þess að spilla norrænni samvinnu, því að svo bezt getur orðið varan- leg vinátta á milli tveggja Aðalfundur Skiðafélags Hvíkur Stefán G Björnsson kosinn formaður Aðaliundur Skíðafélags líeykjavíkur var haldinn sl. mánudagskvöld. Formaður fé- lagsins, Rristján Ó. Skagfjcrð, baðst undan endurkosningu en í hans stað var kjörinn for.nað- ur Stefán G. Björnsson skrif- stofustjóri. 1 stjórn félagsins voru er.our- kjörnir þeir Eiríkur S. Beck framkvæmdastjóri og Einar Guðmundsson gjaldkeri, en fyr ir voru í stjórn Kjartan Hjalte sted fulltrúi og Magnús Ar.drés son fulltrúi. 1 varastjórn voru kosnir Jón Ölafsson lögfræðing ur og Jóhannes Kolbeinsson tré smíðameistari. Samkvæmt lögum félagsins hefur stjórnin heimild til áfe hafa sérstakan fjármálaritara og beir.di fundai'stjórinn, Jón Ólafsson, lögfræðmgur, því. til stjóraarinnar að hún notaði sér þessa heimild og fengi fráfar- andi formann Kristján Ó. Skag- fjörð til að taka starfið að sér, en hann hefur verið formaður Skíðaiélagsins síðastliðin 8 ár. þjóða, að hvorug beri hlut hinn ar fyrir borð. Þau mál, sem ekki fæst samið um á friðsam- legan hátt, verður að útkljá fyrir alþjóðlegum dómstóli. En eitt getum við víst allir verið sammála um : Danir eiga ekki Grænland og hafa aldrei átt það. Lokun þeirra á landinu er löglaus og stríðir gegn alþjóða- lögum. Þessar . fáu þúsundir Grænlendinga, sem enn tóra þar í landi, eru enn á tuttug- ustu öldinni beittir danskri ein- okun á sama hátt og íslending- ar voru henni beittir á saut- jándu og átjándu öld, en und- an því fargi slapp þjóð. vor að- eins ódrepin úr hungri, svo sem kunnugt er. Og að lokum: Það er skilyrð- islaus krafa, sem íslenzka þjóð- in hlýtur að bera fram við rík- istjórn sína, að hún taki þetta mál föstum tökum hið allra fyrsta og beri það fram til sig urs fyrir land og þjóð. En á meðan það er ekki gert gæti hún þess að afsala ekki né láta afsala þcim rétti sem vér kunn um að eiga til Grænlands. Reykjavík, 13. nóv. 1947. Br. SveinssoH. iiiniiöUiiiiiiiiiM snnniflmnfflnsðntMðinonnnninnnsninnflsaiBiinnnKL

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.