Þjóðviljinn - 13.02.1948, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 13.02.1948, Blaðsíða 7
Föstudagur 13. febrúar 1948. ÞJÓÐVILJINN 7 Hreinar léreftstuskur kaupir Prentsmiðja 'Þjóðviljans Skólavörðustíg 19 BARNLAUS HJÓN óska eftir að fá leigt til 14. mai 1—2 herbergi og eldhús, eða að- gang að eldhúsi, há leiga greidd fyrirfram. Þeir sem geta eða vilja sinna þessu leggi nöfn og heimilisföng imi á afgreiðslu Þjóðviljans, merkt „Húsnæði". Kaupi oa sel notaðar bækur, ýmsa notaða hluti og fatnað. Ennfremur allar' algengar flösk ur og glös. Opið fyrst um sinn frá kl. 1—6 e. h. Búðin móti Eskihlíð 14 við Reykjanesbraut. BILUÐ KLUKKA ? Vil kaupa gamlar vegg- og skáp klukkur, mega vera bilaðar. Upplýsmgar í síma 4062 frá kl. 9—7. FASTEIGNASÖLUMIÐSTÖÐ- IN T.snkiargötu 10 - Sími 6530 ' Viðtaistími 1—3. MINNINGARSPJÖLD S.Í.B.S. fást á eftirtöldum stöðum: Listmunaverzlun KRON Garða- stræti 2 Hljóðfæraverzlun Sig- ríðar Helgadóttur, Lækjargötu, Bókabúð Máls og menningar, Laugaveg 19, Bókabúð Laugar- ness, skiifstofu S.l.B.S. Hverf- isgötu 78 og verzlun Þorvaldar Bjamasonar, Hafnarfirði. MUNID RAFITSÖLUNA HafD arstræti 16. KAUPUM — SELJUM: Ný og notuó húsgögn, karlmannaföt og margt fleira. Sækjum — ~ sendum. Söluskálinn, Klapparstíg 11. — Sími 2926 BAUPUM HREINAR ullartusk ur. Baldursgötu 30. ÍAOLS6A ný egg soðin ot hrá Kaffisalan Ilafnarst. 16 RAGNAR ÓLAFSSON hæsta- réttarlögmaður löggiltur endurskoðandi, Vonarstræti 12. BÍmi 5999. 1®»'*’ -«• m «. •*., KEFLAVÍKURFERÐ Ferðaskrifstofa rikisins efndi s.l. laugardag til ferðar suður á Keflavíkurflugvöll og voru þátt takendur liðlega 100. Var þeim sýndur flugvöllurinn, farþegaaf greiðslan og fl.' og ekið eftii' flugbrautum. 1 ráði er að fara aðra ferð á sunnudaginn kl, 1,15 og verður þá iagt af stað að sunnan kl. 5—6. Vissara mun fyrir þá sem hafa í hyggju að fara suður eftir að tryggja sér farmiða í tíma því síðast vildu fjeiri fara en komust. Úr borgismi Næturvörður er í lyf jabúð- inni Iðun. Utva.rpið í dag: 20.30 Útvarpssagan: „Töluð orð" eftir Johan Bojer, VI. (Helgi Hjörvar). 21.00 Strok- kvartett útvarpsins: Kvartett nr. 17 í F-dúr eftir Mozart. 21. 15 Erindi: Hvalfjarðarsíldin og önnur síld (Ámi Friðriksson fiskifræðingur). 21.40 Tónlistar þáttur (Jón Þórarinsson). 22.00 Fréttir. 22.05 Symfóniskir tón leikar (plötur): a) Celló-kons- ert í D-dúr eftir Haydn. b) Sym fóía nr. 8 í F-dúr op. 93 eftir Beethoven. 23.00 Dagskrárlok. Skíðaferðir í Hveradali á laugardag kl. 10 og kl. 5. Til haka kl. 6 á laug- ardag og kl. 4 á sunnudag. Þeir meðlimir, sem fara með þessum ferðum, sit ja fyrir með gistingu, meðan húsrúm leyfir. Á sunnu- dag farið kl. 9. Farið frá Aust- urvelli. Farseðlar hjá L. H. Miiller og við bilana ef eitt- hvað er óselt. Skíðafélag Rvíkur Skíðadeikl K. R. Skíðaferðir um helgina: Að Skálafelli á föstudags- kvöld kl. 7, laugard. kl. 2 og kJ. 6, sunnudag kl. 9 f.h. 1 Hveradali á sunnudags- morgun kl. 9. Farsseðlar seldír í Tóbaksbúð- inni Austurstræti 4 (áður Sport). Farið frá Ferðaskrif- stofunni. Á sunnudag fer fram, á Skála felli, innanfélagsmót í bruni í öllum flokkum. \ V A L U R Fundur fyrir meisí ara, 1. og 2. flokl í félagsheimili V. R. í kvöld kl. 8.30. Áríðandi félagsmál. Kaffidykkja. Stjórnin. Skíðaferðir * að Kolviðarhóli um helgioa: Laugardag kl. 2 og 6 og sunnu- dag kl. 9 f. h. Farmiðar og gisting selt í í. R.- húsinu í kvöld kl. 8»—9. Ath. Af gefnu tilefni skal það tekið' fram að fólk sem ekki kaupir gistingu á föstudag, getur ekki vænst að fá gist- ingu á Kolviðarhóli um helg- ar. * . Skíðadeildin. Árni Þorarlnssofii Fra.mhald af 3. síðu. fyrir. „Almættisverk" varo að vera „almættisverk". Ar.nars var ekkert í það varið. En séra Árni var skáld og vantaði ef til vill það eitt í að vera stórskáld, að hann skorti stöðvun til að læra að yrkja. Öllum slíkum mönnum er sú list í brjóst lagin, að kunna að mikla þau atriði í frásögn sinni, sem eiga að vekja sérstaka. eft- irtekt. Og stundum virðist uæmi þeirra svo mikil, að atvikin, sem mæta þeim i lífinu, verða rntkil- fenglegri og lífrænni fyrir þeirra skynjun en eftirtekt ann- arra manna. Eg talaði varla nokkurntíma svo við Sigurbjörn Sveinsson, að liann hefði ekki nýlega upp- lifað nokkra heimsviðburði. Draugar Jóhanns Jónsonar vcru engin smámenni við að fást. Stefán frá Hvítadal lék sér að því að gera hversdags- legt ástarævintýri að hátignar- legu drama. Karlar Guðmur.dar G. Hagalíns á Vestf jörðum líkt- ust ekki tiltakanlega þeim Vest- firðingum, sem fyrir augu mín hafði borið á ferðum mínum um þessar byggðir, þegai' har.n lék þá af mestri list og hermdi eftir þeim. Og haft hef ég þá skemmtun að heyra Hall- dór Kiljan Laxness lýsa gömlum torfkirkjuskrokki norð- ur á Víðimýri af svo fágaðri tilfinningu fyrir hlutföllum við- áttanna, að ég var næstum far- inn að trúa, að þetta fjörefna- sr.auða heimskautabyggðarlag hefði eignazt sjálfa Péturskirkj- una í Róm. Enginn þessara manna mundi þó vera talinn lyginn á alrnenn- an mælikvarða. Það var nákvæmlega þetta. sama, sem gerðist í frásögnum Áma prófasts. Hann minnk- eði hið litla og stækk- aði hið stóra, lækkaði hið lága og hækkaði hið háa. deyfði hið litasnauða tfl þess að sterkj- un hans á litum hins litaríka yrði því auðsærri og áhrifa- meiri. - Og stundum gátu smá- munir vaxið í allar áttir fyrir innri sjónum hans. En fyrir fólki, sem lítt kann að grein náttúru skáldskapar frá lygi verður þessi list ósannsögli og höfundurinn lygari. VI. Ámi prófastur sagði eitt sinn við mig upp úr miðri frá- sögn í marzmánuði 1943: „Hefur þú ekki haldið, að ég væri ósköp gæfur maður og geðlítill ?“ „Eg hef nú enga grein gert mér fyrir þvi ennþá,“ svaráði ég. „Jæja, þá skal ég segja þér það vinur, að.ég. svitna oft á dag af reiði“, ,,Og hverju' reiðistu svona?“ „Eg reiðist sjálfum mér út ál því, hvað lítið gagn ég lief getað ' gert í heiminum". Eg geri ráð fyrir, að þarna hafi séra Árni gert svipaða stækkun á reiðinni og Jóhann Jónsson á draugunum og Hall- dór Kiljan Laxness á víðát.tunni í Víðimýrarkirkju. En það stendur eftir sein áð- ur óhaggað, að séra Árni var ákaflega geðríkur maður og hefur eflaust oft svitnað af reiði, þótt hann hafi ekki rvitn- að að jafnaði oft á dag. Þessir skapsmunir ollu árekstr- um í prestakalli hans og þeim mun alvarlegri fyrir þá sök, að séra Ámi var umbótamaður að minnsta kosti framan af 'prests- skapartíð sinni, og hafði ekki geð til að sjá allt grotna niour í kringum sig í andlegri og líkam- legri ómenningu. Af þessu urðu að sjálfsögðu árekstrar við stór- bokka, sem sættu sig við bá nið- urlægingu að „gefa DjöfUnum vinnufrið". Og þessum mönr.um mun hafa verið ljúfara að líta á séra Áma fremur sem óbrot- ínn lygara en sltáld. VII. En það var önnur hlið á manngerð séra Árna, að hann var skjótur til sátta, > o.llra manna hlýjastur í viðmóti. ger- samlega laus við embættis- hroka, frábærlega alþýðlegur, mannúðlegur, hjálpfús og gest- risinn með afbrigðum. Ein/i af óvinum hans, hreppstjórinn, sem hann elti ólar við í III. bindi ævisögunnar, sagði eitt sinn um hann í áheyrn merkrar konu, sem þetta hefur ritað frú einni hér í bænum: „Ef séra Árni væri fær um að stjóraa tungu sinni, mætti kalla hann heilagan mann, því að svo kærleiksríkur er haim". Þessi vanstjórn séra Áraa á tungunni hefur vafalaust aukið á andúðina gegn honum í Prestakallinu.„Og það er eins og hver sjái sjálfan sig“ að ý-nsir munu hafa kveinkað sér undan orðum hans til dæmis útmálun hans á sóðadauðanum. En hitt má ekki heldur dylja, að þá væri mikið skarð hcggið i snílligáfu Áraa prófasts, ef hann hefði vegið og metið orð Sin líkt og sómaklerkur, sem heldur, að hann tali eins og Jesús Kristur. v VIH. Vmsir hafa gerzt þungorðir í séra Áma garð út af síðustu bók hans, Hjá vondu fólki. Sum- vm hefur fundizt hann bera þar Snæfellingum of illa sögu. Vms- ir fullyrða, að þetta sé „allt lygi hjá séra Árna.“ En aðrir hafa dómfellt verk hans með þessari gamalkunnu afsökun: „Oft má satt kyrrt liggja". Kavalerar Sturlungaaldarmnar myndu líka hafa óskað, að Sturla Þórðarson hefði haldið kjafti. Og ekki er ólíklegt að ýmsir samtíðarmenn Sturlu, sem lilýddu á frásögn hans hafi ymt undan ósköpunum: „Oft má satt kyrrt liggja“. En myndi okkur ekki þykja nokkuð skarð i sögu vori’i og bókmenntum, ef Sturla Þórðar- son hcfði lifað lífi sínu skikk- anlegur og talfár og látið ósóm- ann kyrran liggja? Eg hef gild rök fyrir því, að allt, sem verulegu máli skiptir í lýsingu séra Árna á Snæfell- ingum, er sannleikanum sam- kvæmt. En hitt má segja þeim til nokkurar upphafningar, að þessu líkt var andrúmslofrið í flestum sveitum þessa lands, þó að sennilega hafi það verið með lakara móti á Snæfellsnesi. Hærra var nú ekki til lofts í vorri margiofuðu bændamenn- ir.gu fyrr á öldum allt fi-am til síðust.u tíma, og mætti þar tilnefna legionir sannana. Og ég er sannfærður um, að það er meiri gæfuvegur að viðurkenna þetta hreinlega heldur en að rembast við að ljúga upp á sjálfa sig dyggðum, sem vér aldrei höfum átt og aldrei verða hlutskipti vort á meðan oss brestur manndóm til að sjá. oss eins og vér erum og draga af þeirri sjón gagnlega lærdóma. Séra Árni hefur haft einurð til að gera það, sem okkur hina hefði langað til að gera, sagði séra Guðmundur Einarsson á Mosfelli. Hann hefur látið íæra í letur mjög merkilega menníng- ar- og sálarlífs-lýsingu á því byggðarlagi, sem hann dvaldist lengst í og var kunnugastur. Það væri þakkarvert, ef fleiri færu hér að dæmi Áma prófasts og rituðu jafn-hreinskilnislegar frásagnir af þeim héruðum. sem þeir eru kunnugastir. Það hefði miklu meira uppeldisgildi en. allur þessi óþverramokstur, sem ausið er yfir þjóðina af lygum, blekkingum, hræsni, smjaðri, sjálfsfegrun og hverskonar iág- kúru-ómenningu. Jæja, þessi síðasti fulltrui ís- lenzkrar frásagnarsnilli er nú horfinn af þessu stigi tilverunn- ar. En burtför hans héðau úr heimi sættir mig og marga aðra betur við það hlutskipti að eiga þessa sömu ferð fyrir höndum. Þórbergur Þórðarson. AÐALFUNDUR Kvennadeilda Slysa- varnafél. Hafnarfirði Aðalfundur Kvennadeildar Slysavarnafélags Islands í Hafn arfirði var lialdinn fyrir skömmu. Frú Rannveig Vigfús- dóttir var endurkosin formað- ur deildarinnar í 10. sinn. Aðr- ar konur í stjórn deildannnar era frú Marta Eiríksdóttir rit- ari og frú Helga Jónsdóttir gjaldkeri, en meðstjórnendur eru frúrnar Sólveig Eyjólfsdótt ir, Sigríður Halldórsdóttir og Ingibjörg Þorsteinsdóttir. Tekjur deildarinnar á áriuu nema tsépum 20 þúsund krón- um. Af því hefur deildin þegar afhent Slysavarnafélagi Islands % hluti. Þá ákvað deildm að kosta. svefnpoka í skipsbrots- mannaskýlið í Fljótavík auk þess scm þarf til að ljúka við skipsbrotsmannaskýlið sein deildin hefur í smíðum austur á söndum. Starfsemi deildar- innar er mcð ágætum eins og ! sjá má af ofangreindum töluiK*.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.