Þjóðviljinn - 13.03.1948, Blaðsíða 6
8
ÞJÖÐVILJINN
Laugardagur 13. marz 1948.
Framhald af 5 .síðu.
urflugvellinum lifa þar sem
herraþjóð, æðri hinum inn-
fæddu, sem notaðir eru til að-
stoðarstarfa í eldhúsi, þeir eru
ríki í ríkinu og koma í .einu og
• öllu fram sem auðdrottnar rneð
al nýlenduþjóðar.
Framtíðin ein getur leitt í'Ijós
hvað það er sem hinir 32 hafa
kallað yfir íslenzku þjóðina, því
ef þróunin verður að vilja þelrra
sem nú ráða mestu í Bandaríkj
unum,-verður eftirleikurinn stór
um geigvænlegri en það sem
þegar hefur gerzt. Keflavíkur-
flugvöllurinn er ekki aðeins her
stöð til árásar í styrjöld þeirri
sem hinir brjáluðu auðkýfingar
Bandaríkjanna eru nú að un lir
búa, hann verður einnig skot-
mark þeirrar þjóðar sem ráðizt
er á. Og hvað duga þá hinir
hljómfögru dollarar bandp.rírka
utanrikisráðuneytisins ?
í einu stórbrotnasta ljóði ís-
lenzkrar frelsisbaráttu segir
svo:
„Standi fyrr í einum eldi
allur barmur þessa lands,
en það lúti annars veldi
eða kúgun harðstjórans;
fyrr skal hyrr um rjáfrin rjúka
og rofin hrynja í tóftirnar,
brennd til ösku fjöllin fjúka
og flæða yfir rústirnar.“
Þær hamfarir sem skáldið
kallar fram í þessari stórfeng-
legu lýsingu sinni hljómuðu sem
fjarstæða á síðustu öld og áttu
að hljóma sem f jarstæða: skáld
ið vildi lýsa því hversu fráleitt
það væri að þjcðin sviki frelsis-
hugsjónir sínar. En nú eru þær
alger veruleiki. Tæpum tvoim
mánuðum áður en Bandarikin
lögðu fram herstöðvakröfur sín
ar á íslandi var fyrstu atóm-
sprengjunni varpað á Hiro-
shima, og þar voru í einu vet-
far.gi myrtar vfir hundraö þús-
undir manna, kvenna og barua.
SÍík eru þau djöfulsöfl sem hin
ir 32 hafa kallað yfir þann
hluta íslenzku þjóðarinnar sem
við Faxaflóa býr, ef til styrj-
aldar kemur. Og hvort sem hin
ir 32 hafa gert sér þennan
verknað sinn Ijósan eða ekki,
og það getur Jóhnnn Hafstein
væntanlega upplýst, þá vita|
Bandaríkjamenn fullvel hvað
þeir eru að gcra. Þeir hafa sjálf
ir skýrt frá því að markmið
þeirra sé að koma sér upp árás
arstöðvum utan heimalandsins,
tíl þess að forða sjálfum sér
frá tortímingu. Þeir hafa meira
að segja valið slíkum stöðvum
nafn og kalla þær bombabsor-
bing stations, og við íslendingar
sem búum við Faxaflóa höfum
verið valdir til að deyja fyrir
hina vestrænu milljónara, ef.
þeim tekst að koma á styrjöld i
'heiminum.
I hinu heimsfræga brezka
'tímariti „New Statesman and
Nation“ var þetta atriði gert
að umtalsefni fyrir nokkru, og
þar sem Morgunblaðinu hefur
láðst að' geta þess, þykir mér
rétt að tilgreina stuttan kafla.
Þar segir svo:
„Við þurfum ekki að ræða
hvað Amcríka og Sovétríkin
halda að þau geti unnið með
svona stríði. Það er nóg fyrir
okkur að hugleiða örlög okkar,
ef við flækjumst í stríð milli
hnatthelminganna. Við vitum
að sá sem á ræðst stendur betur
að \ ígi, og það er ómögulegt að
hugsa sér Stóra Bretland sem
árásaraðiljann. En við getum á
samt Grikklandi, Tyrklándi og
Islandi verið herstöð í fremstu
víglínu fvrir' Bandaríkin. Og
„Bulletin of the Atomic
Scientists“ segir í ritstjórnar-
grein sinni: „Það er hægt að
eyðileggja þau ríki, sem verða
herstöðvar í fremstu víglínu fyr
ir okkur, með þeim sprengju-
fleygum og flugvélum, sem nú
þegar ei’u til taks. Ameríka get-
ur því aðeins haldið þessum her
stöðvum með því að stofna þess
um vinsamlegu þjóðum í þá
hættu að þeim vei’ði gersamlega
útrýmt og væntanlega gegn
þeirra vilja.“
Þannig er nú málum koinið
hér á Islandi, slíkir eru ósigrar
Islendinga og sigrar hinna
bandarisku heimsveldissinna og
agenta. þeirra. Og einmitt þetta
ástand færir okkur lykilinn að
alþjóðamálunum, ef við erum
menn til að hugsa eins og ís-j
lendingar. 5. okt. 1946 voru
ekki aðeins frámin svik við
dýrustu hugsjónir íslenzku þjcð
arinnar, heldur og svik við ab’ar
hugsjónir friðar og samst;j.rfs
í heiminum. Með því* að sam-
þykkja herstöðvasamningmn
tóku hinir 32 á sig þá ýtrustu
áb^Tgð sem ráðamenn • lítlliar
þjóðar geta borið ef til ófriðar
kemur. Þeir sviku ekki aðeins
landsréttindi sinnar eigin bjóð-
ar og stefndu henni í þá geig-
vænlegustu hættu sem yfir
henni hefur vofað, heldur hug-
sjónir sameinuðu þjóðanna og
hagsmuni og vonir allra smá-
þjóða heims.
Sú ásælni bairdaríska auð-
valdsins sem leiddi til svika
hinna 32 hefur mótað alit á-
stand alþjóðamála undanfai’in
ár. Islendingar cru ekki.eina
þjóðin sem fyrir þeirri ásælni
hafa orðið, heldur er land okk-
ar aðeins hlekkur — og þó mikil
vægur hlekkur — í herstöðva-
kerfi sem nú tekur mikinn'
þorra heims. Öll Ameríka, að
Kanada undanskildu, er eitt
samtvinnað hern a ðarbanda!ag,
og eru Suðurameríkuríkin meii’a
að segja skylduð til að kaupa
öll sín vopn í Bandaríkjunum
svo að undirbúningur styrjaid-
arinnar sé sem bezt samhæfður.
Grænlandi hefur veríð stolið frá
Dönum og þar eru 5 herstöðvar.
Á Azoreyjum eru Bandaríkin
nýbúin að tryggja sér liernaoar
flugvöll. Á Franco-Spáni, meðal
fasistalýðsins, eru hinir vest-
rænu „lýðræðissinnar" að koma
sér upp herstöðvum. I Casa-
blanca hafa þeir herstöð. Gri.kk
land eru þeir að reyna að gera
að algerri bandarískri hjálendu,
og styðja þar af ofurkappi
glæpaverk fasista og kvislinga
frá síðustu styrjöld gegn al-
þýðu landsins. Þar eru tugir
pólitíslcra fanga myrtir á hverri
viku, án þess hinum viðkvæmu
Heimdellingum bregði. I Lýbíu
er bandarískur hernaðarflug-
voHur sem tekur þyngstu árás-
arvélar. Tyrkland við landa-
mæri Sovétríkjanna er orðið al-
ger bækistöð Bandaríkjámanna.
Það ma segja að Miðjarðarhaf-
ið sé orðið bandarískt innhaf,
og Bandaríkin hafa þar stærri
flota en nokkur önnur þjóð. I
Saudi-Arabíu við persneska f!ó-
ann er bandarísk herstöð. I ír-
an við landamæri Sovétrikjanna
eru Bandaríkjamenn nú að
byggja hernaðarflugvelli. I
Kína er mikill fjöldi banda-
rískra hernaðarsérfræðinga til
aðstoðar við fasistann Sja.ng
Kaisék og þar hafa þeir m. a.
komið sér upp stórri bækistöð i
Tientsin í námunda Mansjú: íu.
I Japan eru Bandaríkjamenn að
koma sér upp bækistöðvum, sem
þeir ætla sér að halda til franij
búðar, þeir hafa t. d. krafizt
þess að fá Okinawa til algerr.rr
eignar. Á Fillipseyjum sr-m
Roosevelt forseti var búinn að
lofa algeru sjálfstæði, lxafa hin-
ir bandarísku heimsveldissinnar
nú komið sér upp miklum f jölda
herbækistöðva til 99 ára í al-
gerri óþökk þjóðarinnar — og
er nix aðeins það helzta talið.
Það þarf mikla heimsku eða
algert blygðunarleysi, nema
livorttveggja sé, til að neita því
frammi fyrir slíkum staðreyud-
um að Bandaríkin keppi nú að
algerum heimsyfirráðum og æsi
til styrjaldar til að ná því marki
Ef Sovétríkin væru í fótsporum
Bandaríkjanna, hefðu þau nú
herstöðvar í Mexíkó, á Kúbu og
í Kanada. Og þ4 væri vissuícga
réttmætt að saka þau um yfir-
di’ottnunarstefnu og snúast til
vai’nar. En staða taflsins er
þveröfug. Það enx Bandaríkin,
knúin áfram af voldugustu og
trylltustu auðkífingum heixas,
sem stefna að því að leggja
undir sig hnöttinn og þeyta her
ixiðra af engu minui ofsa en
nazistar Þýzkalands fyrir 10 ár-
um. Þeirri staðrcynd verður
ekki haggað með þvaðri og 1\ ga
fregnum dollai’abiaðamxa.
I alþjóðamálum, scm Hoim-
dellingar hafa nú tekið á dag-
skrá, eiga fslendingar eina og
aðeins eina afstöðu. Frelsi þjúð-
arinnar, sjálfstæði og framtíð
er undir því komið að takast
megi að uppræta þau svik sem
framin voru 5. okt. 1946. Allt
starf þjóðarinnar verður að
hníga að því marki að landráða
samnjngnum verði sagt upp
1953 og verði þangað til fram-
kvæmdur í ýtrasta samræmi við
hagsmuni Islendinga. Sú af-
staða varðar ekki aðeins líf og
heill íslenzku þjóðarinnar, held-
ur er með henni lagður fram
sá skerfur sem við erum raegn-
ug til friðar og samstarf ; í
heiminum. Andspænis þessu
meginhlutverki ber íslenzkri
æsku að taka höndum saman og
geyma sér fjarlægari og litil-
vægari deilumál.
In memoriam
Flugslysið síðastliðinn sunnu-
dag hjó djúpt skarð í þann litla
flokk sérfróðra manna ís-
lenzkra, þeirra er eytt hafa
fjölda ára til að afla sér hald-
góðrar þekkingar á nauðsyn-
legum greinum, og það líða
dagar og ár áður en það skarð
verður fyllt. Sú þekking, sem
fórst með Þorvaldi Hlíðdal, síma
verkfræðingi, þegar Anson-flug-
vélin rakst á Skálafell, var
þjóðinni meirí missir en flugvél-
in, dýrmætari en margar flug-
vélar, því að hún verður aldrei
vegin í gulli.
Þorvaldur Hlíðdal var fæadur
23. mai árið 1918, einkasonur
hjónanna Guðmxmdar og Karó-
línu Hlíðdal. Ungur innritaðist
hann í Menntaskólann og lauk
námi þar með stúdentsjxrófi úr
stærðfræðideild bjartan júnídag
árið 1937. Mai’gar skínandi von-
ir eru ætíð tengdar við nýút-
skrifáða stúdenta, cn viö Þor-
vald bundu margir bjartari von-
ir en við okkur hina, hann hafði
einn okkar unnið mörg sumur
við að búa sig undir ævistarf
sitt. Síðari hluta sumars sigldi
hann til Cambridge til að stunda
þar nám í verkfræði, og lauk
þar prófi árið 1940 í almennri
verkfræði fyrstur bekkjar-
bræðra sinna.
Margir myndu hafa hætt námi
og setzt í stöðxx heima að af-
loknu svo glæsilegu námi, en
Þorvaldur vildi vita meira. til að
tryggja það, að hann gæti orðið
þjóð sinni að sem mestu gagiii
Hustið 1940 lagði hann leið sína
til Bandaríkjanna og innritaðist
í einn hinn bezta verkfræðiskóla
vestan hafs. Rensselaer Poly-
technic Institute í Troy nálægt
New York. Hann hafði ekki
dvalið þar nema ár, þegar hon-
um hlotnaðist sá heiður að vera
valinn til aðstoðarkennara, og
vafalaust er það sjaldgæft um
erlenda séi-fræðinga, hvað þá
xxm erienda nemendur. Sýnir
það einkar vel, hve haldgóð og
djúptæk þekking hans var að
álíti sérfróðra vísindamanna.
Eftir tveggja ára nám tók hann
próf í rafmagnsverkfræði og
gerðist í júní 3942 starfsmaður
hjá International Telephone and
Telegraph Corporation í New
Yoi’k. Tveggja ára starf hjá
slíku fjrrirtæki var æfinga- og
reynsJutími meiri en flestir aðr-
ir verkfræðingar islenzkir hafa
haft að baki sér, þegar þeir
sncru til ættlandsins að afloknu
námi. En lxaustið 1944 kom
Þorvaldur hcim og hóf starf sitt
sem verkfræðingur hjá Lands-
símanum. Auk þess kenndi hann
við Loftskeytaskólann, en á báð
um þessum stöðum var liann
með bezt liðnu og mest virtu
starfsmönnxmum, æ meir elsk-
aður eftir því sem tímar liðu.
Áður en Þorvaldur sneri lieim,
giftist hann erlendri eftirlifandi
konu sinni, Freda. Eignuðust
þau einn son, Peter Benjamxn,
sem nú er á þriðja ári, ínyndar-
legxir og hnellinn strákur, hug-
ljúfi foreldra sinna og frænd-
fólks.
Þorvaldur Hlíðdal gei’ði ekk-
ert til að vekja á sér áthygli, en
samt fór ekki hjá því, að hon-
um væri veitt eftirtekt, hvar
sem haixn fór, því að hann var
með myndarlegxistu mönnxxm,
tígulegur-, sviphreinn, gáfuleg-
ur svo af bar og ætíð glaour á
svip. En þegar hann talaði, var
röddin þýð og þægileg og tálið
allt á þann veg, að maður hlaut
að hlusta, því að hér réði hixx
rólega yfix-vegun ríkjum. I hópi
vina sinna .og bekkjarbræðra
var Þorvaldi'.r hrókur slls fagn-
aðar og sá, seui allir sættu sig
bezt við að iúta, þegar sá gáll-
mn var á. Hjálpsemin var aðall
hans allt frá fyrstu tíð, svo að
við sem tæpara stóðum í kunn-
áttunni í skóla, gáturn ætíð ver-
ið vissir um aðstoð harxs, þegar
í nauðiniar rak.
Þorvaldur var á leið frá Vest-
mannaeyjum, þar sem hann
vann að uppsetningu nýrrar sím
stöðvar, þegar slysið bar að.
Ástvinir hans biðu hans sunmi-
dagskvöldið allt, leituðu lians
um fjöll og firnindi sólarhring-
Framhald á 7. síðu.