Þjóðviljinn - 02.04.1948, Blaðsíða 5
ÞJÓÐVILJINN
Föstudagur 2. apríl 1948.
Sigurður Þórarinsson:
Marz.
Þann 29. marz kl. rúmlega
hálf sjö að morgni byrjar gos
í Heklufjalli með vikurfalli.
vatnshlaupi og hraunflóði. K'.
6.47 allsnarpur jarðskjálftakipp
ur með upptökum á Hekluslóð-
um, finnst frá Öræfum vestu.
á Snæfellsnes. Um 7-leytið nær
gosmökkurinn 27000 metra hæð.
Hryggur Heklu rifnar að endi-
löngu og hraun renna í allar
áttir, þó einkum til austurs, í
áttina til Mundafells, og tii vest
urs. Gosdrunur heyrast frá Bol-
ungarvik austur til Papeyjar og
norður í Grímsey. Fyrstu tvo
tímana spýr gossprungaa yfir
100 milljón. teningsmetra vikurs
og ösku er herst til suðurs
og langt á haf út. Vikurfallið
veldur allmiklu tjóni í Fljóts-
hlíð og undir Eyjafjöllum. Síð-
ustu tvo daga mánaðarins er
gosið enn mjög ákaft. Gígaröð
myndast á sprungunni og eru
stundum 8—10 gígir virkir í
einu. Aska fellur í Finnlandi.
— — Jarðfræðingar og að-
stoðarmenn þeirra fara austur
að Heklu þegar fyi'sta gosdag-
inn og rannsaka gosið eftir því
sem föng eru á.
Aprfl.
Fyrsta dag mánaðarins er gosið
enn mjög ákaft en siðan dregur
ört úr því. Gosið í Norðuröxl-
inni má heita hætt 5. apríl. 13.
apríl færist gosið aftur í auk-
ana. Síðari hluta mánaðarins
heyrast gosdrunur víðast um
. land, einkum 17. og 27. apríl.
Sprengigígur mjmdast í suð-
vesturöxl fjallsins. Hraun renn-
ur aðallega niður með Kauð-
öldum og fram á Efrahvols-
hraun.
-----5. apríl er gengið upp
í gígina á Norðausturöxl Heklu
(Steinþ. Sig. og Sig. Þór.). 7.
apríl er gengið í fyrsta skipti
að hraungígnum suðvestast í
gossprungunni (allir ísl. jarð-
fræðingamir, Svíinn Gavelin og
Daninn próf. Noe-Nygaard). 26
apríl er gengið á háhrygg Heklu
norðan Toppgígs (Guðm. Kjart.,
Steinþ. 3ig. o. fl.). 30. apríl cr
gengið á háhrygginn milli Axl-
argígs og Toppgigs (Páimi
Hanness. og Sig. Þór.).
Maí.
Þann 3. maí færist öskugos í
Axlargíg og Toppgíg mjög í
aukana og heldur áfram með
mislöngum hvíldum allan mán-
uðinn. Askan fellur einkum yfir
norðanvert Land og Rangárvelli
og Hreppa. Hið næsta Heklu
spillist hagbeit mjög. Búpen-
ingur rýrnar og fer að bera á
gaddi í sauðfé. Hraunið rennur
enn fram um Efrahvolshraun og
kemst niður undir Kór eftir
gamla Hekluveginum. 18.—19.
riaí verða allmildar jarðhrærin:
ar í Ölfusi með upptökum á
Hveragerðissvæðinu. Hverir
færast þar mjög í aukana og
\’alda nokkrum skemmdum.
Júní.
Öskugos heldur áfram í Topp-
gíg og Axlargíg, en fer áð draga
úr því upp úr 20. júní. í júní-
lok myndast sprengigígur norð-
an í Axlargíg. Hraim rennur að-
allega til norðvesturs, í áttina
til Melfells, og umlykur það að
mestu.
-----29. júní er gengið á há-|
tind Heklu (Ámi Stef. og Sig. j
Þór.). Steinþ. Sig. mælir hátind-:
inn og reynist hann vera 1503
metrar en var 1447 fyrir gosið.
JÚlí.
Axlargígur hættir að gjósa
um miðjan mánuðinn. Spreng-
ingar í toppgíg af og tii. Síðari
hluta mánaðarins dálítið ösku-
gos suðvestast í gossprungumii.
Hraunrennsiið mikið og aðal-
lega um Þrætustíg í stefnu á
Selsund og lcemst niður í Stein-
stígsbotna. Síðari hluta mánað-
arins allmargir vægir jarð-
skjálftakippir á Heklusvæðinu.
----- 26.—27. júlí er Hekla
hringfarin á jeppum (Steinþ.
Sig., Árni Stef., Gísli Gests.,
Þessi mynd var tekin úr flugvél um kl. 11 f. h.
fyrsta gosdaginn. (Ljósmynd Vigfús Sigurgeirsson).
Einar Sæm., Einar Páls., Sig.
Þór.).
Ágúst.
Állan mánuðinn eru af og til
sprengingar í Toppgíg og stund
um smágos í suðvestasta gígn-
um. Hraunið rennur mestallan
mánuðinn um Þrætustíg og ým-
ist niður fyrir innan Rauðöldur
eða niður í Stóraskógsbotna.
Margir vægir jarðskjálftakippir
á Heklusvæðinu og snarpur
kippur þ. 12. ágúst.
September.
Sprengingar hætta í Toppgíg.
Hraun rennur aðallega til norð-
vesturs, en hraunrennslið jafn-
minna en áður. Fremur lítið um
jarðhræringar. Seint i mánuð-
inum gengur Guðm. Kjart. upp
í Höskuldsbjalla og kemst að
þeirri niðurstöðu að þeir gufu-
strókar sem lagt hafði upp af
norðurhlíð Bjallans síðan um
miðjan ágúst, staii af eldsum-
brotum í Bjallanum.
—---2. sept. er5gengið á Axl-
argíg og ’ioppgíg (Árni Stef.
og Sig. Þór.). 7. sept. er gengiö
eftir gossprungunni endiiangri
(Steinþ. Sig., Einar Páls., Gísli
Gestss. og Sig. Þór.).
Október.
Hraunrennslið fer minnkandi
og er stefna þess breytileg
Hraunið viroist meir þunnfljót-
andi cn áður. Allsnarpur jarð
skjálfakippur 13. október.
Nóvember.
Hraunrennslið svipað og áð-
ur. Gígur neðarlega í suðvestur
sprungunni (Axiarbrekkugjá)
talsvert virkur og hleður upp
goskeilu. Jarðskjálftakippur 8.
nóv. Snarpari á Heklusvæðinu
en kippurinn fyrsta morguninn.
Allsnarpur kippur 27. nóv.
-----2, nóv. verður Steinþór
Sigurðsson fyrir glóandi hraun-
grýti er hann kvikmyndar
hraunstraum í suðvesturhlíð
fjallsins. Bíður hann þegar
bana. 30. nóv. er gengið á há-
tind Heltlu (Guom. Kjart.,
Þorbj. Sigurgeirss. o. fl.).
Desember.
Hraunrennslið fyrri iiluta
mánaðarins aðallega til suðui's
austan Höskuldsbjalla, sem um-
lykst af nýju hrauni. Hraun-
ið 1 lok mánaðarins meir þunn-
fljótandi en áður. Jarðhræring-
ar vægar.
Toppgígurinn á Heklu. Þegar mjnidin var tekin, helgina 25. maí ’47, reyndist hann hafa hækk-
að í 1503 metra, en var áður en gosið hófst 1447 m. (Ljósmynd: SigurðuUÞórarinsson).
Janúar-
Hraunrennslið fremur iítið.
Hraunið rennur til vesturs og
norðvesturs en ltemst ekki út
fyrir eldri mörk. Nokkrar vægar,
jarðhræringar.
Febrúar.
Gosio svipað og í janúar. .23.
febrúar síoasti jaröskjáiftakipp
ar sem vart liefur orOiö á Hcklu
jv.æðinu.
I Marz.
5. marz opnast gígur neðar-
i !eg.a- í Axlarbrelikugjá og gýs
! aokkuð þann dag og irestu.
t Vai't verður öskufalls. Uraun-
rennslið nokkuð misjafnt en yf-
| irleitt fremur lífcið. í lok 'yrsta
| gosársins er áætlað að ; nan-
; lagt hraunmagn Heklug u' sins
! sé oröið um 1000 miilj. tenings-
j metrar. Er gosið þar meo orðið*
eitt allra mesta hraunr 's á.
þessari öld. Og enn renunr him
glóandi elfa án afláts. .
c