Þjóðviljinn - 09.05.1948, Blaðsíða 4
i
ÞJÓÐVILJINN
Sunnudagur 9. maí 1948.
S. CfetóaaiMÍ Bamelnlngarflokkur alþýOn — Sósíallstaflokkurlzm
» —0... ^____öig urOur UuOmundesoo (Ab.)
Frettantstióri: Jon Biamaaoo
Blaðamenn: AriKórason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnaaon
Ritstjórn, afgreiSsia, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðu-
stíg 19. — Sími 7Ö00 (þrjár linur)
JLskrfftaverO: kr. 10.00 á'mónuöi. — Lansasöluverð B0 aur. elnt.
Frentsmiðja ÞjóðvUjans h. t.
Sósíaiistaflokkurinn, Þórseötu 1 — Simi 7510 (þrjár linur)
ValdaránshneyksHð
Samsæri þriggja stjórnmálafiokka 1941 um *.ð víkja til hlið-
ar stjómarskrá íslands „fram yfir ófriðarlok” og hald* •!lum
völdum í landinu þvert ofan í vafalaus ákvæði stjórnarskrár-
innar, með umboðslausum þingmönnum kosnum 1937, rnun
verða mörgum íslendingi lærdómsríkt. Flestum fyndist þetta ó-
trúlegt ef ekki lægi fyrir afdráttarlaus játning frá aðalmálgögn-
tm flokkanna sjálfra um þessa ósvífnu árás á þingræði og lýð-
ræði í landinu. Fólk er orðið því svo vant að heyra einmitt þessi
blöð og þessa flokka tala endalaust um ást sína á lýðræði og
þingræði að það getur komið eins og köld vatnsgusa yfir fylgj-
endur þeirra að minnsta kosti að sjá hve þunnt lýðræðislagið er
á ýmsum þeirra stjórnmálamanna sem mest tala um blessun
þingræðis og lýðræðis.
Það var rifjað upp liér í blaðinu í gær að valdarán Sjálf-
stæðisflokksins, Framsóknarflokksins og AlþýðufLokksins 1941
hefði verið gert með þeirri forsendu að kosningafrestunin ætti að
gilda ,,fyrst um sinn“, en þá ymprað á fjórum árum, aðeins sem
hinni fjarlægustu markalínu valdatímabils umboðslausu þing-
mannanna. Þannig er málið lagt fyrir Alþingi og þjóðina og
þannig er tillagan um kosningafrestunina samþykkt af 41 þing-
manni úr ,,þjoðstjórnarfIokkunum“.
Það var ærin ósvífni að meirihluti alþingismanna skyldi
leyfa sér að látast afnema ein mikilvægustu atriði stjórnarskrár
íslands með einfaldri þlngsályktunartillögu og á það var rétti-
lega deilt af þingmönhum Sósíalistaflokksinst er mótmæltu harð-
lega þessum furðulegu aðförum. En þegar það bætist við sem
Morgunblaðið og Tíminn hafa verið að fletta ofan af — í ógáti
sjálfsagt — undanfama daga, verða þessir ólýðræðislegu athafn-
ir þriggja. íslenzkra stjórnmálaflokka okkar til að sýna þá mögn-
i>ðu stjórnmálaspiliingu sem þeir eru gagnsýrðir af.
Bak við það sem birt var í þingsályktunartillögunni um
frestun kosninga „fyrst um sinn‘ lá samningur milli SjálfsÞeðis-
flokksms, Framsóknarflokksins og Alþýðuflokksins um valda-
rán þessara flokká „fram yfir ófriðaríok“ í algeru trássi við
stjórnarskrá landsins. Þetta kemst upp nú sjö árum síðar, vegna
þess að Morgunblaðið og Tíminn eru svo önnum kafin við gagn-
kvæmar ásakanir, og ritstjórar þessara stjómarblaða taka ekki
eftir því að þau eru að skýra frá hlutum sem iljóta að verða
smánarstimpill á þrjá íslenzka stjórnmálaflokka og faaingja
þeirra meðan þeirra verður getið í Íslíuidssögunni.
Upplýsingarnar mn valdarán núverandi stjórnarflokka vorið
1941 varpa skýru liósi yfir það sem nú er að gerast í íslenzkum
fctjómmálum. I flestum atriðmn hefur afturhaldsstjórnin sem
nú situr tekið úpp þráðinn frá „þjóðstjóriiinni“ alræmdu, aðeins
gengið mun lengra í skemmdarstarfsemi og leppmensku fyrir er-
lent vald. Undir yfirskyni göbbelskrar baráttu gegn kommún-
ismanum er reynt að færa allt athafnalíf í fjötra og láma ís-
lenzka verkalýðshreyfingu með árásum utan að og sundrungar-
starfsemi ,,ólánsmanna“ Alþýéuflokksins innan frá. S.imtímis
eru lokur dregnar frá hurðum og bandarísku auðmagni levft að
laka kverkataki á íslenzku atvinnulífi auk þess að látinn er við-
gangast hinn hneykslanlegasti yfirgangur og lagabrot í fram-
kvæmd KeflávíkursarnningÉins.
Stjórn sem þannig hagar sér er Iogandi hrædd-við dóm kjós-
enda og hefur til þess fyllstu ástæðu. Ilvort hún grípur tii ör-
þrifaráða ciiis og valdaránsins 1941 er enn óvíst, ep hitt ei' víst
að afturlialdið íslenzka færi enn veiT út úr slíkum aðgerðum en1
þjóðstjórnin forðum. Sú ólánsstjórn hrundi vegna baráttu verka-
lýðssamtakanna og Sósíalistaflokksins. Þau sömu öfl, margfalt
styrkari og betur skiplögð, standa einnig nú sem veggur gegn
hverri valdaránstilraun afturhaldsins, ^tanda traustan vörð um
lýðréttindi og lýðræði íslenzku þjóðarinnar.
Hátt verð aðgöngumiða
Það vekur mikla furðu manna
hið háa verð aðgöngumiða að
sundkepþnínni milli Norðmannu
og Islendinga. Stæði kostar
hvorki meira né minna en 20
kr., sæti 25 kr. Aðsókn er skilj-
anlega mikil, miðarnir seldust
upp í gær. En hann má svei
mér vera merkilegur viðburður
inn, ef þetta háa verð er afsak
anlegt. — Einnig vekur það
furóu manna, að ekki skuli gerð
ar ráðstafanir til að útvarpá
frá keppninni. Hvar er nú þráð-
urinn stáls?
★
Hávaði í bíó
M. skrífar:
„Þegar maður fer í bíó með
kærustunni sinni, uppþússaðui'
og allt í lagi, þá viU‘ maður fá
að heyra það sem leikaramir
segja. Maður hefur borgað
margar krónur fyrir að sjá
kvikmynd og vita, um hvað hún
snýst. — Eg fór í Gamla bíó
hérna um kvöldið með kærust-
unni, og það leið oft langur
tími, að við heyrðum ekkert.
sem leikararnir sögðu fyrir há-
vaða niðri (við sátum uppi)
Og þetta var á 9-sýningunni og
ekki hægt að kenna „rol!ingum“
um hávaðann eins og oft er
gert.
★
Sítrónflöskum rúllað
„Þó var auðheyrt að þarna
voru unglingar að verki: og há-
vaðinn var mestur eftir hlé.
Þá heyrði maður stöðugt, að
rúllað var sítrónflöskum um
gólfið og fylgdu þessu hróp og
háreysti, en verðir hússins
skiptu sér ekkert áf þessu langa
lengi. — Þetta tel ég ekki við-
eigandi. Það á að hafa nægilegt
eftirlit með óuppdregnum bíó-
gestum, svo að þeir kæfi ekki
með hávaða tal leikaranna, þann
ig að talmyndir verða sem þögl -
ar myndir fyrír okkur hin. - M.‘'
*
Hafnarfjarðar-
veguriun
Þá hefur ó. Q. sent cftirfar-
andi: „Kæri bæjarpóstur! Eg
hef lengi þurft að aka bíl um
Hafnarfjarðarveginn og oft hef
ur hann verið slæmur en sjaldan
Jield ég eins og núna. Sumar
holurnar eru bókstaflega lífs-
hættu.legar. Viltu biðja þá menn
sem eiga að passa upp á þennan
veg, endilega hreint að lagfæra
verstu Jtafiana sem fyrst. Reynd
ar vitum við að þessar tugþús-
unda dýru viðgerðir ár eftir ár
eru hreinasta kleppsvinna. Það
dugar ekki annað en að láta
steypa allan veginn. — Ó.Q.“
★
Vegurinn um háskóla-
lóðina
Svo er það stúdent sem spyr:
„Mig langar að fá það upplýst,
hver eigi að sjá um viðhald á
veginum, sem liggur um há-
skólalóðina, Reykjavikurbæv
eða háskólaráð ? Sá alilinn, sem
þetta skal gera, er sekur um
dæmafátt hirðuleysi. Vegarkaflí
þessi er til skammar. I ligning-
um er hann ekki einu sinni fæ*.
mönnum á skóhlífum. — Stúd
ent.“
Vonandi upplýsa hlutaðeig-
andi aðiljar það sem um er
spurt.
*
Vísur
Loks hefur roskinn verkamac
ur, Ó. S„ boðið xnér þessar vís-
ur til birtingar. Önnur er um
nýliðna atburði en hin orðin til
í hugleiðingu um sjósólm á
yngri árum:
Það er hart á þessu landi
þetta að kalla lýðræði.
Útvarpsráð sá erkifjandi
alþýðu bannar málfrelsi
Boðann brýtur og skaflinn
breiðir út vængi hvíta,
hrikti í hörðu afli —
— nú liúmar að kvöldsins tafli.
Isfisksalan. Sala íslenzku togar-
anna í Þýzkalandi núna á dögun-
um var sem hér segir: Bjarni fidd
ari seldi fyrir 10.760 pund, Kaid-
bakur fyrir 12.320 pund, Helgafell
RE fyrir 12.040 pund, Isólfur fyrir
fyrir 9520 pund og Júpíter fyrir
7080 pund.
SKIPAFR ÉTTIB :
Eimskip. Brúarfoss fór frá Reykja
vík 6.5. til Leitly Fjalifoss fór frá
Halifax 5.5. til Reykjavikur. Goða-
foss er í Amsterdam, fer væntan-
lega þaðan á mánudag til Boul-
ogne. Lagarfoss fór frá Reykjavík
4.5. til Rotterdam. ReykjaTöss er í
Reykjavík. Selföss er á Hofsós.
Tröllafoss kom til Reykjavíkur i
gærkvöld. Horsa er á Siglufirði.
Lyngaa fór fiá Reykjavík ltl. 20.00
í gærkvöld-vestur og norður. Varg
fór frá Halifax 30.4. til Reykjavík-
Skipaafgreiðsla E, Z & Co. Foldin
ur. er á leiðinni til Amsterdam.
Vatnajökull er í Amsterdam. Ling
estroom er i Amsterdam. Marleen
fór fi»á Hull í fyrradag Reykjanes
er í Englandi.
títvarplfí í dag:
11.00 Messa í Dómkirkjunni (séra
Bjarni Jónsson vígslubiskup). 16.15
Útvarp til íslendinga erlendis.
fréttir og tónleikar 18.30 Barnatími
Þorsteinn Ö. Stephensen o. fl.). 19.
30. Tónleikar: ,,Brigg Fair" —
ensk rapsódía eftir Delius 20.20
Samleikur á fiðlu og píanó. Þor-
valdur Steingrímsson og Fritz
Wéisshappel). 20.35 Erindi: Lykl-
arnir að hliðum Calais-borgar
1347 (Friðrik Hallgrímsson, fyrr-
um dómprófastur). 21.00 Einsöng-
ur: Þóra Matthíasson 21.15 „Heyrt
og séð“-(Gísli J. Ástþórsson blaða-
maður). 21.35 Tónleikar: Strengja
kvartett nr. 2 eftir Jéan Rivier
(fluttur hér í útvarp í fyrsta sinn;
plötur). 22.05 Danslög. 22.30 Veðui'
fregnir. 23.30 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
19.30 Tónleikar: Lög úr óperettum
og tónfilmum 20.30 Útvarpshljóm-
sveitin: þýzk alþýðulög. 20.45 Um
daginn og veginn (frú Aðalbjörg
Sigurðardðttir). 21.05 Eináöngur
( Jón Pálsson, tenórsöngvari): a)
Fi-iður á jörðu (Árnl Thorstelns-
son). b) 1 dag skein sól (Páll ls-
ólfsson)_ c) Leiðsla (Sigv. Kalda-
— Hiauptu nú eins o'g þú hefur
orkuna til — nú kemur næsti
sprettur.
lóns). d) Ætti ég hörpu (Pétur Síg
urðsson). e) Sjá, dagar koma (Sig
urður Þórðarson). 21.20 1 vertíðar-
lok (dagskrá Slysavarnaféiagsins):
a) Ávarpsorð (Henry Hálfdánar-
son). b) Ræða (Eysteinn Jónsson
ráðherra). c) Frásögn af „Epine"-
strandinu (séra Árni Sigurðsson).
d) Lokaorð (séra Jakob Jónsson).
22.05 Frá sjávarútveginum fiski-
málastjóri. Létt lög (plötur).
Söfnin: Landsbókasafnið er opið
ki. 10—12, 1—7 og 8—10 alla virka
daga nema laugordaga, þá kl, 10—
12 og 1—7. Þjóðskjalasafnið kl. 2
—7 alla virka daga. Þjóðminjasafr.-
ið kl. 1—3 þriðjudagi, fimmtudag'a
og sunnudaga. Listasafn Einars
Jónssonar kl. 1,30—3,30 á sunnu-
dögum. Bæjarbókasafnið kl. 10—10
alla virka daga og kl. 4—9 á sunnu-
dögiim.
Kvenfélag Slj-savarnafélagsins
heldur fund í Tjarnarcafé annað
kvöld kl. 8.30.
Fré I.elkfélagi Reykjavíkur.
Fyrstu tvær sýningar Þjóðleik-
hússins norska hér verða n. k.
fimmtudag og föstudag. Aðgöngu-
miðasalan verður opin á morgun
frá 2—6. Athygli fastra áskrifenda
leikfélagsins skal vakin á því að
sækja aðgöngumiða þá.
Frumsýningin, firnmtudagskvöld,
hefst kl. 7.S0.
Leikfélag Reykjavílcm' sýnir
Eftirlitsmanninn kl. 8 í kvöld í síð
asta. sinn_
Heigidagslæknir.' Magnús Ágústs
son, Hraunteig 21. — Simi 7995.
Næturlæknir er í læknavaiðstof-
unni, Austurbæjarskólanum. —
Sími 3080
Næturakstur í nótt og aðra nótt
annast Hreyfill. — Sími 6633.
Ljósatími ökutækja er irá kl.
22,15 til kl. 4,40.
Smáauglýslngar eru á 7. si&u
KROSSGÁTA NR. 28
Lárótt, skýring: 1, Jóðla, 4, hár,
5, c-nding, 7, möklcur, 9, horfa, 10,
spott, 11, tíu, 13, fangámark, 15,
tveir eins, 16, lengjast.
Lóðrétt, sliýrlng: 1, Eldsneyti, 2.
ríki, 3, tvíhljóði, 4, óþrifin, 6, balt-
tal, 7, glaðvær, 8, sérgrein, 12, hljóð,
14, veizla, 15, guð.
Lausn á krossgátu nr. 27. Láiétt,
i-áðning: 1, Listi, 4, ná, 5, L.L. 7,
ógn, 9, páð, 10, örk, 11, uss, 13, Ag,
15, ei, 16, álfur. . .
Lóðrétt, rúðning: 1, Lá, 2, Sog,
3, íl, 4, nunna, 6, lrokni, 7, óðu, 8,
nös, 12, Sif, 14, gá, 15, er.
i>O<3>O«>©<*©<3>O0<2>©<>^^
Vreðrfð i dag. Suðvesturlund og
Faxaflói: Suðvestan kaldí. Skúriv
eða slydduél.