Þjóðviljinn - 23.10.1948, Qupperneq 5
Laugardagur 23. október 1948.
ÞJÓÐVILJINN
' 'Ekki' mun ofmælt að alþýða
landsins bíði i ofvæni fregna frá
hverju nýju þingi meðan hald-
ast umboð þeiri’a þingmanna er
gerðu herstöðvasamninginn
1946 og styðja þá bandarisku
leppstjóm sem nú hreykir sér í
illa íengnum völdum.
Sjáifstæðisbarátta þjóðarinn-
ar gegn Bandaríkjunum er far-
in að setja svip á aðallínur ís-
lenzkra stjómmála, á þau
stjórnmálaátök sem dýpst ná.
Það er ömurleg sjón að sjá
forvigismenn og alþingismenn
þriggja íslenzkra stjórnmála-
flokkp taka, á sig með meiri og
minm ákafa hlutverk banda-
rískrar fimtu herdeildar á Is-
landi, sjá þá misnota aðstöðu
þingmanna og ráðherra til að
smeygja erlendum fjötri á ís-
lenzka lýðveldið, fjögurra ára
vamarlaust ungviði sem veit
ekki iié skilur hvert mein er ver
ið að vinna því.
Annnað stóra skrefið á ógæfu
brautinni, Marshallsamningur-
inn frá 3. júlí i sumar, var tekið
af rikisstjórn Bjarna Benedikts
sonai' án þess að Alþingi væri
til kvatt, og hefur stjórnin nú
lýst yfir að samningurinn verði
ekki borinn undir Alþingi til
samþykktar. Sósíalistafl.
lýsti yfir strax 11. júlí að hann
teldi þessa aðferð við samnings-
gerðina brjóta í bág við
stjórnarskrá landsins. En varla
er við því að búast að tillit til
stjó rnarskrárinnar vegi þungt
hjá flokkum þeim, núverandi
stjórnarflokkum, sem vorið
Þingsjá Þjóðviljans
23. okp. 1948.
HERNAÐARÁÆTLUN
fimmtu Eierdeildariiiiiar bandarísku birt
1941 gerðu samsæri um að hafa
ákvæði hennar að engu, fram-
lengja umboð þingmanna sinna
til stríðsloka og hrifsa þannig
völdin í hendur þings og stjórn
ar sem ekki hafði vott af um-
boði frá fólkinu í landinu til að'
stjórna. Þá eins og nú var það
einn flokkur, sem mótmælti þvi
að st.jórnarskrá Islands væri
lögð til hliðar þegar ósvífnuir.
ötjórnmálamönnum þætti henta
— Sosíalistaflokkurinn.
Það er skiljanlegt að ríkis-
stjórnin þorir ekki að leggja
Marsliallsamninginn fyrir Al-
þingi, ekki einu sinni þann sam-
vizkuliðuga meirihluta sem hún
telur sér þar vísan til óhappa-
verks. Dæmið um herstöðva-
samninginn 1946 hræðir. Ekki
sízt vegna baráttu þingflokks
sósíulista gafst nokkrum hluta
þjóðarinnar tóm til að átta sig
á þvi níðingsverki sem verið var
að vinna. Nú skal það forðast.
En ekki var vel frambærilegt
að minnast ekki á Marshall-
samninginn og Parísarsamning-
inn á Alþingi. Það gaf of beinar
upplýsingar um eðli stjórnar-
farsms ef ríkisstjórnin gerði
víðtækustu utanríkismálasamn-
inga sem Islendingar hafa gert
án þess að þingið fengi um þá
að vita nema af blaðatilkynn-
ingum. Ríkisstjórnin tók það
ráð að setja á dagskrá samein-
aðs þings „skýrslu ríkisstjórn-
arinnar um Marshallaðstoðina",
og var ekki rætt um annað en
þann dagskrárlið á þriggja
dagv þingfundum þriðjudag,
miðv:kudag og fimmtudag og
umræðu loks frestað til mánu-
dag.s.
Fyrsta daginn skiptu ráðherr
arnir Bjarni Benediktsson og
Emil Jónsson með sér verkum.
Var sýnilega tilætlun stjórnar-
innar að hefja mikla áróðurs-
sókn fyrir Marshalláætluninni
og þátttöku Islendinga í henni,
enda er hún samningsbundin
til slíks áróðurs (8. gr. Marsh-
allsamningsins). Utanríkisráð-
herrann lýsti Marshalláætlun-
inni á þann hátt sem væmnustu
og barnalegustu áróðursmenn
Bandaríkjanna lýsa lienni, taldi
alla afstöðu Bandaríkjanna í
sambandi við áætlunina og fram
kvæmd hennar mótast af meiri
víðsýni, stórhug og sönnum
hjálparvilja en þekkzt hefði í al
þjóðamáluih ! Sámi barnalegi á-
róðurinn um mannúð og hjálp-
fýsi Bandáríkjastjórnar glumdi
í ræðum flestra stjórnarþing-
mannanna sem töluðu, og er
vandséð liverjum ráðherrar og
þingmenn ætla slíkar þjóð-
sagnaskýringar á alþjóðamá.l-
um. Helzt virtist það hvarfla
að Stefáni Jóhanni og hinum
trúa skjaldsveini hans Gylfa Þ.
Gíslasyni að einhverra frekari
skýringa væri vænzt, og komst
hagfræðingurinn að þeirri niður
stöðu að auðvaldið í Bandaríkj -
unum fengi engin áhrif að hafa
á áætlunina, heldur einungis
Bandaríkjastjórn! Hitt virtist
hinum sprenglærða prófessor
um megn að finna nokkur
tengsl milli Bandaríkjaauðvalds
ins og ríkisstjórnarinnar í Wash
ington! Gegnum þykkan vef
klaufalegra afsakana og væm-
ins smjaðurs þjónanna um hina
bandarísku húsbændur skar hin
glæsilega svarræða Einars Ol-
geirssonar á miðvikudaginn eins
og hárbeitt sverð, eftir hana
var eins og stjórnarliðinu gengi
illa að finna hinn barnalega
smjaðurstón, þeim hafði verið
sýnd með skýrum rökum og til-
vitnunum í frumheímildir Marsh
alláætlunarinnar og fram-
kvæmd hennar sú staðreynd
sem hvergi í heimi er neitt
leyndarmál: Að Marshalláætlun
in er frá upphafi áætlun Banda-
ríkjaauðvaldsins til að afstýri
eða fresta hinni ægilegu við-
skiptakreppu sem vofir yfir
Bandaríkjunum, áætlun um að
misnota aðstöðu dollaravalds-
ins til að ná efnahagslegum og
pólitískum ítökum og yfirráð-
um um allan auðvaldsheiminn.
— Ósigur Marshallliðsins með
sinn margfalda ræðutíma fyrir
þessari einu ræðu fulltrúa ís-
lenzka málstaðarins, var algjör,
enda varð lítið eftir nema sefa-
sjúkar upphrópanir um vonzku
kommúnista.
★
Ekki gekk áróðursher Mars-
halls betur á þeim vígstöðvum
sem aðalsóknin var gerð: Á
þriðjudaginn las Emil Jónsson
upp fjögurra ára áætlun, um
framkvæmdir og nýsköpun á Is-
landi árin 1948—52, (sem nýbú-
ið var að þýða á íslenzku, sagði
ráðherrann, auðvitað frumsám-
in á Marshallensku!). Fram-
kvæmd hinnar miklu áætlunar
átti að kosta 542,8 milljónir
króna, þar af 261,69 milljónir
í erlendum gjaldeyri. Með fagn
andi sigurvissu veifaði ráðherr-
ann hinni miklu áætlun, stór-
auka átti fiskveiði -og kauu:
skipaflotann, meir en tvöfalda
raforkuframleiðsluna, reisa lýs-
Framhald á 7. siðu.
1938
1948
24. oktoher
ÁLISTAFLOKK
10 ára
Sósíalisfaíélag Reykjavíknr eínir til hátíðaifundai n. k. sunnudag kl. 8.30 í samkomusal Nýju
mjóikuistöðvaiinnai í tiíefni af 10 áia afmæli Sósíalisfaflokkslns.
DAGSKRÁ
Sósíalistaflokkurmn 10. ára: Sigfús Sigurhjartarson alþm.
Áfmæliskveðjur.
Gamlar endurminningar: flendrik Ottosson, fréttamaður.
Einleikur á klarinett: Egill Jónsson. Undirleik annast Lanzky-Ottó.
Ástandið í alþjóðamáltim: Sverrir Kristjánsson, sagnfræðingur.
Einsöngur: Einar Sturluson. Undirleik annast Róbert Abraham, söngstj.
Ð A N S. Sameiginleg kaffidrykfeja.
Mgöuguumiðai seldii í dag í skiifstofu Sésíalistaflokksins. Þóisgötu 1, sími 7511.
! *>00<><><><>'>0<>-><>0<><><><><><><><><><><><><>0:><><><><><>><><>00<^
fe