Þjóðviljinn - 09.02.1949, Side 3
s
i
Miðvikudagur 9. febrúar 1949. Þ JÖÐVJLJ INN S
MÁLCÁCN ÆSKULÝÐSFYLKINpÁRINNÁRi
SAMBANDS UNORA SÓSIALISTA
Hver er tilgangur íslenzka aíturhaldsins
töku í Átlanzhafsblökkhmi?
Háðisieg Étrei afturhaEdsins í ]
Mennfaskólanum ]
Nemendur þekkia Ólaf Eíauk undir sauðargærunni
1 siðustu æskulýðssiðu leit-
aðist ég við að sýna fram á að
Islendingar ættu hvorki ’nenn-
ingarlega, stjórnarfarslega eða
sögulega samleið með Vestur-
Evrópuríkjunum, og hernaðar-
bandalag við þau væri hreinn
glæpur gagnvart sögu þessar-
ar þjóðar. En þá er eftir að at-
huga þann aðilann sem aftur-
haldið skríður hér flatast fyrir,
en það eru Bandariki Norður-
Ameríku. Okkur er sagt að
þar ríki hið fullkomnasta lýð-
ræðisskipulag en auk þess eigi
Bandaríkin engar nýlendur og
því beri okkur fyrst og frernst
að halla okkur að þeim. I
þessu lýðræðislaudi ráða
auðhringar yfir nær öflum
auðævum Bandarikjanna sem
er auðugasta land veraldarinn-
ar. Þar eru blöðin, útvarpsstöðv
arnar og kvikmyndirnar eign
og áróðurstæki þessara sömu
auðhringa. Þannig hefur fá-
menn klíka sem ekki er nema
örlítið brot af bandarísku þjóð-
inni skapað sér alræðisvald yf-
ir því hvað þjóð sem telur hátt i
á 2. hundrað milljónir íbúa fær
að heyra og sjá, hvað hún fær
að framleiða og á hverju hún
fær að lifa. Þessir ókrýndu kon
ungar Bandaríkjanná hafa iðu-
lega látið brenna matvæli í
stærri stíl en flestir íslending-
ar hafa gert sér í hugarlund
til þess eins að geta okrað
á sveltandi samborgurum. Þar
er athafnafrelsið því þannig í
framkvæmd að múgurinn fær
vélbyssuskothríð á móti sér'ef
hann reynir að bjarga ein-
hverju af því manneldi sem auð
jötnarnir skammta eldinum.
Þar er rit- og málfrelsi raun-
verulega ekki til, sökum þess
að andstæðingar hinnar ein-
völdu auðhringasamsteypu hafa
sáralitia möguleika á að viá út
til fólksins með skoðanir sín-
ar. Um kosningaréttinn í þessu'
góssenlandi lýðræðisins er það
að segja að þeir tveir flokkar
sem þar eru látnir berjast um
völdin á fjögra ára fresti eru
báðir tæki fyrrnefndra auð-
hringa til þess að viðhalda
stétta- og kynþáttakúguninni
og til j)ess að viðhalda og auka
arðránið á bandarískum verka-
lýð.
Kosningabaráttan þar í landi
er því ekkert annað en skrípa-
leikur eins og sást bezt á því,
að þátttakan er sjaldan mikið
yfir 50%. Þar þurfa menn einn
ig að greiða ákveðið gjald tii
þess að neyta kosningaréttar
ins sem er að vísu ekki sér-
lega hátt en þó nóg til bess að
margir fátæklingar kjósa frem
ur að sitja heima; og þar eru
þeir menn sem tilheyra ákveðn-
um kynflokkum barðir dl ó-
bóta eða lireinlega myi'tir ef
þeir reyna að neyta réttar síns
á kjördaginn. Þannig er sá fé-
lagsskapur í stuttu máli sagt
sem íslenzka afturhaldið telur
sér æskilegastan lífsförunaut.
Við megum því vita, íslenzku
æskumenn, á hverju við eigum
von ef við höfumst ekkert að
á þessari örlagastund þjóðar-
innar.
★
1 utanríkismálum mótast
stefna Bandaríkjanna af sömu
sjónarmiðum og stéttarkúgunin
innanlands. Þar stefna auð-
hringarnir markvisst að því,
Framhald á 7. slð*..
Eins og áður hefur verið get-
ið í Þjóðviljanum var almenn-
ur skólafundur haldirtn í
Menntaskólanum 5. febrúar sl.
og var þátttaka íslands í Atlanz
hafsbandalaginu þar til um-
ræðu.
Fundur þessi var hinn merki-
legasti fyrir margra hluta sak-
og hafði afturhaídið mikinn
viðbúnað til þess að villa nem-
endum sýn. Treystist heimdall-
arliðið þó ekki til annars en
að láta nokkuð undan síga, og
í því skyni var þægasti skó-
sveinn þess, Ólafur Haukur Ól-
afsson, fenginn til þess að bera
fram tillögu, þar sem mótmælt
var herstöðvum hér á landi á
friðartímum, en að öðru leyti
voru öll aðalatriði þessa máls
vafin skrúðmælgi um vestrænt
lýðræði og menningu.
Augljóst var, að ýmsir af
heimdellingum Menntaskólans
töldu hræsnistillögu Ólafs
Hauks lítt vænlega til sigurs
og kusu heldur að koma til dyr-
anna klæddir sínum vanalegu
ihaldslörfum eða þegja, og
reyndu fáir að tala með tillögu
þessa vesæla dollaraþjóns, enda
hafði aðeins einn maður feng-
izt til að undirrita hana með
honum.
Nemendur Menntaskólans
hafa með framkomu sinni í
þessu máli gefið íslenzkri æsku
glæsilegt fordæmi um það,
hvernig snúast beri við stríðs-
æsingum afturhaldsins, hvar í
flokki sem menn kunna að
standa, enda var augljóst að
hin útþvælda kommúnistagrýla,
sem Sigurjón Einarsson reyndí
að veifa, hafði ekki hin minnstu
áhrif á menn.
Útreið sú, sem erindreki land
söluliðsins hlaut á þessum
fundi, ætti að vera áminning
til afturhaldsins um að senda
ekki leppa sína framvegis á
fundi Islendinga um þetta mál
til þess að kæfa mótmæli gegn
svikum við málstað Islands
með loðnum hræsnistillögum.
Til þess, að slíkt sé hægt, liggja
mál þessi of skýrt fyrir. Fyr-
irætlanir landsöluliðsins eru
hverjum manni ljósar, enda
liggja þær nú fyrir dómi al-
Morgunblaðið stingur höfðinu í sandinn
Reynir á engan hátt ai afsanna
bréfstuldinn
Það vakti að vonum nokkra athygli, er Morgunblaðið
birti í s.l. viku glefsur úr bréfi, sem sambandsstjórn
Æ. F. hafði ritað deildum sínum í tilefni umræðnanna
um þátttöku Islands í Atlanzhafsbandalaginu. Þótti þeim
Morgunblaðsmönnum svo mikill fengur að bréfi þessu,
að sjálf landráðasiðan-var tekin til hugleiðinga um það.
Það, sem almenningi mun hafa þótt athyglisverðast við
birtingu bréfs þessa í Morgunbl., var þó ekki efni þeirra
glefsa, sem þar voru slitnar úr því, heldur einfaldlega
það, hvernig bréf þetta hefði komizt í hendur þeirra
Morgunblaðsmanna.
Mál þetta var gert að umtalsefni hér í Þjóðviljanum
s.l. sunnudag, og var þar meðal annars bent á það, að
engar líkur væru fyrir því, að bréf þetta hefði borizt
þeim Morgunblaðsmönnum á annan hátt en að því hefði
verið stolið úr pjósti af ásettu ráði. Morgunbl. varð
svarafátt við þessa ásökun: lætur sér nægja að segja í
gær, að slíkar ásakanir séu ekki svaraverðar, og endur-
tekur að öðru leyti hæstu tóna eymdarvælsins á land-
ráðasíðunni s.l. föstudag. En eitt er komið í Ijós eftir
þann stutta tíma, sem mál þetta hefur verið á dagskrá:
Morgunblaðið eða einhver skósveina þess hefur komizt
yfir bréf þetta með ófrjálsri hendi og út frá þeirri stað-
reynd mun mál þetta rætt.
Hvað er það í bréfi þessu, sem telja má að auðgi hinn
fátækta málstað landsöluliðsins ?
Hér hafa blekiðnaðarmenn Morgunbl. verið óvenju
fundvísir, því að hver einasti stafur bréfs þessa á að
sanna takmarkalausa hollustu Æ. F. við Stalín og aðra
háttsetta menn í Kreml.
Eitt er það þó sérstaklega, sem virðist hafa farið i
hinar fíngerðu taugar Morgunbl., og er það áskorun um
að hefja nú þegar áróður gfign áformum landráðalýðs-
ins, hvar svo sem því yrði komið við. Morgunbl. veAur
mjög í villu, ef það heldur, að það hafi orðið fyrst til
þess að uppgötva þessa afstöðu íslenzkra sósíalista í
hlutleysismálinu. En lcannski hefur þetta því fremur
komið við kaun þeirra Morgunblaðsmanna, að sýnt er,
að hafi slíkur áróður verið rekinn, hefur hann borið ár-
angur, sem nú er að birtast í ákveðnum mótmælum ís-
lenzku þjóðarinnar gegn hinum áformuðu svikum við
málstað Islands. íslenzkir sósíalistar hafa ekki þurft að
standa einir í því að opna augu almennings í þessu máli.
Hinum íslenzka málstað hefur bætzt fjöldi nýtra liðs-
manna, sem ekki þurftu annað til að mynda skoðun sína
eftir en viðbjóð á landráðaskrifum hinna íslenzku borg-
arablaða.
Með birtingu þessa bréfs mun Morgunbl. telja sig
hafa svipt einhverjum hulinshjálmi af starfsaðferðum
íslenzkra sósíalista í því máli, sem nú er hæst á lofti
á himni stjórnmálanna. Hafi bréfið flett ofan af nokkr-
um, er það íslenzka afturhaldið og starfslið þess, sem
s.l. föstrudag sendi frá sér neyðarskeyti, statt i sjávar-
háska, — strandað á skerjum spillingar og siðleysis.
þjóðar.
AUSTFIRÐINGAMÓTIÐ
verður haldið að Hótel Borg n. k. laugardag, 12.
febrúar, og hefst með borðhaldi kl. 6 e. h.
Aðgöngumiðar verða seldir að Hótel Borg (suð-
urdyr) í dag kl. 5—7 og á morgun á sama tíma ef
eitthvað verður eftir.
I dag verða félagsmenn (og einnig nýir félagar)
látnir sitja fyrir. .
Félagsskírteini verða afgreidd um leið.
Austfirðingar, fjölmennið á Austfirðingamótið.
STJÓRNIN.
S
Tónlisiaiíélagið.
5
Píané og waldhorntóflleika
heídur
W. Lanzky-Otto
í föstudaginn 11. þ. m. kl. 7. síðd. í Austurbæjarbíó.
DR. URBANTSCHITSCH aðstoðar.
1
Aðgöngumiðar á 10 krónur eru seldir hjá Ey-
mundsson, Lárusi Blöndal og Bækur og ritföngum
Austurstræti 1. ,
'wwwHwwwwiSiWwwwwvvwwwvvwwwwwvwtfW