Þjóðviljinn - 31.03.1949, Page 4
Fimmtudagur 31. marz 1949.
ÞJÓÐVILJINN
PIÓÐVILIINN
LiKefandi: Samelningarflokkur alþýöu — Sósíalistaflokkurinn
Ritstjórar: Magnús Kjartansson. Siguröur GuÖmundsson (áb>.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýslngar, prentsmiðja. Skólavöröu-
•tíg 19 — Sími 7600 (þrjár línur)
Áskrií arverð: kr. 12.00 á mánuði. — LausasOluverð 60 aur. elnt.
Prentsmlðja Þjóðviljans h. f.
Sóslallstaflokknrlnn, Þórsgötu 1 — Sími 7610 (þrjár línur)
Svartasti dagurinn í sögu Islands
ísland svikið undir amerískt hervald
Örlagaríkustu svik sögu vorrar voru framin við þjóð
vora í gær. Svik Sturlungaaldarhöfðingjanna við sjálfstæði
landsins 1262 og ofbeldi erlends hervalds frá Kópavogi
1662 voru lögð saman og framin i gær. Auðmenn Islands og
þý þeirra á Alþingi s\’lku landið, bandaríska hervaldið og
ofbeldislið kvislinga þess réðist á fólkið.
Alþingi íslendinga var traðkað og hrundið niður í nið-
urlægingu fyrri alda, meirihlutinn gerður að auðsveipu þýi
erlends valds, réttur minnihlutans algerlega brotinn á bak
aftur og þjóðin svipt þeim réttindum, sem stjórnarskrá
lýðveldisins sérstaklega helgar henni: réttinum til þjóðar-
atkvæðagreiðslu, og sá réttur var veittur þjóðinni með lýð-
veldisstofnuninni einmitt til þess að tryggja að hún gæti
tekið fram fyrir hendur þingsins, ef það ætlaði að brjóta
gegn þjóðarviljarium.
Svívirðingarsamningurinn, sem setur Island undir her-
vald Bandaríkjanna, var ólöglega samþykktur með þver-
broti allra þingræðisregla, af mönnum, sem ekkert umboð
höfðu frá þjóðinni til þess viðurstyggilega verks.
Og sem tákn þess að þaðan í frá skuli ofbeldið drottna
yfir Islandi, lætur ríkisstjórnin og þá fyrst og fremst for-
ingjar íhaldsins, vopnaðan Heimdallarskríl og lögreglu
ráðast á friðsama Islendinga, sem komið höfðu á vettvang
til að sýna fylgi við íslenzkan málstað og sumpart að á-
eggjan stjórnarflokkanna sjálfra. Níðingslegri aðfarir en
ríkisstjórnarinnar i gær þekkir Islandssagan ekki. Það var
líkast því sem þessi pólitískt gjaldþrota svikarar vildu
stofna til blóðbaðs í Reykjavík, til þess að svala strax
heift sinni á þeirri þjóð, sem þeir eru að svíkja undir her-
vald Bandaríkjanna.
★
Blóðugar árásir stormsveita leppstjórnarinnar á fólk-
ið í Reykjavík munu jafn litt úr minni líða sem þjóðsvikin
sjálf, er í gær voru framin. Valdhafarnir, sem mánuðum
saman hafa farið á bak við þjóðina, vegið að þjóðinni,
neitað henni um að fá að beita kosningarétti sínum, til þess
að ákveða um örlagarikustu mál sögu sinnar, hafa nú beitt
vopnum gegn þjóðinni, sem þeir hræðast og hata, af því
þeir eru að svíkja hana í tryggðum. Og þessum valdhöfum
er haldið uppi af peningum frá því stórveldi, sem þeir nú
voru að svíkja ísland í hendurnar á.
Þessum valdhöfum tókst að svíkja ísland í gær.'En ís-
Ienzka þjóðin verður ekki baráttulaust ofurseld ofbeldinu
og einræðinu eins og í Kópavogi forðum. Island á alþýðu
og menntamenn í dag, sem rétta munu hlut þess.
ísland var svikið undir bandarískt hervald í gær —
svartasta daginn í sögu íslands.
Bj'rjum baráttuna fyrir að iieimta aftur frelsi Islands
í dag. Sköpum órofa þjóðfylkingu allra þeirra afla, sem
•vilja endurheimta það, sem glataðist í gær.
Burt með ofbeldisstjórnina, sem eyðileggur afkomu
Islendinga og svíkur landið undir erlent vald!
Burt með þá lögreglustjórn og stormsveitarskríl, sem
ræðst á friðsama Islendinga!
Burt með ómerka samninginn, sem samþykktur var
með lögleysum og ofbeldi í gær!
Þjóðin verður að fá að sýna það j kpsnir.gum, að hún
JVill burt með -þessa stjórn og ,vill afmá hennar ódæði.
SMJABPOSTIBIVN!
Það höfðu verið æfingar.
Niðrí Kveldúlfsporti höfðu
staðið yfir æfingar miklar. Syn-
ir íslenzkra auðmanna og þeirra
fylgifiskar höfðu þar hlotið ítar
lega leiðsögn um þau hand-
brögð sem bezt mundu henta,
þegar rota skyldi ísl. alþýðufólk
með amerískum kylfum. Tign-
arstöðum í liði þessu var útbýtt
eftir þeirri meginreglu, að
mestra afreka mættt vænta af
þeim sem hlotið höfðu sérstak-
lega góðar einkunnir í morð-
skólum nazista meðan frænd-
þjóðir okkar lágu í sárum undir
járnbentum stríðshælnum
þýzka. — Úr herbúðum Kveld-
úlfsportsins kváðu við hlakk-
andi hreystiyrði: „Okkar menn
munu ekki láta á sér standa. Nú
loks eru þeir allir i fullu
starfi!“
Berja, berja, berja:
Og þeir létu ekki á sér standa.
Aðfarir hvítliðasveitar Heim-
dallar við Alþingishúsið í gær,
eru einhverjar þær hroðaleg-
ustu sem hér liafa sézt. Þessi
auðnuleysislýður, þetta siðferðí
lega volaCo.. hyski, þessi ógeðs-
legu afsprengi spilltustu auð-
stéttar í heimi, óðu þama
fram með sínar amerísku kylf-
ur og börðu börn, konur, gam-
almenni, allt sem fyrir varð,
trylltir, viti sínu fjær
börðu, börðu, börðu. Já, það
er töggur í Heimdallarpiltum,
þegar þeir hafa í höndum sér
kylfurnar að westan. — Samt
mun sú verða raunin, að
saga íslands á . eftir að
minnast þessa athæfis
þeirra sem hins ömurlegasta
dæmis um ragmennsku, ódreng
skap og andstyggð.
*
Þáttur lögreglunnar.
En það má heldur ekki gleyma
þætti lögreglunnar í þessu máli.
Sú staðreynd, að hún hafði
þarna náið samstarf við hvít-
liðana um ofbeldisaðgerðir gegn
friðsamri alþýðunni, er vissu-
lega verð allrar athugunar. ■—
Sumir lögregluþjónarnir voru í
engu-tilliti eftirbátar Heimdall-
arpiltanna um fólskuverk og
bulluskap. Þó ber þess að gæta,
að í hópi hinna óbreyttu lög-
reglumanna eru nokkrir ágætir
menn, sem vilja sýna prúð-
mennsku í hverju máli, og svo
var það einnig þarna. — En
sem heild hljóta allir heilskyggn
ir menn að fordæma þetta fram
ferði lögreglunnar, þetta sam-
spil hennar við siðlaus rag-
mennin úr Heimdalli.
*
Hvað er fasismi?
Þarf nú nokkur að spyrja,
hvað sé fasismi?
íslenzk alþýða safnast sam-
an til mótmæla, því verið er að
traðka á rétti hennar, stela
landi hennar, fremja gagnvart
henni þann glæp, sem getur
táknað útþurrkun hennar úr
tölu lifandi þjóða. Þetta gerir
hún ofbeldislaust og með full-
um stjórnarskrárlegum rétti.
En hinir seku valdamenn, sem
eru að fremja glæpinn gagn-
vart henni, eiga aðeins eitt
svar, aðeiris ein rök: kylfur.
Á íslandi sýnist það nú sem
sagt að verða hin blómlegasta
Framhald á 7. síðu.
*
Fornaldarsögum Norðurlanda
(Andrés Björnsson). 21.15 Dagskrá
Kvenréttindafélags Islands. — Er-
indi: Uppruni og þróun dansins
(Sigríður Valgeirsdóttir mag.
art.) 21.40 Tónleikar (plötur). 21.45
Fréttir úr sveitinni: Samtal (Þor-
steinn Sigfússon bóndi á Sand-
brekku og Gísli Kristjánsson rit-
stjóri). 22.05 Passíusálmar. 22.15
Symfóniskir tónleikar (plötur):
a) Cellókonsert í B-dúr eftir'
Boccherini. b) Symfónia nr. 5 i
c-mol op. 67 eftir Beethoven.
Hallgrímskirkja. Kvöldbænir og
Passíusálmasöngur kl. 8 í kvöld.
Næturakstur í nótt annast
Hreyfill. — Sími 6633.
Ungbarnavernd Líknar, Templ-
arasundi 3, er lokuð fyrst um sinn,
vegna inflúenzufaraldurs.
Ilallveigarstaðabasarinn. Allir,
sem ætla að gefa muni eru vin-
samlega beðnir að koma þeim í
verzlun Gunnþórunnar Halldórs-
dóttur fyrir n. k. laugardag.
Tímarit Verk-
fræðingafélags
Islands, 4. hefti
fyrra árs er
komið út. Efni:
Finnbógi R. Þor
valdsson: Árni
Daníelsson (dán
arminning), Valgarð, Thoroddscn;
Jarðgufuraforltuvérin í Toscana;
Virkjað vatnsafl á jörðihni, Ný-
stárlegt orkuver, o. fl.
Nýl. voru gefin
saman í hjóna-
band, ungfru
Lilian Agnete
Mörk frá Fær-
eyjum og Bragi
Guðmundsson verkamaður,
Nýlega voru gef-
ungfrú
ÍSFISKSALAN:
25. þ. m. seldi Ingvar Guðjónsson
2267 kits fyrir 7209 pund í Eng-
landi. 21. þ. m. seldi Víðir 1142
vættir fyrir 3102 pund í Englandi.
RIKISSKIF:
Esja er væntanlega á Akureyri.
Hekla er í Rvík. Herðubreið er á
Austfjörðum á norðurleið. Skjald-
breið er væntanlega á Raufarhöfn.
Súðin var á leið frá Breiðdalsvik
til Rvikur í gær.
Einarsson & Zoega:
Foldin er í Stykkishólmi. Spaar-
nestroom fór frá Hull 25. þ ,m. á-
leiðis til Rvíkur með viðkomu í
Færeyjum og Vestmannaeýjum.
Reykjanes er væntanlegt'til Vest-
mannaeyja um mánaðamótin.
É I M S K I F :
Brúarfoss fór frá Hull 28. 3. til
Rvíkur. Dettifoss fór frá Hafnar-
firði 26. 3. til Grimsby, La Rochelle
Hamburg og Rotterdam. Fjallfoss
er í Gautaborg. Goðafoss fór frá
N. Y. 26. 3. til Rvíkur. Lagarfoss
er i Fredrikshavn. Reykjafoss kom
til Antwerpen 26. 3. frá Rotterdam.
Selfoss er í Rvík. Tröllafoss kom
til Rvíkur 25. 3. frá N. Y. Vatna-
jökull fór frá Rvík 27. 3. til Ham-
borgar. Katla kom til Halifax 27. 3.
frá Rvík. Anne Louise er í Fred-
rikshavn. Hertha er í Menstad.
Linda Dan lestar í Gautaborg og
Kaupmannahöfn 30. 3. — 5. 4.
18.30 Dönnsku-
kennsla. — 19.00
Enskukennsla.
20.20 Útvarpshljóm
sveitin (Þórarinn
Guðmundsson
stjórnar): a)
„Mariana", forleikur eftir Wallece.
b) Vals úr óperettunni „Leðurblalc
an“ eftir Lehar. c) Mars eftir
Fucik. 20.45 Lestur fornrita: Úr
Standið vörð um rétt þjóðarinnar Islendingar! Munið
að þeir stjómarflokkar, sem í gær svikust aftan að þjóð-
inni, hafa áður rofið stjómarskrána, svipt þjóðina kosning-
arrétti og framlengt umboð sitt sjálfir!
Islendingar! Fram til baráttu fyrir lýðréttindum vor-
um og þjóðfrelsi! Ofbeldisstjóm bandaríska hervaldsins á
tafarlaust að segja af sér.
Rafn
Laugateigi 19.
in saman í hjónaband,
María Árnadóttir og Gunnar V.
Frederiksen, flugmaður hjá Flug-
félagi Islands.
Hjónunum Guð-
björgu , Jörgens-
dóttur ,og Guð-
mundi 'Steindórs-
syni, Vitagtíg 17,
fæddist 14 marka
sonur þann 21. marz. — Hjónunum
Guðfinnu Jónsdóttur og, Marteini
Sigurðssyni, Bergþórugötu 14, fædd
ist 12 marka sonur 16. marz.
Gjafir til kaupa á hellcopterflug-
vél.
Frú Jódís Sigmundsdóttir hef-
ur gefið kr. 500.00, Krist.n og Gísli
Ásgeirss. Hafnarf. kr. 100.00,
Kvennad. Slysavarnafélagsins á
Siglufirði hefur afhent kr. 10.000.
00, til flugvélakaupa. Kvennadeild
Slysavarnafélagsins í Neskaupstað
hefur einnig afhent kr. 10.000.00, þá
hafa kvennadei-ldarkopuij í Garðin
um afhent kr. 2.500.00, í sama
skyni í tilefni 15 ára afmæli deild-
arinnar nú fyrir skömmu.
Hinar mörgu deildir Slysavarna
félags Islands viðsvegar á landinu,
hafa verið að senda uppgjör sín
að undanförnu og mjög rífleg fjár-
framlög til Slysavarnafélagsins.
Gullfaxi kom síð-
degis í gær frá
Kaupmannahöfn
og Prcstvík með
36 farþega. 1 gær
var flogið til Ak-
ureyrar, Vestmannaeyja, Isafjarð-
ar, Siglufjarðar, Keflavíkur, Hval
fjarðar og Patreksfjarðar.
Jónas F. B. Guömundsson,
Bræðraborgarstíg 49, er 55 ára í
dag.
Kvenréttindakonur! Framhalds-
aðalfundur K. R. F. 1., sem átti að
vera sl. miðvikudag, hefst kl. 8.30
í kvöld í Iðnó.
Volpone. Leikfélag Reykjavíkur
hefur nú sýnt þetta fræga skop-
leikrit í 20 kvöld eða mikið á ?.
mánuð við mikla aðsókn og sívax-
andi vinsældir. En vegna þess að
Leikfélagið byrjar bráðlega sýn-
ingu á nýju íslenzku leikriti og
oftir það hefjast strax æfingar á
Hamlet fer sýningum að fækka á
Volpone, svo það fer að verða
hver. síðastur íyrir þá sem vilja
sjá þéssa ágsétu sýrtingu.