Þjóðviljinn - 01.05.1949, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 01.05.1949, Blaðsíða 3
Stmnudagur 1. maí 1949. ÞJÖÐVILJINN 11 m'álcácn æskulýðsfylkincarihhárI SÁMBANDS UNCRá SÓSIAL/STA ,. Fram allir verkamenn 1. maí Þið hafið ei kraff fiE aS sfanda Vinnandi æska íslands fagnar 1. maí af meiri þörf nú, en nokkru sinni áður eft- ir stríðið. Ástæðurnar til þess eru augljósar. Óvinir æsk- unnar hafa þjakað hana eins og alla þjóðina á þriðja ár með efnahagslegum og póli- tískum árásum. Þeir hafa sært þjóðarmetnað hennar með dollarabetli og samið við stríðsglæpamenn auðvaldsins um aðild íslendinga í mann- slátrun strax og amerískum atómkapítalistum þóknast að framkvæma áform sín um eyðingu heimsbyggðarinnar. Morðin í Grikklandi eru þeim eitt lítið stríðsspil í Samanburði við það Mar- shallplan. Vinnandi æska minnist í dag, hvernig Womangate- lepparnir í ríkisstjórninni hafa íeftir þingleiðum tínt hverja spjörina eftir aðra af æskunni til þess að kom- ast að skyrtunni, svo takast mætti að hýða hana upp á gamla mátann með skorti, dýrtíð og atvinnuleysi. Þá mun Reykjavíkuræsk- an ekki gleyma kylfuhöggum hvítliðaskríls Heimdallar eða limlestingartilraunum þjóna yfirvaldsins. Æskan mun gera Ólafi Thórs þann greiða að varðveita nöfn kylfuber- anna og annarra fasista með því að láta þau nöfn klingja í eyrum fólksins hvar sem þeir sjást á íslandi, sérstakl. 1. maí- og margan dag í við- bót. Sérhvern dag og þá ekki sízt 1. maí, þegar æskan lyft- ir til sýnis syndakynstrum Womangateleppanna, minn- ist hún landráðafyrirtækisins á Keflavíkurflugvelli. Þar blasir við smygl, skattsvik, gjaldeyris- og svartamarkaðs brask og það sem nýjast er í okkar sögu, eitthvað enn verra en venjulegur hórdóm ur þróast þar, eins og kröft- ugar heimildir sýna nógu væl. Allt þetta innsigja lepp- arnir síðan með landráðun- um 30. marz. Æskan gerir sér fulla grein fyrir því 1. maí, að hún ver-ð ur að heyja hatramma bar- áttu við ríkisstjórn Wornan- gateleppanna, sem er líftaug afætustéttar og braskaralýðs. Kratar munu og fá sinn skammt í sókn æskunnar. Æskan mun hafa í huga allan óþrifnaðinn, sem staf ar af Womangateleppunum, þegar hún 'fylkir voldugp liði 1. maí til að framkvæma bráðnauðsynlega en ógeð- fellda hreingerningu. En æsk an horfir lengra fram á veg-, inn 1. maí í ár. Hún horfir vonglöðum aug um til þess dags, er hún hef- ur kippt 'burt dragbítum arð- ráns og auðvaldsspillingar, þá fyrst getur hún leyst úr læðingi þann kraft, sem megnar að byggja upp þettaj land, sem nú gengur kaup-j um og sölum í höndum kram ara. Æska íslands veit gerr nú en áður um möguleika landsins til að veita sér- hverju íslenzku barni brauð, föt og húsnæði, svo að það megi lifa og hugsa eins og manni sæmir. Nú sem stendur er það; fyrsta verkefni æskunnar íj krafti ósigrandi fylkingar sinnar að koma í veg fyrir, að hið íslenzka barn eins og hið íslenzka sjálfstæði verði um langa framtíð, sem lítil og vanmáttug skel mitt í brimróti kreppna og morð- ingjaáróðurs, sem magnað er af erlendum verkalýðskúg urum og innlendum leppum þeirra. Æskan verður að stréngja þess heit 1. maí, að fyrir- vinna auðvaldsins, verkalýð urinn, sé ekki þeim örlögum háður, að ofala iðjuleysis- og drykkjuskríl, sem hefur það sem aðal-„hugsjón“ að þjálfa ' sig í að berja fyrir- vinnu sína, þegar hún tekur sér stundarhlé til að verja lífsuppsprettu sína. Aldrei hefur meira riðið á því en nú, að hver og einn þekki verkefni alþýðunnar. Aldrei hefur oltið meira á að æskan tileinki sér vísindi marxismans. Það er stafróf sem gerir æskunni kleift að kveða rétt að orði um lepp- anna og aðstandenda þeirra. 1. maí er prófdagur æskunn- ar og allrar alþýðu. Þá rifj- ar alþýðan upp allt, sem hrjáir hana og finnur meðul til að bæta úr. Burgeisarnir munu i dag eins og venjulega smala sam an bitlingalýð og nota marg þvældar auðvaldstuskur „Al- þýðuflokksins" til að kyrja lof um guðsblessunina og lýð ræðið í landsafsali og man- sali á Keflavíkurflugvelli. Sá hópur mun hljóta dýpstu fyrirlitningu æskunn ar um leið og hún gengur framhjá. Dollaradýrkendur sem standa fyrir bitlingahópn- um á Lækjartorgi munu finna að þeirra kraftur er fólginn í stolnum innstæðum inanlands og erlendis, en æsk an mun varðveita sitt afl í kröfugöngu Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykja vík. ÆSKA REYKJAVÍKUR, það munu fleiri bumbur skjálfa en þær, sem eru barð ar í lúðrasveitinni í dag. Bur geisarnir og feitir þjónar þeirra munu horfa óttaslegn ir þína fylkingu bæði frá Lækjartorgi ■ og gegnum gluggatjöld í stórum húsum. Varðveitum einingu verkalýðsins 1. maí! Sýnum auðvaldinu stærri óvinaher en nokkru sinni áður. Látum þá sjá, hve verkalýðshreyfingin er öflug. Hún er sómi ís- lands, sverð þess og skjöldur í dag. Fyrsti maí, dagur verka-’ lýðsins og vordagur á norð- urhveli jarðar er runninn upp. Vorið er byltingatími í ríki náttúrunnar, fyrirheit um fullkomnara líf. Að baki er kaldur og dimmur vetur. Myrkrið hefur grúft eins og óhugnanleg mara yfir freðnu og lífvana landi. Frostið, Gestapo vetrarríkisins, legg- ur helfjötra á allt, sem lífs- anda dregur. Þá kemur vorið með hækkandi sól. Snjóa og klakaböndin taka að bresta, myrkravöldin riða til falls. Gerir dauða höndin þá, stundum örþrifa tilraunir til þess að viðhalda veldi sínu, en árangurslaust. Það hefur enginn mátt til þess aá standa á móti þróun lífsins. í auðvaldsheiminum er i dag háð samskonar barátta. Annarsvegar steinrunnin yf- irstétt, sem leggur frostkaldE. stálfjötra á frjálsa hugsun, hneppir athafnalífið 1 einok- unarfjotra og frystir gróanda þjóðlífsins. Hins vegar er aL þýðan, sem berst fyrir nýj- um og betri heimi. Verka- lýðurinn er þjóðfélagsvorig; og fyrsti vorboðinn er dagur. verkalýðsins, fyrsti maí. Yfirstéttin hefur gripið tn örþrifaráðs til þess að við- halda forréttindum sínurp, þjóðfélagsvetrinum. Alþýðaa mun svara í dag með því a? fylkja liði um göturnar á voldugri kröfugöngu. Um gervallan heiminn mune milljónirnar sýna yfirstétt* unum fram á að enginn dolh ari og engin kjarnorka geL ur stöðvað samstilltan múg< O. J. Sýndu mátt þinn í dag, alþýðuœska! íslenzka alþýðuæska! í dag fylkir verkalýðurinn á ís- landi liði til sóknar og varn- ar gegn því siðlausasta aft- urhaldi, sem nokkru sinni hefur fsrið með völd í þessu landi. Aldrei í sögu þessarar þjóðar hafa verið ískyggi- legri horfur um framtíð þína en nú og ef þú ekki sjálf tek- ur í taumana, þá geta þær jafnvel orðið alvarlegri en drepsóttir og hungurdauði liðinna alda. Þeir níðingar, sem nú hafa svikið íslenzku þjóðina und- ir ibandarísk yfirráð, en hafa í stað þess fengið umboð auð- kýfinganna í Wall-Street til þess að berja niður verka- lýðshreyfinguna á íslandi, hafa ekki legið á liði sínu síðan þeir fólu mikilmenninu Stefáni Jóh. Stefánssyni stjórnarforustuna. Það sem síðan hefur gerzt er það að sala íslenzkra af- urða hefur verið bundin við markaði þar sem minnst er borgað fyrir þær. Gjaldeyr- isvandræði hafa skapazt'. Upp hefur verið tekin hin svívirðilegasta skömmtun á nauðsynjavörum til almenn- ings, en svartamarkaðsbrask á sama tíma löghelgað. Inn- flutningur á hráefnum til iðnaðar — hefur verið stór- lega minnkaður, en verk- smiðjubyggingar stöðvaðar. Samfara því hefur svo farið fram niðurskurður á fjár- veitinguni til annarra verk- legra framkvæmda, sem hef- ur í för með sér minnkandi atvinnumöguleika fólksins í landinu en tekjur þess jafn- framt verið rýrðar með bind- ingu vísitölunnar og aukn- um sköttum og tollaálögum á nauðsynjavörum. Stjórnar- farslegu og efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar hefur að miklu leyti verið glatað. Það sem þetta gildir fyr- ir þig, íslenzka alþýðuæska, er það, að með minnkandi at- vinnu og síaukinni launa- skerðingu er verið að ræna þig möguleikanum til þess að lifa mannsæmandi lífi. Það er verið að ræna þig mögu- leikunum til að njóta mennt- unar, sem þú þráir og þarfn- ast. Það er verið að ræna þig möguleikanum til að stofna þitt eigið heimili í húsakynnum, sem eru sam- boðin siðuðu þjóðfélagi. Það er verið að leitast við að lama svo viðnámsþrótt þinn að þú verðir móttækileg fyr- ir þeirri siðlausu spillingu, sem Bandaríkjaleppparnir eru að leiða yfir þjóðina og sem getur haft í för með sér glötun íslenzkrar tungu og íslenzks þjóðernis. Það má heyra þó lágt fari að það er ekki svo fjarri íslenzka aft- urhaldinu, ef þeir sjá sér þess einhvern kost, að fá að hervæða íslenzku þjóðina til þess að geta notað hana til morðárása fyrir bandarísku heimsvaldasinnana ef til styrjaldar dregur. Það er ekki ósennilegt að húsbænd- urnir í Wall-Street æski þess, því Bandaríkjamenn eru ekki eins gráðugir í það að láta lífið eins og að græða peninga á styrjöldum. En til þess að það nái fram að inn. í dag mun allur heimurinn. sannfærast betur en nokkru sinni um þau sígildu sann- indi að það hefur enginisi kraft .til að standa á móö þróun lífsins. G. B. ganga, þarf að ræna þig at* vinnumöguleikunum, skap® handa þér örbirgð og vom leysi og lama siðferðismeðvií und þína, þá er máske mögu- leiki að telja þér trú um a* þú eigir að „berjast fyrir föðurlandið“ og hvað það sé skylt og sjálfsagt að láta líf- ið fyrir fósturjörðina. Þa* sem þér ber að sýna föður-1 landssvikurunum fram á —< strax í dag — íslenzka al- þýðuæska, er að þau rnðings- verk, sem þeir eru að fremja á íslenzku þjóðinni muní ekki takast. Að þú þekkir annað takmark háleitara og öllu hugþekkara en að láta lífið, jafnvel fyrir ættjörð- ina, en það er að lifa fyrir hana. Að sá samningur, sem þeir nú hafa neytt upp á. þjóðina muni að engu hafð- ur. Að þú. átt rétt á að lifa í þessu þjóðfélagi við mann- sæmandi lífskjör og þú ætlir að neyta þess réttar. Ekkert annað en samtaka- máttur alþýðunnar getur frelsað þjóðina frá þeirri! glötun, sem íslenzka bur- geisastéttin er búin að stofna henni í. íslenzka al- þýðuæska! í dag ber þér a® sýna hvers þú ert megnug. Lárus Bjarnfreðsson i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.