Þjóðviljinn - 05.05.1949, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 05.05.1949, Blaðsíða 6
6 ÞJÓÐVILJINN LEPPA-VÍSUR Brátt er komin bölvuð kreppa bjarga sér þótt flestir nenni. Við eigum líka æfða leppa sem inní landið moka henni. Nekt og fátækt flestöll hreppa frónsins börn og það skal muna, meðan hér við höfum leppa er hugsa bara um landssöluna. Já til vor allra kemur kreppa þó kappar dragi björg úr sænum- Hún eltir vora æðstu leppa endurnærð af westanblænum. Aliir verða að því keppa og enginn má í hlé sig draga að þessa óláns erki leppa ei ölum hjá oss fleiri daga. G. St. Afmælissýning Handíða- og mynd- listaskélans 16—24. júní n. k. Handíða- og myndlistaskólinn var stofnsettur liaustiu 1939. Með þessu skólaári, sem senn er liðið, lýkur þannig 10 ára starfsferli skólans. Svo sem \enja hefur verið undangengin níu ár, mun einnig nú verða höfð opinber sýning á vinnubrögðum nem- enda. Að þessu sinni verður sýningin haldin í Listamanna- skálanum við Kirkjustræti dagana 16.—24. júní u. k. Þessari afmælissýningu er ætlað að veita nokkurt yfir- lit um starf skólans þennan fyrsta áratug. Til þess að svo megi verða treystir skólinn því, að eldri nemendur skól- ans sýni þá vinsemd að lána til sýningarinnar muni, er þeir hafa unnið í skólanum eða síðar, í framhaldi af námi sínu þar. Nær þetta til nemenda í öllum námsdeildum skólans og til allra greina, er þar hafa verið kenndar (Alm. frí-hendisteiknun, listmálun radering, dúkskurður og prentun, tækniteiknun, leir- mótun, postulínsmálun, aug- lýsingaskrift og -teiknun, skrautmálun, teiknun og föndur barna, leðurvinna,; hanzkasaumur, tréskurður, alm. trésmíði, rennismíði, drifsmíði, járnsmíði, smíði flugvélalíkana, pappírs- og pappavinna, bókband, bast- og tágavinna, prjón og hekl línsaumur, kjólasaumur, út- saumur, saumur drengjafata, mynízturteiknun, sniðteikn- un, og sniðskurður o. fl.). Forstöðumaður skólans hefur beðið blaðið, að koma þeim tilmælum sínum til fyrrverandi nemenda, að þeir sýni‘ skólanum þá vin- semd að Ijá mun eða muni á afmælissýriinguna. Þess er óskað, að eldri nemendur skólans, sem vilja verða við þessum tilmælum, tali við skólastjórann eða einhvern af kennurum skólans hið allra fyrsta. Mandólínhljóm- sveitin heldur hljómleika Mandólínhljómsveit Reykj avíkur heldur afmælistón leika sína dagana 5. og 6. maí í Gamla Bíó og laugar- daginn 7. maí í Vestmanna- eyjum ef flugveður leyfir. Á þessum fimm starfsár- um hljómsveitarinnar er hún orðin viðurkenndur liður í tónlistarlífi Reykjavíkur, og hefur aflað sér vinsælda ; fólks út um land, með hljóm- leikaförum sínum og leik í útvarpið. Haraldur Guð- mundsson hefur stjórnað hljómsveitinni frá byrjun, en lætur af stjórn, þar eð hann er á förum. Á efnisskrá hljómleikanna verða m. a. forleikur úr „La Traviata” eftir Verdi, Mand- ólínata op. 1. eftir Wölki, nýtt lag eftir Oliver Guð- mundsson auk rúgsneskra laga, og léttrar tónlistar. í hljómsveitinni eru nú 21 meðlimur, er skiptast þannig: 10 mandólín, 7 gítarar, mandólur, mandó-celló og kontrabassi. ‘Hljómleikarnir verða ekki endurteknir. 'Fimmtudagur 5. maí 1949. EVELYN WAUGH: 20. DAGUR. KEISARARIKID AZANIA ASM. JONSSON þýddi. blóm í hnappagatinu. Formaður miðstjórnar íhaldsflokksins í tuttugu og fimm ár. Hver hefði trúað því að óreyndu, að hann eignaðist son á borð við hr. Seal? Farinn í ferðalag um óákveð- inn tíma, bréí' ekki send lengra, skrifaði hann við nafn Basils í höfuðbókinni. Skömmu síðar kom öldungurinn úr reyksalnum. „Arthur, er þessi ungi maður meðlimur í klúbbnum?" „Hr. Seal ? ? Já — það er hann“. „Hvað sögðuð þér, að hann héti?“ „Hr. Basil Seal“. „Basil Seal, jæja — Basil Seal. Hann er þó ekki sonur Christophers Seal?“ „Jú“. „Jæja — er hann það?? Aumingja Seal, hvað pað er sorglegt. .Hver hefði trúað því? Einmitt Seal------?“ Hann drattaðist inn í reysalinn að eldinum, þar sem snúðarnir hans voru. .Hann var barmafullur af þessum huggunarríka hjartayl, sem logar í gömlu fólki, þegar þáð smjattar á ógæfu samtíðarmanna sinna. Basil gekk yfir Picadilly og inn í Curzon Street. Það -var kvöldboð hjá lafði Metroland. „Hvaða erindi átt þú hingað, Basil?“ sagði hún. „Eg tók fram, að ég byði þér ekki.“ „Það veit ég vel. Eg frétti bara á skotspónum, að það væri boð hjá þér. Erindið var að vita hvort systir mín væri hér?“ „Barbara? Það getur vel verið — hún sagðist að minnsta kosti ætla að koma. Þú lítur hrylli- lega út.“ „Óhreinn ?“ „Já“. „Órakaður?" „Já“. „Já ég er nývaknaður. Eg hef ekki komið heim ennþá.“ Hann leit í kringum sig. „Þessir venjulegu gestir. Þú eignast ekki marga nýja vini, Margot". „Er það satt, að þú sért hættur við að bjóða þig fram til þings?“ „Já, að vissu leyti — ég nenni því ekki. Eg sagði forsætisráðherranum hreinskilnislega álit mitt. Eg gat ekki hugsað til þess, að gera tolla- málin að baráttumáli. Hann átti tækifæri að stöðva frumvarpið um stundarsakir, en andstöðu- r.rmurinn var of sterkur, svo ég hætti við allt saman. — Annars ætla ég að fara til útlanda. Eg er búinn að vera of lengi í Englandi.“ „Vill hr. Seal hanastél?" „Nei, en gefið mér pernod. Jæja — er ekkert til. Þá whisky, inn í karlastofuna. Eg þarf að komast í síma. Kem strax aftur, Margot“'. „Það veit hamingjan, að ég er bálreið við þenn- an unga mann“, sagði lafði Metroland. Það voru tvær ungar stúlkur að tala um hann. „Hvað hann er sætur.“ „Hver?“ „Hann er rétt farinn“. „Þú átt þó ekki við Basil Seal?“ „Heitir hann það?“ „Þessi í voðalegu fötunum og með svart hár niður í augu“. „Já — segðu mér eitthvað um hann“. „Elskan mín, hann er alveg yndislegur — hann tr bróðir Barböru Sathill, sem þú þekkir. Hann lenti nýlega í feikna miklu klandri. Hann var boðinn fram til þings einhvers staðar í norður- héruðum Englands. Pabbi segir, að hann geti ekki komizt hjá því, að verða kosinn við næstu kosningar — Angela Lyne kostaði hann, en það er einhver urgur í þeim. Mér fannst nú aldrei, að hún og Basil ættu saman — finnst þér þau tkki ólík, ha? Og nú er það allt farið út um þúfur“ „Hvað hann var yndislega óhreinn". . Það tóku fleiri til máls um Basil. „Nei — sannleikurinn er sá, að Basil er blátt áfram leiðinlegur. Fólk tekur ekkert til þess, þó hann sé dónalegur. Og hann vill alltaf vera að fræða menn á einhverju. Eg var einu sinni borð- úaman hans í kvöldboði, og hann talaði allan tímann um indverskar mállýzkur. Hvað átti ég að taka til bragðs? Eftir á spurðist ég fyrir um þessi mál, og komst að því, að hann hafði ekkert vit á þeim.“ „Já, hann er einkennilegur í háttum“. „Já, og það finnst mér einmitt svo leiðinlegt. Hann er æfinlega reiðubúinn að taka þátt í bylt- ingum og manndrápum og þessháttar. Og hvað á eiginlega að taka til bragðs með hann ? Angela. auminginn er algjörlega örvingluð yfir háttalagi hans. Eg kom til hennar í gær, og hún gat ekki talað um annað en rifrildið, sem hann átti í við kosninganefndina í flokknum, sem hann fylgir. Hann hegðaði sér víst eitthvað einkennilega á dansleik í íhaldsflokknum. Síðan héldu hann og A lastair Trumpington og Peter Pastmaster og einhverjir fleiri fimm daga veizlu og skildu eftir heilan hóp af ávísunum, sem þeir áttu ekki fyr- ír, og óku bíl út af veginum og einn þeirra lenti í Steininum — þú veizt hvernig veizlui’nar hans Basils eru. Svona lagað getur slampazt af hérna í London — en þú veizt nú sjálf, hvernig smærri borgirnar eru. Endirinn varð sá, að þeir báðu hann að afturkalla framboðið. Þetta er afskap- lega leitt, því aumingja Angela er ennþá ákaflega nrifin af lionum“. „Hvar endar þetta eiginlega fyrir honum?“ „Jahá — það var einmitt það. Barbara segist ckki róta litla fingri framar honum til hjálpar." DAVIÐ

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.